Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KEFLAVÍK kl. 8 og 10.10. B.i. 10. ÁLFABAKKI kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10. AKUREYRI kl. 10. B.i. 10. Frábær tryllir THE TIMES Spacey er í toppformi UNCUT Fullkomið rán. Svik. Uppgjör. KVIKMYNDIR.IS  L.A. TIMES  BBCI ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal Stórkostleg gamanmynd sem er búin að gera allt sjóðvitlaust í USA með Jamie Lee Curtis og Lindsay Lohan í aðalhlutverki. Yfir 100 M$ í USA! Þetta er sko stuðmynd í lagi! Yfir 41.000 gestir ÁLFABAKKI Synd kl. 3.45. Ísl tal KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd. kl. 6. NÓI ALBINÓI Rómantísk grínmynd frá leikstjóra When Harry Met Sally með LukeWilson (Legally Blonde) og Kate Hudson (How To Lose A Guy...) Kvikmynd eftir Sólveigu Anspachi i i DIDDA JÓNSDÓTTIR ELODIE BOUCHEZ BALTASAR KORMÁKUR INGVAR E. SIGURÐSSON Mögnuð mynd eftir Sólveigu Anspach sem valin var til sýninga á kvikmyndahátíðinni í Cannes á þessu ári. Sjáið sannleikann! Frábær tryllir THE TIMES Spacey er í toppformi UNCUT i í i Ný mynd frá breska leikstjóranum Alan Parker með tvöföldum Óskarsverðlaunahafa, KevinSpacey. Vinsælustu myndirnar á Breskum Bíódögum sýndar áfram. Missið ekki af þessum frábærum myndum Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16.Sýnd kl. 6, 8 og 10. kl. 6. kl. 8. kl. 5.45. kl. 10.05. kl. 10.20. H.J. MBL S.G. DV „Áhrifarík og lofsamleg.“ HJ. MBL H.K. DV THE MAGDALENE SISTERS Skonrok Fm 90.9 H.K. DV SG DV SV. MBLPlots With a View SG DV SG MBL ÞAÐ hlaut að koma að því að á Íslandi yrði stofnaður aðdáendaklúbbur einnar af litríkustu sveitum landsins. Nú hafa aðdáendur og velunnarar Sálarinnar komið saman og skipa fylkinguna Gullna liðið, sem telur yfir fimm hundruð manns. Meðlimir Gullna liðsins kallast Sál- ir en sál númer eitt er einmitt Jón Ólafsson, án efa stærsti velunnari Sál- arinnar og stofnmeðlimur hennar. Þótti stofnendum Gullna liðsins við hæfi að Jón og makar sveitarmanna fengju fyrstu númerin. Þau Jón Viðar Stefánsson, sál núm- er 6, og Laufey Jörgensdóttir, sál númer 7, segja Gullna liðið ekki vera ofsafengna aðdáendur sálarinnar, heldur samansafn fólks sem gerir sér grein fyrir sögulegri stöðu sveitarinn- ar og mikilvægi þess að halda til haga munum og minningum um sveitina. „Þegar við stofnuðum Gullna liðið spurðum við: Hvað ætlum við að gera? Vera einhverjar sveittar grúppíur í hljómsveitarbol á balli, eða ætlum við að vera á vitsmunalegu nót- unum, klúbbur áhugafólks um sögu sálarinnar. Og það seinna varð ofan á,“ segir Jón Viðar og Laufey tekur undir orð hans. „Við vildum taka sam- an sögu hljómsveitarinnar og koma myndum og alls kyns efni saman á Netinu þar sem fólk getur nálgast það á einum stað. Saga sveitarinnar er þarna í rauninni í vefútgáfu. Sálin er ekki bara góð ballhljóm- veit, heldur hefur hún einnig verið ótrúlega virk í alls kyns útgáfu á ýms- um sviðum. Til dæmis gáfu þeir út fyrsta íslenska DVD-diskinn og myndbandsspóluna Garg, sem var í sama þema og hljómplatan Garg. Svo hanna þeir sínar eigin auglýsingar og eru alltaf skapandi og frumlegir í því. Við erum að vekja athygli á öllu sem Sálin hefur gert í gegnum tíðina.