Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.10. B.i. 10.
ÁLFABAKKI
kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10.
AKUREYRI
kl. 10. B.i. 10.
Frábær tryllir
THE TIMES
Spacey er í
toppformi
UNCUT
Fullkomið rán.
Svik. Uppgjör.
KVIKMYNDIR.IS
L.A. TIMES
BBCI
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl tal
Stórkostleg
gamanmynd sem er
búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA
með Jamie Lee
Curtis og
Lindsay Lohan í
aðalhlutverki.
Yfir 100 M$
í USA!
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi! Yfir
41.000
gestir
ÁLFABAKKI
Synd kl. 3.45. Ísl tal
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd. kl. 6.
NÓI ALBINÓI
Rómantísk grínmynd frá leikstjóra When Harry Met Sally með
LukeWilson (Legally Blonde) og Kate Hudson (How To Lose A Guy...)
Kvikmynd eftir Sólveigu Anspachi i i
DIDDA JÓNSDÓTTIR ELODIE BOUCHEZ
BALTASAR KORMÁKUR INGVAR E. SIGURÐSSON
Mögnuð mynd eftir
Sólveigu Anspach
sem valin var til
sýninga á
kvikmyndahátíðinni
í Cannes
á þessu ári.
Sjáið sannleikann!
Frábær tryllir
THE TIMES
Spacey er í
toppformi
UNCUT
i
í
i
Ný mynd frá breska leikstjóranum Alan Parker með
tvöföldum Óskarsverðlaunahafa, KevinSpacey.
Vinsælustu myndirnar
á Breskum Bíódögum
sýndar áfram.
Missið ekki af þessum
frábærum myndum
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kl. 6. kl. 8. kl. 5.45. kl. 10.05. kl. 10.20.
H.J. MBL
S.G. DV
„Áhrifarík og lofsamleg.“
HJ. MBL
H.K. DV
THE
MAGDALENE
SISTERS
Skonrok Fm 90.9
H.K. DV
SG DV
SV. MBLPlots
With a View
SG DV
SG MBL
ÞAÐ hlaut að koma að því að á Íslandi
yrði stofnaður aðdáendaklúbbur
einnar af litríkustu sveitum landsins.
Nú hafa aðdáendur og velunnarar
Sálarinnar komið saman og skipa
fylkinguna Gullna liðið, sem telur yfir
fimm hundruð manns.
Meðlimir Gullna liðsins kallast Sál-
ir en sál númer eitt er einmitt Jón
Ólafsson, án efa stærsti velunnari Sál-
arinnar og stofnmeðlimur hennar.
Þótti stofnendum Gullna liðsins við
hæfi að Jón og makar sveitarmanna
fengju fyrstu númerin.
Þau Jón Viðar Stefánsson, sál núm-
er 6, og Laufey Jörgensdóttir, sál
númer 7, segja Gullna liðið ekki vera
ofsafengna aðdáendur sálarinnar,
heldur samansafn fólks sem gerir sér
grein fyrir sögulegri stöðu sveitarinn-
ar og mikilvægi þess að halda til haga
munum og minningum um sveitina.
„Þegar við stofnuðum Gullna liðið
spurðum við: Hvað ætlum við að
gera? Vera einhverjar sveittar
grúppíur í hljómsveitarbol á balli, eða
ætlum við að vera á vitsmunalegu nót-
unum, klúbbur áhugafólks um sögu
sálarinnar. Og það seinna varð ofan
á,“ segir Jón Viðar og Laufey tekur
undir orð hans. „Við vildum taka sam-
an sögu hljómsveitarinnar og koma
myndum og alls kyns efni saman á
Netinu þar sem fólk getur nálgast það
á einum stað. Saga sveitarinnar er
þarna í rauninni í vefútgáfu.
Sálin er ekki bara góð ballhljóm-
veit, heldur hefur hún einnig verið
ótrúlega virk í alls kyns útgáfu á ýms-
um sviðum. Til dæmis gáfu þeir út
fyrsta íslenska DVD-diskinn og
myndbandsspóluna Garg, sem var í
sama þema og hljómplatan Garg. Svo
hanna þeir sínar eigin auglýsingar og
eru alltaf skapandi og frumlegir í því.
