Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 17

Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 17 Vesturbæ | Helga Sigurjónsdóttir lestrarkennari hélt stutta kynn- ingu á lestrarkennslu ungra barna, í leikskólanum Listakoti við Holtsgötu í Reykjavík á dög- unum. Þá fjallaði Haraldur Ólafs- son, prófessor í eðlisfræði við Há- skóla Íslands, um stærðfræði- og eðlisfræðikennslu barna í leik- skólanum en þau kenna bæði 4 og 5 ára börnum í Listakoti samhliða öðrum störfum sínum. Í heftinu Leikur að lesa, lestr- arkennsla og lestrargreining, sem Helga hefur útbúið fyrir foreldra barna sem hún hefur kennt að lesa er velt upp þeirri spurningu, hvenær börn eigi að hefja lestr- arnám. Segir þar m.a.: „Rann- sakað hefur verið hvaða færni börn þurfa að hafa til þess að geta hafið lestrarnám. Niðurstaðan er nokkurn veginn þessi: Börn þurfa að vera talandi, óskýrmæli skiptir þó ekki máli, þau þurfa að geta greint hljóð í orðum, þau verða að geta skilið að þessi hljóð koma fyrir í öllum orðum (og) þau verða að geta skilið að stafirnir eru lyklar að hljóðum málsins,“ segir í heftinu. Ekki nógu vel læs Helga, sem er fyrrum barna- og menntaskólakennari, starfrækir lestrarskóla í Kópavogi þar sem hún kennir m.a. ungum börnum að lesa og börnum sem ekki hafa náð tökum á lestri. Til þess notar hún eigið námsefni en kennsluna byggir hún m.a. á notkun hljóð- fræði og hljóðkerfisfræði. Skemmst er frá því að segja að mikil spurn er eftir að komast að í skólanum hjá Helgu en hún hef- ur sjálf haldið því fram að of mörg börn hafi ekki náð nógu góðum tökum á lestri þegar grunnskóla sleppir. Haraldur Ólafsson fjallaði um stærðfræði- og eðlisfræðikennslu barna. Hann sagði að sér sýndist að í grunnskólum væri fulllítil áhersla á þjálfun í einföldum reikningi. Í leikskólanum Listakoti kennir Haraldur 4 og 5 ára börnum ein- faldar reikningsaðgerðir með það fyrir augum að þau fái gott vald yfir þeim. Þá fá börnin innsýn í eðlisfræði, læra um eðliseig- inleika efna, læra um krafta og hita, m.a. með aðstoð einfaldra tilrauna. Einnig læra þau lítillega um eðlisfræði lofthjúpsins. Læra lestur og eðlisfræði Morgunblaðið/Jim Smart Listakot: Foreldrar fylgdust með þegar lestrar- og stærðfræðikennslan var kynnt. Börn þurfa að vera talandi  þau þurfa að geta greint hljóð í orðum  þau verða að geta skilið að stafirnir eru lyklar að hljóðum málsins  ÁRIÐ 2000 endaði rúmlega þriðja hverthjónaband með skilnaði en þangað til hafðiskilnuðum fjölgað með hverju árinu. Síð-ustu tvö árin hefur skilnuðum í Reykjavík hins vegar fækkað lítillega ár frá ári og á sama tíma hefur giftingum fjölgað. Þannig voru hjónavígslur um hundrað fleiri á höfuðborgarsvæðinu árið 2002 en árið áður. „Við virðumst vera á réttri leið,“ segir Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnarfjarðarkirkju, og hlær þegar blaðamaður spyr hann álits á þessum tölum. Auk þess að vera sóknarprestur í Hafnarfirði hefur Þórhallur veitt hjónabandsráðgjöf og haldið námskeið um hjónaband og sambúð. Aðspurður hvort hann kunni skýringu á fjölgun giftinga og fækkun skilnaða segist hann telja að ákveðin viðhorfsbreyting hafi átt sér stað meðal fólks sem ef til vill hafi þarna áhrif. Til dæmis virðist fólk leggja meira upp úr því að rækta sambönd sín en áður. „Þegar ég hóf störf árið 1996 var algengt að fólk leitaði sér einungis ráðgjafar þeg- ar allt var komið í óefni og skilnaður blasti við. Nú er fólk hins vegar mun opnara gagnvart ráðgjöf auk þess sem það leitar ekki einungis til okkar vegna vanda- mála heldur vill það einfaldlega styrkja sambandið þótt allt sé í lagi, en það tel ég jákvætt.