Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 17
Vesturbæ | Helga Sigurjónsdóttir
lestrarkennari hélt stutta kynn-
ingu á lestrarkennslu ungra
barna, í leikskólanum Listakoti
við Holtsgötu í Reykjavík á dög-
unum. Þá fjallaði Haraldur Ólafs-
son, prófessor í eðlisfræði við Há-
skóla Íslands, um stærðfræði- og
eðlisfræðikennslu barna í leik-
skólanum en þau kenna bæði 4 og
5 ára börnum í Listakoti samhliða
öðrum störfum sínum.
Í heftinu Leikur að lesa, lestr-
arkennsla og lestrargreining, sem
Helga hefur útbúið fyrir foreldra
barna sem hún hefur kennt að
lesa er velt upp þeirri spurningu,
hvenær börn eigi að hefja lestr-
arnám. Segir þar m.a.: „Rann-
sakað hefur verið hvaða færni
börn þurfa að hafa til þess að
geta hafið lestrarnám.
Niðurstaðan er nokkurn veginn
þessi: Börn þurfa að vera talandi,
óskýrmæli skiptir þó ekki máli,
þau þurfa að geta greint hljóð í
orðum, þau verða að geta skilið
að þessi hljóð koma fyrir í öllum
orðum (og) þau verða að geta
skilið að stafirnir eru lyklar að
hljóðum málsins,“ segir í heftinu.
Ekki nógu vel læs
Helga, sem er fyrrum barna- og
menntaskólakennari, starfrækir
lestrarskóla í Kópavogi þar sem
hún kennir m.a. ungum börnum
að lesa og börnum sem ekki hafa
náð tökum á lestri. Til þess notar
hún eigið námsefni en kennsluna
byggir hún m.a. á notkun hljóð-
fræði og hljóðkerfisfræði.
Skemmst er frá því að segja að
mikil spurn er eftir að komast að
í skólanum hjá Helgu en hún hef-
ur sjálf haldið því fram að of
mörg börn hafi ekki náð nógu
góðum tökum á lestri þegar
grunnskóla sleppir.
Haraldur Ólafsson fjallaði um
stærðfræði- og eðlisfræðikennslu
barna. Hann sagði að sér sýndist
að í grunnskólum væri fulllítil
áhersla á þjálfun í einföldum
reikningi.
Í leikskólanum Listakoti kennir
Haraldur 4 og 5 ára börnum ein-
faldar reikningsaðgerðir með það
fyrir augum að þau fái gott vald
yfir þeim. Þá fá börnin innsýn í
eðlisfræði, læra um eðliseig-
inleika efna, læra um krafta og
hita, m.a. með aðstoð einfaldra
tilrauna.
Einnig læra þau lítillega um
eðlisfræði lofthjúpsins.
Læra lestur og eðlisfræði
Morgunblaðið/Jim Smart
Listakot: Foreldrar fylgdust með þegar lestrar- og stærðfræðikennslan var kynnt.
Börn þurfa að vera talandi þau þurfa að geta greint hljóð í orðum
þau verða að geta skilið að stafirnir eru lyklar að hljóðum málsins
ÁRIÐ 2000 endaði rúmlega þriðja hverthjónaband með skilnaði en þangað til hafðiskilnuðum fjölgað með hverju árinu. Síð-ustu tvö árin hefur skilnuðum í Reykjavík
hins vegar fækkað lítillega ár frá ári og á sama tíma
hefur giftingum fjölgað. Þannig voru hjónavígslur um
hundrað fleiri á höfuðborgarsvæðinu árið 2002 en árið
áður. „Við virðumst vera á réttri leið,“ segir Þórhallur
Heimisson, prestur í Hafnarfjarðarkirkju, og hlær
þegar blaðamaður spyr hann álits á þessum tölum.
