Morgunblaðið - 31.08.2003, Page 45

Morgunblaðið - 31.08.2003, Page 45
BRÉF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 45 Fyrirtæki til sölu Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:  Traust jarðverktakafyrirtæki á Austurlandi óskar eftir duglegum og heið- arlegum meðeiganda sem hefur reynslu á þessu sviði. Viðkomandi verður að leggja fram a.m.k. 10 m. kr. í peningum. Mjög góð verkefna- staða og mikil tækifæri framundan.  Ein besta lúgusjoppa landsins. Mikil sala í grilli. Góður hagnaður.  Tveir taílenskir skyndibitastaðir ásamt ísbúð. Mikil velta og ört vaxandi.  Vélaverkstæði í Keflavík með alhliða málmsmíði. Vel tækjum búið.  Lítil heildverslun með prenthylki o.fl. Góð framlegð. Fyrirtækið er í dag með næga veltu til að framfleyta eiganda en auðvelt er að stækka það verulega.  Gott fjárfestingartækifæri. Stórt hótel á landsbyggðinni í öruggri útleigu. Skipti á fasteign í Reykjavík koma til greina.  Hálendismiðstöðin Hrauneyjum er fáanleg til rekstrarleigu með kaup- rétti. Gisti- og veitingastaður með mikla sérstöðu og góðan rekstur. Mjög gott tækifæri fyrir samhenta fjölskyldu sem hefur gaman af há- lendinu og langar að eignast eigið fyrirtæki.  Gott fyrirtæki með flúðasiglingar til sölu að hluta eða að öllu leyti. Mikill vöxtur - miklir möguleikar.  Þekkt heildverslun með tæki og búnað fyrir byggingaverktaka.  Rammamiðstöðin, Síðumúla, óskar eftir sameiningu eða samstarfi við rekstur sem fer saman við rammagerð - gallerí.  Lítil en þekkt heildverslun með trésmíðavélar o.fl. Góð umboð. Tilvalið fyrir trésmið sem vill breyta um starf.  Sérverslun með vörur til víngerðar. Eigin innflutningur.  Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr.  Glæsileg snyrtivöruverslun á Laugavegi. Eigin innflutningur að hluta.  Þekkt sérverslun með 100 m. kr. ársveltu. Rekstrarhagnaður 14 m. kr.  Mjög gott bakarí í stóru sveitarfélagi á landsbyggðinni.  Lítil en góð heildverslun með gjafavöru, tilvalið fyrir 1—2 eða sem við- bót við annan rekstur. Auðveld kaup.  Þekkt og rótgróin gjafavöruverslun með mjög vandaðar vörur.  Gæludýraverslun í Keflavík. Skemmtilegt tækifæri fyrir dýravini.  Vörubílaverkstæði með föst viðskipti. Auðveld kaup.  Rótgróinn lítill matsölustaður í Hafnarfirði. Mjög gott fyrirtæki fyrir kokk eða fólk sem kann að elda góðan heimilismat.  Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.  Stór og þekkt brúðarkjólaleiga með ágæta afkomu. Miklir möguleikar.  Ísbúð, myndbönd og grill á góðum stað í austurbænum. Gott tækifæri. Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu fyrirtækjadeildar: www.husid.is Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen) Sími 533 4300, GSM 820 8658 MT stofan, Síðumúla 37, býður upp á hóptíma í æfingasal stofunnar. Einstaklingsmiðuð þjálfun. Fáir í hverjum tíma. Sértæk styrktarþjálfun sem eykur stöðugleika mjóbaks. Þjálfað samkvæmt nýjustu aðferðum.  Fyrir viðkvæm ofhreyfanleg bök (instabilitet).  Eftir tognanir.  Eftir brjósklosaðgerðir.  Eftir brjóskþófaröskun.  Við slitgigt. 