Morgunblaðið - 25.09.2003, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 25.09.2003, Qupperneq 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 35 Þegar ég nú sest niður til að skrifa nokkur minningarorð um móður mína, Lauf- eyju Ólafsdóttur, fyrr- um húsfreyju á Droplaugarstöðum í Fljótsdal, kemur margt upp í hugann. Minningarnar leita á. For- eldrar mínir, Laufey og Hallgrím- ur, byggðu nýbýlið Droplaugar- staði árið 1942, en áður höfðu þau búið um nokkurra ára skeið á Arn- heiðarstöðum. Jörðin var fremur landlítil, en beitarjörð góð. Bú- skapurinn byggðist því á sauðfé og vetrarbeit, sem nýtt var til hins ýtrasta, en kýr jafnan til heim- ilisnota og nokkur mjólkursala um árabil. Búið var aldrei mjög stórt, en farsælt, enda faðir minn hag- sýnn fjáraflamaður í hvívetna. Ég var fjögurra ára að aldri, er við fluttum í Droplaugarstaði og þaðan eru fyrstu bernskuminningar mín- ar. Þar stóð bernskuheimili okkar sex systkina, þar uxum við úr grasi og fengum frá ástríkum foreldrum þau fararefni sem best hafa dugað okkur á lífsins vegi. Á heimilinu dvaldi einnig föðuramma okkar, Agnes Pálsdóttir, ættuð úr Vestur- Skaftafellssýslu og öðru hvoru móðuramma, Guðlaug Sigurðar- dóttir, ættuð frá Arnheiðarstöðum. Einnig var heimilisfastur þar um árabil gamall maður, Helgi Jak- obsson, sem fylgt hafði foreldrum mínum frá Arnheiðarstöðum. Við systkinin ólumst því upp í eins konar stórfjölskyldu, sem ég tel að hafi orðið okkur til þroska á lífs- leiðinni, ásamt því að alast upp við öll algeng störf í sveit. Vissulega þurftu allir að vinna, jafnskjótt sem kraftar leyfðu, og stundum gat vinnudagurinn orðið nokkuð lang- ur, ekki síst um hábjargræðistím- ann, eins og sagt var, en iðjuleysi þekktum við ekki. Móðir mín, húsfreyjan á heim- ilinu, var sterk kona, hlý og mild. Hún var góðum gáfum gædd, frá henni stafaði andi visku og kær- leika. Að mörgu leyti líktist hún móður sinni, Guðlaugu, hvað það snerti og ættfólki hennar, en tón- listargáfu erfði hún frá bernsku- heimilinu á Skeggjastöðum og Holti, þar sem söngur og tónlist voru jafnan í hávegum höfð. Sem LAUFEY ÓLAFSDÓTTIR ✝ Laufey Ólafs-dóttir fæddist á Skeggjastöðum í Fellum 31. maí 1912. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Egilsstöð- um 11. ágúst síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Eg- ilsstaðakirkju 22. ágúst. ung stúlka lærði hún að spila á orgel, átti jafnan lítið orgel sem hún greip í, þá sjaldan næði gafst frá eril- sömum bústörfum. Hún las mikið og kunni ógrynni af kvæðum og þulum. Einhverjar fyrstu minningar mínar sem barns tengjast því, er hún sat á rúmstokkn- um og fór með ljóð og þulur og sagði okkur heilu ævintýrin fyrir svefninn, að ógleymd- um bænaversum sem jafnan voru fastur liður, áður en gengið var til náða. Hún var trúuð kona, hug- leiddi mikið hin andlegu málin og las sér til um þau efni, trúði sterk- lega á framhaldslíf að loknu þessu lífi. Sjálf átti hún mikinn innri styrk, sem grundvallaður var af guðstrú og íhugun og miðlaði hon- um til okkar barnanna á sinn nær- færna hátt. Henni var ljóst gildi menntunar í lífinu og hvatti okkur systkinin fremur en latti til að fara í framhaldsnám, og var þó auður í garði foreldra okkar síst meiri en almennt gerðist í sveitum í þann tíð. Sjálf stundaði hún nám í Laugaskóla í tvo vetur, 1930–32, og minntist iðulega dvalar sinnar þar í Reykjadalnum, þaðan sem hún átti áreiðanlega sínar bestu minningar. Fyrst og síðast var þó móðir mín manneskja hinna daglegu bústarfa, sem hún innti af hendi með ein- stakri alúð og fúsleika. Henni féll sjaldan verk úr hendi, var árrisul og nýtti hverja stundina til gagn- legrar iðju, en hvíldardaginn vildi hún halda heilagan, væri þess kost- ur og naut þess að bregða sér af bæ á góðri stund. Ekki