Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 27
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Talstö›var
VERSLUN • VERKSTÆ‹I
Radíófljónusta Sigga Har›ar
Allar ger›ir talstö›va
Áratuga reynsla
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
FÓLKIÐ
...á hæðina
...á breiddina
...á lengdina
...á dýptina
á föstudögum!
NÍTJÁNDA Bókastefnaní Gautaborg hefst í dagog stendur til 28. sept-ember. Að þessu sinni
eru vísindi fyrir almenning aðal-
efnið en pólskar bókmenntir í
brennidepli.
Anna Einarsdóttir hefur frá upp-
hafi verið í fararbroddi við skipu-
lagninu íslensks efnis.
Menn geta verið sammála um ár-
angursríkt og farsælt starf Önnu í
þágu íslenskra bóka.
Anna er spurð að því hvort bóka-
stefnurnar séu alltaf samar við sig
eða hvort þær hafi breyst.
„Þetta hefur breyst. Stefnan hef-
ur stækkað og orðið alþjóðlegri.
Einnig er komin Réttindastofa fyrir
útgefendur þar sem unnt er að
kaupa og selja.“
Við erum sammála um að Bóka-
stefnan í Frankfurt sé frekar sýn-
ing en Bókastefnan í Gautaborg
sem vissulega er líka sýning ein-
kennist af umfangsmikilli og fjöl-
breyttri dagskrá. „Við teljum að
fleiri rithöfundar komi fram í
Gautaborg,“ segir Anna.
Anna segir að Bókastefnan í Gautaborg sé sú næst
stærsta eftir Frankfurt en aftur á móti stærst hvað rit-
höfunda varði.
Þrátt fyrir endurnýjun eru oft sömu höfundarnir áber-
andi. Hver er skýringin?
„Þetta er vegna vinsælda höfundanna og mótast einn-
ig af eftirtektarverðum bókum sem eru að koma út.
Hlutur forlaganna er mikill og svo eru líka heilu bóka-
búðirnar á stefnunni og hægt að gera góð kaup.“
Glæpasögur eru áberandi?
„Glæpasagan er vinsæl og margir höfundar skrifa
glæpasögur. Arnaldur Indriðason er nú í fyrsta sinn á
stefnunni. Um aðra íslenska höfunda má nefna að út eru
að koma bækur eftir Steinunni Sigurðardóttur og Krist-
ínu Ómarsdóttur í Svíþjóð og einnig Ólaf Jóhann Ólafs-
son. Þetta skýrir þátttöku þeirra.“
Anna segir að síðan stefnan var opnuð hafi þýðingar
íslenskra verka margfaldast í Svíþjóð.
Hún rifjar upp árið 1990 en þá voru Íslendingar í önd-
vegi á stefnunni. Hlutur Íslendinga vakti mikla athygli.
Anna var formaður undirbúningsnefndar og Vigdís
Finnbogadóttir, þáverandi forseti, opnaði sýninguna. Ís-
land var aftur í sviðsljósi 1994 á
fimmtíu ára lýðveldisafmælinu.
Um íslenska básinn segir Anna
að hann sá alltaf vel sóttur. Þar séu
kynntar allar nýjar bækur, fag-
urbókmenntir, fræðibækur og
bækur um Ísland.
Hvað er helst spurt um?
„Stóru Íslandsbækurnar, m.a.
eftir Sigurgeir Sigurjónsson og
Guðmund Pál Ólafsson, vekja alltaf
mikla athygli og það hve íslenskar
bækur eru fallega útgefnar. Spurt
er hvaða höfundar séu mest lesnir
og hverjir vinsælastir. Það er ljóst
að Svíar hafa mikinn áhuga á Ís-
landi og íslenskum bókmenntum.“
Hún nefnir að á stefnunni sé fólk
frá öllum Norðurlöndunum, Þýska-
landi, Póllandi og Eystrasaltslönd-
unum en enski heimurinn sé ekki
jafn áberandi. Mikið sé af bóka-
vörðum sen nýta þetta tækifæri.
Mikið er skrifað um bókastefn-
una í Svíþjóð.
Anna segir að ekki sé bara
fjallað um bókmenntir í þröngum
skilningi heldur hvort tveggja bók-
menntir og samfélag. Hún nefnir fund með stjórnmála-
manninum Ingvar Carlsson og fleirum og dagskrá um
m.a. Rússland samtímans.
„Það góða við svona stefnu eru góð sambönd þar sem
persónulegu samskiptin gefa þessu gildi.“
Anna segir að hægt sé að ná hagstæðum samningum
fyrir bóksala við kaup sænskra bóka og þá sé nær ein-
göngu um kiljur að ræða því að bundnar bækur séu dýr-
ar á Norðurlöndum. Þótt enskan sé yfirgnæfandi, að
mati Önnu, eru fastir viðskiptamannahópar sem kaupa
norrænar bækur. En unga fólkið les frekar enskar bæk-
ur.
Útgefendur eiga sem fyrr segir stóran hlut í því hvaða
bækur eru til umræðu á stefnunni.
Ertu ánægð með val þeirra íslensku höfunda sem
kynntir hafa verið?
„Já. Val höfunda ræðst oft af því hvort út sé að koma
bók eftir höfundinn í Svíþjóð. Réttindastofa Eddu og
Bókmenntakynningarsjóður hafa unnið mikið starf og
það skilar sér í þýðingum á verkum íslenskra höfunda
erlendis.“
Stefnan hefur greitt fyrir
íslenskum bókmenntum
Anna Einarsdóttir: „Hlutur forlaga er
mikill og svo eru heilu bókabúðirnar á
stefnunni og hægt að gera góð kaup.“
19. Bókastefnan í Gautaborg hefst í dag. Anna Einarsdóttir hefur frá upphafi
verið í fararbroddi við skipulagningu íslenska hlutans. Jóhann Hjálmarsson
ræðir við Önnu um stefnuna og gildi hennar fyrir íslenskar bókmenntir.
johj@mbl.is
UPPSELT er á tónleika Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur, Gunnars Guð-
björnssonar, Kristins Sigmundsson-
ar og Jónasar Ingimundarsonar í
Salnum annað kvöld. Tónleikarnir
verða endurfluttir í Salnum á
mánudagskvöld kl. 20. Tónlistar-
fólkið fer í tónleikaferð með þessa
söngveislu út um landið og verða
tónleikar í Siglufjarðarkirkju nk.
laugardagskvöld kl. 20.30, í Mið-
garði í Skagafirði á sunnudagskvöld
kl. 20, í Fjölbrautarskóla Suður-
lands, Selfossi, þriðjudagskvöldið
30. sept. kl. 20.30 og að lokum í
Reykholtskirkju fimmtudagskvöldið
2. október kl. 20.30.
Á efnisskránni eru vinsælar ar-
íur, dúettar og terzettar og íslensk
sönglög.
Söngveisla
á faraldsfæti
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111