Morgunblaðið - 09.09.2003, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2003 39
RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þjóðverja,
fær fullan stuðning frá helstu knattspyrnu-
forkólfum landsins eftir að hann hellti sér
yfir þýska fjölmiðlamenn að loknum leikn-
um á Laugardalsvellinum á laugardaginn.
„Völler var í heimsklassa,“ sagði Uli
Hoeneß, framkvæmdastjóri Bayern
München. „Ég sló mér á lær.“
Franz Beckenbauer, forseti Bayern
München og fyrrum fyrirliði og þjálfari
heimsmeistaraliða Þjóðverja, sagði í grein í
blaðinu Bild í gær að hann skildi vel við-
brögð Völlers þar sem hann hefði sjálfur oft
svarað fyrir sig undir slíkum kring-
umstæðum. „Í svona stöðu líður manni eins
og hænu sem vill vernda ungana sína,“
skrifaði Beckenbauer. Meðal þeirra sem
Völler gagnrýndi voru Beckenbauer, Paul
Breitner og Günter Netzer, allt fyrrum
landsliðsmenn Þýskalands, en Völler var í
beinni útsendingu með Netzer eftir leikinn á
sjónvarpsstöðinni ARD þegar þeim lenti
saman.
Gerhard Mayer-Vorfelder, forseti þýska
knattspyrnusambandsins, sagði að Rudi
kæmi úr knattspyrnuheiminum en ekki úr
háskólaakademíu Þýskalands. „Hann getur
verið grófur í tali en menn mega ekki taka
allt sem hann segir sem móðgandi fyrir
þýsku þjóðina,“ sagði forsetinn.
Talsmaður þýska knattspyrnusambands-
ins sagði að fulltrúar þýsku félagsliðanna
sem mynda vinnuhóp innan sambandsins
stæðu heilshugar við bakið á Völler og
hvettu hann til að halda sínu striki.
Völler þykir dagfarsprúður maður með
afbrigðum og reiðikast hans á laugardags-
kvöldið vakti því gífurlega athygli í Þýska-
landi. Þá hellti hann sér yfir fréttamenn og
„sérfræðinga“ sjónvarpstöðvanna fyrir að
„draga þýska liðið niður í skítinn.“ Bild kall-
aði hann „Rudi Rambó“ í fyrirsögn í gær.
Berti Vogts, fyrrum landsliðsþjálfari
Þjóðverja sem nú stýrir keppinautum
þeirra, Skotum, kom fyrrum lærisveini sín-
um til varnar. „Ég skil Rudi Völler mjög vel.
Ég veit hvernig það er að vera úthrópaður
sem heimskingi,“ sagði Vogts, sem er and-
stæðingur Völlers í leik þjóðanna í Dort-
mund annað kvöld.
Völler mætti ekki sama skilningi í þýskum
dagblöðum og var jafnvel spurt hvort þjálf-
ari, sem ekki þyldi gagnrýni, væri rétti mað-
urinn til að þjálfa landsliðið. Blaðið Berliner
Zeitung sagði upphlaup hans ófyrirgef-
anlegt. Hann gagnrýni það hvernig gagn-
rýni á lið hans sé sett fram, en gangi síðan
fram með sama hætti. Í blaðinu Frankfurter
Rundschau segir að það hefði ef til vill verið
sök sér ef Völler hefði sleppt sér í samtali
við blaðamenn þar sem engar myndavélar
hefðu verið nærri, en þetta hefði verið í
beinni útsendingu á besta sjónvarpstíma þar
sem börn fylgdust með lykilmanninum í
þýskri knattspyrnu bölva og ragna.
„Eiginlega ættum við að vera Íslend-
ingum þakklátir,“ sagði í blaðinu Thüringer
Allgemeine, sem gefið er út í Erfurt. „Þjóð
sem þjáist af offitu getur ekki fengið betri
sýnikennslu. Fótboltinn er í þessu tilfelli
eins og fimleikarnir hluti fyrir heild. Það
vantar hvorki hæfileika né vöðva. Þjóð-
verjar virðast hafa misst hvatann. Ástæðu
til að leggja hart að sér þegar maður veit að
það gengur einnig án þess. Burtséð frá því
ráðleggjum við hinum vinalega Rudi að fara
í pólitík. Hver sá, sem getur talið sjálfum
sér trú um að eyja, sem vart hefur fleiri íbúa
en Erfurt, sé knattspyrnurisi hefur það í sér
að ná lengra.“
Stjörnurnar standa við bakið á Völler
FÓLK
KYLFINGURINN Maríus Árni
Blomsterberg úr GKj. sló drauma-
höggið á 7. braut Húsafellsvallar á
laugardaginn og fór holu í höggi.
