Morgunblaðið - 09.10.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 273. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kostaboð
á kjötmeti
Kjöt af ýmsu tagi í helgar-
tilboðum verslana | Daglegt líf 22
Álkonurnar
þrjár
Þrjár konur í framkvæmdastjórn
Alcan á Íslandi | Viðskipti 2
Fótmennt
á fjölunum
Íslenski dansflokkurinn frum-
sýnir Leikinn | Listir 25
HUGSANLEGT er, að Banda-
ríkjastjórn hætti við að bera til-
lögu sína um skipan mála í Írak
undir öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna vegna þeirrar and-
stöðu, sem hún hefur mætt þar.
Kom þetta meðal annars fram í
dagblaðinu The New York Tim-
es í gær.
Blaðið hefur það eftir emb-
stöðunni fyrir Bandaríkjastjórn
og hvorugt gott. Leggi hún fram
Írakstillöguna í öryggisráðinu sé
eins víst, að hún verði felld og
þótt hún yrði samþykkt með
litlum mun, myndi það fremur
vera yfirlýsing um klofninginn í
ráðinu en að það væri tilbúið til
að rétta Bandaríkjamönnum
hjálparhönd.
muni draga úr öryggisleysinu og
ofbeldinu í Írak fyrr en Írakar
fái þar sjálfir völdin í hendur.
Haft er eftir ónefndum, banda-
rískum embættismanni, að eftir
að Annan lýsti andstöðu sinni,
hafi ríki, sem áður hafi verið
hálfvolg gagnvart bandarísku
tillögunni, snúist gegn henni.
Blaðið segir, að nú sé tvennt í
ættismönnum, að ríkisstjórnin
sé hætt við að leita eftir skjótri
atkvæðagreiðslu um tillöguna og
kunni að hætta alveg við að
leggja hana fram. Ástæðan sé
þær kuldalegu móttökur, sem
tillagan hafi mætt, ekki síst frá
Kofi Annan, framkvæmdastjóra
SÞ. Sagt er, að hann sé sammála
Frökkum um það, að ekkert
Hætt við Írakstillögu?
Washington, SÞ. AFP, AP.
FJÖLMIÐLAR í Kaliforníu minntu í gær kvik-
myndaleikarann Arnold Schwarzenegger óspart á
að nú yrði þess vænst að hann stæði við fyrirheit
sín og veitti sambandsríkinu kröftuga forystu.
Schwarzenegger sigraði með yfirburðum í ríkis-
stjórakosningunum á þriðjudag, fékk um 48,5% at-
kvæða og tekur við embætti um miðjan nóvember.
„Við væntum þess að ríkisstjórn skili árangri,“
sagði blaðið Sacramento Bay í forystugrein. „Við
viljum að ljósin slokkni ekki og viljum ekki halla á
fjárlögum. Við viljum betri skóla, skilvirkari
heilsugæslu, lægri háskólagjöld og öruggari íbúð-
arhverfi, já og svona í leiðinni, við viljum lægri
skatta líka. Heyrirðu í okkur, Arnold Schwarzen-
egger, verðandi ríkisstjóri?“
Arnold Schwarzenegger
Minnt á fög-
ur fyrirheit
Los Angeles. AFP.
Ég mun/15, Óvinveitt/27
AÐ jafnaði smitast dag hvern um sex þúsund
manns á aldrinum 15–24 ára af HIV-veirunni sem
veldur alnæmi, að því er fram kemur í nýrri
skýrslu Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Helmingur þeirra sem smitast nú er fólk
yngra en 25 ára; flest býr það í þróunarríkjunum.
Fjórðungur alls fólks undir 25 ára aldri í heim-
inum, eða um 238 milljónir manna, býr við algera
örbirgð. Í skýrslunni segir að fátækt, menntunar-
leysi og léleg upplýsinga- og heilbrigðisþjónusta
ýti víða undir útbreiðslu HIV meðal ungs fólks.
Bannað er að ræða opinskátt um kynlíf í mörg-
um ríkjanna. Í Sómalíu höfðu einungis 26% ung-
lingsstúlkna heyrt getið um alnæmi, aðeins einn af
hundraði vissi hvernig hægt er að verja sig gegn
HIV-smiti.
„Ef við hunsum ungt fólk og þarfir þess köllum
við yfir okkur skelfilegt ástand um allan heim,“
sagði Thoraya Ahmed Obaid, framkvæmdastjóri
Mannfjöldastofnunarinnar.
Alnæmi meðal ungs fólks
Kunna ekki
að verjast
HIV-smiti
London. AP.
