Morgunblaðið - 04.09.2003, Síða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 19
Gjöfin þín
Gefðu húð þinni þá frábæru meðferð sem hún á skilið. Kannaðu hvað nýjasti farðinn gerir fyrir þig.
Sjáðu sjálfa þig í nýju ljósi. Kaupirðu Estée Lauder vörur fyrir 3.800 kr. eða meira í verslunum Lyfju
dagana 4.-9. september færðu glæsilega gjöf með eftirfarandi glaðningi:*
www.esteelauder.com
Perfectionist - hrukkubana
Nýtt - Pure Color Lip Vinyl - varaglossi
Re-Nutriv varalit
Resilience Lift - andlitskremi
Estée Lauder Pleasures Intense - edp spray
Varalitabursta
Fallegri snyrtitösku *meðan birgðir endast (Verðgildi gjafarinnar er kr. 6.500)
Tilboðið gildir í Lyfju Lágmúla, Lyfju Smáratorgi,
Lyfju Laugavegi, Lyfju Garðatorgi og Lyfju Setbergi.
GJÖFIN ÞÍN
Framtíð án elli
Perfectionist Correcting Serum for Lines/Wrinkles
Sértu að spá í leysigeislameðferð, húðslípun eða hrukkusprautur,
því þá ekki að íhuga mildari valkost án retínóls. Perfectionist er fljótvirkt, árangursríkt
og áhrifin endast lengi. Uppistaðan í því er hið einstaka BioSync Complex.
Eftir daginn: Fíngerðar þurrklínur hverfa.
Eftir viku: Dýpri línur grynnka og húðin sléttist.
Eftir mánuð: Endurheimtur æskuljómi.
Kynning verður í Hagkaup Kringlunni
í dag, fimmtudag, föstudag og laugardag.
Sérfræðingar veita faglega ráðgjöf
og húðgreiningu með Kanebo-tölvunni.
Haust- og
vetrarlitirnir
2003
KRINGLUNNI
LOKIÐ er samkeppni um fegurstu
garða og eignir í Ólafsfjarðarbæ.
Umhverfismálanefnd bæjarins
ákvað að veita viðurkenningar fyr-
ir fegurstu garða bæjarins, snyrti-
legustu eignina, snyrtilegasta fyr-
irtækið og fegurstu götu bæjarins.
Þessi samkeppni var endurvakin á
síðastliðnu ári með það í huga að
hvetja bæjarbúa til að huga vel að
sínu nánasta umhverfi sem endur-
speglar síðan heildarsvip bæjar-
félagsins. Bæjarbúum var gefinn
kostur á að taka þátt í þessari sam-
keppni með því að senda inn til-
nefningar.
Umhverfismálanefnd fór síðan
yfir þessar tilnefningar og valdi
nokkrar úr til að skoða nánar.
Úrslitin eru svona í stuttu máli.
Fegursta gata bæjarins: Gunnólfs-
gata; snyrtilegasta fyrirtækið: Þor-
móður rammi – Sæberg hf., og er
þá átt við skrifstofuhúnæði fyr-
irtækisins á Hornbrekkuvegi 3
(húsið sjálft og lóðin); snyrtilegasta
eignin: Hlíðarvegur 61, eigendur
Björn Þór Ólafsson og Margrét
Toft; og að lokum fyrir fallegasta
garðinn: Ólafsvegur 8, eigendur
Steinn Jónsson og Sæunn Hjalta-
dóttir.
Helgi Jóhannsson, formaður um-
hverfismálanefndar Ólafsfjarðar,
afhenti verðlaunin í félagsheimilinu
Tjarnarborg, og sagðist vona til að
svona árleg samkeppni yrði liður í
að hvetja eigendur húsa og fyr-
irtækja í Ólafsfirði til að huga vel
að umhverfi sínu.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Björn Þór Ólafsson og Margrét Toft fengu verðlaun fyrir snyrtilegustu
eignina árið 2003, Hlíðarveg 61, í samkeppni umhverfismálanefndar.
Gunnólfsgata fegurst
gatna í bænum
Ólafsfjörður
GUÐMUNDUR Hjörvar Jónsson
varðstjóri í Dalabyggð hefur tekið
sér ársleyfi frá störfum og í hans
stað er mættur til starfa Jóhannes
Björgvin Björgvinsson sem gegnt
hefur störfum innan lögreglunnar í
24 ár.
Jóhannes er frá Selfossi þar sem
hann hefur starfað undanfarin ár
sem flokksstjóri hjá sýslumanns-
embættinu. Jóhannes er Vestlend-
ingum kunnur þar sem hann hefur
einnig starfað í Stykkishólmi til
nokkurra ára og einnig þar sem son-
ur hans býr í Hörðudalnum þar sem
hann hefur oft dvalið.
Jóhannes hyggst í vetur halda
uppi skrifum í dagbók lögreglunnar
á polis.is.
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
Jóhannes mættur til starfa.
Kominn á
gamalkunn-
ar slóðir
Búðardalur
SÍÐUSTU daga hafa einkennilegar þokumynd-
anir verið við Vestmannaeyjar. Eins og sjá má á
myndinni af Bjarnarey er eins konar ævintýrablær yfir eyjunni í þessum
þokuskrúða. Þetta er ekki svo óalgengt í Vestmannaeyjum en er alltaf sí-
breytilegt og nýjar og nýjar myndir af umhverfinu gera lifandi að fylgjast
með síbreytileika þess.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Bjarnarey umvafin ævintýralegri og dularfullri þoku á dögunum.
Þoka í Eyjum
Vestmannaeyjar
alltaf á sunnudögumFERÐALÖG