Morgunblaðið - 04.09.2003, Blaðsíða 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 17
„ÉG hef verið að brölta í þessu í 25 ár,
opinberlega, og ætla að sýna fer-
ilinn,“ segir Stefán Geir Karlsson en
Listasafn Reykjanesbæjar opnar yf-
irlitssýningu á verkum hans í Duus-
húsum í Keflavík föstudaginn á
Ljósanótt.
Stefán Geir ólst upp í Keflavík, „á
dósakóki og hamborgurum löngu áð-
ur en það varð þekkt fæða hér á
landi“, eins og hann kemst sjálfur að
orði. Hann lærði plötu- og ketilsmíði
og útskrifaðist síðar sem skipatækni-
fræðingur frá Helsingör Teknikum.
Hann hefur lengi fengist við myndlist
og er einkum þekktur fyrir skúlptúra
sem unnir eru undir áhrifum popp-
listar. Þannig hefur hann meðal ann-
ars stækkað upp hversdagslega hluti
og þannig krafið áhorfandann um að
horfa á þekkt viðfangsefni öðrum
augum en áður, eins og segir í til-
kynningu Listasafnsins um sýn-
inguna.
Meðal þekktra verka eru stærsta
dómaraflauta í heimi sem sýnd var
þegar HM í handbolta var haldið hér
á landi, stærsta blokkflauta í heimi og
stærsta herðatré í heimi. Öll þessi
verk eru skráð sem met í Heims-
metabók Guinness. Stefán Geir segist
vera hættur að nenna að skrá heims-
met en telur líkur á að tvö verk sem
hann sýnir í Keflavík fengju við-
urkenningu. Eru það olíutrekt og
kokteilglas sem bæði eru væntanlega
stærstu sinnar gerðar í heiminum.
Staupið er 3,5 metrar á hæð og 2
metrar í þvermál og tekur um 2.000
lítra. Ekkert vín verður í því, aðeins
upplýst kokteilber á stöng. „Það á að
drekka í sig ljósið á þessum haust-
dögum,“ segir listamaðurinn. Verkin
eru svo stór að þau komast ekki inn í
sýningarsal Listasafnsins í Duus-
húsum. Staupið verður í samtengdum
sal Byggðasafns Reykjanesbæjar þar
sem Bátafloti Gríms Karlssonar er
sýndur en olíutrektin verður sýnd úti.
Regnbogabassi á torginu
Þá er Stefán Geir að útbúa úti-
listaverk á hringtorgið í nágrenni
Duus-húsa og vonast til að það komist
upp fyrir ljósanótt. Er það strengja-
stóll af kontrabassa sem hann hefur
stækkað vel upp og stingur í hinn
frjósama tónlistarjarðveg í Keflavík.
Á hann verða síðan festir strengir
sem verða lýstir upp í litum regnbog-
ans. Segist Stefán Geir meðal annars
hugsa til fermingarbræðra sinna,
Hljómanna Gunnars Þórðarsonar og
Rúnars Júlíussonar, þegar hann vinni
að þessu verki.
Inni í sýningarsalnum verða um 40
verk, stór og smá. Skúlptúrar og mál-
verk.
Stefán Geir er ánægður með að
hafa fengið boð um að sýna í Lista-
safni Reykjanesbæjar. Segir greini-
legt að vel sé staðið að rekstri sýning-
arsalarins sem sé orðinn sambæri-
legur listasöfnunum í Reykjavík og á
Akureyri.
Sýning Stefáns Geirs Karlssonar
verður formlega opnuð í sýningarsal
Listasafns Reykjanesbæjar í Duus-
húsum föstudaginn 5. september
klukkan 17. Salurinn er opinn alla
daga frá klukkan 13 til 17 og lengur á
Ljósanótt. Sýningin stendur til 19.
október.
Listasafn Reykjanesbæjar með yfirlitssýningu á verkum Stefáns Geirs Karlssonar
Stærsta staup
í heimi sýnt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listamaðurinn Stefán Geir Karlsson leggur lokahönd á kokteilstaupið í
Bergplasti við Súðavog. Honum til aðstoðar er Þorsteinn Berg fram-
kvæmdastjóri en hann stendur vinstra megin við staupið.
Reykjanesbær
LJÓSANÓTT, menningar- og fjöl-
skylduhátíð Reykjanesbæjar, hefst í
dag. Fjölbreytt dagskrá verður fram
á sunnudag en aðalhátíðisdagurinn er
á laugardag.