Auk þess að vera sóknarprestur í Hafnarfirði hefur
Þórhallur veitt hjónabandsráðgjöf og haldið námskeið
um hjónaband og sambúð. Aðspurður hvort hann
kunni skýringu á fjölgun giftinga og fækkun skilnaða
segist hann telja að ákveðin viðhorfsbreyting hafi átt
sér stað meðal fólks sem ef til vill hafi þarna áhrif. Til
dæmis virðist fólk leggja meira upp úr því að rækta
sambönd sín en áður. „Þegar ég hóf störf árið 1996
var algengt að fólk leitaði sér einungis ráðgjafar þeg-
ar allt var komið í óefni og skilnaður blasti við. Nú er
fólk hins vegar mun opnara gagnvart ráðgjöf auk þess
sem það leitar ekki einungis til okkar vegna vanda-
mála heldur vill það einfaldlega styrkja sambandið
þótt allt sé í lagi, en það tel ég jákvætt.“
Hann segir þetta sérstaklega eiga við um yngra
fólkið. „Yngra fólkið er duglegra að leita sér stuðn-
ings en hið eldra og nú til dags virðist fólk tilbúið til
að leggja meira á sig fyrir fjölskylduna en áður var.“
Þórhallur bendir einnig á þá staðreynd að karlar
hafi mun frekar en áður frumkvæði að því að hjón
komi á námskeið. „Hérna áður voru það nánast alltaf
konurnar sem hringdu til að athuga með námskeið en
nú er orðið algengt að karlar hafi samband og panti
tíma. Þetta er breyting sem hefur orðið einungis á
síðustu tveimur árum.“
Streita og tímaskortur
Hann segir að vandamál af öllu tagi séu rædd á
hjónanámskeiðunum eins og of miklar skuldir, erf-
iðleikar í samskiptum við unglinga, óhófleg áfeng-
isdrykkja, kynlífsvandamál og framhjáhald. Algeng-
asta vandamálið sem langflestir glími við sé hins
vegar tímaskortur og streita. „Álagið og tímaskort-
urinn veldur því að fólk er ekki nógu mikið saman,
það vex hvort frá öðru og þarf að finna leiðina til baka
í samskiptunum. Það þýðir þó ekki endilega að það sé
hætt að elska hvort annað.“ Hann bendir á að vanda-
mál eins og drykkja og framhjáhald séu oftar en ekki
afleiðing af streituvandamálinu.
Þórhallur segir að aðbúnaður fjölskyldna sé ungu
fólki ofarlega í huga. „Mörgum finnst að hin svokall-
aða fjölskyldustefna fyrirtækja sem mikið var talað
um fyrir nokkrum árum sé meira í orði en á borði.
Þau tala um að harka sé að færast í fyrirtækin og ekki
sé jafnmikill sveigjanleiki fyrir barnafólk og æskilegt
væri. Kannski sjáum við breytingu þar á þegar þetta
unga fólk kemst í forstjórastöðurnar.“
Of mikið umstang
Þórhallur segir að um þessar mundir sé mjög í
tísku að gifta sig sem sé jákvætt. Hins vegar sé um-
gjörðin í kringum brúðkaupið að vaxa úr hófi fram.
„Núna er í tísku að gifta sig með miklu umstangi sem
fer stundum út í öfgar. Við prestarnir reynum stund-
um að minna á að umgjörðin segir ekkert til um inni-
haldið þótt ég sé alls ekki að segja að stór brúðkaup
séu slæm í sjálfu sér.“ Hann segir að innilegustu
brúðkaupin geti allt eins verið haldin í litlum sveita-
kirkjum með nokkrum ættingjum en bætir við að þó
sé alltaf jafngaman að vera með fólki á brúðkaupsdag-
inn. „Mér finnst hins vegar slæmt þegar ég heyri fólk
segja að það geti ekki gift sig því það sé svo dýrt. Þá
bendir maður á að það þurfi alls ekki að kosta meira
en til dæmis að fara út að borða,“ segir Þórhallur að
lokum.
Giftingum fjölgar en skilnuðum fækkar lítillega ár frá ári
Í tísku að
gifta sig
Morgunblaðið/Kristinn
Þórhallur: Nú er í tísku að gifta sig með miklu
umstangi sem stundum fer út í öfgar.
Atburðadagatal | Mosfellsbær
hefur sett upp atburðadagatal á
heimasíðu bæjarins þar sem meðal
annars má finna upplýsingar um þá
íþrótta- og menningarviðburði sem
framundan eru. Þar geta félög og
einstaklingar skráð hvaða atburðir
standa til í bænum og bæjarbúar
lesið sér til um hvað er á döfinni á
hverjum tíma.
Opið hús | Lækjarskóli við Sól-
vangsveg í Hafnarfirði verður op-
inn fyrir gesti og gangandi í dag á
milli klukkan þrjú og sex. Eru allir
boðnir velkomnir að skoða hið nýja
skólahús sem nýlega var tekið í
notkun. Meðal annars munu nem-
endur syngja nýjan skólasöng
klukkan 16.15 og 17 og selja veit-
ingar.
STÆRSTU íbúðir á höfuðborgar-
svæðinu eru í Garðabæ en meðal-
íbúð þar er 161 fermetri að stærð og
að meðaltali eru 3,17 einstaklingar
um hverja íbúð. Íbúðir í Reykjavík
eru að meðaltali um 108 fermetrar
að stærð og að meðaltali eru 2,53
einstaklingar um hverja íbúð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vænni
vistarverur