“ Sálin hefur nú snert tvær kynslóðir íslenskra ballgesta, en flestir í gullna liðinu eru á aldrinum 25–30 ára, af eldri kynslóð Sálaraðdáenda. Forsala er nú hafin á tónleikana á NASA í kvöld, en meðlimir Gullna liðsins hafa sérstakan forkaupsrétt á miðum. Í til- efni af tónleikunum hefur verið ákveðið að gera 25. september að formlegum stofndegi klúbbsins. Þau Laufey og Jón Viðar hvetja Sálir um allar heim til að skrá sig í félagsskap- inn á síðu klúbbsins, www.salin.is. Aðdáendaklúbburinn Gullna liðið Morgunblaðið/Jim Smart Þau Laufey og Jón Viðar eru uppi í skýjunum yfir afmælistónleikunum. Safna sögunni SÁLIN hans Jóns míns er ein elsta starfandi hljómsveit Íslands og án efa ein sú dáðasta meðal íslenskra ballgesta. Sveitin hefur nú starfað í fimmtán ár og sér ekki högg á vatni í spilagleði Sálarmanna. Í tilefni af þessum tímamótum verða haldnir sérstakir afmælistónleikar á NASA í kvöld, þar sem farið verður yfir liðna tíð og saga Sálarinnar rifjuð upp á ýmsan hátt. Stemningin verð- ur þó nokkuð lágstemmdari og tækifæri til að sitja og njóta lag- anna auk þess sem meðlimir munu segja sögur úr lífi hljómsveit- arinnar á milli laga. Á föstudaginn munu Sálarmenn síðan spila á balli á sama stað með miklum tilþrifum. Sálin var stofnuð vorið 1988 í kjölfarið á vel heppnaðri blús- bræðrasýningu sem Þorsteinn Joð Vilhjálmsson og Jón Ólafsson stóðu að árið áður. Guðmundur Jónsson gítarleikari og Stefán Hilmarsson söngvari voru meðal stofnenda. Sálin hans Jóns míns lék þá sál- arskotna popptónlist undir ríkuleg- um áhrifum frá sálargoðum sjö- unda áratugarins. Lék sveitin á sínum fyrstu tónleikum í Bíókjall- aranum, í kjallara gamla Tunglsins, þann fimmtánda mars 1988. Segja má að Sálin hans Jóns míns hafi orðið fræg á einni nóttu með lögum eins og „Hei kanína“ og „Á tjá og tundri“ og hafa allar götur síðan þá dælt út hverjum smellnum á fætur öðrum og leikið fyrir dansi á smekkfullum böllum. Sálin heldur afmælistónleika á NASA Syngjandi sveittir í 15 ár Tónleikar Sálarinnar á NASA hefjast í kvöld klukkan 22.  1988 Fyrsta „giggið“ í Bíókjall- aranum, 15. mars. Hljóðritað og gefið út á fyrstu plötunni Syngj- andi sveittir. Þrír stofnmeðlimir hætta að hausti, Stefán og Guð- mundur ákveða þó að halda áfram.  1989 Stefán og Guðmundur fá til liðs við sig Friðrik Sturluson, Jens Hansson og Magnús Stef- ánsson. Platan Hvar er draum- urinn? kemur út og verður met- söluplata.  1990 Bandið verður eftirsótt sem tónleikaband í kjölfar vinsælda Hvar er draumurinn? Mikil spila- mennska og samvera valda þreytu. Magnús hættir og bandið tekur langt frí, hið fyrsta af mörgum.  1991 Birgir Baldursson trymbill og Atli Örvarsson hljómborðsleik- ari koma inn, platan Sálin hans Jóns míns kemur út og selst vel.  1992 Sveitin sendir snemma árs frá sér enska útgáfu plötunnar Hvar er draumurinn? og tekur nokkur gigg erlendis. Að vori kem- ur út Garg, sem er safnplata smá- skífulaga, ásamt þremur nýjum, „Hjá þér“, „Krókurinn“, og „Sód- óma“, sem öll slá í gegn. Garg selst geysivel, vinsældirnar aukast. Að hausti sendir sveitin frá sér Þessi þungu högg, sem samin er í sameiningu og markar kúvend- ingu í stíl sveitarinnar. Kerkju tek- ur að gæta innan bandsins, menn ekki á eitt sáttir um aðferðafræði og stefnu.  