Morgunblaðið - 25.09.2003, Side 6

Morgunblaðið - 25.09.2003, Side 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÖRNUM í öllum grunnskólum á Íslandi, alls 45 þúsund krökkum, var boðið upp á ókeypis mjólk í skólanum í gær í tilefni af aþjóð- lega skólamjólkurdeginum, sem nú er haldinn í fyrsta skipti hér á landi. Börnin í Salaskóla í Kópavogi fengu að sjálfsögðu mjólk með nest- inu sínu í gærmorgun og létu vel af. Fyrsti og annar bekkur í skólanum þökkuðu fyrir sig með því að syngja fyrir viðstadda. Samtals drukku skólabörn um 12.000 lítra af mjólk í gær, eða um fjórðung úr lítra hvert. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn var fyrst haldinn í september árið 2000, og hefur verið haldinn ár hvert síðan, alltaf síðasta miðviku- daginn í hverjum mánuði. Deginum er ætlað að stuðla að aukinni mjólk- urneyslu ungs fólks, en neyslan hef- ur dregist verulega saman víða um heim, þar á meðal hér á landi. Hættu að bjóða sæta drykki „Hollusta í mat er ein undirstaða þess að nemendum líði vel og þeir geti einbeitt sér að sínum verk- efnum,“ sagði Hanna Hjartardóttir, skólastjóri Snælandsskóla, á ráð- stefnu um skólamjólkina í gær. Í Snælandsskóla höfðu menn miklar áhyggjur af aukinni neyslu sætra drykkja í nestistímum fyrir nokkr- um árum, og var því ákveðið að hætta sölu sætra drykkja í skól- anum og hvetja foreldra til að senda börnin ekki með sæta drykki í skólann. Skólinn tók þá ákvörðun að gefa frekar mjólk í hádeginu, fyrir tíma heitu máltíðanna. Eftir að farið var að bjóða upp á heitar máltíðir er ýmist boðið upp á vatn eða mjólk eftir því sem við á. „Við teljum að við höfum með þessu átaki breytt mataræði barna og unglinga til betri vegar og höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá foreldrum jafnt sem skólabörnum.“ Morgunblaðið/Kristinn Börnin í Salaskóla í Kópavogi kláruðu alla mjólkina sem borin var fyrir þau í nestistímanum í gær. Skólabörnum gefin mjólk á skólamjólkurdaginn SAMTALS verða á milli 1.000 og 1.200 beinbrot af völdum beinþynningar hér á landi árlega, og kostn- aður samfélagsins við sjúkrahúslegur einar og sér er á bilinu 130 til 230 milljónir ár- lega, segir formaður Beinverndar. Hann segir að með hækk- andi meðalaldri muni þessi tala hugsanlega tvöfaldast fram til ársins 2030. Beinþynning er dul- inn faraldur og ein- staklingar með beinþynningu eru margir hverjir einkennalausir í tvo til þrjá áratugi áður en beinbrotin verða og beinþynningin kemur upp á yfirborðið, sagði dr. Björn Guð- björnsson, dósent í gigtarrann- sóknum við Háskóla Íslands og formaður landssamtaka Bein- verndar. Hann hélt erindi á ráð- stefnu um skólamjólk sem fór fram á alþjóðlega skólamjólkur- daginn í gær. „Nýlegar rannsóknir frá Norð- urlöndunum sýna að önnur hver fimmtug kona eigi eftir að fá bein- þynningarbeinbrot, og fimmti til áttundi hver karl síðar á lífsleið- inni. Ég þekki varla annan sjúk- dóm sem kemur til með að leggj- ast á aðra hverja konu,“ segir Björn. „Beinþynningu má því líkja við far- aldur, dulinn faraldur þar sem beinþynning- in byrjar áratugum áður en sjálf brotin verða.“ Í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 er sett fram það markmið að draga úr tíðni mjaðma- og hrygg- brota um 25%, en ár- lega verða um 200 mjaðmagrindarbrot hér á landi. Þessi beinbrot valda um- talsverðri skerðingu á lífsgæðum, segir Björn. Forvarnarstarf mikilvægt Til að ná settum markmiðum er mikilvægast að vinna öflugt for- varnarstarf og tryggja forvörnina alla ævi, segir Björn. Mataræði skipti þar miklu máli, og sé kalk og D-vítamín nauðsynlegt til að halda beinunum sterkum ásamt reglubundinni hreyfingu, eðlileg líkamsþyngd og reykingabindindi. Beinin séu lifandi vefur sem er í sífelldri endurnýjun, og má segja að beinin endurnýi hvert bein á tveggja til þriggja ára fresti. Þess vegna sé mikilvægt að sjá líkam- anum fyrir nægilegu magni bygg- ingarefna. Yfir 1.000 brot vegna bein- þynningar á ári Björn Guðbjörnsson GEIR H. Haarde fjármálaráðherra lagði áherslu á nauðsyn bættrar og samræmdrar þróunaraðstoðar sem yrði í auknum mæli á forsendum þró- unarríkjanna í ræðu sem hann flutti á þriðjudag fyrir hönd Norðurlanda á ársfundi Alþjóðabankans sem nú er haldinn í Dubai í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum. Hvatti hann iðnríki og Alþjóðabankann til að stíga frekari skref í þessa átt. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra er aðalfulltrúi í bankaráði Alþjóðabankans og Geir H. Haarde fjármálaráðherra er varafulltrúi. Í máli sínu fjallaði fjármálaráð- herra um skuldbindingar alþjóða- samfélagsins frá Monterrey árið 2002 og um mikilvægi samábyrgðar og samvinnu iðnríkja og þróun- arlanda ef þúsaldarmarkmiðin um minnkun fátæktar eiga að nást fyrir árið 2015. Fjármálaráðherra hvatti jafnframt til aukinnar aðkomu þró- unarríkja að starfi og ákvarðanatöku í Alþjóðabankanum og aukins at- kvæðavægis þeirra innan stofnunar- innar. Ráðherrann gerði einnig átak til niðurfellingar skulda fátækustu ríkja heims að umtalsefni og lýsti yf- ir áhyggjum af skuldastöðu margra þróunarríkja. Hann ræddi mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið tryggði átakinu nauðsynlega fjármuni og sanngjarna skiptingu kostnaðar. Ennfremur kom fjármálaráðherra inn á mikilvægi frjálsra viðskipta fyrir fátækari ríki heims og lýsti von- brigðum Norðurlanda með nið- urstöður nýliðinnar ráðherraráð- stefnu Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar í Cancún. Fjármálaráðherra á ársfundi Alþjóðabankans í Dubai Lýsti yfir áhyggjum af skuldastöðu þróunarríkja Geir H. Haarde flutti ræðu á ársfundi Alþjóðabankans í Dubai. Í KJÖLFAR viðskipta Íslandsbanka og Landsbanka með hlutabréf hafa vaknað spurningar um það hvort yf- irtökuskylda falli á bankana í tilvik- um Flugleiða og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (SH). Með kaup- um sínum á hlut í Eimskipafélaginu eignaðist Landsbankinn tæplega fimmtungshlut í SH til viðbótar og fer samanlagður hlutur bankans því yfir 40% markið en þá er gert ráð fyrir að yfirtökuskylda myndist. Samanlagður hlutur Íslandsbanka og Fjárfestingarfélagsins Straums í Flugleiðum er einnig yfir fyrrnefndu marki. Í lögum um verðbréfavið- skipti er ekki skilgreint hver eigna- tengsl hluthafa verði að vera til að eignarhlutir þeirra teljist saman. Forstjóri Kauphallar Íslands, Þórður Friðjónsson, segir það ekki hafa verið rannsakað nákvæmlega en við fyrstu sýn virðist það ekki augljóst að þeir aðilar sem um ræðir þurfi að gera hluthöfum SH og Flug- leiða yfirtökutilboð. „Eins og laga- greinin um yfirtökuskyldu er orðuð þá er ljóst að það þarf býsna miklar kröfur til að það sé ótvírætt að yf- irtökuskylda myndist. Það er aug- ljóst af lagatextanum að það þarf að vera til staðar einhvers konar samn- ingur milli aðila um stjórn félagsins til að kalla á yfirtökuskylduna. Við höfum verið að vekja athygli á því að það atriði þurfi að skoða hjá löggjafarvaldinu um hvers konar tengsl milli aðila myndi með ótvíræð- um hætti yfirtökuskyldu. Þetta er í skoðun hjá kauphallarnefnd sem við- skiptaráðherra skipaði. Okkur var það ljóst þegar nefndin kom að frum- varpsgerð um að færa yfirtökuskyld- ur úr 50% niður í 40% að það þyrfti að vinna frekar þá hluta laganna sem lúta að eignatengslum annars vegar og hins vegar að lágmarksverði í yf- irtökutilboði,“ segir Þórður. Yfirtökuskylda ekki ótvíræð VALGEIR Bjarnason, stjórnar- maður í Sparisjóði Hólahrepps, seg- ir það ekki rétt í niðurstöðu Fjár- málaeftirlitsins að flestir fram- kvæmdastjórar og stjórnarmenn Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hafi átt stofnbréf í sparisjóðunum áður en dótturfyrirtæki KS gerðust stofnfjáreigendur. Fjárvaki, sem var að öllu leyti í eigu kaupfélags- ins, keypti tíu stofnbréf í mars árið 2000. Þá keyptu Sigurjón Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri, og Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmda- stjóri Fiðskiðjunnar Skagfirðings, sinn hlutinn hvor. Heildarfjöldi stofnfjárbréfa var þá orðinn 40 og 25% þeirra í eigu fyrirtækis KS. Síðar hafi fleiri stjórnendur og fyr- irtæki KS keypt bréf í sparisjóðn- um á sama tíma, aðallega á árinu 2001 þegar stofnfé var aukið veru- lega. Í niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins frá 10. september sl. er komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé tilefni til að skerða atkvæðisrétt stjórn- enda og stjórnarmanna dóttur- félaga KS á aðalfundi Sparisjóðs Hólahrepps þar sem hlutur þeirra teljist ekki til virks eignarhlutar. Dótturfyrirtæki KS eiga tæp 40% stofnfjárbréfa í sparisjóðnum nú en mega einungis fara með 5% at- kvæða á aðalfundi samkvæmt lög- um um virka eignarhluti. Hefði Fjármálaeftirlitið talið persónulega hluti stjórnenda KS til eignarhlutar fyrirtækisins hefðu þeir ekki haft atkvæðisrétt á aðalfundi. Skipta þau atkvæði sköpum ætli kaup- félagsmenn sér að ná meirihluta í stjórn. Sigurjón Rafnsson er eini fulltrúi KS í stjórn en aðalfundi og kosningu nýrrar stjórnar var frest- að í vor vegna deilna um atkvæð- isrétt og málinu vísað til Fjármála- eftirlitsins. Afdráttarlaus niðurstaða „Ég er mjög ánægður með að niðurstaða Fjármálaeftirlitsins er eins afdráttarlaus og raun ber vitni. Ég á von á því að aðalfundur verði kallaður saman fljótlega,“ segir Sig- urjón. „Það er skoðun mín að til þess að hægt sé að svipta einstak- ling rétti sínum til að fara með at- kvæði fyrir sinn persónulegan eign- arhlut þurfi skýra lagastoð sem ekki er fyrir hendi í þessu tilviki.“ Valgeir segir Fjármálaeftirlitið meta hvert tilvik sérstaklega þegar skoðuð er stærð virks eignarhlutar. Þá komi til skoðunar hvernig stofn- fjárhluta var aflað. Það sé því mik- ilvægt atriði í niðurstöðunni. Þar segi að flestir einstaklingarnir, sem stjórn sparisjóðsins vísi til, hafi þegar verið stofnfjáreigendur áður en samstæða KS gerðist stofnfjár- eigandi. Það er ekki alls kostar rétt að mati Valgeirs og skilningur gömlu stofnfjáreigendanna hafi frá upphafi verið sá að Sigurjón og Jón hafi verið fulltrúar dótturfyrirtækis KS þótt þeir ættu sjálfir persónu- legan hlut. Hann bendir á að Fjármálaeft- irlitið segi að framkvæmdastjórar séu almennt taldir hafa umboð stöðu sinnar vegna til að fara með atkvæðisrétt á hluthafafundum í þeim félögum sem fyrirtæki þeirra eigi hluti í. Því séu líkur á að eign- arhlutir þeirra séu hluti hins virka eignarhlutar. Valgeir og meirihluti stjórnar vilja meina að það eigi við í þessu tilviki og persónulegir eign- arhlutir framkvæmdastjóra og stjórnarmanna falli undir virkan eignarhlut KS. Stjórnendur juku við stofnfé samhliða KS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.