Morgunblaðið - 04.09.2003, Síða 24
UMRÆÐAN
24 FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í UMRÆÐUM um fátækt á Ís-
landi hafa einstæðir foreldrar oft
verið teknir sem dæmi, og jafnvel
bent á að þeir séu
gjarnan fjölmennir í
biðröðum hjá
mæðrastyrksnefnd
og öðrum. Í um-
ræðuþáttum sjón-
varps og útvarps
ásamt blaðagreinum
hefur verið látið að því liggja að hluti
af vanda þessara einstaklinga liggi
meðal annars í því hversu lágar með-
lagsgreiðslur eru og er stundum sér-
staklega tekið fram að meðlagið dugi
ekki einu sinni fyrir dagvistar-
gjöldum.
Ég vil benda á að báðum for-
eldrum er skylt að sjá um fram-
færslu barna sinna, hvort sem for-
eldri hefur forsjá eða ekki.
Forsjárforeldrið sér barninu fyrir
húsnæði, fötum og öðru því sem
barnið þarf dagsdaglega, en skv.
lögum fullnægir forsjárlausa for-
eldrið framfærsluskyldu sinni með
greiðslu meðlags.
Í dag er einfalt meðlag 15.558
krónur á mánuði. Skv. ráðgjaf-
arstofu um fjármál heimilanna kost-
ar 19.000 krónur að framfæra eitt
barn á mánuði. Sé barn á bleyju
bætast 4.700 krónur við. Að auki
bætist við kostnaður vegna dagvist-
ar, sem er fyrir níu tíma vistun
15.300 krónur á mánuði. Samtals eru
þetta kr. 39.000 á mánuði fyrir fram-
færslu barns þegar um ungt barn er
að ræða. Auðveldlega má sjá að skv.
ráðgjafarstofu um fjármál heim-
ilanna er því heildarkostnaður á ári
við framfærslu barnsins í þessu
dæmi ásamt dagvist í ellefu mánuði
(ekki þarf að greiða fyrir dagvist
meðan barn er í sumarfríi) kr.
452.700.
Sé einstætt foreldri í það miklum
fjárhagslegum vandræðum að það
þurfi að leita á náðir mæðrastyrks-
nefndar má gera ráð fyrir að tekjur
þess séu undir skerðingarmörkum
barnabóta og því fái þetta foreldri
fullar og óskertar barnabætur sem
eru 235.703 krónur á ári (með barni
undir sjö ára aldri). Nú má líka gera
ráð fyrir að umrætt einstætt foreldri
hafi ekki efni á að kaupa sér íbúð,
þ.e.a.s. eigi ekki það stofnfé sem
þarf og neyðist því til að leigja hús-
næði. Þetta foreldri fær húsa-
leigubætur fyrir sig en vegna barns-
ins fær það einnig 7.000 krónur á
mánuði aukalega. Þetta gerir 84.000
krónur á ári. Séu barnabætur
(235.703), húsaleigubætur vegna
barns (84.000) og meðlög (186.696)
reiknuð saman fær einstæða for-
eldrið í greiðslur frá hinu opinbera
og forsjárlausa foreldrinu vegna
barnsins samtals 506.399 krónur á
ári.
Eins og sjá má fær einstæða for-
eldrið bætur og meðlög sem duga
bæði til fullrar framfærslu og dag-
vistar barnsins – og á auk þess af-
gang upp á 53.699 krónur á ári. Sé
gert ráð fyrir að forsjárlausa for-
eldrið njóti eðlilegrar umgengni við
barn sitt er barnið á framfæri þess
(bleyjur, matur o.s.frv.) aðra hverja
helgi, jól, páska og a.m.k. fjórar vik-
ur að sumri, sem samtals má gera
ráð fyrir að nemi a.m.k. 86 dögum á
ári. Þetta eykur enn afgang forsjár-
foreldrisins vegna barnsins.
Ennfremur má benda á að for-
sjárlaust foreldri þarf einnig að búa
barni sínu heimili hjá sér með rúmi,
leikföngum og öðru því sem börn
þurfa, þar sem barnið er hjá forsjár-
lausa foreldrinu a.m.k. 86 daga á ári.
Oft er rætt um það að for-
sjárlausir foreldrar sleppi við að
vera með börn heima í veikindum og
tapa úr vinnu af þeim sökum. En er
það nokkuð á við að vera ekki þess
aðnjótandi að ala upp og umgangast
barnið sitt, heldur fá það bara í
heimsókn?
Meðlag og fram-
færsla
Eftir Þorstein Erlingsson
Höfundur er gjaldkeri Félags
ábyrgra feðra.
