Morgunblaðið - 04.09.2003, Page 38

Morgunblaðið - 04.09.2003, Page 38
DAGBÓK 38 FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Rainbow Warrior, Mánafoss og Zuiho Maru no 68 koma í dag. Goðafoss og Arn- arfell fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Erida kemur í dag. Morraborg fer í dag. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bað. Handavinnustofan opin, kl. 9.45–10 helgi- stund, kl. 10.15 leik- fimi, kl. 11 boccia. Kl. 13.30 lengri ganga. Púttvöllur opinn mánu- dag til föstudags kl. 9– 16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13.30– 16.30 bókband, kl. 14– 15 dans. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10– 13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9 aðstoð við böðun, hárgreiðslu- stofan opin og postu- línsnámskeið, kl. 13 op- in handavinnustofa, kl. 9–16.30 púttvöllurinn opinn. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9–16.30 postu- línsmálning, kl. 9–16 opin vinnustofa, kl. 13.30 söngtími. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Glerlist kl 13 og bingó kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids í dag kl. 13. S. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi vinnustofa og spilasal- ur opinn. Mánudaginn 8. september hefst postulínsnámskeið, þriðjudaginn 9. sept- ember hefst gler- skurður. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, leiðbeinandi á staðnum, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. frá kl. 9–15, kl. 17 myndlist. Kynning á vetr- arstarfseminni verður í dag kl. 14. Skráning á námskeið fer þá einnig fram. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin frá kl. 9–17 virka daga, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 almenn handavinna, perlusaumur, korta- gerð og hjúkr- unarfræðingur á staðn- um, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 10 boccia, 13.30 fé- lagsvist. Hársnyrting og fótaaðgerðir. Norðurbrún 1. opin vinnustofa kl. 9–16.45. Kl. 10–11 ganga. Vesturgata. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 bað, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 10–11 boccia. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð og boccia æfing, kl. 13 frjáls spil. Gullsmárabrids hefst í dag fimmtudaginn 4. september, skáning kl. 12.45 spil hefst kl. 13 í Félagsheimilinu Gull- smára 13, veitingar í spilahléi. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Skóverslun Axel Ó. Lárussonar, Vest- mannabraut 23, Vest- mannaeyjum, s. 481 1826 Mosfell sf., Þrúð- vangi 6, Hellu, s. 487 5828 Sólveig Ólafs- dóttir, Verslunin Grund, Flúðum, s. 486 6633 Sjúkrahús Suður- lands og Heilsugæslu- stöð, Árvegi, Selfossi, s. 482 1300 Verslunin Íris, Austurvegi 4, Sel- fossi, s. 482 1468 Blómabúðin hjá Jó- hönnu, Unabakka 4, 815 Þorlákshöfn, s. 483 3794. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga, fást á eftirtöld- um stöðum á Reykja- nesi. Bókabúð Grinda- víkur, Víkurbraut 62, Grindavík, s. 426 8787 Penninn – Bókabúð Keflavíkur, Sól- vallagötu 2, Keflavík, s. 421 1102 Íslandspóstur hf., Hafnargötu 89, Keflavík, s. 421 5000 Íslandspóstur hf., c/o Kristjana Vilhjálms- dóttir, Garðbraut 69, Garður, s. 422 7000 Dagmar Árnadóttir, Skiphóli, Skagabraut 64, Garður, s. 422 7059. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást í Reykjavík, Hafnarfirði og Sel- tjarnarnesi á Skrif- stofu LHS. Síðumúla 6, Reykjavík, s. 552-5744, fax 562-5744, Hjá Hirti, Bónushúsinu, Suðurströnd 2, Sel- tjarnarnesi, s. 561 4256 Bókabúð Böðvars, Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, s. 565 1630. Í dag er fimmtudagur 4. sept- ember, 247. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð. (Ok. 10, 32)     Björn Bjarnason beinirspjótum sínum að Fréttablaðinu og Sam- fylkingunni á bjorn.is.     SkoðanakannanirFréttablaðsins um síðustu helgi og DV, sem birtist á föstudag, sýna, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verulega styrkt stöðu sína frá því í kosn- ingunum,“ skrifar Björn. „Um 40% sögðust styðja flokkinn í Fréttablaðinu og um 43% í DV.     Fyrir Fréttablaðinuvakti líklega að gera könnun, þegar blaðið taldi Sjálfstæðisflokkinn standa höllum fæti, en blaðið hefur haldið því stíft fram undanfarna daga og vikur, að flokk- urinn sé ekki trausts verður, meðal annars vegna starfa okkar ráð- herra hans. Reynir blaðið til dæmis að halda lífi í umræðu um, að ég hafi farið á svig við góða stjórnsýsluhætti við skip- un dómara í Hæstarétt.     Skrýtið var að lesa út-leggingu Gunnars Smára, ritstjóra Frétta- blaðsins, á því, hvers vegna Sjálfstæðisflokk- urinn fengi þrátt fyrir allt svona mikið fylgi. Taldi hann stjórnarandstöðuna sýna of mikla linkind gagnvart ríkisstjórninni. Enginn hefur verið í jafn- mikilli stjórnarandstöðu undanfarið og einmitt Fréttablaðið – ritstjórinn er því að líta í spegil, þeg- ar hann harmar útlitið á þeim, sem sækja fastast gegn Sjálfstæðisflokkn- um með þessum lélega ár- angri.     Ingibjörg Sólrún til-kynnti þriðjudaginn 26. ágúst, að hún ætlaði að bjóða sig fram til for- mennsku í Samfylking- unni 2005, og hefur þetta verið túlkað á þann veg, að hún hafi gefið Össuri Skarphéðinssyni næstu tvö ár til að búa sig undir brotthvarf sitt.     Þetta er óvenjuleg að-ferð til formanns- framboðs í stjórnmála- flokki. Fyrir réttu ári brást Ingibjörg Sólrún við niðurstöðu í skoð- anakönnun um, að hún ætti að bjóða sig fram til þings, á þann veg að bjóða sig ekki fram, af því að hún þyrfti þá að segja af sér borgarstjórastarf- inu, sem hún hafði fáein- um mánuðum áður lofað að gegna í fjögur ár. Um jólin snerist henni hugur en hélt, að hún gæti boðið sig fram í 5. sæti á fram- boðslista Samfylking- arinnar til þings í Reykja- vík norður og setið áfram sem borgarstjóri.     Öllum er kunnugt, aðþetta gekk ekki eftir. Ingibjörg Sólrún er nú hvorki borgarstjóri né þingmaður. Skyldi hún verða jafnmikill klaufi við að nálgast formannsstöð- una af Össuri?“ STAKSTEINAR Skoðanakannanir og formannsframboð Víkverji skrifar... EIGI alls fyrir löngu heyrði Vík-verji af fyrirtæki sem tók þá stefnu að loka, beinlínis læsa dyrum að fundarherbergjum um leið og fundartími hófst. Þetta átti víst að eyða allri óstundvísi með því að starfsmenn lærðu að mæta á hár- réttum tíma að viðlagðri þeirri nið- urlægingu að vera læstir úti. Vík- verji hugsar um þessa stefnu í hvert skipti sem hann mætir sjálfur of seint á fund. Hvernig væri ef maður kæmi að lokuðum dyrum? Gæti þetta gengið? Hvaða endemis vit- leysa er þetta eiginlega? Auðvitað ekki. Þessi bjánalega stefna gerir beinlínis ráð fyrir að allar orsakir seinkunar, tvær, þrjár, fjórar, tíu, tuttugu