Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 49
Kvikmyndir
Háskólabíó – breskir bíódagar
Sweet Sixteen / Sextán Leikstjórn: Ken Loach. Handrit: Paul Lav-
erty. Aðalhlutverk: Martin Compston,
William Ruane, Annmarie Fulton, Mich-
elle Abercromby og Michelle Coulter.
Lengd: 106 mín. Bretland. Lions Gate
Films, 2003.
BRESKI leikstjórinn Ken Loach
hefur fyrir löngu sannað snilld sína, á
langan feril að baki bæði við sjón-
varpsefnis- og kvikmyndagerð í Bret-
landi og hefur haft mikil áhrif á sam-
starfsmenn sína og samlanda í faginu.
En jafnvel eftir allan þennan tíma er
eitt öðru fremur sem einkennir list-
sköpun hans, þ.e. einhver djúpstæð
umhyggja og ástríða gagnvart öllum
lifandi verum, ekki síst þeim sem leita
hamingju og tilveruréttar í neðstu
þrepum samfélagsins. Og sem kvik-
myndagerðarmaður hefur Loach
fundið leið til að fanga hið tragíska og
hið fagra í hráum og gráum hvers-
dagsleikanum, og skapa úr því sögur
sem eru í senn almennar og sértækar
og snerta áhorfandann inn að hjarta-
rótum.
Í Sextán hefur Loach fengið hand-
ritshöfundinn Paul Laverty til liðs við
sig, en samstarf þeirra undanfarin ár
hefur skilað hverri áhugaverðri
myndinni á fætur annarri, s.s. My
Name is Joe, Bread and Roses og
Carla’s Song. Sextán er að sögn
þeirra Loachs og Lavertys annar
hlutinn í þríleik sem hófst með My
Name is Joe og beinir sjónum að lífi
lágstéttarfólks í Glasgow. Aðalsögu-
hetja myndarinnar er pilturinn Liam
(Martin Compston), sem ekki er orð-
inn sextán, en er á góðri leið með að
verða fullorðinn fyrir aldur fram í við-
leitni við að halda fjölskyldu sinni
saman og reyna að skapa sér og ást-
vinum sínum betri lífsskilyrði. Ferill
fjölskyldunnar hefur þó ekki verið
gæfulegur hingað til, atvinnuleysi og
fátækt sá veruleiki sem þau þekkja,
faðirinn er horfinn út úr jöfnunni,
móðirin hefur verið í fíkniefnum og
skemmandi ástarsamböndum, og er
að afplána fangelsisdóm þegar sagan
hefst.
Eldri systir Liams, Chantelle
(Annmarie Fulton), hefur reyndar
tekið sams konar ákvörðun og Liam,
er ljónsterk í baráttu sinni fyrir betri
tilvist, en fer þá leið sem Liam neitar
að feta, þ.e. að horfast í augu við stað-
reyndir lífsins. Í félagi við æskuvininn
Pinball (William Ruane) lætur Liam
sig reka sífellt lengra í þá átt sem „at-
vinnutækifærin“ virðist helst vera að
finna, þ.e. við sölu
og dreifingu eitur-
lyfja.
Þótt Sextán
gæti að efninu til
flokkast með
mörgum áþekk-
um kvikmyndum
sem fjalla um inn-
vígslu ungs eld-
huga í vafasama
glæpastarfsemi,
hefur hún margt
fleira til að bera.
Er það sérstak-
lega hinn tilfinn-
ingalegi kjarni sem gefur kvikmynd-
inni gildi og þeir Loach og Laverty
leggja mest upp úr. Líkt og í öðrum
sögum þeirra félaga, ekki síst My
Name is Joe, er hér unnið með sterka
raunsæishefð, en þó er örlagasagan
allt að því sígild, að því leyti að aðal-
söguhetjan ber öll helstu merki harm-
leikjarhetjunnar. Hún er kraftmikil,
og heillandi en drifin áfram af skap-
gerð sem dag einn mun verða henni
að falli. Þannig tekst Loach á að því er
virðist fyrirhafnarlítinn hátt að tvinna
saman tilfinningaþrungnu drama og
jarðbundinni raunsæismynd, sem er
útfærð og tjáð í gegnum smæstu smá-
atriði, allt frá látlausum svipbrigðum
leikaranna, til vandlega úthugsaðrar
sviðsmyndarinnar.
Leikarinn ungi Martin Compston
er vel valinn sem miðjan í þessum
ljúfsára heimi, og fer hann frábær-
lega með hlutverk Liams. Auk þess
að sýna kraftmikinn og eðlilegan leik
geislar af honum sjarmi sem áhorf-
andinn límist við og fylgir í gegnum
súrt og sætt. Það verður áhugavert að
sjá lokamyndina í þessum Glasgow-
þríleik, en My Name is Joe og Sextán
mynda þegar mjög sterkt samspil.
Frábærar kvikmyndir báðar tvær.
Lífsbaráttan í Glasgow
Sextán: Kraftmiklir ungir fimmtán ára gamlir dreng-
ir sem nýta þau atvinnutækifæri er bjóðast.
Heiða Jóhannsdóttir
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – breskir bíódagar
Allt eða ekkert / All or Nothing Leikstjórn og handrit: Mike Leigh. Kvik-
myndatökustjóri: Dick Pope. Tónlist:
Andrew Dickson. Aðalleikendur: Timothy
Spall, Lesley Manville, Alison Garland,
James Corden, Ruth Sheen, Marion
Bailey, Paul Jesson, Sam Kelly, Helen
Coker, Sally Hawkins, Kathryn Hunter.
128 mínútur. MGM/UA. Bretland 2002.
ÁHORFENDUR sem þekkja til
verka breska snillingsins Mikes
Leighs gætu hæglega ímyndað sér
að titill nýjustu myndar hans eigi sér
rætur í vel þekktri kaldhæðni kvik-
myndaskáldsins, en svo er ekki. Þó
svo að aðalpersónurnar í Allt eða
ekkert séu fátækt, breskt alþýðufólk,
axlandi sinn hluta af brostnum von-
um og kaldranalegum veruleika, eru
þær stoltar manneskjur sem reyna
að halda í sjálfsvirðinguna og láta
ekki baslið knésetja sig.
Leigh fæst sem oftar við aðsteðj-
andi og uppsöfnuð fjölskylduvanda-
mál láglaunafólks þar sem birtuskil-
yrðin virðast í fljótu bragði lítil ef
nokkur en er fundvís á augnablikin
sem gefa lífinu von og gildi. Leigh er
meistari í að sniðganga hismið sem
skiptir ekki máli: Þó svo að það sé
ekki mikið að gerast að því er virðist
þá hefur hvert einasta atriði ótrúlegt
mikilvægi.
Phil (Timothy Spall), er fámáll,
þéttholda leigubílstjóri sem á í vand-
ræðum með að láta endana ná saman
og verður jafnvel að harka út smá-
peninga hjá fjölskyldunni til að eiga
fyrir bensíni á bílinn. Hann er heim-
spekilega sinnaður og hefur tekið að-
stæðunum af rósemi, fullmikilli að
áliti Pennyar (Lesley Manville), konu
sinnar. Hún vinnur í stórmarkaði og í
sameiningu tekst þeim „að forðast
hungurvofuna“, eins og Phil orðar
það. Þau eiga tvö börn um tvítugt,
bæði eru offitusjúklingar og búa
heima hjá foreldrum sínum í blokkar-
íbúð á vegum félagslega kerfisins.
Dóttirin Rachel (Allison Garland), er
bljúg og feimin og vinnur við ræst-
ingar á elliheimili en sonurinn Rory
(James Corden), er viðskotaillur leti-
haugur sem liggur öllum stundum í
sófanum og glápir á sjónvarpið.
Einn daginn veikist sonurinn hast-
arlega og þá sannast máltækið að
„fátt er svo með öllu illt …“, því lífs-
reynslan verður til þess að þjappa
fjölskyldunni saman og leiðir til upp-
gjörs sem hreinsar rykfallið and-
rúmsloftið á milli hjónanna.
Allt eða ekkert gefur bestu verk-
um Leighs lítið eftir, hann heldur
áfram að draga upp fjölbreytt por-
trett á hvíta tjaldið með einföldum en
sterkum dráttum. Hver og einn ein-
staklingur er með sín áberandi per-
sónueinkenni góð og slæm, ekkert
framúrskarandi en er ósköp venju-
legt fólk sem af einhverjum ástæðum
er um megn að rífa sig upp úr djúp-
um hjólförum hversdagsgrámans.
Sækir efniviðinn í almúgann sem er
yfirleitt ekki til umfjöllunar og Holly-
wood kann hreinlega ekki að með-
höndla öðru vísi en að koma að ein-
hverju óvæntu láni áður en yfir
lýkur, gjörsamlega á skjön við raun-
veruleikann. Hér er hins vegar engin
glansmynd dregin, bjartsýnin sem
ríkir í myndarlok er í rökréttu fram-
haldi af því sem á undan er gengið.
Phil og Penny eru einfaldlega gott og
raunsætt fólk sem brýtur sín vanda-
mál til mergjar á svo sönnum og
mannlegum nótum að uppgjörsatr-
iðið á milli þeirra á eftir að fylgja
áhorfandanum út í lífið, svo sterkt er
það og á eðlilegum og skynsamlegum
nótum.
Rachel og Rory, líkt og mislit
hjörð nágrannanna, fá öll sinn skerf
af minnisstæðum línum og litlum en
sláandi atriðum sem eru engu síður
það mikilvæg, vel skrifuð, unnin og
stórkostlega leikin af hverjum og ein-
um að maður hefur á tilfinningunni
að það sé heimildarmynd en ekki
skáldskapur sem rennur eftir tjald-
inu.
Kreppa í
fjölskyld-
unni
Allt eða ekkert: Brostnar vonir
og kaldranalegur veruleiki bresku
alþýðunnar.
Sæbjörn Valdimarsson
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.