síst var hún ræktunarkona, kartöflurækt var alltaf talsvert mikil á heimilinu og kál og grænmeti ræktaði hún jafn- an til heimilisnota og hafði af því mikla ánægju. Ekki má heldur gleyma skógræktinni sem var hennar hjartans áhugamál. Skóg- arreiturinn fagri í brekkunni ofan við túnið á Droplaugarstöðum sem hún lagði grunninn að og hlúði að alla tíð, mun halda minningu henn- ar á loft. Eftir lát föður míns flutti móðir mín í Egilsstaði í litla þjónustu- íbúð, þar sem henni leið vel og átti góð ár. Þar dvaldi hún allt þar til í nóvember á liðnum vetri er hún flutti í sambýli aldraðra. Það var mjög ríkt í fari hennar að vera sem minnst upp á aðra komin og standa á eigin fótum meðan stætt væri. Hún var kona nægjusöm, gerði aldrei miklar kröfur til lífsins gæða eða annars fólks yfirleitt, en mun meiri til sjálfrar sín. Hún átti þann innri auð, sem hvorki mölur né ryð fá grandað, jákvæða lífssýn og lífs- gleði, kunni að gleðjast yfir hinu smáa og þakka það sem fyrir hana var gert. Árin á Egilsstöðum urðu að mörgu leyti góður kapítuli í lífi hennar. Nú gat hún sinnt ýmsum áhugamálum sínum sem lítill tími hafði gefist til áður, svo sem handavinnu af ýmsu tagi og ýmiss konar félagsstarfsemi í starfi aldr- aðra á Egilsstöðum sem hún var dugleg að sækja. Hún var árrisul sem jafnan fyrr og byrjaði daginn lengst af með því að bregða sér í sundlaugina og fá sér göngutúr ef veður framast leyfði. Útivist og hreyfing voru henni mikils virði og áttu vafalaust sinn þátt í hve hún hélt góðri heilsu og kröftum allt fram undir það síðasta. Oft settist hún við orgelið sitt og spilaði gömlu, ljúfu lögin, en af söng og tónlist hafði hún alltaf mikla unun. Á sl. sumri varð hún þeirrar gleði aðnjótandi að vera þátttak- andi í ættarmóti niðja Guðlaugar og Ólafs, sem haldið var á Drop- laugarstöðum. Þar var hún nánast heiðursgestur, níræð að aldri og hin hressasta, enda ein á lífi systk- ina sinna og naut ríkulega samvista við skyldmenni sín. Safnast var saman við heimagrafreit á Skeggjastöðum þar sem hvíla for- eldrar hennar og höfð þar stutt helgistund. Þakklæti býr í brjósti fyrir þá fögru sumardaga. Á Þor- láksmessu varð hún fyrir heilsu- farsáfalli, missti málið um tíma og gat lítið sem ekkert tjáð sig en náði sér fljótlega aftur á strik og málfari á nýjan leik svo aðdáun vakti. Nú á vordögum reið svo yfir þungbært áfall, er Guðrún Mar- grét, dóttir hennar, lést sviplega af slysförum á Akureyri, en með æðruleysi hinnar lífsreyndu konu tók hún því er að höndum bar. En hún var samt dálítið ósátt við skap- arann að hafa ekki lofað sér að fara á undan, því hún var löngu ferðbú- in, hvenær sem kallið kæmi, og var farin að þrá hvíldina, sátt við Guð sinn og alla menn. Kallið kom hinn 11. ágúst er hún lést á Sjúkrahús- inu á Egilsstöðum af völdum heila- blæðingar. Útför hennar fór fram frá Egilsstaðakirkju 22. ágúst. Sr. Bjarni Guðjónsson, fyrrum sókn- arprestur á Valþjófsstað, jarðsöng og ræddi í útfararræðu um þann sem er trúr allt til dauða og öðlast mun kórónu lífsins. Hún var lögð til hinstu hvílu við hlið föður míns í Áskirkjugarði, þar sem fleiri skyld- menni okkar hvíla. Veður var fag- urt og hlýtt og sólin braust fram úr skýjum. … kemur upp fegri sól, er þessi er hnigin. Þannig var útför hennar héðan úr heimi fögur eins og líf hennar allt og umvafin ylgeislum kærleik- ans. Ólafur Þ. Hallgrímsson. „En sæl eru augu yðar, af því að þau sjá, og eyru yðar, af því að þau heyra. Sannlega segi ég yð- ur: Margir spámenn og réttlátir þráðu að sjá það, sem þér sjáið, en sáu það ekki, og heyra það, sem þér heyrið, en heyrðu það ekki.“ (Matth. 13.kap., 16.-17. v.) Mér kom þessi ritningartexti í hug þegar ég hugsaði til Soffíu, því hún sá, heyrði og skynjaði líð- SOFFÍA VILHJÁLMSDÓTTIR ✝ Soffía Vilhjálms-dóttir fæddist í Óseyrarnesi 5. maí 1913. Hún lést í Reykjavík 4. septem- ber síðastliðinn og var útför Soffíu gerð frá Oddakirkju á Rangárvöllum 13. september. an og aðstæður fólks. Það sýndi sig í því að hún var ævinlega að rétta öðrum hjálpar- hönd, hvort sem það var í bæn, með hugg- un, hvatningu, ráð- leggingum eða hún færði fólki vítamín eða aðrar nauðsynjar sem hún taldi að mættu koma að gagni. Soffía stofnaði Prjónastofuna Peys- una ásamt tveim kon- um. Hún sagði mér að þær hefðu til að byrja með alltaf lagt peninga í bankann til að eiga varasjóð ef eitthvað bæri út af með fyrirtækið. Þannig var hugsunin í þá daga. Fyrir 15 árum ætlaði hún að selja prjóna- stofuna, en salan gekk til baka. Þá gat hún ekki hugsað sér að kon- urnar misstu vinnuna og 75 ára gömul startaði hún stofunni aftur og rak hana í nokkur ár eftir það. Ég kynntist Soffíu í tengslum við vinnuna og áttum við mjög gott samstarf og bundumst við sterkum vináttuböndum. Sem dæmi um samband okkar var nóg að ég hugsaði til hennar, þá hringdi hún, það var eins og hún fengi hug- skeyti og hlógum við oft að þessu. Soffía kom oft við hjá mér, þeg- ar hún var að fara upp í bústaðinn sinn eða koma þaðan. En hún átti griðastað uppi við Laugarvatn þar sem hún var þegar hún gat komið því við og alltaf tók hún einhvern með sér. Árum saman var það Geiri bróðir hennar og konan hans. Þá var Lilja vinkona hennar einnig oftast með, en Soffía sýndi henni sérstaka ræktarsemi í veik- indum hennar. Í sveitinni komst Soffía í snertingu við náttúruna. Gróðurinn hennar hefur vaxið mik- ið. Ég þakka fyrir allar góðar minningar sem tengjast Soffíu og allt sem hún var mér, með henni er horfin góð kona. Guð blessi minningu Soffíu Vilhjálmsdóttur. Eygló Jóna Gunnarsdóttir. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ✝ Unnur Helga-dóttir fæddist í Reykjavík 16. júní 1914. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi við Hringbraut 31. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Unnar voru hjónin Guðríður Hannesdóttir, f. 25.10. 1879, d. 11.2. 1965, og Helgi Björnsson skipstjóri, f. 4.4. 1863, d. 10.11. 1921. Unnur átti sjö systkini og einn fóst- urbróður. Þau eru: Ingibjörg Sig- ríður, f. 1904, d. 1967; Friðsteinn Guðmundur, f. 1906, d. 1996; Guð- björn Friðrik, f. 1909, d. 1977; Kristín, f. 1911, d. 1982; Haf- steinn, f. 1917; Lovísa, f. 1918; Helga, f. 1921 (var skírð við kistu föður síns). Fósturbróðir Unnar var Björgvin Kristinn Friðsteins- son, f. 1901, d. 1925. Unnur giftist 28. ágúst 1943 Þórhalli Ragnari Stefánssyni verkstjóra, f. í Bakkagerði, Borg- arfirði eystri, 4. nóv. 1915, d. 4. okt. 1988. Foreldrar hans voru Stefán Þórðarson, f. 18.4 1886 á Götu í Vetleifsholtshverfi, eftir- litsmaður hjá slökkviliði í Reykja- vík, og Þorgerður Árnadóttir, f. 7.6. 1887, húsfreyja frá Borgar- firði eystri. Unnur og Þórhallur eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Gyða Þórhallsdóttir flugfreyja, f. 10. sept. 1943; 2) Svala Þórhalls- dóttir skrifstofumaður, f. 2. des. 1945, gift Garðari Snorrasyni vél- stjóra. Börn þeirra eru: a) Kristín Lilja sálfræðingur, f. 1970, í sam- búð með Ágústi Pétri Guðmundssyni flugvirkja, f. 1968. Börn þeirra eru: Írena Björk, f. 2000, og Sandra Dís, f. 2002, b) Rut fé- lagsfræðingur, f. 1972, í sambúð með Svani Þór Egilssyni sjómanni, f. 1972, c) Ragna menningar- fræðingur, f. 1973, d. 2002; 3) Árni Þór- hallsson prentari, f. 1949, kvæntur Brynju Marteins- dóttur sjúkraliða. Börn þeirra eru: a) Ásta Kristný tækniteikn- ari, f. 1970, gift Kristni Val Wiium trésmíðameistara, f. 1969. Börn þeirra eru: Arnrún, f. 1994, og Brynja, f. 1997, b) Unnur leik- skólakennari, f. 1973, gift Kristni Tómassyni prentsmið, f. 1972. Börn þeirra eru: Árni Fannar, f. 1994, og