1993–4 Aukið álag samfara mik- illi spilamennsku og pirringi innan bandsins veldur því að menn ákveða að taka sér langt frí. Sál- verjar fara hver í sína áttina, sinna nýjum verkefnum og starfa á öðr- um vígstöðvum. Sálarorlofið notuðu menn til ýmissa verka, spiluðu í öðrum hljómsveitum, fóru í nám og gáfu út sólóplötur.  1995 Sveitin kemur saman að nýju. Tómas Jóhannesson tekur við kjuðunum, platan Sól um nótt kem- ur út og sveitin heldur í mikla tón- leikareisu. Að hausti senda Jens og Guðmundur frá sér plötu undir nafninu Zebra, Guðmundur flytur til London í árslok.  1996 Vegna fjarveru Guðmudar og Atla starfar sveitin ekki mikið þetta árið, en leikur þó á fáeinum tónleikum. Stefán sendir frá sér sóló-plötuna Eins og er…  1997 Þrjú ný lög hljóðrituð og farið í stutta sumarreisu. Stefán sendir að hausti frá sér þriðju sóló- plötuna, Popplín.  1998 Á tíunda afmælisárinu sendir Sálin frá sér Gullna hliðið, sem geymir úrval Sálarlaga frá ’88–’98, ásamt þremur nýjum. Jó- hann Hjörleifsson sest við trommu- settið. Stærsti sumartúrinn síðan 1995. Að hausti segir Atli skilið við bandið, enda búsettur í Kaliforníu.  1999 Guðmundur flytur aftur heim. Sveitin heldur vel lukkaða „órafmagnaða“ tónleika í Loftkast- alanum, hljóðritar og gefur út á plötunni 12 ágúst ’99. Þar voru eldri lög sett í nýjan búning og tvö glæný fljóta með og verða bæði geysivinsæl, annað þeirra, „Okkar nótt“ verður einn stærsti Sálar-smellurinn frá upp- hafi. Platan fellur í mjög góðan jarð- veg og segja má að hljómsveitin gangi í endurnýjun lífdaga, því platan aflar henni einnig fjöl- margra nýrra áhangenda.  2000 Velgengni tónleikaplöt- unnar blæs Sálverjum baráttuanda í brjóst. Annar máni kemur út, fyrri helmingur tvíleiks sem síðar verður hráefni söngleiksins Sól og Máni. Um haustið kemur 12. ágúst ’99 út á DVD-diski, en það er fyrsta fyrsta alíslenska DVD- útgáfan.  2001 Seinni helmingur tvíleiks- ins, Logandi ljós, kemur út og hlýtur góðar viðtökur, þykir af mörgum besta Sálarplatan til þessa.  2002 Sálin heldur tónleika með Sinfóníunni í nóvember. Efnið er hljóðritað og sett í salt fram yfir áramót, því undirbúningur stendur sem hæst fyrir söngleikinn Sól og Mána.  2003 Sól og Máni frumsýndur í Borgarleikhúsinu, sýndur fram að vori við ágætan orðstír. Sumarið notað til að hljóðblanda upptökur frá Sinfóníu-tónleikunum, og fyr- irhugað að plata og DVD komi út í október. Fimmtán ár af Sál Hér er stiklað á stóru yfir sögu Sálarinnar, ár fyrir ár 1. Á tjá og tundri 2. Þig bara þig 3. 100.000 volt 4. Hvar er draumurinn? 5. Ábyggilega! 6. Hjá þér 7. Sódóma 8. Ég þekki þig 9. Fannfergi hugans 10. Orginal 11. Okkar nótt 12. Ekki nema von 13. Á nýjum stað 14. Þú fullkomnar mig 15. Allt eins og það á að vera Fimmtán Sálarlög STEFÁN Hilmarsson, söngv- ari Sálarinnar, tók saman fimmtán lög, eitt fyrir hvert ár sem sveitin hefur starfað, sem eiga það sameiginlegt að hafa náð gríðarlegum vinsældum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.