Morgunblaðið - 27.09.2003, Page 52

Morgunblaðið - 27.09.2003, Page 52
ÍÞRÓTTIR 52 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ EGYPTAR hafa tryggt sér rétt til að leika í handknattleikskeppni karla á Ólympíu- leikunum í Aþenu 2004. Þeir lögðu Túnis að velli í úrslitaleiknum í Afríkukeppninni í Angóla, 23:29. Nú eru aðeins tvö ÓL-sæti laus – Evrópusæti og sæti Asíu. Þær tíu þjóðir sem hafa tryggt sér sæti eru gest- gjafarnir frá Grikklandi og sjö efstu þjóð- irnar á HM í Portúgal – Króatía, Þýska- land, Frakkland, Spánn, Rússland, Ungverjaland og Ísland. Brasilía kemur frá frá Ameríku og Egyptaland frá Afríku. Eftir er að leika um Asíusætið og Evr- ópusætið sem er enn laust. Um það verður keppt í Evrópukeppni landsliða í Slóveníu í janúar. Svíþjóð, Danmörk, Portúgal, Slóv- enía, Serbía/Svartfjallaland, Úkraína, Sviss, Tékkland og Pólland berjast þar um sætið. Egyptar á ÓL í Aþenu ÓLAFUR Þórðarson, þjálfari ÍA, hefur fimm sinnum orðið bikarmeistari með ÍA sem leikmaður og einu sinni sem þjálfari. Árin sem Ólafur fagn- aði titlinum sem leikmaður voru, 1983, 1984, 1986, 1993 og 1996. Árið 1999 tók Ólafur við þjálfun Skagaliðsins af Loga Ólafssyni rétt fyrir bikarúrslitaleikinn á móti KR. Akurnesingar töpuðu, 3:1, en ári síðar stjórnaði Ólafur Skagamönnum til sigurs á móti ÍBV, 2:1. Baldur Aðal- steinsson skoraði fyrra mark ÍA og Kári Steinn Reynisson það síðara á lokamínútunni en báðir eru þeir í liði Skaga- manna í dag og þeir einu ásamt Pálma Haraldssyni sem voru í liðinu sem sigraði fyrir þremur árum. Sex bikar- sigrar Ólafs  ÍA leikur í 18. sinn til úrslita í bik- arkeppninni en FH í þriðja sinn. Skagamenn hafa átta sinnum hamp- að bikarmeistaratitilinum en FH- ingar aldrei.  ÍA tapaði fyrstu átta bikarúrslita- leikjunum en 1978 brutu Akurnes- ingar ísinn og sigruðu keppninna. Skagamenn hömpuðu svo titlinum árin 1982, 1983, 1984, 1986, 1993 og 1996. KR-ingar stöðvuðu sigurgöng- una 1999 en ári síðar unnu Skaga- menn lið Eyjamanna, 2:1.  FH lék fyrst til úrslita á móti ÍBV árið 1972 og var leikurinn spilaður á Melavellinum í trekk og kulda 11. dag nóvembermánaðar. ÍBV hafði betur, 2:0. FH lék svo aftur til úrslita á móti Val 1991. Tvo leiki þurfti til að útkljá sigurvegara. Fyrri leiknum lauk með jafntefli en Valur hafði bet- ur í öðrum leiknum.  ÓLAFUR Jóhannesson, þjálfari FH-inga, tók þátt í leikjunum við Val en hann var spilandi þjálfari FH á þessum tíma.  DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra verður heiðursgestur á úrslitaleikn- um. Davíð hefur nær undantekning- arlaust verið heiðursgestur frá því hann tók við hlutverki forsætisráð- herra.  STUÐNINGSMENN ÍA verða í suðurhluta gömlu stúkunnar og í norðurhluta þeirrar nýju. FH-ingar verða hins vegar í norðurhluta gömlu stúkunnar og í suðurhluta þeirrar nýju.  