Morgunblaðið - 04.09.2003, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 04.09.2003, Qupperneq 21
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 21 LÆKNAVÍSINDIN leitafrekar að hlutlægumsannleika en listir oftar aðsannleika sem er hug- lægur, skynjaður fremur en skil- greindur. Á sá sannleikur eitthvað erindi við hinn vísindalega sann- leika? Gæti komið fram heildstæðari sýn á vandamál ef þau eru skoðuð samtímis frá listrænu og vísindalegu sjónarmiði?“ Sú sem hér spyr er Helga Hans- dóttir öldrunarlæknir, en í dag verð- ur opnuð allsérstæð sýning í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, á innsetningu sem Magnús Pálsson og Helga hafa unnið og kalla Viðtöl um dauðann. Helga segir hugsunina um verkið hafa tekið langan tíma að þróast. „Hún á rætur í rannsóknar- verkefni í öldrunarlækningum sem ég gerði í Bandaríkjunum. Þar ræddi ég við aldraða einstaklinga um viðhorf þeirra til dauðans og endurlífgunar og fékk mjög opin og skemmtileg svör og miklu meira en hægt var að setja fram í vísindalegri grein. Á svipuðum tíma sá ég verk eftir Magnús í frekar drungalegu porti í Þingholtunum, þar sem mað- ur heyrði raddir fólks lýsa draumum sínum. Ég skynjaði einhvern raun- veruleika í þessu verki sem minnti mig á mitt starf og viðtöl mín við fólkið.“ Helga segir að á svipuðum tíma hafi hún áttað sig á því að þótt vís- indalegar aðferðir séu frábærar og gefi gagnleg svör, þá hafi þær þrátt fyrir allt sínar takmarkanir. Þá vaknaði spurningin hvort list gæti komið þar að og hjálpað til við að skilja viðfangsefni þar sem vísinda- legar aðferðir duga ekki. Og þar kom Magnús Pálsson til sögunnar og fékk frjálsar hendur um það hvernig hann nýtti viðtöl Helgu. Magnús segir að fyrsta skrefið hafi verið að þýða viðtölin á íslensku og láta leikara lesa þau þannig inn á band ásamt Helgu. „Þetta lá nú mjög beint við, því ég vinn yfirleitt alltaf á einhvern máta með texta. Ég var strax spenntur fyrir þessu og fannst ég geta gert eitthvað úr hug- mynd Helgu, eitthvað sem sýndi ein- hvern nýjan flöt á verkefni hennar eða velt upp nýjum viðhorfum.“ Helga segir hugmyndina að nota listaverk sem tæki til vísindaskoð- unar sjaldan framkvæmda af mörg- um ástæðum. „Með því að gera þetta svona er farið algjörlega öfugt að. Á þennan hátt er hægt að taka inn miklu meira af upplýsingum – ekki bara hugsuðum upplýsingum heldur líka öðrum skynjunum og upplif- unum, og upplifunin er einmitt lyk- illinn að listaverkinu. Ætlun mín er svo að skrifa einhvers konar grein- argerð um það sem ég hef lært af þessu og þá sýn sem þetta verkefni hefur veitt mér á viðfangsefnið.“ Magnús segir að viðtölin séu í senn persónuleg og mjög dramatísk. „Sumt þetta fólk hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika og sorgir og tilfinningalega erfiða reynslu. Ég reyni að búa til nýja tilfinningu eða aðra en akkúrat felst í orðunum, til þess að reyna að gefa þeim nýja vídd. Mér finnst fólkið ekki kvíða dauðanum, en vera frekar sátt við hann.“ Helga tekur undir það og segir fólkið þrátt fyrir allt yfirleitt jákvætt gagnvart sínu lífi. „Það fyllir mann frekar bjartsýni og von að vita að hægt er að taka á erfiðleikum á þann hátt sem þetta fólk hefur gert.“ Sýningin á innsetningu Magnúsar og Helgu stendur aðeins í 10 daga eða til 14. september. Helga Hansdóttir öldrunarlæknir og Magnús Pálsson myndlistarmaður í Hafnarhúsinu Morgunblaðið/Ásdís Magnús Pálsson myndlistarmaður og Helga Hansdóttir læknir vinna saman að heldur óvenjulegri innsetningu. Listin sér annað en vísindin Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða þér glæsiferðir með sérflugum sínum í Karíbahafið í vetur á hreint ótrúlegum kjörum. Þú getur valið um fegurstu eyjar Karíbahafsins og vinsælustu áfangastaðina, hvort sem þú vilt kynnast Kúbu, Dóminíska lýðveldinu eða Jamaika. Glæsileg 4 og 5 stjörnu hótel í boði og í öllum tilfellum nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða sem bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 79.950 Flugsæti og skattar. Verð kr. 89.950 Flug, skattar, gisting á Arenas Doradas ****. Íslensk fararstjórn. Kynntu þér glæsilega gististaði á www.heimsferdir.is Karíbahafið í vetur frá kr. 79.950 Sérflug Heimsferða Kúba · 4. nóv. – 7 nætur · 2. mars – 7 nætur Verð kr. 79.950 Flugsæti og skattar. Verð kr. 98.590 Flug, skattar, gisting á Barcelo Talanquera – Allt innifalið. Íslensk fararstjórn. Dóminíska lýðveldið · 13. nóv. – 7 nætur Verð kr. 79.950 Flugsæti og skattar. Verð kr. 89.950 Flug, skattar, gisting Sancaste, íslensk fararstjórn. Jamaíka · 22. feb. – 7 nætur Ráðherrar og þingmenn sitja fyrir svörum FRAMSÓKNARFLOKKURINN Opinn stjórnmálafundur með þingmönnum og ráðherrum Framsóknarflokksins verður haldinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum í dag, fimmtudaginn 4. september, klukkan 14:00. Dagskrá: 1. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, ræðir stjórnmálaviðhorfið. 2. Þingflokkur framsóknarmanna svarar fyrirspurnum fundarmanna. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Opinn fundur á Egilsstöðum í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.