Morgunblaðið - 04.09.2003, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 25
SIV Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra, þökk fyrir hið bráðnauð-
synlega rétta skref, þótt stutt sé.
Strax kom yfirlýs-
ing frá bændum, að
mörgum þeirra þótti
vænt um þær fréttir.
Umhverfisráðherra
fær miklu fleiri vini
en óvini út á alfriðun
rjúpunnar. Jónas
Hallgrímsson, rjúpnaskotaframleið-
andi á Húsavík, kvartar harðlega yf-
ir of stuttum fyrirvara á banninu.
Hann hefur framleitt 100–300 þús-
und skot á ári ætluð til höfuðs rjúp-
unni.
Ásgeir Halldórsson hjá Sport-
vörugerðinni tók í sama streng.
Hann situr uppi með 200 þúsund
rjúpnaskot. Hann gerði ráð fyrir að
selja rjúpnaskot til smásala fyrir um
sjö milljónir.
Hér sést bakhliðin á rjúpna-
blóðbaðinu mikla í áratugi fyrir hver
jól. Rjúpan er sjálf búin að gefa
margfaldan fyrirvara um útrýming-
arhættu. Enda segja þessir menn,
að það hefði verið í lagi að stytta
veiðitímann og friða einhver svæði.
Þeir vita sem er að rjúpan næst fyrir
því. Rjúpnaskytta skrifaði í fyrra um
ólöglegar aðferðir margra rjúpna-
veiðimanna. Þeir færu upp um fjöll
og firnindi á jeppum og vélsleðum,
eltu rjúpuna á þessum tækjum,
veiddu allan hópinn, hvar sem þær
væru margar saman. Ekki þyrftu
þeir að bera veiðina, heldur hlaða á
jeppana eða sleðann. Í fyrra þóttu
veiðisvæði þröng, svo að skotmenn
voru í hættu hver af öðrum. Þar fyr-
ir utan eru svo óvanir og óskyggnir
veiðimenn. Einn skaut kálf á heima-
bæjartúni í fyrra. Þegar hann ætlaði
að hirða rjúpuna sá hann álengdar
hvers kyns var, missti kjarkinn og
flúði en kálfurinn dó af sárinu, auð-
vitað með miklum þjáningum áður
en gengið var fram á hann. Nokkur
ár eru síðan álíka skytta skaut tvær
rjúpur á bæjarhlaði, fætur undan
annarri, en væng af hinni. Mega slík-
ir menn þakka fyrir, að verða ekki
gáleysismorðingjar. En þetta gefur
til kynna hvernig margar rjúpur
flýja dauðsærðar.
Rjúpnatalning hefur leitt í ljós
fyrir löngu að alfriðun er nauðsyn-
leg. Nefndir rjúpnaskotasalar kalla
þessa þriggja ára friðun rjúpunnar
„gífurlegt kjaftshögg“. Það er þeim
alveg mátulegt, að fá höggið sjálfir,
fyrir öll höglin sem áttu eftir ýmist
að særa eða drepa rjúpurnar. Eftir
þeim fjölda sem þeir telja hefðu
þessi högl dugað til að gjöreyða
þeim örlitla rjúpnastofni sem eftir
er.
Nokkrir kaupmenn hafa strax lof-
að að flytja inn rjúpur í þetta – að
því er virðist – kjötlausa land. Svo
hefir minkur og hettumávar gengið
frá fuglalífi landsins, að Íslendingar,
og ekki síst ráðamenn, ættu að bæta
fyrir forvera sína, sem fluttu inn
mink eftir miklar deilur. Ættu þeir
sem ráðin hafa að kanna allt, anda-,
rjúpna- og gæsadráp. Einnig þarf nú
að vernda alla okkar minni staðfugla
og vorfuglana líka. Því að hér eru
komnir menn margra þjóða, sem
skjóta lóur og sumir jafnvel smærri
fugla. Jónas Hallgrímsson á Húsa-
vík ætti að tileinka sér kvæði nafna
síns um rjúpuna: „Ein er upp til
fjalla yli húsa fjær“ o.s.frv. Það
kvæði hefur kennt mörgu fólki að
elska þessa fallegu, friðsömu,
vængjuðu veru, sem á sér fjölda
óvina í náttúrunn, eins og refi, fálka,
erni – og þann versta, minkinn –og
hettumáva, sem ganga minkum
næst í eggja- og ungaráni.