Ása Karen, f. 2000, c) Hildur Stefanía, nemi í KHÍ, f. 1977, gift Bjarna Óskari Þor- steinssyni knattspyrnumanni, f. 1976. Börn þeirra eru: Valdís Bríet, f. 2002, og Melkorka, f. 2002. Unnur ólst upp í Reykjavík og vann í efnagerðinni eftir að skóla- göngu lauk. Eftir giftingu starfaði hún við verslunarstörf og var hús- freyja. Hún var mikil íþrótta- manneskja og æfði handbolta og skíði með KR á sínum yngri árum. Unnur bjó til hinsta dags í íbúð sinni í Hæðargarði 35 í Reykjavík. Útför Unnar fór fram í kyrrþey, föstudaginn 5. september síðast- liðinn, frá Fossvogskapellu. Elsku amma mín. Mig langar til að rita nokkur orð um þig, konuna með bjarta brosið og stóra hjartað. Fyrstu minningarnar eru frá Ak- urgerðinu, heima hjá Lóló afa og Unni ömmu áttum við ömmustelp- urnar sex ófáar ánægjustundir, það var lambahryggur í hádeginu á sunnudögum, farið í bæinn í strætó með ömmu til að skoða nýjustu tískuflíkurnar í verslunum bæjarins, farið í styttri ferðir til Hveragerðis til að kaupa blóm og ís eða farið nið- ur í tóbak í vinnuna til afa. Æskuár- in eru full af góðum minningum þar sem amma lék stórt hlutverk. Þær stundir sem mér eru þó hug- stæðastar eru þær sem við áttum saman eftir að ég komst til vits og ára. Við vorum góðar vinkonur, átt- um skap og húmor saman. Þó svo að þú værir ávallt hin sanna dama, í klæðaburði, háttum og hegðun, var brosið og hláturinn sjaldnast langt undan. Sama hvaða kaldhæðnisat- hugasemdir ég lét frá munni falla hristir þú bara höfuðið og hlóst dátt. Oftar en ekki sátum við við eldhús- borðið heima hjá þér í Hæðargarði, lögðum kapal eða tvo, jafnvel þrjá ef hann var tregur á rétta svarinu og spurðum spilin spjörunum úr. Þann- ig komumst við að „sannleikanum“ um nánustu framtíð okkar og grun- lausra ættingja, ásamt því sem við ræddum mál líðandi stundar. Þú varst hjarta fjölskyldunnar, hafðir ávallt fréttir af hverjum og einum meðlimi hennar, varst alltaf til stað- ar hvað sem bjátaði á. Við gerðum meira en að sitja til borðs, og já, við vorum báðar miklir sælkerar, þegar kom að því að borða ljúffenga grænmetisrétti og gómsæta tertubita, við vorum einn- ig duglegar við að leggja land undir fót. Kíktum við á Hrafnistu til Haffa bróður þíns með súkkulaðikassa, sáum um að planta blómum á leiði Lóló afa, auk annarra látinna fjöl- skyldumeðlima, skemmtum okkur við búðaráp þar sem okkur tókst ósjaldan að gera vænlegar fjár- festingar eða bara rúntuðum um miðborg Reykjavíkur þar sem þú varst alin upp, skruppum til Hvera- gerðis og keyptum litrík blóm, feng- um okkur kaffi og kíktum á Grýlu gömlu. Þetta voru yndislegar stund- ir, fullar af hlátri og líflegum sam- ræðum þar sem ég gat alltaf reitt mig á bjartsýni þína og góð ráð. Þessara stunda mun ég sakna. Kveðja frá Gumma litla. Rut Garðarsdóttir. Elsku amma. Okkur langar til að minnast þín í örfáum orðum. Þegar við hugsum til baka er margt sem rifjast upp. Það sem stendur upp úr er hversu gott var að koma til þín, sama hvert til- efnið var, þú varst alltaf jafnhlý, notaleg og jákvæð svo eftir var tek- ið og mættu margir taka sér það til fyrirmyndar. Þú varst víðsýn, vel gefin og opin fyrir nýjungum. Alltaf var hægt að tala við þig um málefni líðandi stundar því að þú fylgdist vel með, hafðir þínar skoðanir en virtir að sama skapi skoðanir okkar. Hin síðari ár, eftir að afi dó, varstu dugleg að finna þér skemmtileg áhugamál enda ekki í þínum anda að hafa ekkert fyrir stafni. Má þar nefna dans, leikfimi og keramikmálun. Eftir þig liggja mörg listaverk á því sviði sem við njótum góðs af, má þar nefna jóla- stell og könnur sem við eigum eftir þig. Þú munt alltaf eiga ákveðinn stað í hjarta okkar. Hinsta kveðja, Ásta, Unnur og Hildur. UNNUR HELGADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.