Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 43
HIN konunglega röð suð- urs í spaða myndi sóma sér vel í póker, en sem tromplitur í fjórum spöð- um er konungsveldið í nokkurri hættu fyrir afli fjöldans: Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ 95 ♥ 72 ♦ 7642 ♣K8762 Suður ♠ ÁKDG10 ♥ ÁK9 ♦ KD83 ♣4 Vestur Norður Austur Suður – – 1 hjarta Dobl Pass 2 lauf Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur spilar út smáu hjarta og sagnhafi tekur strax tvo efstu og trompar þriðja hjartað. Spilar svo tígli úr blindum á kónginn heima og fær þann slag. Hvernig myndi lesandinn halda áfram í sporum suð- urs? Níu slagir eru komnir í hús og það verður að sækja þann tíunda á tígul. Sem þýðir að liturinn þarf að falla 3-2. Þar eð öll millispilin vantar í tígulinn virðist rökrétt að spila næst litlum tígli í bláinn, en í því er fólgin lúmsk hætta: Norður ♠ 95 ♥ 72 ♦ 7642 ♣K8762 Vestur Austur ♠ 8742 ♠ 63 ♥ 863 ♥ DG1054 ♦ G5 ♦ Á109 ♣G953 ♣ÁD10 Suður ♠ ÁKDG10 ♥ ÁK9 ♦ KD83 ♣4 Vestur fær þá slaginn á tígulgosa og ef hann finnur þá góðu vörn að spila lauf- gosa í gegnum kónginn, nær vörnin að tvístytta sagnhafa og byggja upp slag á fjórða tromp vest- urs. Við þessari ógn má bregðast með því að spila tíguldrottningu strax og neyða austur til að taka slaginn á ásinn. Hann get- ur ekki sótt að laufinu og trompnían í borði ver sagnhafa gegn árás í hjartalitnum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 43 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Lykillinn að velgengni þinni er dugnaður og marksækni. Þú veist hvað þú vilt og það er ómetanlegt. Að auki ert þú ákveðin/n og gerir þér grein fyrir umhverfinu. Mikilvægar ákvarðanir eru framundan. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hræðist ný sambönd í dag. Ekki láta það hafa áhrif á þig þótt á þig leiti óöryggi og efi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Starfsfélagar kunna að gagn- rýna framlag þitt í dag. Láttu það ekki stjórna þér því að það sem þeir halda um þig kemur því ekki við hver þú ert í raun. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú gætir komist að því að þú hefur ekki efni á því að skemmta þér í dag. Velkom- in/n í hópinn. Við skiptum milljónum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Fjölskyldan og sérstaklega foreldrarnir gætu gagnrýnt gerðir þínar í dag. Sannleik- urinn er að aldrei er hægt að gera öllum til geðs og þú skiptir mestu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ekki hafa áhyggjur af öllu því, sem þú hefur komið af stað. Eitthvað mun fara úr- skeiðis, en þannig er það og þú skalt slappa af. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú gætir þurft að borga vini peninga eða gera upp skuld. Þér finnst þrengt að þér pen- ingalega í viðleitninni í að halda í við hópinn. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er ekki auðvelt að gera yfirmanninum til geðs í dag. Þetta er því ekki dagurinn til að leggja fram hugmyndir og betra að fara varlega. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ekki láta sjálfsefann halda aftur af þér í dag. Munurinn á atvinnu- og áhugamanni er að atvinnumaðurinn hendir sínum bestu verkum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gamall vinur gæti gefið þér ráð í dag. Það gæti hins vegar verið að þú viljir ekki hlusta á þau. Mundu að þú þarft ekki að fara eftir þeim. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú gætir þurft að leggja fé- laga eða nánum vini lífsregl- urnar í dag. Þú áttar þig á að það eru takmörk og það þarf að vinna innan þeirra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Aðrir eru ekki eins spenntir fyrir ferðahugmyndum og námsáætlunum og þú. Ekki hafa áhyggjur. Þú þarft ekki að breyta neinu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Rómantísk sambönd geta verið erfið í dag. Fólk er ekki opið, en það er ekki áhyggju- efni og þú skalt halda í vonina og jákvæðnina. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. HAUSTVÍSA Lengir nóttu, lúta höfðum blóm, laufið titrar fölt á háum reinum, vindur hvíslar ömurlegum óm illri fregn að kvíðnum skógargreinum, greinar segja fugli, og fuglinn þagnar. Í brjósti mannsins haustar einnig að, upp af hrelldu hjarta gleðin flýgur, en vetrarmjöll í daggardropa stað á dökkvan lokk og mjúkan þögul hnígur, og æskublómin öll af kinnum deyja. Grímur Thomsen LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25. september, er áttræður Jónas Þórðarson, fram- reiðslumaður, Öldugranda 1, Reykjavík. Af því tilefni býður hann ættingjum og vinum að samgleðjast með sér í sal Félagsþjónust- unnar að Hvassaleiti 56–58 í dag milli kl. 18–20. 