Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 16

Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 16
Minnstaður Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Höfuðborgarsvæðið Bryndís Sveinsdóttir, bryndis@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hall- grímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Krist- jánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Frístundabyggð | Það er vinsælt að eiga orlofshús í Stykkishólmi, náttúrufegurð einstök og þjónusta góð. Yfir 30 hús í Stykkishólmi eru í slíkri notkun. Til að koma á móts við mikinn áhuga hefur verið gengið frá samningi milli Stykkishólmsbæjar og Skipavíkur hf. um skipu- lag og byggingu frí- stundahúsa í landi bæj- arins. Um er að ræða 14 hektara lands sem er í næsta nágrenni Stykk- ishólms á milli Birg- isborgar og Nesvogs og er hluti af svokallaðri „nýrækt“. Í skipulaginu er gert ráð fyrir 20 bústöðum. Skipavík hf. sér um að skipu- leggja svæðið og um vegagerð og lagningu heits og kalds vatns. Artiktektastofan Gláma/Kim hefur teiknað bústaðina sem eru frá 60 fm – 90 fm auk svefnlofts. Nú þegar hafa margir aðilar haft sam- band og sýnt áhuga á kaupum, þrátt fyrir að bústaðirnir hafi ekki verið auglýstir enn sem komið er.    Úr bæjarlífinu Sævar: Margir hafa þegar sýnt áhuga á bústöðum. HÉÐAN OG ÞAÐAN Sigmar Kristjánssonfrá Húsavík ákvað ádögunum að skreppa í heimsókn á Snæfellsnes og fannst til- valið að nota ferðina og hafa upp í ferðakostnað. Hann fyllti bílinn m.a. af flökum, harðfiski og sil- ungi og kom við á mörgum bæjum. Sagði Sigmar að þessu hafi verið ákaf- lega vel tekið. Í sveitinni Umhverfi húsanna í Gróttu tekur miklum breyt-ingum þessa dagana en framkvæmdirnartengjast vinnu við gamla vitavarðarhúsið. Á heimasíðu Seltjarnarness kemur fram að verið er að byggja trépall framan við húsin en einnig er verið að lagfæra og bæta við hellum umhverfis húsin. Breytingar í Gróttu FRAM kom á blaða-mannafundi í gærað Þingeyingar munu vinna að rafrænu samfélagi eftir slagorð- unum „njóta-vilja-nýta- skilja“. Friðfinni Her- mannssyni á Húsavík kom þá í hug þessi oddhenda: Upp til gilja innan bylja fólki ylja ef er kalt. Njóta, vilja, nýta, skilja, ná að hylja svæðið allt. Upp til gilja… Djúpavogi | Örninn KE kom með fyrstu haustsíldina til lönd- unar á Djúpavogi í gær. Skipið fór frá Djúpavogi um leið og löndun lauk og er nú komið aft- ur á miðin í Berufjarðarál, um 30 mílur frá landi. „Við komum núna inn með 260 til 280 tonn af síld úr Beru- fjarðarálnum,“ sagði Sveinbjörn Orri Jóhannsson stýrimaður. „Við náðum henni í nokkrum köstum, en hún er smá og það vantar alveg stóru síldina. Það er kannski vegna þess að sjór- inn hefur verið að hitna und- anfarin ár og er heitari núna en í fyrra.“ Sveinbjörn Orri segir að í fyrra hafi fyrstu síldinni verið landað 13. september og þá hafi hún verið stór og veiðst þannig út mánuðinn, en eftir það hafi farið að veiðast smærri síld. Hann segir 6 eða 7 aðra báta hafa verið á veiðum á svipuðum slóðum og Örninn, en þeir hafi fengið eitthvað lítið. „Við höld- um strax út um leið og löndun er lokið og það þýðir auðvitað ekk- ert annað en að vera bjartsýnn á framhaldið.“ Síldin fer í flökun og beitu. Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Sveinbjörn stýrimaður á Erninum: Þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn þó síldin hafi verið smá. Vantar stóru síldina Fyrsta löndun Seyðisfirði | Útgerðarfélag Akureyringa lýsti því yfir í gær að það myndi segja öllu starfsfólki frystihússins Dvergasteins á Seyðisfirði upp frá og með 1. október nk. og loka húsinu í kjölfarið ef ekki næst að leigja það út eða selja. Forsvarsmenn ÚA funduðu í gær með fulltrúum starfsfólks og verkalýðsfélags annars vegar og bæjaryfirvöldum á Seyðisfirði hins veg- ar. Leituðu menn þar eftir tillögum að lausn á vanda Dvergasteins, en fyrirsjáanlegt er að um 60 til 70 milljóna króna tap verði af rekstrinum á þessu ári, en áður hafði frystihúsið verið rekið með hagnaði. Þar sem engar lausnir voru dregnar fram í dagsljósið í gær, varð nið- urstaðan sú að segja upp fólkinu og loka. Mikið áfall fyrir Seyðfirðinga Því var lýst yfir af bæjarstjórn fyrir skömmu að samningur sem gerður var við Skagstrending í janúar 1997 sé enn í fullu gildi og þess vænst að ákvæði samkomu- lagsins um öfluga vinnslu síldar og loðnu, ásamt arðbærri bolfiskvinnslu kæmust til framkvæmda. Viðbrögð ÚA við þessari yf- irlýsingu urðu engin og sagði Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, ákvörðun fyrirtækisins mikið áfall. „Þetta er dapurlegt,“ segir Tryggvi. „Það er slæmt þegar menn geta ekki staðið við þau fyrirheit sem þeir hafa gefið. ÚA- menn segjast ekki treysta sér til að halda þessu áfram og við það situr. Þeir eru bún- ir að segja upp starfsfólkinu og hafa boðað lokun frystihússins frá og með 1. október.“ Spurður um viðbrögð bæjaryfirvalda segir Tryggvi að allir möguleikar á því að tryggja áframhaldandi fiskvinnslu á staðn- um verði kannaðir til hlítar. „Hvort heldur það verður í einhverri samvinnu við ÚA eða aðra aðila. Það er alveg eftir að fara í gegnum þann pakka.“ 46 manns í 40,7 stöðugildum hafa starfað í frystihúsinu Dvergasteini og er uppsagn- arfrestur fólksins allt frá einni viku og upp í hálft ár. Rekstur frystihússins verður óbreyttur til 1. nóvember nk., en hafi for- sendur ekki breyst á þeim tíma verður vinnslu hætt. ÚA segir öllu starfs- fólki upp Dvergasteini lokað ef ekki næst að leigja eða selja reksturinn Sjúkraflug | Íslandsflug gekk síðdegis í gær frá samningum við Flugfélagið Mýflug um sjúkraflug frá Ísafirði í vetur, að því er fram kemur á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði. Ingimar Sigurðarson á Ísafirði hef- ur verið ráðinn flugmaður í sjúkraflugið en hann gegndi því starfi í tvo vetur ásamt Hálfdáni Ingólfssyni á Ísafirði sem þá var flugstjóri. Eins sat Ingimar í flugmanns- sætinu seinni hluta síðasta vetrar þegar Mýflug leysti Flugfélagið Jórvík af hólmi við sjúkraflugið. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu flugstjóra en það verður gert á næstu dögum. Er ætlunin að nota tveggja hreyfla Piper Chieftain í flugið frá Ísafirði sem er sama vél og Mýflug hefur haft í sjúkrafluginu á Ísafirði með hléum und- anfarin ár.    Öræfum | Fyrir skömmu var brúnni yfir Kotá í Öræfum lyft um einn og hálfan metra. Það var brúarvinnu flokkur Sveins Þórðarsonar í Vík sem sá um það verk með hjálp ýmissa annarra. Kotá hafði í nokkur ár fengið að grafa óáreitt mikla möl úr jökulöldum nokkuð ofan vegar og bera hana með sér niður og fylla undir brúna svo í óefni var komið og hefur vatnið oft skvest yfir brúargólfið í fyrrahaust og í sumar. Helgi Kjartansson, verktaki hjá Rósaberg, hefur haft ána í gjör- gæslu síðsumars og unnið þar nætur sem daga eftir þörfum við að moka frá brúnni til að vatnið fengi pláss. Eftir er að hækka veginn og varn- argarða í samræmi við brúna en það verður gert á næstunni. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Lyftu brúnni yfir Kotá Fótbolti og atvinnulífið | Knattspyrnan hefur löngum átt ríkan sess í hjörtum Skagamanna og víst er að á laugardag munu Skagahjörtun slá í takt við gengi liðs- ins í úrslitaleiknum í VISA-bikarnum gegn FH. Gert er ráð fyrir því að mikill fjöldi Ak- urnesinga fjölmenni til Reykjavíkur og hvetji sína menn. Á sama tíma stendur sem hæst atvinnu- vegasýningin Akranes Expó 2003 í Íþrótta- miðstöðinni á Jaðarsbökkum. Til að mæta þörfum þeirra sem ekki eiga heimangengt á laugardeginum vegna þátttöku í sýningunni verður komið upp stóru breiðtjaldi þar sem hægt verður að fylgjast með leiknum beint. Jóhannes Krist-jánsson, ritstjórifréttamiðilsins skarpur.is, skrifar pistla í morgunsárið um veðurog mannlíf á Húsavík. Í gær segir hann m.a.: „Mæti heiðurskonunni Helgu Magnúsdóttur, málara með meiru. Árni Vill er ekki í bílnum. Ég vann eitt sumar sem mál- ari hjá Hafliða, með Halla Björns og fleiri snilling- um, en Helga vann þá sjálfstætt að mig minnir. Það verður lítið málað í bænum utandyra í dag ef suddinn verður svona áfram. Mér sýnist Olli Eg- ils reyndar vera að mála gluggana í Kaupfélaginu, afsakið, Strax, en hann er auðvitað að þvo þá. Hvern- ig læt ég!“ Morgunsárið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.