mínútur, séu vegna slórs í starfsmönnum. Gott og vel. En hugsið ykkur vetrarmorgun á Ís- landi, skítaveður úti og smátafir á umferð eins og gengur. Bæta má við ófyrirséðum töfum við leikskólann þar sem yngsti fjölskyldumeðlim- urinn bítur allt í einu í sig að vilja ekki fara inn og foreldrarnir þurfa að gefa sér smátíma til að róa ástandið. Allt þetta kostar tíma, sem gæti leitt til þeirrar niðurstöðu að foreldrarnir eru komnir kl. 9:02 í vinnuna. Á fund. En þar er lokað. Fundurinn byrjaði klukkan 9:00. Hvað á eiginlega að gera? Hvernig getur dagurinn hafist án þess að starfsfélagarnir sjái glærudraslið sem hvunndagshetjan okkar átti að sýna? Þetta er beinlínis hlægilegt. Svona einstrengingsleg fundastefna gengur ekki án tilslakana. Ómann- úðleg, hörð og stökk, sem auðvitað brotnar við minnsta áreiti. x x x ÁHUGI Víkverja á kaffi fer vax-andi ár frá ári og nú um daginn leiddi áhuginn til þess að hann keypti sér ómalaðar kaffibaunir og varð sér úti um kaffikvörn. Eftir tvö skipti var Víkverji farinn að ná tök- um á möluninni, hvernig kvörnin átti að vera stillt og hve mikið átti að fara í könnuna. Hvað ætli rosknu fólki, sem malaði kaffibaunir sínar hér áður fyrr af nauðsyn, en ekki einskærum sælkeraáhuga, finnist um svona lagað? Þetta minnir Vík- verja á skiptar skoðanir tónlistar- manna á því að spila á 200 ára gömul píanó. Sumum þykir ægilega fínt að spila á þau og heyra lögin hans Moz- arts eins og þau hljómuðu í eyrum hans á 18. öldinni. Aðrir hrista bara hausinn yfir þessu snobbi. Spila á eldgamlan píanógarm, hvað á það eiginilega að þýða? Hvað hefði Moz- art sjálfur valið ef gljáandi Fazioli flygill úr nútímanum hefði allt í einu sprottið upp á stofugólfinu hjá hon- um? Eða Beethoven? Hann var víst annars mjög nákvæmur maður og taldi kaffibaunirnar sínar út í hverja uppáhellingu. Ekki vegna nísku, enda örlátur maður. Þetta var ná- kvæmni. AP „Kaffi á morgnana og martíní á kvöldin,“ syngur píanómaðurinn Billy Joel og spilar undir á nú- tímaflygil. Óvinagjöfin – rugl á Popptíví ÉG er vön að horfa 70 mín- útur á Popptíví öðru hverju og hef gaman af að fylgjast með ruglinu í þáttastjórn- endum. Jafnvel hefur mér þótt aðdáunarvert hjá þeim að hafa getað haldið þætt- inum vinsælum og skemmtilegum í þetta lang- an tíma. En er ég horfði á þáttinn á miðvikudagskvöld sl. brá mér nokkuð. Þeir voru með svokallaðan dagskrárlið sem heitir Hjartastopp á fleygiferð. Þar voru þeir með uppákomu sem þeir nefndu óvinagjöfin. Þeir voru með kött sem átti að gefa Sigurjóni Kjartans- syni þar sem hann hefur of- næmi fyrir köttum. Þeir slepptu kettinum inn á skrifstofusvæði og eltu dauðhræddan köttinn með látum um allt og settu hann síðan í pokatösku þar sem hann var borinn um m.a. til Sigurjóns sem setti hann ofan í ruslafötu þegar hann sá hvað var ofan í pokanum. Ég er kannski bara með svona lélegan húmor en mér fannst þetta ekki fynd- ið að fara svona með lifandi dýr sem að var stjarft af hræðslu. Þetta var ill með- ferð og ég vil gjarnan fá að vita hvort kisan var dauð þegar hún var komin ofan í pokann. Ég get ekki lýst hve mik- illi óánægju og vonbrigðum ég varð fyrir með þáttar- stjórnendur. Fyrrverandi áhorfandi. Góð grein hjá Gunnari ÉG vildi þakka Gunnari Hersveini fyrir grein sem hqann skrifar í Mbl. 28. ágúst sl. um