Nú óttast fuglavísindamenn að
fuglaskyttur snúi sér í auknum mæli
að anda- og gæsaveiðum. Stjórnvöld
ættu því að friða þessa jarðarprýði
ásamt rjúpunni, þegar Alþingi kem-
ur saman næst. Ernir og fálkar hafa
verið 50 til 60 ár að ná stofnstærð
eftir ofveiði. Þar komu engir óvinir
til nema menn. Á því geta þeir séð
sem telja, að rjúpnaveiðar hafi ekki
mikil áhrif á stofninn, hjá Skotveiði-
félaginu, hver sannleikurinn er í því
máli, þegar menn keppast hver við
annan að græða á dauða rjúpunnar.
Menn geta líka séð á því, að hinn
varnarlausi rjúpnastofn muni þurfa
áratugi til þess að ná aftur góðri
stærð. Og ættu menn í því sambandi
að eyða skotum sínum á minka og
hettumáva, til þess að bæta fyrir
brot sín gagnvart rjúpnastofninum,
og flýta uppgangi rjúpunnar með því
að eyða sem mest óvinum hennar.
Hætt er við, ef anda- og gæsa-
skyttur fara um fjöll, að rjúpna-
skyttur laumi sér þar með. Auðveld-
ast verður að ná fram alfriðun
rjúpunnar, með því að friða endur og
gæsir líka strax í þrjú ár. Þá yrði eft-
irlit auðveldara. Eins og Nátt-
úrufræðistofnun Íslands hefur bent
á eru veiðimenn þeir einu sem hægt
er að friða rjúpur, endur og gæsir
fyrir.
Umhverfisráðherra hafi heiður og
þakkir fyrir alfriðun rjúpunnar. All-
ar ásakanir fyrir þá ákvörðun eru
rangar. Hún gerði það sem hún átti.
Rjúpan loksins
alfriðuð í þrjú ár
Eftir Rósu B. Blöndals
Höfundur er rithöfundur.
NÁMSFERÐ TIL KÚBU Í NÓVEMBER
Brautarholti 4
47. starfsár
Sérnámskeið - 6 tímar
Tjútt - Tangó - Salsa
Social Foxtrott - Suður-amerískir
Gömlu dansarnir - Línudans
Samkvæmisdansar - Barnadansar
Áratuga reynsla og þekking tryggir
bestu fáanlega kennslu.
14 vikna námskeið fyrir fullorðna
og börn, yngst 4 ára.
Dansleikur í lokin.
Keppnisdansar
Hinir frábæru danskennarnar
Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir
sjá um þjálfunina. 14 vikna námskeið,
mæting 1x, 2x eða 3x í viku.
Freestyle/Hipp hopp
10 vikna námskeið, mæting 2x í viku.
Erla Haraldsdóttir sér um kennslu
á þessu skemmtilega námskeiði.
Brúðarvalsinn
Einkatímar fyrir verðandi brúðhjón
... bráðskemmtilegt og fjörugt.
Fyrir þá sem vilja skella sér í dansinn þá hringið í síma 551 3129
milli klukkan 16 og 22 daglega fram til mánudagsins 8. september.
Kennsla hefst í Reykjavík miðvikudaginn 10. sept.
Einnig fer fram kennsla í Mosfellsbæ.
Erla
Freestyle - Hipp Hopp
ÞAKRENNUR
Frábært verð!
B Y G G I N G AV Ö R U R
www.merkur.is
594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is -
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Ljósheimar - glæsilegt útsýni
Í einkasölu glæsil. 100 fm íb. á 8. hæð í þessu
vandaða lyftuhúsi. Húsið er allt klætt að utan
og nær viðhaldsfrítt. Íb. er öll endurnýjuð að
innan. Glæsilegt eldhús og baðherb. Parket.
Tvennar svalir. Eign í sérflokki. V. 14,8 m.
Mávahlíð - mikið endurnýjuð íbúð
Í einkasölu falleg mikið endurnýjuð ca 90 fm
íbúð á 2. hæð í fallegu frábærlega vel staðs.
húsi í Hlíðum. Nýl. eldhús, baðherb. og fl.
Parket og flísar. Suðursvalir. Ekki láta þessa
íbúð fram hjá þér fara. Áhv. ca 8,1 m.
hagst. lán. V. 14,4 m.
Völvufell - 4ra herb. á aðeins 10,9 millj.
Falleg vel skipulögð ca 110 fm íb. á 3. hæð í
nýl. álklæddu fjölbýli m. yfirbyggðum svölum.
Nýl. flísalagt baðherbergi. Mjög góð
sameign. 3 svefnherb. Mjög góð stað-
setning þar sem stutt er í skóla, íþróttahús
og aðra þjónustu. Verð aðeins 10,9 millj.
Mánaðarlegir fundir Parísar, félag þeirra sem
eru einar/einir, eru á Kringlukránni kl. 11.30 f.h.
Næsti fundur verður 6. sept. • www.paris.is
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík