Morgunblaðið - 31.08.2003, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 55
um í Bandarísku brúðkaupi og segir
Levy að hann hafi einnig verið
ríkjandi á tökustað. „Einna mest var
það með Jason. Mér finnst ég vera
föðurímynd þegar ég er í kringum
hann,“ segir Levy. Hann segir þó í
heildina að hann reyni frekar að vera
vinur leikaranna heldur en pabbi
þeirra og hrósar þeim. „Þrátt fyrir að
þetta séu allt ungir leikarar eru
krakkarnir mjög fagmannlegir og
taka vinnuna alvarlega,“ segir hann.
„Já, ég á eftir að sakna þeirra,“
segir hann aðspurður. „Við vorum að
tala um það í dag. Það er sorglegt að
núna sé þetta búið því þetta hefur
verið mjög gaman. Við eigum alltaf
eftir að eiga þetta sameiginlegt. Mér
finnst ég heppinn að hafa tekið þátt í
myndunum og þær hafa gert mikið
fyrir feril þeirra sem tóku þátt í
þeim. Jason er sífellt að gera stærri
hluti og Seann William Scott [sem
leikur Steve Stifler] einnig,“ segir
Levy en sem dæmi leikur Biggs í nýj-
ustu mynd Woodys Allens. „Þetta
var sannarlega vendipunktur í mín-
um ferli.“
Ekki bara grófir brandarar
Adráttarafl myndarinnar felst í
grófum bröndurunum, sterkum vin-
skap krakkanna, rómantík og síðast
en ekki síst, húmor. Aðspurður tekur
Levy undir þetta. „Það var lagður
grundvöllurinn að velgengninni í
fyrstu myndinni. Leikararnir voru
vel valdir og áhorfendunum þykir
vænt um persónurnar. Allt grófa
grínið sem er líka í myndunum er
bara toppurinn á ísjakanum, ekki að-
alatriðið,“ segir hann.
Levy segir að sambandið sem Jim
á við föður sinn og það að hann eigi
eðlilega fjölskyldu hafi líka hitt í
mark hjá áhorfendum. „Hann veigr-
ar sér aldrei við að tala um neitt,
þrátt fyrir að það sé vandræðalegt
fyrir Jim,“ segir Levy um persónu
sína í myndinni. „Hann meinar alltaf
vel. Hann reynir alltaf að gera það
sem rétt er og sonur hans er það mik-
ilvægasta í lífi hans. Hann sýnir líka
stuðning og skilning,“ segir hann.
„Ég held að áhorfendum hafi líka lík-
að það vel. Það eru ekki allir krakkar
sem búa við slíkt heima hjá sér,“ seg-
ir Levy, sem sjálfur á tvö börn.
Leyfir pabba sínum að klára
Hann segir að í raunveruleikanum
geti hann ekki alltaf talað við börnin
sín á þennan hátt. „Við tölum ekki
um hluti úr persónulegu lífi
barnanna. Þótt ég spurji þau þá
humma þau það bara fram af sér eða
svara oftar en ekki með eins atkvæð-
is orðum,“ segir hann. „Jim er nógu
kurteis að leyfa pabba sínum að klára
það sem hann vill segja. Í raunveru-
leikanum er hætta á því að krakk-
arnir myndu stoppa foreldrana af
miklu fyrr,“ grínast hann.
Levy segir að myndin lýsi annars
bandarísku lífi vel þó hún sé að sjálf-
sögðu ýkt. „Það eru ákveðin atriði í
myndinni, sem myndu áreiðanlega
ekki eiga sér stað. En ég held að ekki
bara í Ameríku heldur miklu víðar í
heiminum séu til krakkar sem svipar
til þessa hóps. Í öllum vinahópum er
einn Stifler, einn Finch og einn Jim.“
Pabbi Jim (Eugene Levy) faðmar stoltur son sinn (Jason Biggs) og Michelle (Alyson Hannigan) að sér og óskar þeim til
hamingju með trúlofunina.
ingarun@mbl.is
LEIKKONAN Gwyneth Paltrow
ætlar að leika í svalaatriðinu úr
Rómeó og Júlíu í sérstakri góðgerð-
arsýningu fyrir Karl Bretaprins.
Sýningin fer fram í Globe-leikhúsinu
í Southwark í London á mánudag-
inn. Mótleikari Paltrow úr Ástföngn-
um Shakespeare, Joseph Fiennes,
ætlar að leika á
móti henni í
þessu fræga
atriði. Miðar á
viðburðinn
kosta um
40.000 krónur
og rennur að-
gangseyririnn
til góðgerðar-
samtaka prins-
ins.
FÓLK Ífréttum
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 10. B.i. 14.
Tvær löggur - Tvöföld spenna
Tvöföld skemmtun
Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 10.45. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12
Sýnd kl. 4, 6 og 8.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
POWERSÝNINGKL. 10.45.
I
. . .
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA
TVÆR VIKUR Á TOPPNUM
Mestu illmenni kvikmyndasögunnar mætast í
bardaga upp á líf og dauða.
www.laugarasbio.is
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 9.15 og 10.30.
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
ATH! Munið eftir Sinbað
litasamkeppninni á ok.is
SV. MBL
Ofurskutlan
Angelina Jolie
er mætt aftur
öflugri en
nokkru sinni fyrr
í svakalegustu
hasarmynd
sumarsins!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
J I M C A R R E Y
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Með íslensku tali.
Fyndnasta mynd sumarsins frá leikstjóra
Liar Liar og Ace Ventura
Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin!
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Fjölskyldumynd ársins!
Forsýning kl. 4. Með íslensku tal.
FORSÝND KL. 4
MIÐASALAN OPNAR KL. 2.
Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin!
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Fjölskyldumynd ársins!