Maríus notaði 7. járn af rauðum
teigum enda ekki nema 11 ára gam-
all en brautin er um 100 metra löng.
ALEXANDERS Peterson, fyrr-
verandi handknattleiksmaður með
Gróttu/KR, skoraði 7 mörk í sínum
fyrsta deildarleik með Düsseldorf
um helgina þegar liðið vann Römer-
wall, 34:24, á útivelli í suðurhluta
þýsku 2. deildarinnar í handknatt-
leik.
HALLDÓR Sigfússon skoraði 3
mörk, þar af eitt úr vítakasti þegar
Frisenheim gerði jafntefli við Aue,
22:22, í upphafleik sínum í suður-
hluta þýsku 2. deildarinnar í hand-
knattleik á sunnudag.
STAFFAN Johansson, landsliðs-
þjálfari Íslands í golfi, hefur valið
landslið unglinga í pilta og stúlkna-
flokki sem taka þátt í Norðurlanda-
mótinu sem fram fer í Svíþjóð 26.–
28. september nk.
PILTALANDSLIÐIÐ er þannig
skipað; Hjörtur Brynjarsson, GSE,
Magnús Lárusson, GKJ, Kristján
Þór Einarsson, GKJ og Sigurður
Pétur Oddsson, GR. Stúlknaliðið er
þannig skipað; Arna Rún Oddsdótt-
ir, GH, María Ósk Jónsdóttir, GA,
Sunna Sævarsdóttir, GA, og Tinna
Jóhannsdóttir, GK.
NICKY Butt verður ekki með
enska landsliðinu gegn Liechten-
stein í undankeppni EM í knatt-
spynru á morgun. Hann er meiddur
á ökkla. Rio Ferndinand, samherji
hans hjá Manchester United, getur
heldur ekki tekið þátt í leiknum
frekar en gegn Makedóníu á síðasta
laugardag. Ferndinand æfði með
enska liðinu í gær og þá kom í ljós
að hann hefur ekki að fullu jafnað
sig af meiðslum sem hafa hrjáð
hann um tíma.
FYRIRLIÐI norska landsliðsins
Henning Berg segir við NRK að
hann ætli sér ekki að leika fleiri
landsleiki ef norska liðinu takist
ekki að tryggja sér sæti í úrslita-
keppni EM á næsta ári. Berg hefur
leikið 97 leiki og getur slegið leikja-
met Thorbjørn Svendsens sem lék
104 landsleiki en til þess þarf
norska liðið að komast til Portúgals.
LANDSLIÐ San Marínó skipað
leikmönnum U-21 árs fékk óvæntar
fréttir er liðið kom til heimalands
síns eftir ósigur gegn Svíum sl.
föstudag. Svíar höfðu notað einn
leikmann sem var í leikbanni í þess-
um leik og vann San Marínó því
leikinn 3:0. Það var Stefan Ishizakis
sem var í leikbanni og á varamanna-
bekknum var einnig leikmaður í
leikbanni, Babis Stefanidis. Málið
þykir vera mikil hneisa fyrir
sænska knattspyrnusambandið sem
þarf að greiða um 200 þúsund kr. í
sekt til UEFA.
HEIMASÍÐA enska úrvalsdeild-
arliðsins Bolton Wanderers greinir
frá því í gær að íslenski landsliðs-
framherjinn úr KR, Veigar Páll
Gunnarsson, muni fara til félagsins
í næsta mánuði til æfinga. Sagt er
frá því að Veigar Páll sé samnings-
laus og vonist til þess að komast á
samning hjá erlendu félagi á næst-
unni. Guðni Bergsson, fyrrum leik-
maður Bolton og íslenska landsliðs-
ins, stendur á bak við för Veigars
Páls og segir Guðni að honum þyki
Veigar Páll vera spennandi leik-
maður.
