Morgunblaðið - 09.09.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2003 11
UM 60 danskar verslanir í eða við
Kaupmannahöfn hafa nú ferskt ís-
lenskt lambakjöt á boðstólum, og von-
ir standa til að sá fjöldi tvöfaldist
næsta haust, en mikið starf hefur ver-
ið unnið í því að kynna kjötið þar í
landi undanfarið.
Hagkvæmasta leiðin til að kynna
íslenskt lambakjöt erlendis virðist
vera að kynna kjötið og framleiðslu-
hætti fyrir kaupmönnum og bjóða
þeim hingað til lands til að fræðast
um hvernig landbúnaðurinn fer fram
hér á landi, og mun hópur danskra
fjölmiðlamanna auk danskra og
bandarískra kaupmanna koma hing-
að til lands í næstu viku til að fræðast
um íslenskan landbúnað, segir Bald-
vin Jónsson, framkvæmdastjóri
Áforms, sem sér um kynningu og
markaðssetningu íslensks lambakjöts
erlendis, í samvinnu við Norðlenska
og Sláturfélagið.
„Í Danmörku munum við leggja
upp með það sama og í Bandaríkj-
unum, að fræða kjötkaupmennina
sjálfa um íslenskan landbúnað. Það
þarf að kynna fyrir Dönum að það sé
ennþá stundaður landbúnaður upp á
gamla móðinn, blandaður búskapur í
dreifbýli, og að allt rautt kjöt á Íslandi
sé náttúrulega framleitt,“ segir Bald-
vin.
Gera þátt um landbúnaðinn
Meðal þeirra fjölmiðla sem vænt-
anlegir eru hingað til lands er danska
ríkissjónvarpið, sem mun gera þátt
um íslenskan landbúnað. Með þeim í
för verða svo 10 danskir og 20 banda-
rískir kjötkaupmenn, ásamt blaða-
mönnum frá dönskum blöðum og
tímaritum. „Þeir koma hingað og fara
í göngur og réttir og upplifa bóndann
í sínu umhverfi, heimsækja bændur,
afurðastöðvar og sláturhús,“ segir
Baldvin. Bandarískir kaupmenn sem
komu í samskonar ferð í fyrra sýndu
mikla söluaukningu á íslenska kjötinu
eftir ferðina, og seldu 30% meira en
þeir sem ekki fóru.
Á síðustu fjórum árum hefur verið
unnið að markaðssetningu á íslensku
lambakjöti með nýjum formerkjum,
og það markaðssett sem lúxusvara í
Bandaríkjunum. Kjötið er selt í lúx-
usverslunum sem eru með hærra
verð, en hafa sýnt góðan árangur í
sölu kjötsins. Baldvin segir að hægt
sé að sjá það af markaðssetningunni í
Bandaríkunum að það sem virðist
virka best sé að bjóða þeim sem starfa
í þessum geira, í þeim verslunum sem
selja lambakjötið, hingað til lands til
að upplifa hvernig landbúnaðurinn
gengur fyrir sig hér á landi. Í versl-
ununum liggja svo frammi bæklingar
þar sem bæði kjötið og ferðalög til Ís-
lands eru kynnt.
„Það hefur verið reynt að selja
fryst kjöt til Danmerkur en í nútíma-
matvælaiðnaði fæst aldrei sama verð
fyrir fryst kjöt og ferskt kjöt,“ segir
Baldvin. Hann segir að eftir samtöl
við kjötkaupmenn í verslunum í Dan-
mörku hafi hann sannfærst um að það
þýði ekki að selja fryst kjöt á háu
verði, það verði að selja það ferskt til
að koma fólki á bragðið og fylgja því
svo eftir með frystu kjöti.
„Við erum búin að finna ódýra, hag-
kvæma leið til að markaðssetja ís-
lenska lambakjötið. Við verðum með
150 búðir sem selja íslenska lamba-
kjötið í ár, 90 í Bandaríkjunum og 60 í
Danmörku. Hugmyndin er að fjölga
þeim í a.m.k. 200 á næsta ári. Við
verðum að fjölga búðunum því hver
búð selur tiltölulega lítið magn, mun
minna en t.d. íslenskar búðir.“
200 þúsund fá að smakka
Heildarkostnaður við þessa mark-
aðssetningu er um 40 þúsund kr. fyrir
hverja búð á hverjum mánuði, eða um
6 milljónir kr. á mánuði fyrir þessar
150 búðir sem nú selja íslenska
lambakjötið í sláturtíð. „Við þurfum
að reyna að nýta þessa fjármuni eins
vel og hægt er, við þurfum að fá fólk
til að fræðast um Ísland svo það geti
borið hróður landsins til annarra. Við
viljum geta fengið fólkið sem vinnur í
kjötborðinu til að segja þessa sögu
um Ísland og búa til fræðsluefni og
bæklinga sem við sendum í búðirnar.
Við höfum ekki efni á að kaupa aug-
lýsingar í stórum mæli enda fjármun-
irnir mjög litlir sem fara í þetta. Þessi
leið hefur reynst mjög vel. Það sem
hefur virkað best er að gefa fólkinu að
smakka kjöt, því íslenskt lambakjöt
er allt öðruvísi en annað lambakjöt.
Við munum því standa fyrir um 720
kynningum í Bandaríkjunum í haust
og 100 í Danmörku og reiknum með
að yfir 200 þúsund manns fái nú að
smakka íslenska lambakjötið,“ segir
Baldvin.
Ferskt íslenskt lambakjöt í verslanir í Danmörku
Ljósmynd/Áskell Þórisson
Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka Íslands, ræddi við neytendur í dönskum verslunum.
Kynna kjötið og landið
fyrir kaupmönnum
JÓSAFAT J. Líndal,
fyrrverandi sparisjóðs-
stjóri, lést á Hjúkrun-
arheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi laugardaginn
6. september síðastlið-
inn, 91 árs að aldri.
Jósafat fæddist á
Holtastöðum í Langa-
dal, Engihlíðarhreppi,
Austur-Húnavatns-
sýslu 21. júní árið 1912.
Foreldrar Jósafats
voru Jónatan Jósafats-
son Líndal, bóndi og
hreppstjóri á Holta-
stöðum og áður kaup-
félagsstjóri á Blönduósi, og fyrri kona
hans, Guðríður Sigurðardóttir Lín-
dal, húsfreyja á Holtastöðum og áður
forstöðukona Kvennaskólans á
Blönduósi.
Jósafat lauk fullnaðarprófi 1926,
gagnfræðaprófi á Akureyri 1931,
prófi frá Købmandsskolen í Kaup-
mannahöfn 1935 og stundaði þar
framhaldsnám í Handelshøjskolen,
Den Handelsvidenskabelige Lære-
anstalt og útskrifaðist þaðan 1938.
Á námsárunum í Kaupmannahöfn
starfaði Jósafat hjá Centralanstalten
for Revision. Eftir heimkomuna 1938
hóf hann störf hjá Shell hf. á Íslandi.
Þar starfaði hann sem aðalbókari og
skrifstofustjóri til 1967, en var spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Kópavogs
1967–1984.
Jósafat var forstöðu-
maður Sjúkrasamlags
Kópavogs um langt
skeið, einn af stofnend-
um Sparisjóðs Kópa-
vogs 1954, löngum
stjórnarformaður og sat
í stjórn SPK fram á tí-
unda áratug síðustu ald-
ar. Hann sat í verslun-
ardómi í Kópavogi og
hafði umsjón með eftir-
launasjóði Skeljungs í
áratugi.
Jósafat var kosinn í
hreppsnefnd Kópavogs-
hrepps fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn 1952, sat í hreppsnefnd og
síðar bæjarstjórn til 1960, gerði
ásamt Hannesi Jónssyni tillögu um
að Kópavogur yrði kaupstaður, sem
varð 1956. Hann var safnaðarfulltrúi
og sóknarnefndarmaður Kópavogs-
og Kársnesprestakalls frá 1952 og
vann ötullega að byggingu Kópavogs-
kirkju sem vígð var 1962. Jósafat var
einn stofnfélaga frímúrarastúkunnar
Mímis og félagi í Lionsklúbbi Reykja-
víkur og Rotaryklúbbi Kópavogs.
Hann var búsettur í Kópavogi frá
1951.
Jósafat kvæntist 17.7. 1938 Kat-
hrine Elisabet Áslaugu Líndal, frá
Suðurey í Færeyjum. Börn Jósafats
og Áslaugar eru: Erla Guðríður Katr-
ín, Jóhanna, Kristín og Jónatan Ás-
geir.
Andlát
JÓSAFAT
J. LÍNDAL