Í DAG fimmtudaginn 4. september eru liðin fimm ár frá stofnun Háskól-
ans í Reykjavík. Aldur háskóla er gjarnan talinn í öldum en ekki árum.
Fimm ára háskóli krefst því umhyggju og athygli. En það má einnig segja
um ungan háskóla að fyrstu kynni gleymist seint, að upp-
hafsskrefin ráði þeim byr sem skólinn þarf á að halda til að
ná flugi. Upphafið lofar góðu fyrir Háskólann í Reykjavík,
starfsfólk og nemendur skólans.
Einkaframtakshugsjónin á ekki upp á pallborð allra og
um það leyti sem Verslunarráð Íslands vann að stofnun
skólans voru þeir til sem sáu ekki mikilvægi aukinnar fjöl-
breytni háskólanáms fyrir áframhaldandi þróun blómlegs
samfélags á Íslandi. Jafnvel kvað svo við að sumir töldu
þetta stóra skref í menntamálum vega á einhvern hátt að því skólastarfi
sem fyrir var, þar sem ekki væri svigrúm fyrir fleiri skóla á háskólastigi.
Þó starfsár skólans séu aðeins 5, hefur samt komið í ljós að slíkar efasemd-
ir áttu ekki við rök að styðjast. Sívaxandi fjöldi nemenda við skólann er
mikið ánægjuefni, en ánægjulegust er þó tvímælalaust sú almenna breyt-
ing sem hefur átt sér stað á menntun á háskólastigi. Það er engum vafa
undirorpið að sú samkeppni sem Háskólinn í Reykjavík hefur veitt öðrum
skólum hefur orðið þess valdandi að fjölbreytni í háskólanámi hefur aukist
og viðbrögð annarra skóla við þörfum atvinnulífsins hafa eflst til muna.
Stofnun Háskólans í Reykjavík hefur vissulega verið allra hagur.
Þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi Háskólans í Reykjavík lofa góðu
um framhaldið. Frá skólanum fær atvinnulífið hæfileikaríkt starfsfólk sem
hlotið hefur þjálfun í öguðum og kröfuhörðum verkefnum, háskóla-
menntun með stoð í atvinnulífinu. En til Háskólans í Reykjavík getur at-
vinnulífið einnig sótt þá menntun sem kannski er hvað mikilvægust þegar
öllu er á botninn hvolft, símenntun.
Verslunarráð væntir mikils af Háskólanum í Reykjavík í framtíðinni og
veit að skólinn mun standa undir þeim væntingum. Háskólanum í Reykja-
vík og starfsfólki hans óska ég til hamingju með frábæran árangur á þess-
um upphafsárum skólans. Til hamingju með daginn.
Háskólinn í Reykjavík 5 ára,
afmæliskveðja
Eftir Boga Pálsson
Höfundur er formaður Verslunarráðs Íslands.
Haustlitirnir
komnir í verslanir
Einnig kynnum við nýjan
maskara „Mascara Allogeant
Recourbant“ sem lengir og
sveigir augnhárin.
Útsölustaðir:
Clara Kringlunni, Snyrtiverslunin Glæsibæ, Andorra
Hafnarfirði, Snyrtistofan Neroli Skólavörðustíg,
Stella Bankastræti, Snyrtistofan Guerlain
Óðinsgötu, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi,
Hygea Smáralind og Hár og heilsa Akureyri.
Kynning í dag, fimmtudag,
á morgun föstudag og laugardag.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
HEIÐARGERÐI - HVASSALEITI
Mér hefur verið falið að leita eftir 200-250 fm
sérbýli. Æskilegt að eignin sé með
fjórum eða fleiri svefnherbergjum, í góðu
ástandi utan sem innan. Afhendingartími
getur verið ríflegur.
Verðhugmynd 25-30 millj.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband
og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hafðu samband - það kostar ekkert!
MIKIÐ var gert úr þeirri frétt
ríkisstjórnarinnar, að Bandaríkin
hefðu ákveðið að afturkalla tilkynn-
ingu sína um að
kveða á brott frá Ís-
landi fjórar herþot-
ur varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Var þó aðeins um
bráðabirgða-
ákvörðun að ræða,
sem gildir þar til viðræðum er lokið
um nýja bókun við varnarsamning-
inn. En þá fyrst kemur í ljós hvort
umræddar herþotur verða áfram á
Keflavíkurflugvelli eða ekki og
raunar fæst þá fyrst niðurstaða
varðandi framtíð varnarliðsins á Ís-
landi. Þá verður ljóst hvort varn-
arliðið verður áfram á Íslandi að
öllu leyti eða að hluta til. Banda-
ríkjastjórn kveðst ætla að skoða
málið í samhengi við breytingar á
bandarískum herafla í Evrópu. Lík-
legt er, að viðræður um bókun við
varnarsamninginn haldi áfram í
haust.