“ Hann segir þetta sérstaklega eiga við um yngra fólkið. „Yngra fólkið er duglegra að leita sér stuðn- ings en hið eldra og nú til dags virðist fólk tilbúið til að leggja meira á sig fyrir fjölskylduna en áður var.“ Þórhallur bendir einnig á þá staðreynd að karlar hafi mun frekar en áður frumkvæði að því að hjón komi á námskeið. „Hérna áður voru það nánast alltaf konurnar sem hringdu til að athuga með námskeið en nú er orðið algengt að karlar hafi samband og panti tíma. Þetta er breyting sem hefur orðið einungis á síðustu tveimur árum.“ Streita og tímaskortur Hann segir að vandamál af öllu tagi séu rædd á hjónanámskeiðunum eins og of miklar skuldir, erf- iðleikar í samskiptum við unglinga, óhófleg áfeng- isdrykkja, kynlífsvandamál og framhjáhald. Algeng- asta vandamálið sem langflestir glími við sé hins vegar tímaskortur og streita. „Álagið og tímaskort- urinn veldur því að fólk er ekki nógu mikið saman, það vex hvort frá öðru og þarf að finna leiðina til baka í samskiptunum. Það þýðir þó ekki endilega að það sé hætt að elska hvort annað.“ Hann bendir á að vanda- mál eins og drykkja og framhjáhald séu oftar en ekki afleiðing af streituvandamálinu. Þórhallur segir að aðbúnaður fjölskyldna sé ungu fólki ofarlega í huga. „Mörgum finnst að hin svokall- aða fjölskyldustefna fyrirtækja sem mikið var talað um fyrir nokkrum árum sé meira í orði en á borði. Þau tala um að harka sé að færast í fyrirtækin og ekki sé jafnmikill sveigjanleiki fyrir barnafólk og æskilegt væri. Kannski sjáum við breytingu þar á þegar þetta unga fólk kemst í forstjórastöðurnar.“ Of mikið umstang Þórhallur segir að um þessar mundir sé mjög í tísku að gifta sig sem sé jákvætt. Hins vegar sé um- gjörðin í kringum brúðkaupið að vaxa úr hófi fram. „Núna er í tísku að gifta sig með miklu umstangi sem fer stundum út í öfgar. Við prestarnir reynum stund- um að minna á að umgjörðin segir ekkert til um inni- haldið þótt ég sé alls ekki að segja að stór brúðkaup séu slæm í sjálfu sér.“ Hann segir að innilegustu brúðkaupin geti allt eins verið haldin í litlum sveita- kirkjum með nokkrum ættingjum en bætir við að þó sé alltaf jafngaman að vera með fólki á brúðkaupsdag- inn. „Mér finnst hins vegar slæmt þegar ég heyri fólk segja að það geti ekki gift sig því það sé svo dýrt. Þá bendir maður á að það þurfi alls ekki að kosta meira en til dæmis að fara út að borða,“ segir Þórhallur að lokum. Giftingum fjölgar en skilnuðum fækkar lítillega ár frá ári Í tísku að gifta sig Morgunblaðið/Kristinn Þórhallur: Nú er í tísku að gifta sig með miklu umstangi sem stundum fer út í öfgar. Atburðadagatal | Mosfellsbær hefur sett upp atburðadagatal á heimasíðu bæjarins þar sem meðal annars má finna upplýsingar um þá íþrótta- og menningarviðburði sem framundan eru. Þar geta félög og einstaklingar skráð hvaða atburðir standa til í bænum og bæjarbúar lesið sér til um hvað er á döfinni á hverjum tíma.    Opið hús | Lækjarskóli við Sól- vangsveg í Hafnarfirði verður op- inn fyrir gesti og gangandi í dag á milli klukkan þrjú og sex. Eru allir boðnir velkomnir að skoða hið nýja skólahús sem nýlega var tekið í notkun. Meðal annars munu nem- endur syngja nýjan skólasöng klukkan 16.15 og 17 og selja veit- ingar. STÆRSTU íbúðir á höfuðborgar- svæðinu eru í Garðabæ en meðal- íbúð þar er 161 fermetri að stærð og að meðaltali eru 3,17 einstaklingar um hverja íbúð. Íbúðir í Reykjavík eru að meðaltali um 108 fermetrar að stærð og að meðaltali eru 2,53 einstaklingar um hverja íbúð.    Morgunblaðið/Árni Sæberg Vænni vistarverur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.