Morgunblaðið - 09.10.2003, Qupperneq 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 13
Íslenski dansflokkurinn kynnir nýtt verk eftir hollenska danshöfundinn
Lonneke van Leth, frumsamið fyrir Íslenska dansflokkinn.
„The Match“ er landsleikur í knattspyrnu milli Íslands og Hollands
með rífandi stemmingu og grípandi tónlist. Á efnisskránni er einnig
verðlaunaverk Guðmundar Helgasonar, „Party“, og „Symbiosis“
eftir Itzik Galili.
Sýningar: 9. (frumsýning), 12., 18. og 30. október, 2., 7. og 16 nóvember.
Miðasala í Borgarleikhúsinu. Sími: 588 0900.
Ísland – Holland í Borgarleikhúsinu
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
SUÐURHLÍÐAR
KÓPAVOGS
Mér hefur verið falið að leita eftir 80-90
fm 3ja herb. íbúð. Æskilegt að eignin
sé staðsett í hverfi við Kópavogs- eða
Smáraskóla, helst í góðu ástandi.
Afhendingartími sem fyrst.
Verðhugmynd 12-13 millj.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
LÍEYRISSJÓÐUR verzlunar-
manna hefur sent Morgunblaðinu
eftirfarandi athugasemd við
lögfræðiálit sem Þórarinn V. Þór-
arinsson hdl. vann fyrir Samtök
atvinnulífsins um aðild að sjóðn-
um, og greint var frá í blaðinu í
gær. Athugasemdin er undirrituð
af Þorgeiri Eyjólfssyni, forstjóra
lífeyrissjóðsins:
„Niðurstöður lögmannsins snúa
í meginatriðum að tvennu, þ.e.
skylduaðild að Lífeyrissjóði verzl-
unarmanna annars vegar og hins
vegar að brottfalli skylduaðildar
að lífeyrissjóði við það að skuld-
bindingar fari umfram heildar-
eignir. Í báðum þessum atriðum
kemst lögmaðurinn að rangri nið-
urstöðu eins og hér verður rakið.
Hann kemst að þeirri niður-
stöðu að ekki sé í gildi kjara-
samningur um lífeyrismál á milli
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur og Samtaka atvinnulífsins
sem kveði á um aðildarskyldu fé-
lagsmanna VR að Lífeyrissjóði
verzlunarmanna. Þessi ályktun
lögmannsins stenst ekki. Það er
til staðar kjarasamningur um líf-
eyrismál á milli VR annars vegar
og Vinnuveitendasambands Ís-
lands, Samtaka iðnaðarins, Sam-
taka verslunarinnar – FÍS, Kaup-
mannasamtaka Íslands og
Verslunarráðs Íslands hins vegar
frá 30. desember 1996 sem kveð-
ur skýrt á um skylduaðild fé-
lagsmanna VR að lífeyrissjóðn-
um. Samtök atvinnulífsins
yfirtóku kjarasamningsskyldur
VSÍ við stofnun samtakanna.
Jafnframt liggur fyrir að lög um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda
frá 1974 og 1980 kváðu afdrátt-
arlaust á um aðild launamanna að
lífeyrissjóði sinnar starfsstéttar
eða starfshóps. Lífeyrissjóðalög-
gjöfinni frá 1997 var í engu tilliti
ætlað að hagga við þessu fyrir-
komulagi. Í löggjöfinni er vitnað til
kjarasamninga á milli aðila og er
sá samningur þegar til staðar á
milli VR og SA eins og áður segir.
Ennfremur er það mat okkar að
samþykktir lífeyrissjóðsins sem
kveða á um aðildarskyldu fé-
lagsmanna VR hafi ígildi kjara-
samnings á milli VR og þeirra
samtaka vinnuveitenda sem að
sjóðnum standa, en þar á meðal
eru Samtök atvinnulífsins, enda
liggja fyrir samþykki og staðfest-
ingar á samþykktunum af hálfu
allra stjórna samtaka vinnuveit-
enda sem að sjóðnum standa. Jafn-
framt liggur fyrir staðfesting fjár-
málaráðuneytisins á samþykkt-
unum. Þá liggur fyrir 30 ára
sameiginlegur skilningur samtaka
vinnuveitenda og VR um efni og
framkvæmd ákvæða kjarasamn-
inga að því er varðar skylduaðild
félagsmanna VR að Lífeyrissjóði
verzlunarmanna.
Þeirri skoðun lögmannsins að
brottfall verði á aðildarskyldu að
lífeyrissjóði við þær aðstæður að
skuldbindingar fari tímabundið
umfram eignir höfnum við einnig
alfarið. Væri þessi skilningur rétt-
ur ríkti það ástand að aðild að
flestum lífeyrissjóðum á samnings-
sviði ASÍ væri í uppnámi. Jafn-
framt er hægt að sjá fyrir sér það
ástand að skylduaðild að ein-
stökum lífeyrissjóðum gæti verið
til staðar í einum mánuði og ekki
þeim næsta eftir því sem hlutfall
eigna og skuldbindinga sem ætíð
er á hreyfingu þróaðist. Í lífeyr-
issjóðalöggjöfinni frá 1997 er sér-
staklega tekið á því hvernig með
skuli fara við þær aðstæður að
eignir og skuldbindingar lífeyris-
sjóðs standist ekki á. Þannig kveða
lögin á um að leiði tryggingafræði-
leg athugun það í ljós að meira en
10% munur er á milli eignarliða og
lífeyrisskuldbindinga skuli stjórn
lífeyrissjóðs tafarlaust skylt að
gera tillögur til aðildarsamtaka
sjóðsins um nauðsynlegar breyt-
ingar á samþykktum sjóðsins.
Sama gildi ef munur samkvæmt
tryggingafræðilegum athugunum á
milli eignarliða og lífeyrisskuld-
bindinga hefur haldist meiri en 5%
samfellt í fimm ár.
Þannig liggur fyrir í löggjöf
nánari útfærsla á gjaldhæfiákvæði
lífeyrissjóða sem sett var inn í
kjarasamninga ASÍ og VSÍ 1995
og kjarasamninga VSÍ og VR frá
1996 og ekki raskast með neinu
móti ákvæði kjarasamninga um að-
ildarskyldu undir þessum kring-
umstæðum. Í þessu samhengi má
jafnframt nefna að tímabundinn
halli á skuldbindingum lífeyris-
sjóða vegna erfiðra aðstæðna á
fjármálamörkuðum er ekki bund-
inn við Ísland eingöngu. Lífeyr-
issjóðir nágrannalandanna eiga við
hliðstæðan vanda að etja og hvergi
hefur það haft áhrif á aðild ein-
staklinga að viðkomandi lífeyris-
sjóðum þar sem eins er ástatt og
hérlendis.“
Athugasemd frá Lífeyr-
issjóði verzlunarmanna