Í dag verða fyrstu sýningarnar
opnaðar, meðal annars samsýning fé-
laga í Félagi myndlistarmanna í
Reykjanesbæ, fréttaljósmyndasýn-
ing Víkurfrétta og Bærinn minn sem
er ljósmyndasýning Sölku Bjartar
Kristjánsdóttur sem er fimm ára íbúi
í Reykjanesbæ.
Formleg opnun ljósanætur verður í
Íþróttahúsinu við Sunnubraut í Kefla-
vík í kvöld klukkan 20, í tengslum við
upphaf hnefaleikakeppni milli Suður-
nesjamanna og Dana.
Ljósanótt
hefst í dag
Reykjanesbær
UM tuttugu handverks- og lista-
menn taka þátt í sýningu Handverks
og hönnunar sem verður opnuð í
Hafnargötu 20 í Keflavík í dag. Sýn-
ingin er liður í dagskrá ljósanátta í
Reykjanesbæ.
Til sýnis er bæði hefðbundinn list-
iðnaður og nútíma hönnun úr fjöl-
breyttu hráefni. Meðal þess sem
sýnt er, eru munir úr tré, roði, silki,
ull, hör, leir, selskinni, hreindýra-
skinni og gleri.
Sýningin er opin alla daga frá
klukkan 13 til 17 nema laugardaginn
6. september, þá er opið til klukkan
18 og aftur frá 20 til 22 um kvöldið.
Sýningin stendur til 14. september.
Handverk og
hönnun opn-
ar sýningu
Keflavík
EFNI af víkingasýningu Smithson-
ian-safnsins í Bandaríkjunum er kom-
ið í geymslur hjá Reykjanesbæ. Það
verður notað til að setja upp víkinga-
sýningu í fyrirhuguðu nausti víkinga-
skipsins Íslendings í Njarðvík.
„Það er ánægjulegt að þetta skuli
vera komið í hús,“ segir Árni Sigfús-
son, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Hann gerði á sínum tíma samning við
Smithsonian-stofnunina um að fá ým-
islegt efni frá víkingasýningu safnsins
þegar henni lyki. Sýningin var sett
upp á nokkrum stöðum í Bandaríkj-
unum og Kanada og sló öll aðsókn-
armet.
Það sem Smithsonian sendi til Ís-
lands er umgjörð sýningarinnar, til
dæmis leikmyndir, leikmunir og
textaspjöld. Sýningarhaldarar fengu
sýningargripi að láni hjá ýmsum söfn-
um, meðal annars Þjóðminjasafninu
og Árnastofnun. Árni vonast til að
hægt verði að fá þessa muni á sýn-
inguna í nausti Íslendings. Þar verður
skipið sjálft þó aðalsýningargripur-
inn.
Árni segir að undirbúningur að
byggingu sýningarskálans gangi
samkvæmt áætlun. Byggingarnefnd-
arteikningar séu tilbúnar og verið að
undirbúa deiliskipulag. Þá vonast
hann til að fjármögnun liggi skýrar
fyrir um áramót. Segir Árni að allur
undirbúningur miðist við að hægt
verði að hefjast handa við fram-
kvæmdir í vor.
Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Munkur og víkingur eru meðal þeirra leikmuna sem bíða eftir að fá varanlegan samastað í nausti Íslendings.
Leikmunir fyrir víkinga-
sýningu komnir í geymslur
Njarðvík
♦ ♦ ♦
GEFINN hefur verið út geisla-
diskur með tíu lögum sem nefnd
taldi best af þeim áttatíu og fimm
sem send voru inn í sönglagakeppni
Ljósanætur. Diskurinn er til sölu
hjá körfuknattleiksdeild UMFN.
Ljósalagið er valið úr þessum tíu
lögum og niðurstaðan verður kynnt
á kvöldskemmtun í félagsheimilinu
Stapa annað kvöld.
Almenningi er
gefinn kostur á
að taka þátt í vali
lagsins með því
að greiða at-
kvæði á Netinu,
slóðin er
www.tonlist.is. Niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar hefur ákveðið
vægi á móti áliti fagdómnefndar.
Unnt er að greiða atkvæði til klukk-
an 18 á morgun, föstudag.
Atkvæði greidd
um Ljósalagið á Netinu
Reykjanesbær