Við erum að vekja athygli á öllu sem
Sálin hefur gert í gegnum tíðina.“
Sálin hefur nú snert tvær kynslóðir
íslenskra ballgesta, en flestir í gullna
liðinu eru á aldrinum 25–30 ára, af
eldri kynslóð Sálaraðdáenda. Forsala
er nú hafin á tónleikana á NASA í
kvöld, en meðlimir Gullna liðsins hafa
sérstakan forkaupsrétt á miðum. Í til-
efni af tónleikunum hefur verið
ákveðið að gera 25. september að
formlegum stofndegi klúbbsins. Þau
Laufey og Jón Viðar hvetja Sálir um
allar heim til að skrá sig í félagsskap-
inn á síðu klúbbsins, www.salin.is.
Aðdáendaklúbburinn Gullna liðið
Morgunblaðið/Jim Smart
Þau Laufey og Jón Viðar eru uppi í skýjunum yfir afmælistónleikunum.
Safna sögunni
SÁLIN hans Jóns míns er ein elsta
starfandi hljómsveit Íslands og án
efa ein sú dáðasta meðal íslenskra
ballgesta. Sveitin hefur nú starfað í
fimmtán ár og sér ekki högg á vatni
í spilagleði Sálarmanna. Í tilefni af
þessum tímamótum verða haldnir
sérstakir afmælistónleikar á NASA
í kvöld, þar sem farið verður yfir
liðna tíð og saga Sálarinnar rifjuð
upp á ýmsan hátt. Stemningin verð-
ur þó nokkuð lágstemmdari og
tækifæri til að sitja og njóta lag-
anna auk þess sem meðlimir munu
segja sögur úr lífi hljómsveit-
arinnar á milli laga. Á föstudaginn
munu Sálarmenn síðan spila á balli
á sama stað með miklum tilþrifum.
Sálin var stofnuð vorið 1988 í
kjölfarið á vel heppnaðri blús-
bræðrasýningu sem Þorsteinn Joð
Vilhjálmsson og Jón Ólafsson stóðu
að árið áður. Guðmundur Jónsson
gítarleikari og Stefán Hilmarsson
söngvari voru meðal stofnenda.
Sálin hans Jóns míns lék þá sál-
arskotna popptónlist undir ríkuleg-
um áhrifum frá sálargoðum sjö-
unda áratugarins. Lék sveitin á
sínum fyrstu tónleikum í Bíókjall-
aranum, í kjallara gamla Tunglsins,
þann fimmtánda mars 1988.
Segja má að Sálin hans Jóns míns
hafi orðið fræg á einni nóttu með
lögum eins og „Hei kanína“ og „Á
tjá og tundri“ og hafa allar götur
síðan þá dælt út hverjum smellnum
á fætur öðrum og leikið fyrir dansi
á smekkfullum böllum.
Sálin heldur afmælistónleika á NASA
Syngjandi sveittir í 15 ár
Tónleikar Sálarinnar á NASA
hefjast í kvöld klukkan 22.
1988 Fyrsta „giggið“ í Bíókjall-
aranum, 15. mars. Hljóðritað og
gefið út á fyrstu plötunni Syngj-
andi sveittir. Þrír stofnmeðlimir
hætta að hausti, Stefán og Guð-
mundur ákveða þó að halda áfram.
1989 Stefán og Guðmundur fá
til liðs við sig Friðrik Sturluson,
Jens Hansson og Magnús Stef-
ánsson. Platan Hvar er draum-
urinn? kemur út og verður met-
söluplata.
1990 Bandið verður eftirsótt
sem tónleikaband í kjölfar vinsælda
Hvar er draumurinn? Mikil spila-
mennska og samvera valda þreytu.
Magnús hættir og bandið tekur
langt frí, hið fyrsta af mörgum.
1991 Birgir Baldursson trymbill
og Atli Örvarsson hljómborðsleik-
ari koma inn, platan Sálin hans
Jóns míns kemur út og selst vel.
1992 Sveitin sendir snemma árs
frá sér enska útgáfu plötunnar
Hvar er draumurinn? og tekur
nokkur gigg erlendis. Að vori kem-
ur út Garg, sem er safnplata smá-
skífulaga, ásamt þremur nýjum,
„Hjá þér“, „Krókurinn“, og „Sód-
óma“, sem öll slá í gegn.