BÆÐI félög verða með skemmti- atriði fyrir leikinn. FH-ingar ætla að bjóða upp á hljómsveitina Botnleðju en Skagamenn ætla að halda sínu skemmtiatriði leyndu þar til á laug- ardaginn. Í hálfleik mun Íslenski dansflokkurinn sýna sérstakan knattspyrnudans. FÓLK Magnús segir að styrkleikiSkagamanna felist fyrst og fremst í góðum varnarleik, liðið hafi fengið fæst mörk á sig allra liða í deildinni í sumar á sama tíma og FH- ingar hafi verið hvað iðnastir við að skora. Þessi blanda er að mati Magn- úsar góð uppskrift að skemmtilegum bikarúrslitaleik. „Það má reikna með því að bæði lið fari rólega af stað, eins og oft vill vera í bikarúrslitaleikjum, en ég reikna með skemmtilegum leik. Báðir leikir þessara liða í deildinni enduðu með jafntefli, nú dugar það ekki og því kæmi mér ekki á óvart þótt hefðin í kringum Skagaliðið í bik- arúrslitaleikjum riði baggamuninn fyrir það að þessu sinni. ÍA er með sterkara varnarlið og það tel ég að ráði miklu í leik sem þessum,“ segir Magnús. Magnús segir að bæði lið hafi gengið vel í síðari hluta deildarkeppn- innar og því ríki mikið sjálftraust inn- an raða þeirra. „FH-liðið hefur verið á miklu skriði í síðustu leikjum, það gefast ekki upp þótt móti blási og lendi undir. Það má því reikna með hörkuleik á Laugardalsvelli og að áhorfendur fái mikið fyrir peninginn sinn.“ FH-ingar koma líklega til með að sækja meira en Skagamenn en það dugir ekki til að mati Magnúsar. ÍA- liðið er skeinuhætt, það hafi kallað á Hjört Hjartarson frá námi Banda- ríkjunum til þess að vera með. Hann sé hættulegur sóknarmaður þótt hon- um hafi ekki tekist að sýna sínar réttu hliðar í sumar. Vissulega veiki það ÍA að sterkasti miðjumaður liðs- ins, Grétar Rafn Steinsson, verði fjarri góðu gamni vegna meiðsla. „Aðalsmerki Skagaliðsins í sumar hefur verið „þéttur“ leikur. Framan af sumri gerði það mörg jafntefli, en þegar á leið fór það að vinna en hélt samt áfram að leika sterkan varnar- leik, það verður væntanlega engin breyting á nú.“ Magnús segir FH-liðið vera skemmtilegt sóknarlið. „FH-liðið hef- ur alls ekki leikið slæma vörn í sumar, en styrkleiki þess liggur þó fyrst og fremst í sókninni. Daninn Tommy Nielsen er akkeri í vörninni, en á milli hefur liðið þó fengið á sig ódýr mörk. Styrkur FH-inga felst ekki hvað síst í Heimi Guðjónssyni sem er allt í öllu á miðjunni. Það kæmi mér því ekkert á óvart þótt Skagamenn myndu „líma“ mann á Heimi til að riðla sóknarleik FH-liðsins. Þá er Allan Borgvardt af- ar sterkur eins og menn hafa séð á leiktíðinni. Ég reikna með að FH-ing- ar pressi ÍA framarlega á vellinum til að byrja með, ekki ósvipað og þeir gerðu gegn KR í undanúrslitunum. Ég hallast þó að því að hefðin á Skag- anum verði sterk að þessu sinni og þeir vinni í leik sem verður skemmti- legur og hugsanlega framlengdur,“ segir Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV. Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, talar um sterka vörn ÍA og frískan sóknarleik FH Góð uppskrift að skemmtilegum leik „ÉG reikna með afar jöfnum og skemmtilegum leik, það kæmi mér ekki á óvart þótt hann yrði framlengdur, en einhvern veginn hallast ég að því að Skaginn hafi betur þegar upp verður staðið,“ segir Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, þegar hann var beðinn að spá í spilin fyrir úrslitaleik ÍA og FH í bikarkeppninni í knattspyrnu á Laug- ardalsvelli í dag. SÖGUSAGNIR hafa verið í gangi um að Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði Skagamanna og þeirra albesti leik- maður undanfarin ár, ætli að ganga í raðir Íslandsmeistara KR-inga á næstu leiktíð, en samningur Gunn- laugs við ÍA rennur út um miðjan næsta mánuð. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að KR og fleiri fé- lög hafi hafi sýnt áhuga á að klófesta Gunnlaug, sem verður 30 ára gamall og næsta ári, en hann hefur leikið all- an sinn feril með ÍA, alls 277 leiki. „Samningur minn við ÍA er að renna út og það sem ég hef sagt for- ráðamönnum Akraness er að ég vilji klára tímabilið og gefa mér tvær til þrjár vikur til að íhuga málið. Vissu- lega hef ég heyrt sögur en ég hef samt fullan hug á að spila áfram á Akra- nesi. Það freistar mín mikið að halda áfram með ÍA þar sem liðið virðist ætla að styrkja sig fyrir næsta tímabil. Haraldur Ingólfsson er til að mynda að koma aftur og ég fagna því. Það sem gæti helst komið í veg fyrir að ég verði áfram á Skaganum er að ég bý í Reykjavík og stunda háskólanám en ég hef ferðast á milli síðan 1999 og er orðinn ansi þreyttur á þeim ferðalög- um allt árið um kring,“ sagði Gunn- laugur við Morgunblaðið. Spurður hvort önnur félög hafi rætt við hann segir Gunnlaugur; „Ég hef ekki heyrt frá neinum félögum enda mega þau ekkert gera fyrr en tímabil- ið er búið og þau hafa virt það. Ég hef því náð að einbeita mér alfarið að leikjum okkar Skagamanna og ekki síst að bikarúrslitaleiknum.“ Yfirgefur Gunnlaugur lið Skagamanna? Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA, og Heimir Guð- jónsson, fyrirliði FH. Hvor hampar bikarnum? FH-ingar líta á leikinn við Skaga- menn í dag sem kjörið tækifæri til að brjóta múrinn og takast loks að vinna stóran titil í knattspyrnunni. Liðið vann deildabikarkeppnina í fyrra með Skagamanninn Sigurð Jónsson við stjórnvölinn, en FH hef- ur hvorki hampað Íslands- né bik- armeistaratitlinum. Það hefur ÍA hins vegar gert mörgum sinnum. Átján sinnum hefur ÍA orðið Ís- landsmeistari og átta sinnum hefur bikarinn hafnað í höndum Skaga- manna. FH hefur tvívegis leikið til úrslita í bikarkeppninni og tapað í bæði skiptin, 1972 fyrir ÍBV og 1991 fyr- ir Val. Annað sætið, sem varð hlutskipti FH á Íslandsmótinu sem lauk um síðustu helgi, eru fjórðu silf- urverðlaunin sem FH-ingar taka á móti í efstu deild. 1989 missti FH af gullnu tækifæri á að hampa Ís- landsmeistaratitilinu en tap fyrir Fylki í lokaumferðinni varð til þess að KA hampaði titlinum. 1993 og 1994 urðu svo FH-ingar í öðru sæti í bæði skiptin á eftir Akurnesingum. Það er því kannski ekki nema von að FH-ingar tali um hungur þegar talið berst að bikarúrslitaleiknum. Tekst FH að brjóta múrinn?   -.  0  'B.  C . C  C  7B )   DB )   -  ( E F   )     $B 'B. 'B.  7 7 D . $  0E C .  "  <     1 # : =     ) C.B ) - 7B  C C .  - E   8 C/ 8                  (  0  10  2  3 +     40   5 2 4  2  26  ' G  7B  9 C.B 0/ 7B C.   0!E  - 9.  * 9 . $ =  ) . ' G  'B.  9 =HB G/   C.B )/ 0E )* )   ) FI 1 # - I 9   $   E* 3/ +  6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.