Morgunblaðið - 25.09.2003, Side 43
HIN konunglega röð suð-
urs í spaða myndi sóma
sér vel í póker, en sem
tromplitur í fjórum spöð-
um er konungsveldið í
nokkurri hættu fyrir afli
fjöldans:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 95
♥ 72
♦ 7642
♣K8762
Suður
♠ ÁKDG10
♥ ÁK9
♦ KD83
♣4
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 hjarta Dobl
Pass 2 lauf Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur spilar út smáu
hjarta og sagnhafi tekur
strax tvo efstu og trompar
þriðja hjartað. Spilar svo
tígli úr blindum á kónginn
heima og fær þann slag.
Hvernig myndi lesandinn
halda áfram í sporum suð-
urs?
Níu slagir eru komnir í
hús og það verður að
sækja þann tíunda á tígul.
Sem þýðir að liturinn þarf
að falla 3-2. Þar eð öll
millispilin vantar í tígulinn
virðist rökrétt að spila
næst litlum tígli í bláinn,
en í því er fólgin lúmsk
hætta:
Norður
♠ 95
♥ 72
♦ 7642
♣K8762
Vestur Austur
♠ 8742 ♠ 63
♥ 863 ♥ DG1054
♦ G5 ♦ Á109
♣G953 ♣ÁD10
Suður
♠ ÁKDG10
♥ ÁK9
♦ KD83
♣4
Vestur fær þá slaginn á
tígulgosa og ef hann finnur
þá góðu vörn að spila lauf-
gosa í gegnum kónginn,
nær vörnin að tvístytta
sagnhafa og byggja upp
slag á fjórða tromp vest-
urs.
Við þessari ógn má
bregðast með því að spila
tíguldrottningu strax og
neyða austur til að taka
slaginn á ásinn. Hann get-
ur ekki sótt að laufinu og
trompnían í borði ver
sagnhafa gegn árás í
hjartalitnum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Lykillinn að velgengni þinni
er dugnaður og marksækni.
Þú veist hvað þú vilt og það
er ómetanlegt. Að auki ert
þú ákveðin/n og gerir þér
grein fyrir umhverfinu.
Mikilvægar ákvarðanir
eru framundan.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hræðist ný sambönd í dag.
Ekki láta það hafa áhrif á þig
þótt á þig leiti óöryggi og efi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Starfsfélagar kunna að gagn-
rýna framlag þitt í dag. Láttu
það ekki stjórna þér því að
það sem þeir halda um þig
kemur því ekki við hver þú
ert í raun.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gætir komist að því að þú
hefur ekki efni á því að
skemmta þér í dag. Velkom-
in/n í hópinn. Við skiptum
milljónum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fjölskyldan og sérstaklega
foreldrarnir gætu gagnrýnt
gerðir þínar í dag. Sannleik-
urinn er að aldrei er hægt að
gera öllum til geðs og þú
skiptir mestu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki hafa áhyggjur af öllu
því, sem þú hefur komið af
stað. Eitthvað mun fara úr-
skeiðis, en þannig er það og
þú skalt slappa af.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir þurft að borga vini
peninga eða gera upp skuld.
Þér finnst þrengt að þér pen-
ingalega í viðleitninni í að
halda í við hópinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ekki auðvelt að gera
yfirmanninum til geðs í dag.
Þetta er því ekki dagurinn til
að leggja fram hugmyndir og
betra að fara varlega.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki láta sjálfsefann halda
aftur af þér í dag. Munurinn
á atvinnu- og áhugamanni er
að atvinnumaðurinn hendir
sínum bestu verkum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gamall vinur gæti gefið þér
ráð í dag. Það gæti hins vegar
verið að þú viljir ekki hlusta á
þau. Mundu að þú þarft ekki
að fara eftir þeim.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir þurft að leggja fé-
laga eða nánum vini lífsregl-
urnar í dag. Þú áttar þig á að
það eru takmörk og það þarf
að vinna innan þeirra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Aðrir eru ekki eins spenntir
fyrir ferðahugmyndum og
námsáætlunum og þú. Ekki
hafa áhyggjur. Þú þarft ekki
að breyta neinu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Rómantísk sambönd geta
verið erfið í dag. Fólk er ekki
opið, en það er ekki áhyggju-
efni og þú skalt halda í vonina
og jákvæðnina.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HAUSTVÍSA
Lengir nóttu, lúta höfðum blóm,
laufið titrar fölt á háum reinum,
vindur hvíslar ömurlegum óm
illri fregn að kvíðnum skógargreinum,
greinar segja fugli, og fuglinn þagnar.
Í brjósti mannsins haustar einnig að,
upp af hrelldu hjarta gleðin flýgur,
en vetrarmjöll í daggardropa stað
á dökkvan lokk og mjúkan þögul hnígur,
og æskublómin öll af kinnum deyja.
