Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 27 RSH.is Dalvegi 16b • 201 Kópavogur Sími 544 5570 • Fax 544 5573 www.rsh.is • rsh@rsh.is Talstö›var VERSLUN • VERKSTÆ‹I Radíófljónusta Sigga Har›ar Allar ger›ir talstö›va Áratuga reynsla w w w .d es ig n. is © 20 03 FÓLKIÐ ...á hæðina ...á breiddina ...á lengdina ...á dýptina á föstudögum! NÍTJÁNDA Bókastefnaní Gautaborg hefst í dagog stendur til 28. sept-ember. Að þessu sinni eru vísindi fyrir almenning aðal- efnið en pólskar bókmenntir í brennidepli. Anna Einarsdóttir hefur frá upp- hafi verið í fararbroddi við skipu- lagninu íslensks efnis. Menn geta verið sammála um ár- angursríkt og farsælt starf Önnu í þágu íslenskra bóka. Anna er spurð að því hvort bóka- stefnurnar séu alltaf samar við sig eða hvort þær hafi breyst. „Þetta hefur breyst. Stefnan hef- ur stækkað og orðið alþjóðlegri. Einnig er komin Réttindastofa fyrir útgefendur þar sem unnt er að kaupa og selja.“ Við erum sammála um að Bóka- stefnan í Frankfurt sé frekar sýn- ing en Bókastefnan í Gautaborg sem vissulega er líka sýning ein- kennist af umfangsmikilli og fjöl- breyttri dagskrá. „Við teljum að fleiri rithöfundar komi fram í Gautaborg,“ segir Anna. Anna segir að Bókastefnan í Gautaborg sé sú næst stærsta eftir Frankfurt en aftur á móti stærst hvað rit- höfunda varði. Þrátt fyrir endurnýjun eru oft sömu höfundarnir áber- andi. Hver er skýringin? „Þetta er vegna vinsælda höfundanna og mótast einn- ig af eftirtektarverðum bókum sem eru að koma út. Hlutur forlaganna er mikill og svo eru líka heilu bóka- búðirnar á stefnunni og hægt að gera góð kaup.“ Glæpasögur eru áberandi? „Glæpasagan er vinsæl og margir höfundar skrifa glæpasögur. Arnaldur Indriðason er nú í fyrsta sinn á stefnunni. Um aðra íslenska höfunda má nefna að út eru að koma bækur eftir Steinunni Sigurðardóttur og Krist- ínu Ómarsdóttur í Svíþjóð og einnig Ólaf Jóhann Ólafs- son. Þetta skýrir þátttöku þeirra.“ Anna segir að síðan stefnan var opnuð hafi þýðingar íslenskra verka margfaldast í Svíþjóð. Hún rifjar upp árið 1990 en þá voru Íslendingar í önd- vegi á stefnunni. Hlutur Íslendinga vakti mikla athygli. Anna var formaður undirbúningsnefndar og Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti, opnaði sýninguna. Ís- land var aftur í sviðsljósi 1994 á fimmtíu ára lýðveldisafmælinu. Um íslenska básinn segir Anna að hann sá alltaf vel sóttur. Þar séu kynntar allar nýjar bækur, fag- urbókmenntir, fræðibækur og bækur um Ísland. Hvað er helst spurt um? „Stóru Íslandsbækurnar, m.a. eftir Sigurgeir Sigurjónsson og Guðmund Pál Ólafsson, vekja alltaf mikla athygli og það hve íslenskar bækur eru fallega útgefnar. Spurt er hvaða höfundar séu mest lesnir og hverjir vinsælastir. Það er ljóst að Svíar hafa mikinn áhuga á Ís- landi og íslenskum bókmenntum.“ Hún nefnir að á stefnunni sé fólk frá öllum Norðurlöndunum, Þýska- landi, Póllandi og Eystrasaltslönd- unum en enski heimurinn sé ekki jafn áberandi. Mikið sé af bóka- vörðum sen nýta þetta tækifæri. Mikið er skrifað um bókastefn- una í Svíþjóð. Anna segir að ekki sé bara fjallað um bókmenntir í þröngum skilningi heldur hvort tveggja bók- menntir og samfélag. Hún nefnir fund með stjórnmála- manninum Ingvar Carlsson og fleirum og dagskrá um m.a. Rússland samtímans. „Það góða við svona stefnu eru góð sambönd þar sem persónulegu samskiptin gefa þessu gildi.“ Anna segir að hægt sé að ná hagstæðum samningum fyrir bóksala við kaup sænskra bóka og þá sé nær ein- göngu um kiljur að ræða því að bundnar bækur séu dýr- ar á Norðurlöndum. Þótt enskan sé yfirgnæfandi, að mati Önnu, eru fastir viðskiptamannahópar sem kaupa norrænar bækur. En unga fólkið les frekar enskar bæk- ur. Útgefendur eiga sem fyrr segir stóran hlut í því hvaða bækur eru til umræðu á stefnunni. Ertu ánægð með val þeirra íslensku höfunda sem kynntir hafa verið? „Já. Val höfunda ræðst oft af því hvort út sé að koma bók eftir höfundinn í Svíþjóð. Réttindastofa Eddu og Bókmenntakynningarsjóður hafa unnið mikið starf og það skilar sér í þýðingum á verkum íslenskra höfunda erlendis.“ Stefnan hefur greitt fyrir íslenskum bókmenntum Anna Einarsdóttir: „Hlutur forlaga er mikill og svo eru heilu bókabúðirnar á stefnunni og hægt að gera góð kaup.“ 19. Bókastefnan í Gautaborg hefst í dag. Anna Einarsdóttir hefur frá upphafi verið í fararbroddi við skipulagningu íslenska hlutans. Jóhann Hjálmarsson ræðir við Önnu um stefnuna og gildi hennar fyrir íslenskar bókmenntir. johj@mbl.is UPPSELT er á tónleika Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Gunnars Guð- björnssonar, Kristins Sigmundsson- ar og Jónasar Ingimundarsonar í Salnum annað kvöld. Tónleikarnir verða endurfluttir í Salnum á mánudagskvöld kl. 20. Tónlistar- fólkið fer í tónleikaferð með þessa söngveislu út um landið og verða tónleikar í Siglufjarðarkirkju nk. laugardagskvöld kl. 20.30, í Mið- garði í Skagafirði á sunnudagskvöld kl. 20, í Fjölbrautarskóla Suður- lands, Selfossi, þriðjudagskvöldið 30. sept. kl. 20.30 og að lokum í Reykholtskirkju fimmtudagskvöldið 2. október kl. 20.30. Á efnisskránni eru vinsælar ar- íur, dúettar og terzettar og íslensk sönglög. Söngveisla á faraldsfæti AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.