Garg selst geysivel, vinsældirnar
aukast. Að hausti sendir sveitin frá
sér Þessi þungu högg, sem samin
er í sameiningu og markar kúvend-
ingu í stíl sveitarinnar. Kerkju tek-
ur að gæta innan bandsins, menn
ekki á eitt sáttir um aðferðafræði
og stefnu.
1993–4 Aukið álag samfara mik-
illi spilamennsku og pirringi innan
bandsins veldur því að menn
ákveða að taka sér langt frí. Sál-
verjar fara hver í sína áttina, sinna
nýjum verkefnum og starfa á öðr-
um vígstöðvum. Sálarorlofið notuðu
menn til ýmissa verka, spiluðu í
öðrum hljómsveitum, fóru í nám og
gáfu út sólóplötur.
1995 Sveitin kemur saman að
nýju. Tómas Jóhannesson tekur við
kjuðunum, platan Sól um nótt kem-
ur út og sveitin heldur í mikla tón-
leikareisu. Að hausti senda Jens og
Guðmundur frá sér plötu undir
nafninu Zebra, Guðmundur flytur
til London í árslok.
1996 Vegna fjarveru Guðmudar
og Atla starfar sveitin ekki mikið
þetta árið, en leikur þó á fáeinum
tónleikum. Stefán sendir frá sér
sóló-plötuna Eins og er…
1997 Þrjú ný lög hljóðrituð og
farið í stutta sumarreisu. Stefán
sendir að hausti frá sér þriðju sóló-
plötuna, Popplín.
1998 Á tíunda afmælisárinu
sendir Sálin frá sér Gullna hliðið,
sem geymir úrval Sálarlaga frá
’88–’98, ásamt þremur nýjum. Jó-
hann Hjörleifsson sest við trommu-
settið. Stærsti sumartúrinn síðan
1995. Að hausti segir Atli skilið við
bandið, enda búsettur í Kaliforníu.
1999 Guðmundur flytur aftur
heim. Sveitin heldur vel lukkaða
„órafmagnaða“ tónleika í Loftkast-
alanum, hljóðritar og gefur út á
plötunni 12 ágúst ’99.
Þar voru eldri lög sett í nýjan
búning og tvö glæný fljóta með og
verða bæði geysivinsæl, annað
þeirra, „Okkar nótt“ verður einn
stærsti Sálar-smellurinn frá upp-
hafi.
Platan fellur í mjög góðan jarð-
veg og segja má að hljómsveitin
gangi í endurnýjun lífdaga, því
platan aflar henni einnig fjöl-
margra nýrra áhangenda.
2000 Velgengni tónleikaplöt-
unnar blæs Sálverjum baráttuanda
í brjóst. Annar máni kemur út,
fyrri helmingur tvíleiks sem síðar
verður hráefni söngleiksins Sól og
Máni. Um haustið kemur 12. ágúst
’99 út á DVD-diski, en það er
fyrsta fyrsta alíslenska DVD-
útgáfan.
2001 Seinni helmingur tvíleiks-
ins, Logandi ljós, kemur út og
hlýtur góðar viðtökur, þykir af
mörgum besta Sálarplatan til
þessa.
2002 Sálin heldur tónleika með
Sinfóníunni í nóvember. Efnið er
hljóðritað og sett í salt fram yfir
áramót, því undirbúningur stendur
sem hæst fyrir söngleikinn Sól og
Mána.
2003 Sól og Máni frumsýndur í
Borgarleikhúsinu, sýndur fram að
vori við ágætan orðstír. Sumarið
notað til að hljóðblanda upptökur
frá Sinfóníu-tónleikunum, og fyr-
irhugað að plata og DVD komi út í
október.
Fimmtán ár af Sál
Hér er stiklað á stóru yfir sögu Sálarinnar, ár fyrir ár
1. Á tjá og tundri
2. Þig bara þig
3. 100.000 volt
4. Hvar er draumurinn?
5. Ábyggilega!
6. Hjá þér
7. Sódóma
8. Ég þekki þig
9. Fannfergi hugans
10. Orginal
11. Okkar nótt
12. Ekki nema von
13. Á nýjum stað
14. Þú fullkomnar mig
15. Allt eins og það á að vera
Fimmtán Sálarlög
STEFÁN Hilmarsson, söngv-
ari Sálarinnar, tók saman
fimmtán lög, eitt fyrir hvert ár
sem sveitin hefur starfað, sem
eiga það sameiginlegt að hafa
náð gríðarlegum vinsældum.