Grímur Thomsen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
september, er áttræður
Jónas Þórðarson, fram-
reiðslumaður, Öldugranda
1, Reykjavík. Af því tilefni
býður hann ættingjum og
vinum að samgleðjast með
sér í sal Félagsþjónust-
unnar að Hvassaleiti 56–58 í
dag milli kl. 18–20.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
september, er sjötugur
Pálmi Sæmundsson, fyrr-
verandi sparisjóðsstjóri
sparisjóðs Hrútfirðinga,
Borðeyri, Laugarholti,
Stað. Hann tekur á móti
gestum laugardaginn 27.
september kl. 20 í Grunn-
skólanum á Borðeyri.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
september, er fimmtugur
Pálmi Helgason. Hann og
kona hans, Hafdís Sigurð-
ardóttir, taka á móti gestum
laugardaginn 27. september
frá kl. 20-23 í Félagsheimili
Þrasta, Flatahrauni 21,
Hafnarfirði.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
september, er sjötugur
Ólafur Árni Benediktsson,
fyrrverandi bóndi á Stóra-
Vatnshorni í Haukadal,
Dalasýslu. Eiginkona hans
er Guðrún Ágústsdóttir. Í
tilefni dagsins verða Árni og
Guðrún með opið hús í Ár-
bliki, félagsheimili Suður-
dala, frá kl. 20 laugardaginn
27. september.
1. d4 e6 2. Rf3 c5 3. e3 Rf6 4.
b3 d6 5. Bb2 Rbd7 6. Rbd2
Be7 7. Bd3 a6 8. c4 Dc7 9. g4
cxd4 10. exd4 b6 11. Hg1
Bb7 12. De2 d5 13. Hc1 Df4
14. g5 Re4 15. De3 Bd6 16.
cxd5 Rxd2 17. Rxd2 Bxd5
18. Re4 Dxh2 19. Rxd6+
Dxd6 20. f4 g6 21. Hc2 b5
22. Hg3 h5 23. f5 h4 24. Hh3
gxf5 25. Bxf5 Rf8 26.
Hc5 Hd8 27. Bc3 b4
28. Bxb4 Bg2 29.
Hc4 Db8
Staðan kom upp í
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í
Egyptalandi. Egypt-
inn Adly Ahmed
(2.429) hafði hvítt
gegn Anthony Kost-
en (2.514). 30. g6
Bxh3 30. ... Rxg6
hefði vart gengið
upp vegna 31. Bxe6!
Re5 32. dxe5 fxe6 33.
Dg5! og hvítur vinn-
ur. 31. g7 Hg8 32. gxf8=D+
Hxf8 33. Be4! Hg8 34. Bc6+
Hd7 35. Dxh3 Df4 36. Bd2
Df6 37. Dh1 Hg3 38. Bxd7+
Kf8 39. Bc6 Dg6 40. Dxh4
Db1+ 41. Kf2 Dg1+ 42. Ke2
Hg4 43. Dh8+ og svartur
gafst upp. Ahmed þessi náði
sínum öðrum áfanga að
stórmeistaratitli á mótinu
en hann vann það örugglega
með 7½ vinning af 11 mögu-
legum.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Útsala
50-70%
afsláttur
Bankastræti 11 sími 551 3930
Laugavegi 54, sími 552 5201
Úlpur
Gallabuxur
Peysur
Mikið úrval
Verð frá 5.990
Áður 5.990
Nú 3.990
Áður 5.990
Nú 3.990
Kringlunni - Sími 581 2300
NÝ SENDING
SKYRTUR • PEYSUR
ÚLPUR • FRAKKAR
STUTTIR JAKKAR
LEÐURJAKKAR
HÁLFSÍÐIR JAKKAR
40 ÁRA afmæli. Í dag,fimmudaginn 25.
september, er fertugur
Björn Jónsson, starfsmaður
Kaupþings í Lúxemborg.
Hann tekur á móti gestum á
föstudaginn.
Vetrarstarfið hafið hjá
Bridsfélagi Suðurnesja
Fyrsta verðlaunamót haustsins,
þriggja kvölda tvímenningur, er hafið
en þar gilda tvö efstu kvöldin til verð-
launa.
Eftir fyrsta kvöldið standa eftirtal-
in pör best:
Garðar Garðarss. – Kristján Kristjánss. 65%
Garðar Þ. Garðarss. – Þorgeir Halldórss. 55%
Gunnar Guðbjss. – Randver Ragnarss. 55%
Spilað er á mánudagskvöldum í fé-
lagsheimilinu á Mánagrund. við
gamla Sandgerðisveginn.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Aftur var spilaður eins kvölds upp-
hitunartvímenningur 22. sept.
Úrslit urðu þannig:
Einar Sigurðsson - Halldór Einarsson 136
Hjörtur Halldórss. - Hjalti Halldórsson 128
Atli Hjartarson - Sverrir Jónss. 114
Dröfn Guðmundsd. - Hrund Einarsd. 108
Meðalskor var 108 og skor Einars
og Halldórs því 63%. Næstu þrjá
mánudaga er áformað að spila
hausttvímenning með barometer-
sniði.
Þá er tækifærið til að dusta rykið af
kunnáttunni og allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Spilað er í Flatahrauni 3 og byrjað
kl. 19.30.
Bridsfélag Akureyrar
Vetrarstarfsemin er hafin hjá
Bridsfélagi Akureyrar.
Eftir fyrra kvöld á Startmóti Sjó-
vár-Almennra er staðan þannig:
N/S:
Pétur Örn Guðjónss. - Ólafur Ágústss. +44
Ragnh. Haraldsd. - Kolbrún Guðveigsd. +41
Hermann H. Huijbens - Steinarr Guðm. -5
A/V:
Reynir Helgas. - Stefán Sveinbjörnss. +25
Hjalti Bergmann - Gissur Jónasson +12
Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir + 3
Mótaröð BA fer fram á þriðjudags-
kvöldum kl. 19.30 með forgefnum
spilum og keppnisstjórn. Einnig er
spilaðir eins kvölds tvímenningar á
sunnudagskvöldum á sama tíma í fé-
lagsheimili Þórs, Hamri. Allir vel-
komnir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson