Morgunblaðið - 09.09.2003, Page 15

Morgunblaðið - 09.09.2003, Page 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2003 15                               !  "#$%&       !  !  !"   #  ! $    %    #         &  ' ('  )     $  (          '  &      &  (     ) *&           + #&   &    & *& * $  + $#,-./ TIL stendur að stækka hús- næði Fjölbrautaskólans í Garðabæ en fjöldi nemenda er kominn í það hámark sem skólanum var ætlað með nýju húsnæði. Viðbyggingin er fyrst og fremst hugsuð til að taka við nemendum á list- námsbraut sem fyrir liggur að setja á stofn. „Aðsóknin er mikil og við gætum tekið við mun fleiri nemendum ef húsrými væri meira,“ segir Þorsteinn Þor- steinsson, skólameistari FG. Nemendafjöldinn er nú vel á sjöunda hundrað en Þor- steinn segir algengt að vísa verði frá um 70–80 manns í hvert skipti. Hann bendir á að málið sé þó allt saman einung- is á undirbúningsstigi og að næsta skref verði að skoða húsrýmisþörf og kostnaðar- áætlun. Fjöl- brauta- skólinn stækkaður Garðabær SKEMMDARVARGAR hafa hvað eft- ir annað gert sér að leik að brjóta bláar glerrúður sem skreyta þrjá veggi Hólabrekkuskóla, síðan hið nýja hús- næði skólans var tekið í notkun fyrir um ári. Sigurjón Fjeldsted skólastjóri segist hafa reynt að fá því framgengt að ann- ars konar efniviður verði settur í stað glersins fyrst rúðurnar fái ekki að vera í friði. Ekki bæti úr skák að glerið sé dýrt, það þurfi að panta erlendis frá sem tekur um 3 mánuði. „Nýja hús- næðið er glæsilegt en hins vegar finnst okkur vonlaust að vera með þessar bláu skrautrúður fyrst þær eru alltaf brotnar. Það er engin prýði að því að vera alltaf með neglt fyrir þar sem þær eiga að vera.“ Búið er að brjóta að minnsta kosti 50 rúður en þær eru ógagnsæjar og í raun eingöngu til skrauts. Í þeim er svokall- að óbrjótandi gler sem brotnar í perlur og virðast þær einkar freistandi í aug- um skemmdarvarga því aðrar rúður í skólanum eru alveg látnar í friði. Sigurjón segir að strax eftir að hið nýja húsnæði var tekið í notkun í fyrra- haust hafi verið brotist inn í skólann og margar rúður brotnar, síðan hafi rúðu- brot endurtekið sig hvað eftir annað í vetur. „Um verslunarmannahelgina keyrði svo um þverbak þegar 30 rúður voru brotnar,“ segir Sigurjón. Hann bendir á að skólinn hafi nýlega fengið verðlaun frá Reykjavíkurborg fyrir fallegt umhverfi og góða um- gengni og því sé einkar leiðinlegt að horfa upp á þá óprýði sem er af brotnu rúðunum. Nemendunum finnist einnig mjög leiðinlegt að hafa brotnar rúður þar sem þeir séu áhugasamir um verð- launin. „Ég vil gjarnan að fundið verði annars konar efni í stað þessa dýra illfáanlega glers sem ekki fær að vera í friði.“ Dýrar skrautrúður í Hólabrekkuskóla brotnar hvað eftir annað Fá aldrei að vera í friði Morgunblaðið/Árni Sæberg Að minnsta kosti 50 rúður hafa verið brotnar í Hólabrekkuskóla frá því nýtt húsnæði var tekið í notkun. Breiðholt ARKITEKTA- og verkfræðistof- urnar Línuhönnun og Studio Granda hlutu nýlega fyrstu verð- laun í hönnunarsamkeppni Reykja- víkurborgar og Vegagerðarinnar um hönnun þriggja göngubrúa í Reykjavík, tveggja yfir Hringbraut og einnar yfir Njarðargötu. Á næsta ári er fyrirhugað að færa Hringbraut suður fyrir Læknagarð og Umferðarmiðstöð og verða brýrnar settar upp í tengslum við þá framkvæmd. Sam- keppnin var í tveimur þrepum, hið fyrra var nafnlaust og öllum opið og bárust níu tillögur. Fjögurra manna dómnefnd skipuð fulltrúum frá Reykjavíkurborg og Vegagerð- inni valdi síðan þrjár af þeim til frekari hönnunar og kostn- aðarmats á öðru þrepi. Tillaga Línuhönnunar og Studio Granda þótti best en auk hennar komu til- lögur VSÓ ráðgjafar og Teikni- stofu Ingimundar Sveinssonar og Hönnunar og hornsteina, til greina. Gert er ráð fyrir að ein brúin verði yfir Hringbraut vestan við Njarðargötu, önnur fyrir sunnan Læknagarð, þar sem hún á að tengjast inn í nýja Hlíðarenda- hverfið og íþróttasvæði Vals, og sú þriðja yfir Njarðargötu. Meðal þess sem dómnefnd lagði til grund- vallar var útlit og ásýnd, aðlögun að gönguleiðum og landi, og kostn- aðarmat. Í niðurstöðu dómnefndar segir að lausnin sé „hefðbundin og sannfærandi“ og að brýrnar teng- ist vel gönguleiðum svæðisins. Þrjár nýjar göngubrýr yfir Hringbraut og Njarðargötu Tölvumynd af fyrirhugaðri göngubrú yfir Hringbraut, rétt vestan við Njarðargötu. Verðlaunatillagan „hefð- bundin og sannfærandi“ Miðbærinn BREIÐHYLTINGAR skemmtu sér prýðilega á fyrsta Breiðholtsdeg- inum, sem haldinn var á föstudag. Vonast forsvarsmenn dagsins til þess að hann byggi upp hverfisanda í Breiðholtinu og að dagurinn verði haldinn á hverju ári héðan í frá. Margt var gert til skemmtunar, félagasamtök, íþróttafélög og fé- lagsmiðstöðvar settu upp götubása á göngugötunni í Mjóddinni seinni- part dags. Vatnspóstur frá Orku- veitu Reykjavíkur var afhjúpaður í Gerðubergi og Hverfisráð Breið- holts veitti hvatningarverðlaun til félagsstarfs til þeirra sem þótt hefur skara fram úr á því sviði. Deginum lauk svo með balli allra kynslóða sem haldið var í íþróttahúsi Seljaskóla um kvöldið, en þar spiluðu Svitabandið, Amos og Í svörtum fötum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hópur dansara frá ÍR á götuhátíðinni sem haldin var á föstudag. Breiðholtsdagurinn haldinn í fyrsta sinn Breiðholt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.