flóttafólkið frá Rúmeníu. Mér finnst að samtök eins og verkalýðs- félagið Efling og sambæri- leg samtök, eigi að láta svona mál til sín taka meira en gert er. Prestastéttin og sérstak- lega miðborgarpresturinn sem er eins konar mannúð- arfulltrúi hjá R-listanum ætti að láta þetta mál til sín taka því að hún hefur vænt- anlega lesið dæmisöguna um miskunnsama Samverj- ann. Jóhann. Þakkir MÉR finnst ástæða til að þakka þeim Samúel Erni og Sigurbirni Árna fyrir frábærar lýsingar þeirra frá Heimsmeistaramótinu í París. Áður hafa þeir fært okk- ur íþróttaáhugamönnum Gullmótin heim í stofu og nú bæta þeir við þessu skemmtilega Parísarmóti. Kostir lýsinga þeirra að mínu mati eru hve vel þeir eru undirbúnir, hafa á tak- teinum mikinn fróðleik um keppendur, lýsingarnar lif- andi og bráðfjörlegar á köflum svo maður stendur á öndinni með þeim eins og maður væri krakki. Svo mættu margir taka sér til fyrirmyndar hve framsögn þeirra beggja er skýr og allur talandi vafn- ingalaus, ekkert sko, ha, þarna, hérna, eða svoleiðis, sem tröllríður talmáli nú um stundir. Bestu þakkir, Samúel og Sigurbjörn. Haukur Sigurðsson. Tapað/fundið Kvenhattur tekinn í misgripum LJÓS kvenhattur var tek- inn í misgripum í fataheng- inu í Læknasetrinu við Þönglabakka 6, 20. ágúst sl. Vinsamlega skilið honum þangað aftur eða í af- greiðsluna. Gullarmband týndist á ferðalagi GULLARMBAND týndist 30. júlí á ferðalagi m.a. um Hóla í Hjaltadal, Varma- hlíð, OB bensínstöðina á Blönduósi og Staðarskála. Armbandsins er sárt sakn- að. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 554 5098 eða 899 5098. Fundarlaun. Eyrnalokkur týndist GULLEYRNALOKKUR (hringur) týndist 17. júní sl. líklegast á Ingólfstorgi. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 554 5098 eða 899 5098. Gullkross týndist GULLKROSS; lítill, sér- smíðaður með brett upp á brúnirnar, týndist í bún- ingsklefa Árbæjarlaugar 17. ágúst sl. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 553 8073. Fundarlaun. Gullarmband týndist GULLARMBAND með áhangandi nistum týndist fyrir nokkru. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 862 6051. Fundarlaun. Gullhálsmen týndist GULLHÁLSMEN týndist á leiðinni frá Álftahólum 6 yfir stíg milli Vesturbergs og Arnarbakka og svo nið- ur í Kóngsbakka. Þeir sem hafa orðið varir við háls- menið vinsamlega hafi sam- band í síma 557 6546. Fundarlaun. Gleraugu týndust GLERAUGU í brúnni um- gjörð í svörtu hulstri töp- uðust í miðborginni föstu- dagskvöldið 29. ágúst. Finnandi vinsamlega hringi í síma 895 9256. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 sigrar, 4 hughreysta, 7 lykkju, 8 dylur, 9 stjórn- arumdæmi, 11 skrifaði, 13 mynni, 14 trylltar, 15 mas, 17 óskert, 20 ambátt, 22 bleyða, 23 ilm- ur, 24 getur gert, 25 rýja. LÓÐRÉTT 1 kroppur, 2 farsæld, 3 blóma, 4 fjötur, 5 málms, 6 nytjalönd, 10 móðir, 12 verkfæri, 13 gruna, 15 ríki dauðra, 16 bylgjan, 18 ládeyðu, 19 áma, 20 skordýr, 21 tarfur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 sveimhugi, 8 lítil, 9 megna, 10 uml, 11 tírur, 13 apaði, 15 skegg, 18 sláni, 21 Rán, 22 ruggu, 23 aflar, 24 handlanga. Lóðrétt: 2 vitur, 3 illur, 4 hamla, 5 gagna, 6 flot, 7 hali, 12 ugg, 14 pól, 15 særa, 16 eigra, 17 grund, 18 snaga, 19 áflog, 20 iðra. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.