Morgunblaðið - 09.09.2003, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.09.2003, Blaðsíða 19
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2003 19 „MENNT er máttur“ eru einkunn- arorð Námsstofu Skagastrandar sem opnuð var formlega 6. septem- ber að viðstöddum töluverðum hópi fólks. Námsstofa er verkefni sem hrint er í framkvæmd af sveitar- stjórn Höfðahrepps til að styðja við hina fjölmörgu sem stunda fjarnám í sveitarfélaginu og bæta aðstöðu þeirra. Í námsstofunni er góð aðstaða til náms með fjórum beinlínutengdum tölvum og góðri vinnuaðstöðu. Þar að auki verður kennari til staðar í náms- stofunni þrisvar í viku fjarnemum til stuðnings. Fyrirkomulagið á rekstri stofunnar verður þannig að hver og einn fjarnemi gerir samning við Námsstofu um umgengni og fær síð- an lykil að húsnæðinu og getur þá farið og lært þegar viðkomandi hent- ar. Við opnunina lét Adolf Berndsen, oddviti Höfðahrepps, þess getið að fyrirtækin Brim og Skagstrendingur hefðu komið myndarlega að stofnun námsstofunnar með peningaframlagi en jafnframt sagðist hann sakna framlags stjórnvalda í verkefni sem þetta þar sem menntun fólks á fram- haldsskólastigi væri í raun í verka- hring ríkisins en ekki sveitarfélaga. Bryndís Þráinsdóttir frá Farskóla Norðurlands vestra afhenti náms- stofunni bókagjöf við opnunina og óskaði Skagstrendingum til ham- ingju með stofuna. Miðstöð fjarnáms Að sögn forstöðukonu Námsstof- unnar, Hjálmfríðar Guðjónsdóttur, er stofan ekki hugsuð sem skóli held- ur á hún að vera miðstöð þeirra sem stunda fjarnám, sama á hvaða skóla- stigi það er. Einnig mun hún verða fólki til stuðnings og ráðgjafar í sam- bandi við námsval og nám. Hjálm- fríður telur að um tuttugu manns séu í einhverju fjarnámi í sveitarfélaginu nú á þessari önn, allt frá því að vera að taka einn áfanga í einhverjum framhaldsskóla til þess að stunda fullt háskólanám. Auðvitað er ekki vitað hve margir munu nýta sér að- stöðuna í námsstofunni en hún stend- ur öllum til boða þegar þeir vilja. Strax við opnunina gengu all- nokkrir frá samningi um aðgang að henni. Einn þeirra sem fréttaritri ræddi við taldi að þetta mundi gjör- breyta aðstöðu sinni við námið. „Hér getur maður komið og kúplað sig út og einbeitt sér í friði fyrir símanum, fjölskyldunni og öðru truflandi áreiti þegar manni sjálfum hentar, en það er oft vandamál þegar maður er að reyna að læra heima. Auk þess verð- ur frábært að hafa manneskju á staðnum sem maður getur leitað til með vandamál sín.“ Námsstofa fyrir nema í fjarnámi formlega opnuð Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Hjálmfríður Guðjónsdóttir, forstöðukona Námsstofu Skagastrandar, ávarpaði gesti og bauð þá velkomna til samstarfs þegar stofan var opnuð. Skagaströnd NÓG var að gera hjá starfsmönnum á Símenntunarmiðstöð Vesturlands þegar fréttaritari leit þar inn. Und- irbúningur stóð sem hæst vegna „viku símenntunar“ sem hófst sl. sunnudag og stendur til 13. septem- ber. Yfirskrift vikunnar er „Fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms“. Vika símenntunar er ætluð til þess að vekja athygli fólks á mik- ilvægi þess að afla sér þekkingar allt lífið. Vikan hér á Vesturlandi hófst með vígslu á nýju námsveri í Stykk- ishólmi sem verður í Egilshúsi. Í vet- ur munu átta manns stunda fjarnám þaðan í rekstrarfræði frá Háskólan- um á Akureyri. Egilshús verður enn- fremur opið öðrum sem stunda fjar- nám. Í dag frá kl. 9 til 12 verður málþing um fjarnám á fjarfundi frá Hótel Loftleiðum á neðri hæð Bæj- arskrifstofunnar í Borgarnesi að Borgarbraut 11. Aðalfyrirlesari er dr. Gilly Salmon, sem kennir m.a. við Open University Business School í Bretlandi. Gilly Salmon er sérfræð- ingur í kennslu í fjarnámi. Á föstu- daginn verður Helga Björk Bjarna- dóttir frá Símenntunarmiðstöðinni á Hyrnutorgi með námsvísinn og tek- ur við skráningum. Á vefsíðum Sí- menntunarmiðstöðvarinnar má einnig kynna sér námsframboð og skrá sig á námskeið. Slóðin er http:// www.simenntun.is. Morgunblaðið/Guðrún Vala Helga Björk Bjarnadóttir og Inga Sigurðardóttir í miðstöðinni. Mikilvægt er að afla sér þekkingar allt lífið Borgarnes HELGI Sæmundsson og kona hans, Valný Bárðardóttir, afhentu Bóka- safni Snæfellsbæjar einkasafn sitt að gjöf síðastliðinn laugardag, 30. ágúst. Gjöfin er til minningar um foreldra Valnýjar, Guðlaugu Péturs- dóttur og Bárð Helga Jónasson á Hellissandi. Helgi Sæmundsson var bókmenntagagnrýnandi um ára- tugaskeið og tengdist bókaútgáfu með ýmsum hætti. Á starfsferli sín- um áskotnaðist honum fjöldi bóka, einkum á sviði fagurbókmennta. Flestar bækurnar úr safni hans sem spannar á milli 4000 og 5000 titla, eru gefnar út á árunum 1940–2000. Mikil vinna hefur farið fram á und- anförnum misserum á Bókasafni Snæfellsbæjar við skráningu og end- urskipulagningu bókakostsins sem til var fyrir. Safnið undirbýr nú af fullum krafti, eins og flest söfn landsins, tengingu við nýja lands- bókasafnskerfið Gegni. Bókasafn Snæfellsbæjar er almennings- bókasafn og samsteypusafn þriggja safna, Bókasafns Staðarsveitar, Hellissands og Ólafsvíkur. Safninu hefur áður borist veglegt einkasafn að gjöf en árið 1998 gaf dr. Lúðvík Kristjánsson bækur sínar til safns- ins. Unnið verður að því á næstu mánuðum að skrá bækur Helga Sæ- mundssonar og setja í almennt útlán svo íbúar bæjarins og nágrannar geti notið gjafarinnar sem fyrst. Morgunblaðið/Elín Una Helgi Sæmundsson og Valný Bárðardóttir við athöfnina. Bókasafn Helga Sæmundssonar til Snæfellsbæjar Ólafsvík FARIÐ var í fyrstu göngur í Mýr- dalnum á laugardag og var byrjað á að smala Heiðarheiði og Dalaheiði en þessar heiðar liggja samhliða. Það tekur einn dag að smala og er ekið inn fyrir á bílum og síðan gengið fram. Göngurnar eru mjög erfiðar, djúp gil og skorningar, og kindurnar vilja ekki alltaf fara þangað sem smalarnir vilja láta þær fara. Tómas Pálsson lengst til vinstri sést hér gefa mönnum sínum skipanir inni á Heiðarheiði. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Mýrdælingar smala heiðar Fagridalur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.