BRESKA stórmarkaðakeðjan Tesco hefur aukið
öryggiseftirlit í útibúum sínum til að vernda
pappamyndir í líkamsstærð af knattspyrnuhetj-
unni David Beckham. Dreift
var 500 myndum í verslanirnar
fyrir skömmu í tengslum við
kynningu á nýrri sjálfsævisögu
kappans, My Side. Nokkrum
pappamyndum hefur þegar
verið stolið.
Talsmaður verslanakeðj-
unnar sagði að komið yrði upp
sérstöku öryggiskerfi og
myndavélar yrðu látnar fylgjast með pappamynd-
unum allan sólarhringinn. „Þær fóru þegar í stað
að vekja býsna mikla athygli,“ sagði hann. „Ungir
sem aldnir aðdáendur reyndu að nema þær á
brott.“ Beckham er fyrirliði enska landsliðsins.
Pappa-Beck-
ham verndaður
London. AFP.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
SKÝRT var frá því í gær í Danmörku að
Friðrik krónprins og unnusta hans, hin
ástralska Mary Elizabeth Donaldson,
myndu ganga í hjónaband 14. maí næstkom-
andi. Þau sjást hér á svölum Amalíuborgar
þar sem þau veifuðu til fagnandi mannfjöld-
ans. Prinsinn, sem er franskur í föðurætt,
kyssir hér kurteislega hönd unnustunnar en
hafnaði óskum fréttamanna sem vildu að
hann kyssti tilvonandi brúði á munninn. At-
hygli vakti að unnustan mælti á prýðilega
dönsku í gær en hún kynntist prinsinum fyr-
ir þrem árum á Ólympíuleikunum í Sydney.
Þá var kátt í hárri höll
Reuters
Friðrik/48
VERÐ á innfluttum mat- og sérvörum frá heild-
sölum og birgjum hefur verið að hækka til mat-
vöruverslana síðustu vikur. Algengust hefur
hækkunin verið frá 4–6% en dæmi eru um allt
að 10% hækkun, samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær hjá nokkrum
heildsölum og verslunum. Hafa þessar hækk-
anir verið að skila sér hægt og bítandi inn í verð-
lag verslana.
Er hækkun á gengi evrunnar einkum sögð
skýra þessa þróun, auk verðhækkana erlendis.
Þá hefur einnig borið á hækkunum frá innlend-
um iðnfyrirtækjum um allt að 9%.
Egill Ágústsson, framkvæmdastjóri Íslensk-
ameríska, segir að um þriðjungur þeirra vöru-
merkja sem fyrirtækið flytur inn hafi verið að
hækka í verði undanfarnar vikur og mánuði.
verjast honum eftir megni. Minnir Ingimar á að
vísitala matvöruverðs hækkaði um 5,8% frá árs-
byrjun 2001 til ágústloka á þessu ári, á sama
tíma hafi neysluvísitalan hækkað um 11,8%.
Innflutt matvara skýri ekki minni hækkun á
matvörunni. „Það er að okkar mati spurning
hvort þessar hækkanir frá birgjum séu nauð-
synlegar og eðlilegar í stöðunni,“ segir Ingimar.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss, segir að áður en tilkynningar um hækk-
anir frá birgjum hafi verið að koma inn hafi
þessar vörur lítið sem ekkert hækkað á tólf
mánaða tímabili. Á sama tíma hafi matvælaverð
í heild sinni lækkað verulega. Guðmundur bend-
ir á að síðustu daga hafi dollarinn lækkað og því
muni verslanir áreiðanlega fara fram á lækkanir
í viðskiptum með þann gjaldmiðil.
Það eigi í þeirra tilviki aðallega við um sérvöru
margs konar sem framleidd er í Evrópu, s.s.
þvottaefni og barnavörur.
Sigurður Árni Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri BÚR, sem bæði flytur inn vörur og kaupir
af öðrum birgjum, segir að gengisbreytingar
hafi ekki verið miklar ef horft sé til lengri tíma.
Meirihluti innkaupa fari fram í evru og tengdum
gjaldmiðlum, sem hafi verið að hækka í haust.
Ingimar Jónsson, forstjóri Kaupáss, sem rekur
verslanir 11–11, Krónunnar og Nóatúns, segir
verðhækkanirnar hafa verið töluverðar. Þrýst-
ingurinn hafi verið mikill en reynt hafi verið að
Verðhækkun birgja til
verslana allt að 10%
Algengast að verð
hafi hækkað um 4–6%