70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25. september, er sjötugur Pálmi Sæmundsson, fyrr- verandi sparisjóðsstjóri sparisjóðs Hrútfirðinga, Borðeyri, Laugarholti, Stað. Hann tekur á móti gestum laugardaginn 27. september kl. 20 í Grunn- skólanum á Borðeyri. 50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25. september, er fimmtugur Pálmi Helgason. Hann og kona hans, Hafdís Sigurð- ardóttir, taka á móti gestum laugardaginn 27. september frá kl. 20-23 í Félagsheimili Þrasta, Flatahrauni 21, Hafnarfirði. 70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25. september, er sjötugur Ólafur Árni Benediktsson, fyrrverandi bóndi á Stóra- Vatnshorni í Haukadal, Dalasýslu. Eiginkona hans er Guðrún Ágústsdóttir. Í tilefni dagsins verða Árni og Guðrún með opið hús í Ár- bliki, félagsheimili Suður- dala, frá kl. 20 laugardaginn 27. september. 1. d4 e6 2. Rf3 c5 3. e3 Rf6 4. b3 d6 5. Bb2 Rbd7 6. Rbd2 Be7 7. Bd3 a6 8. c4 Dc7 9. g4 cxd4 10. exd4 b6 11. Hg1 Bb7 12. De2 d5 13. Hc1 Df4 14. g5 Re4 15. De3 Bd6 16. cxd5 Rxd2 17. Rxd2 Bxd5 18. Re4 Dxh2 19. Rxd6+ Dxd6 20. f4 g6 21. Hc2 b5 22. Hg3 h5 23. f5 h4 24. Hh3 gxf5 25. Bxf5 Rf8 26. Hc5 Hd8 27. Bc3 b4 28. Bxb4 Bg2 29. Hc4 Db8 Staðan kom upp í alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Egyptalandi. Egypt- inn Adly Ahmed (2.429) hafði hvítt gegn Anthony Kost- en (2.514). 30. g6 Bxh3 30. ... Rxg6 hefði vart gengið upp vegna 31. Bxe6! Re5 32. dxe5 fxe6 33. Dg5! og hvítur vinn- ur. 31. g7 Hg8 32. gxf8=D+ Hxf8 33. Be4! Hg8 34. Bc6+ Hd7 35. Dxh3 Df4 36. Bd2 Df6 37. Dh1 Hg3 38. Bxd7+ Kf8 39. Bc6 Dg6 40. Dxh4 Db1+ 41. Kf2 Dg1+ 42. Ke2 Hg4 43. Dh8+ og svartur gafst upp. Ahmed þessi náði sínum öðrum áfanga að stórmeistaratitli á mótinu en hann vann það örugglega með 7½ vinning af 11 mögu- legum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Útsala 50-70% afsláttur Bankastræti 11  sími 551 3930 Laugavegi 54, sími 552 5201 Úlpur Gallabuxur Peysur Mikið úrval Verð frá 5.990 Áður 5.990 Nú 3.990 Áður 5.990 Nú 3.990 Kringlunni - Sími 581 2300 NÝ SENDING SKYRTUR • PEYSUR ÚLPUR • FRAKKAR STUTTIR JAKKAR LEÐURJAKKAR HÁLFSÍÐIR JAKKAR 40 ÁRA afmæli. Í dag,fimmudaginn 25. september, er fertugur Björn Jónsson, starfsmaður Kaupþings í Lúxemborg. Hann tekur á móti gestum á föstudaginn. Vetrarstarfið hafið hjá Bridsfélagi Suðurnesja Fyrsta verðlaunamót haustsins, þriggja kvölda tvímenningur, er hafið en þar gilda tvö efstu kvöldin til verð- launa. Eftir fyrsta kvöldið standa eftirtal- in pör best: Garðar Garðarss. – Kristján Kristjánss. 65% Garðar Þ. Garðarss. – Þorgeir Halldórss. 55% Gunnar Guðbjss. – Randver Ragnarss. 55% Spilað er á mánudagskvöldum í fé- lagsheimilinu á Mánagrund. við gamla Sandgerðisveginn. Bridsfélag Hafnarfjarðar Aftur var spilaður eins kvölds upp- hitunartvímenningur 22. sept. Úrslit urðu þannig: Einar Sigurðsson - Halldór Einarsson 136 Hjörtur Halldórss. - Hjalti Halldórsson 128 Atli Hjartarson - Sverrir Jónss. 114 Dröfn Guðmundsd. - Hrund Einarsd. 108 Meðalskor var 108 og skor Einars og Halldórs því 63%. Næstu þrjá mánudaga er áformað að spila hausttvímenning með barometer- sniði. Þá er tækifærið til að dusta rykið af kunnáttunni og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Spilað er í Flatahrauni 3 og byrjað kl. 19.30. Bridsfélag Akureyrar Vetrarstarfsemin er hafin hjá Bridsfélagi Akureyrar. Eftir fyrra kvöld á Startmóti Sjó- vár-Almennra er staðan þannig: N/S: Pétur Örn Guðjónss. - Ólafur Ágústss. +44 Ragnh. Haraldsd. - Kolbrún Guðveigsd. +41 Hermann H. Huijbens - Steinarr Guðm. -5 A/V: Reynir Helgas. - Stefán Sveinbjörnss. +25 Hjalti Bergmann - Gissur Jónasson +12 Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir + 3 Mótaröð BA fer fram á þriðjudags- kvöldum kl. 19.30 með forgefnum spilum og keppnisstjórn. Einnig er spilaðir eins kvölds tvímenningar á sunnudagskvöldum á sama tíma í fé- lagsheimili Þórs, Hamri. Allir vel- komnir. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.