Morgunblaðið - 25.09.2003, Page 16
Minnstaður
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Höfuðborgarsvæðið Bryndís Sveinsdóttir, bryndis@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes
Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hall-
grímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Krist-
jánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Frístundabyggð | Það er vinsælt að eiga
orlofshús í Stykkishólmi, náttúrufegurð
einstök og þjónusta góð. Yfir 30 hús í
Stykkishólmi eru í slíkri notkun. Til að
koma á móts við mikinn áhuga hefur verið
gengið frá samningi milli
Stykkishólmsbæjar og
Skipavíkur hf. um skipu-
lag og byggingu frí-
stundahúsa í landi bæj-
arins.
Um er að ræða 14
hektara lands sem er í
næsta nágrenni Stykk-
ishólms á milli Birg-
isborgar og Nesvogs og
er hluti af svokallaðri
„nýrækt“. Í skipulaginu er gert ráð fyrir 20
bústöðum. Skipavík hf. sér um að skipu-
leggja svæðið og um vegagerð og lagningu
heits og kalds vatns. Artiktektastofan
Gláma/Kim hefur teiknað bústaðina sem
eru frá 60 fm – 90 fm auk svefnlofts.
Nú þegar hafa margir aðilar haft sam-
band og sýnt áhuga á kaupum, þrátt fyrir
að bústaðirnir hafi ekki verið auglýstir enn
sem komið er.
Úr
bæjarlífinu
Sævar: Margir
hafa þegar sýnt
áhuga á bústöðum.
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Sigmar Kristjánssonfrá Húsavík ákvað ádögunum að
skreppa í heimsókn á
Snæfellsnes og fannst til-
valið að nota ferðina og
hafa upp í ferðakostnað.
Hann fyllti bílinn m.a. af
flökum, harðfiski og sil-
ungi og kom
við á mörgum
bæjum. Sagði
Sigmar að
þessu hafi
verið ákaf-
lega vel tekið.
Í sveitinni
Umhverfi húsanna í Gróttu tekur miklum breyt-ingum þessa dagana en framkvæmdirnartengjast vinnu við gamla vitavarðarhúsið. Á
heimasíðu Seltjarnarness kemur fram að verið er að
byggja trépall framan við húsin en einnig er verið að
lagfæra og bæta við hellum umhverfis húsin.
Breytingar í Gróttu
FRAM kom á blaða-mannafundi í gærað Þingeyingar
munu vinna að rafrænu
samfélagi eftir slagorð-
unum „njóta-vilja-nýta-
skilja“. Friðfinni Her-
mannssyni á Húsavík kom
þá í hug þessi oddhenda:
Upp til gilja innan bylja
fólki ylja ef er kalt.
Njóta, vilja, nýta, skilja,
ná að hylja svæðið allt.
Upp til gilja…
Djúpavogi | Örninn KE kom
með fyrstu haustsíldina til lönd-
unar á Djúpavogi í gær. Skipið
fór frá Djúpavogi um leið og
löndun lauk og er nú komið aft-
ur á miðin í Berufjarðarál, um
30 mílur frá landi.
„Við komum núna inn með
260 til 280 tonn af síld úr Beru-
fjarðarálnum,“ sagði Sveinbjörn
Orri Jóhannsson stýrimaður.
„Við náðum henni í nokkrum
köstum, en hún er smá og það
vantar alveg stóru síldina. Það
er kannski vegna þess að sjór-
inn hefur verið að hitna und-
anfarin ár og er heitari núna en í
fyrra.“
Sveinbjörn Orri segir að í
fyrra hafi fyrstu síldinni verið
landað 13. september og þá hafi
hún verið stór og veiðst þannig
út mánuðinn, en eftir það hafi
farið að veiðast smærri síld.
Hann segir 6 eða 7 aðra báta
hafa verið á veiðum á svipuðum
slóðum og Örninn, en þeir hafi
fengið eitthvað lítið. „Við höld-
um strax út um leið og löndun er
lokið og það þýðir auðvitað ekk-
ert annað en að vera bjartsýnn á
framhaldið.“
Síldin fer í flökun og beitu.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Sveinbjörn stýrimaður á Erninum: Þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn þó síldin hafi verið smá.
Vantar stóru síldina
Fyrsta löndun Seyðisfirði | Útgerðarfélag Akureyringa
lýsti því yfir í gær að það myndi segja öllu
starfsfólki frystihússins Dvergasteins á
Seyðisfirði upp frá og með 1. október nk.
og loka húsinu í kjölfarið ef ekki næst að
leigja það út eða selja.
Forsvarsmenn ÚA funduðu í gær með
fulltrúum starfsfólks
og verkalýðsfélags
annars vegar og
bæjaryfirvöldum á
Seyðisfirði hins veg-
ar. Leituðu menn
þar eftir tillögum að
lausn á vanda
Dvergasteins, en
fyrirsjáanlegt er að
um 60 til 70 milljóna
króna tap verði af
rekstrinum á þessu
ári, en áður hafði frystihúsið verið rekið
með hagnaði. Þar sem engar lausnir voru
dregnar fram í dagsljósið í gær, varð nið-
urstaðan sú að segja upp fólkinu og loka.
Mikið áfall fyrir Seyðfirðinga
Því var lýst yfir af bæjarstjórn fyrir
skömmu að samningur sem gerður var við
Skagstrending í janúar 1997 sé enn í fullu
gildi og þess vænst að ákvæði samkomu-
lagsins um öfluga vinnslu síldar og loðnu,
ásamt arðbærri bolfiskvinnslu kæmust til
framkvæmda. Viðbrögð ÚA við þessari yf-
irlýsingu urðu engin og sagði Tryggvi
Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði,
ákvörðun fyrirtækisins mikið áfall.
„Þetta er dapurlegt,“ segir Tryggvi.
„Það er slæmt þegar menn geta ekki staðið
við þau fyrirheit sem þeir hafa gefið. ÚA-
menn segjast ekki treysta sér til að halda
þessu áfram og við það situr. Þeir eru bún-
ir að segja upp starfsfólkinu og hafa boðað
lokun frystihússins frá og með 1. október.“
Spurður um viðbrögð bæjaryfirvalda
segir Tryggvi að allir möguleikar á því að
tryggja áframhaldandi fiskvinnslu á staðn-
um verði kannaðir til hlítar. „Hvort heldur
það verður í einhverri samvinnu við ÚA
eða aðra aðila. Það er alveg eftir að fara í
gegnum þann pakka.“
46 manns í 40,7 stöðugildum hafa starfað
í frystihúsinu Dvergasteini og er uppsagn-
arfrestur fólksins allt frá einni viku og upp
í hálft ár. Rekstur frystihússins verður
óbreyttur til 1. nóvember nk., en hafi for-
sendur ekki breyst á þeim tíma verður
vinnslu hætt.
ÚA segir
öllu starfs-
fólki upp
Dvergasteini lokað
ef ekki næst að leigja
eða selja reksturinn
Sjúkraflug | Íslandsflug gekk síðdegis í
gær frá samningum við Flugfélagið Mýflug
um sjúkraflug frá Ísafirði í vetur, að því er
fram kemur á fréttavef Bæjarins besta á
Ísafirði. Ingimar Sigurðarson á Ísafirði hef-
ur verið ráðinn flugmaður í sjúkraflugið en
hann gegndi því starfi í tvo vetur ásamt
Hálfdáni Ingólfssyni á Ísafirði sem þá var
flugstjóri. Eins sat Ingimar í flugmanns-
sætinu seinni hluta síðasta vetrar þegar
Mýflug leysti Flugfélagið Jórvík af hólmi
við sjúkraflugið. Ekki hefur verið gengið
frá ráðningu flugstjóra en það verður gert á
næstu dögum. Er ætlunin að nota tveggja
hreyfla Piper Chieftain í flugið frá Ísafirði
sem er sama vél og Mýflug hefur haft í
sjúkrafluginu á Ísafirði með hléum und-
anfarin ár.
Öræfum | Fyrir skömmu var brúnni yfir Kotá í Öræfum lyft um einn og
hálfan metra. Það var brúarvinnu flokkur Sveins Þórðarsonar í Vík sem sá
um það verk með hjálp ýmissa annarra.
Kotá hafði í nokkur ár fengið að grafa óáreitt mikla möl úr jökulöldum
nokkuð ofan vegar og bera hana með sér niður og fylla undir brúna svo í
óefni var komið og hefur vatnið oft skvest yfir brúargólfið í fyrrahaust og í
sumar. Helgi Kjartansson, verktaki hjá Rósaberg, hefur haft ána í gjör-
gæslu síðsumars og unnið þar nætur sem daga eftir þörfum við að moka
frá brúnni til að vatnið fengi pláss. Eftir er að hækka veginn og varn-
argarða í samræmi við brúna en það verður gert á næstunni.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Lyftu brúnni yfir Kotá
Fótbolti og atvinnulífið | Knattspyrnan
hefur löngum átt ríkan sess í hjörtum
Skagamanna og víst er að á laugardag
munu Skagahjörtun slá í takt við gengi liðs-
ins í úrslitaleiknum í VISA-bikarnum gegn
FH. Gert er ráð fyrir því að mikill fjöldi Ak-
urnesinga fjölmenni til Reykjavíkur og
hvetji sína menn.
Á sama tíma stendur sem hæst atvinnu-
vegasýningin Akranes Expó 2003 í Íþrótta-
miðstöðinni á Jaðarsbökkum. Til að mæta
þörfum þeirra sem ekki eiga heimangengt á
laugardeginum vegna þátttöku í sýningunni
verður komið upp stóru breiðtjaldi þar sem
hægt verður að fylgjast með leiknum beint.
Jóhannes Krist-jánsson, ritstjórifréttamiðilsins
skarpur.is, skrifar pistla í
morgunsárið um veðurog
mannlíf á Húsavík.
Í gær segir hann m.a.:
„Mæti heiðurskonunni
Helgu Magnúsdóttur,
málara með meiru. Árni
Vill er ekki í bílnum. Ég
vann eitt sumar sem mál-
ari hjá Hafliða, með Halla
Björns og fleiri snilling-
um, en Helga vann þá
sjálfstætt að mig minnir.
Það verður lítið málað í
bænum utandyra í dag ef
suddinn verður svona
áfram. Mér sýnist Olli Eg-
ils reyndar vera að mála
gluggana í Kaupfélaginu,
afsakið, Strax, en hann er
auðvitað að þvo þá. Hvern-
ig læt ég!“
Morgunsárið