„Ég tel það vera spennandi kost
fyrir Bolton og Veigar að hann fái
tækifæri á æfingum með liðinu og
þar getur hann látið ljós sitt skína
og kannski verður samið við hann.
Það væri einnig gaman ef íslenskur
leikmaður myndi leika með Bolton
á ný,“ segir Guðni á heimasíðu fé-
lagsins.
Veiga er 23 ára gamall og hefur
leikið 12 leiki í Landsbankadeild-
inni með KR til þessa og skorað í
þeim 7 mörk og verið maðurinn á
bak við fjölmörg mörk Íslands-
meistaraliðsins. Veigar lék með
Stjörnunni í efstu deild áður en
hann fór til Strömsgodset í Noregi
sem atvinnumaður í lok leiktíð-
arinnar árið 2000. Veigar náði ekki
að festa sig í sessi hjá norska liðinu
vegna meiðsla og hóf að leika með
KR á síðustu leiktíð og varð Ís-
landsmeistari með liðinu tvö s.l. ár.
Jafnt var á með liðunum í hálf-leik, 0:0, og sagði Helena að á
þeim tíma hefði leikaðferð íslenska
liðsins gengið upp
en Frakkar skoruðu
tvívegis í síðari
hálfleik.
„Við ætluðum
okkur að vera þolinmóðar, verjast
aftarlega og treysta á skyndisóknir
og það gekk vel eftir. Franska liðið
er mjög vel skipulag og leikmenn
liðsins eru mjög ólíkir frá því sem
við eigum að venjast hér á landi.
Þær eru kvikar, snöggar og leika
boltanum vel á milli sín. Það var
ekki að sjá annað en að liðsheildin
væri sterk hjá Frökkunum og eng-
inn einn leikmaður stóð upp úr í
þeirra liði. Hins vegar tel ég að við
hefðum átt að gera betur að þessu
sinni. Fyrra markið sem við feng-
um á okkur kom eftir að við misst-
um boltann á miðjunni og þær
sóttu hratt upp völlinn vinstra
megin og skoruðu. Það er erfitt að
lýsa því hvað gerðist en við hefðum
átt að koma í veg fyrir að þær
næðu að skora,“ sagði Helena og
bætti því við að
Ásthildur Helgadóttir hefði kom-
ist nálægt því að jafna leikinn er
hún skallaði að markinu skömmu
síðar en franski markvörðurinn
blakaði boltanum frá á síðustu
stundu. „Færið kom eftir horn-
spyrnu Erlu Hendriksdóttur og var
þetta besta færi okkar í leiknum.
Við ætluðum okkur kannski að-
eins of mikið í kjölfarið því franska
liðið náði skyndisókn skömmu eftir
færið sem við fengum og skoruðu á
ný. Það liðu um tíu mínútur á
milli,“ sagði Helena en undirbún-
ingur liðsins fyrir næsta verkefni
er nú þegar hafinn. „Við munum
ekki dvelja lengi við þetta tap og
nú tekur við næsti leikur gegn Pól-
verjum á heimavelli um næstu
helgi. Auðvitað erum við ekki sátt
við að hafa tapa fyrir Frökkum en
við ætlum við okkur sigur og ekk-
ert annað í næsta leik,“ sagði Hel-
ena Ólafsdóttir.
Íslenska vörnin gaf
sig gegn Frökkum
AÐ mínu mati lékum við mjög
vel sem lið í fyrri hálfleik gegn
Frökkum þar sem við lokuðum
svæðum og vörnin var góð en
nokkur mistök í síðari hálfleik
gerðu það að verkum að við töp-
uðum þessum leik, 2:0,“ sagði
Helena Ólafsdóttir, þjálfari ís-
lenska kvennalandsliðsins í
knattspyrnu, í gær en leikurinn
var þriðji leikur íslenska liðsins í
undankeppni Evrópumóts
landsliða og fór fram í Bonneuil-
sur-Marne í Frakklandi.
Morgunblaðið/Golli
Olga Færseth í leik með íslenska landsliðinu gegn Ungverjum á Laugardalsvelli fyrr á þessu ári.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
Veigar Páll fer til Bolton