Það hefur verið ljóst um langt
skeið að Bandaríkin hafa viljað
fækka í varnarliðinu á Íslandi.
Bandaríkin hafa einnig íhugað að
flytja varnarliðið með öllu á brott
frá landinu. Hvers vegna? Jú,
vegna þess að mun friðvænlegra er
nú í heiminum en var þegar varn-
arliðið kom hingað fyrst 1951 fyrir
frumkvæði NATO og Bandaríkj-
anna. Ógnin sem Íslandi var talin
stafa frá Sovetríkjunum er horfin.
Rússar eru nú bandamenn NATO.
Í dag er talið að mest hætta stafi
af hryðjuverkamönnum. Fjórar
herþotur á Keflavíkurflugvelli
skipta litlu máli í viðureign við
hryðjuverkamenn.
Bandaríkin tilkynntu í byrjun
maí sl., að þau hefðu ákveðið að
kalla á brott frá Íslandi herþot-
urnar fjórar, sem hafa verið á land-
inu. Mundi sú ákvörðun koma til
framkvæmda eftir einn mánuð.
Þetta var einhliða ákvörðun Banda-
ríkjamanna. Hún var tekin á með-
an viðræður Íslands og Bandaríkj-
anna um nýja bókun við
varnarsamninginn stóðu yfir. Þau
vinnubrögð Bandaríkjanna að
ákveða þetta einhliða á meðan við-
ræður ríkjanna voru í gangi eru
mjög óeðlileg og nánast ókurteisi í
garð Íslendinga. Virðist Bush
Bandaríkjaforseti hafa gleymt
greiðanum, þ.e. þeim, að ríkisstjórn
Íslands skyldi ákveða upp á sitt
eindæmi að láta Ísland styðja inn-
rás Bandaríkjanna og Breta í Írak!
Ríkisstjórnin leyndi því í kosninga-
baráttunni að Bandaríkin hefðu
ákveðið að kalla herþoturnar á
brott. Er það furðuleg framkoma
og mjög gagnrýnisverð. Bandaríkin
hafa nú leiðrétt mistök sín í þessu
efni og afturkallað einhliða ákvörð-
un sína um þoturnar en hvort það
þýði varanlega stefnubreytingu á
eftir að koma í ljós. Er raunar ólík-
legt að svo sé.
Er þörf á herþotunum hér á
landi í dag? Er þörf á varnarliðinu?
Eðlilegast væri að láta NATO
svara þessum spurningum. Íslend-
ingar hafa aldrei viljað hafa her-
setu í landinu á friðartímum. Varn-
arliðið kom hingað upphaflega
vegna Kóreustríðsins fyrir frum-
kvæði Bandaríkjanna og NATO.
Eðlilegast er að NATO meti nú
hver lágmarksvarnarviðbúnaður á
Íslandi sé. NATO á að svara því
hvort unnt sé að tryggja varnir
landsins á annan hátt en gert er í
dag. NATO á að svara því hvort
herþoturnar gætu annast eftirlits-
hlutverk á Íslandi þótt þær væru
staðsettar á Bretlandseyjum. Svo
virðist sem Bandaríkin telji, að
ekki sé lengur þörf á því að stað-
setja herþoturnar á Íslandi til þess
að tryggja varnir Íslands. En okk-
ur dugar ekki mat Bandaríkjanna í
þessu efni. Við þurfum einnig að fá
mat NATO.
Ríkisstjórnin hefur enn ekki vilj-
að leita álits NATO á málinu. Hún
lætur sem hún hafi nægilegt vit á
þessu sjálf og fullyrðir, að nauðsyn-
legt sé að hafa fjórar herþotur á
Íslandi! Ekki hefur komið fram
neitt sérfræðilegt álit til stuðnings
þeirri skoðun. Svo virðist sem mál
þetta sé rekið meira á tilfinninga-
legum grundvelli en sérfræðilegum.
Herþoturnar hafa í huga rík-
isstjórnarinnar og í umræðunni
orðið „symbol“ (tákn) varna Ís-
lands. Óeðlilegt er að umræður um
varnarmál Íslands fari fram á slík-
um grundvelli.
Herþoturnar
fjórar á Íslandi
Eftir Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
mbl.isFRÉTTIR