10 vikna þjálfun. Hádegis- og eftirmiðdagstímar. Æft tvisvar sinnum í viku — möguleiki á fleiri skiptum. Skráning hefst 1. september. Þátttakendur teknir í viðtal og prufutíma vikuna 1.—5. september. Leiðbeinandi: Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari. Upplýsingar og skráning á MT stofunni í símum 568 3660 og 568 3748. Bakþjálfun Þjálfun stöðugleika mjóbaks Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN „Fjandinn hirði þennan vals“ SJÁ BLS. 11 Í ÁRSBÆKLINGI SINFÓNÍUNNAR SEM FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG Einkatímar Haustönn hefst 15. september fyrir byrjendur og lengra komna. Innritun í síma 690 7424 Harmonikukennsla Í byrjun september hefst hópþjálfun að nýju í Sjúkraþjálfun Styrk í Stangarhyl 7, Reykjavík. Í boði verða:  Vefjagigtarhópar.  Hjartahópar.  Háls-, herða- og bakhópur.  Þrek og teygjur.  Leikfimi fyrir eldri borgara.  Parkinsonshópur og góð leikfimi fyrir konur. Takmarkaður fjöldi verður í hópana og vel er fylgst með hverjum og einum en leiðbeinendur eru allir sjúkraþjálfarar. Innifalinn er aðgangur að tækjasal. Nýir þátttakendur eru velkomnir. Einnig er hægt að kaupa mánaðarkort/ árskort í vel útbúinn tækjasal. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 587 7750. Hópþjálfun - Tækjasalur VEGNA ummæla og skrifa um Dalsmynni síðustu mánuði, gátum við ekki orða bundist lengur. Óhróðurinn sem Ásta, Tómas og þeirra dætur hafa þurft að þola frá fólki, er til háborinnar skammar. Persónulegar árásir sem ættu ekki að líðast. Hefur verið rætt um að hund- arnir séu gallaðir og standist ekki ræktunarmið. Það er nú ekki rétt. Eigum við samtals átta hunda af ýmsum tegundum, alla frá Dals- mynni. Eru þeir allir heilbrigðir og með góða skapgerð og þeirra ræktunarmið standast. Þetta eru hundar sem hafa fengið góða dóma á þeim sýningum sem þeir hafa farið á. Höfum við rætt við fólk sem á hunda frá Dalsmynni og skipta þeir tugum, ánægðir hundaeig- enda. Það hafa komið hvolpar frá Dalsmynni sem eru ekki heilbrigð- ir en það á líka við um aðra rækt- endur. Við vitum að í lífríkinu fæð- ast bæði menn og dýr sem eru ekki alveg heilbrigð, það gerist ekki bara hjá Dalsmynni. Í bréfi til blaðsins skrifar Berg- þóra Bachman „að hún hafi ekki fengið að skoða nokkurn skapaðan hlut að vild“ eins og hún orðar það. Erum við ekki hissa á því, ef stöðug umferð yrði um herbergin þar sem tíkurnar eru með hvolpa yrði ónæði og tíkurnar yrðu bara hræddar. Teljum við það bera vott um umhyggju fyrir dýrunum að vera ekki með stöðugt áreiti. Það veit hver einasti sem hefur áhuga á hundum að tíkur sem eru hvolpafullar eða eru með hvolpa þurfa sem mesta ró og hvíld. Höfum við oft komið í Dals- mynni og hefur alltaf verið tekið vel á móti okkur, Ásta er hvers manns hugljúfi og alltaf tilbúin að aðstoða eftir bestu getu. Aðdáun- arvert er að horfa á þau hjón hugsa um og tala við dýrin. Greini- legt er að hundarnir elska þau mikið. Með von um að þau fái frið til ræktunar í framtíðinni. GUÐMUNDA H. BIRGISDÓTTIR, Þorlákshöfn. SÆDÍS KR. GÍGJA, Hveragerði. Dals- mynni Frá Guðmundu H. Birgisdóttur og Sædísi Kr. Gígju: alltaf á föstudögum AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.