Morgunblaðið - 09.10.2003, Side 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 17
Hafnarfirði | Í gær hófst í Áslandsskóla skóla-
færninámskeið fyrir foreldra barna í fyrsta
bekk. Í frétt frá skólanum segir; „Í því skyni
að leggja góðan grunn að góðri samvinnu og
ánægjulegu 10 ára samstarfi heimila og skóla
munu Áslandsskóli, foreldraráð skólans og
foreldrafélag hans standa að námskeiði fyrir
foreldra/forráðamenn þeirra barna sem hófu
nám í 1. bekk nú í haust.“
Á námskeiðinu er meðal annars farið í rat-
leik um skólann, farið yfir gátlista um getu
sex ára barna, skólasöngurinn lærður auk
þess sem farið er yfir alls kyns hagnýtar upp-
lýsingar um skólastarf og undirbúning barna.
Námskeið af svipuðu tagi hafa einnig verið
í fleiri grunnskólum bæjarins.
Skólafærni í
Áslandsskóla
Morgunblaðið/Þorkell
Sýning um Grafarvog | Nýlega var opnuð
hverfiskynning í Foldasafni Borgarbókasafns,
við Fjörgyn og er þar um að ræða samstarfs-
verkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og
Borgarskjalasafns Reykjavíkur. Þar má sjá
sýningu á skjölum og munum er tengjast sögu
Grafarvogs. Einnig liggur þar mappa á borði,
sem í eru nytsamar upplýsingar af marg-
víslegum toga um Grafarvog, ásamt ýmiss
konar fróðleik, t.a.m. um örnefni, bændur og
bújarðir og frásagnir afkomenda og vensla-
fólks ábúenda. Þarna er og kort að finna af
svæðinu og loftmyndir sem sýna þróun byggð-
ar. Sýningin á skjölum og munum er tengjast
sögu Grafarvogs stendur til 1. nóvember næst-
komandi.
Seltjarnarnesi | Jónmundur Guð-
marsson bæjarstjóri hefur undan-
farið kynnt sér aðgengi fatlaðra hjá
stofnunum Seltjarnarnessbæjar, en
hann sleit hásin fyrir nokkru og
hefur síðustu vikur gengið við
hækjur eða farið um í hjólastól.
Nýlega barst Jónmundi bréf frá
ungum Seltirningi, Jóni Frey
Finnssyni, sem óskaði eftir að ræða
við hann um aðgengi hreyfihaml-
aðra. Jón Freyr bauð bæjarstjór-
anum einnig í kynnisferð á raf-
skutlu sem hann notar til að ferðast
um bæinn. Boðið var þegið með
þökkum og kom Jón Freyr ásamt
föður sínum, Finni Jónssyni, á fund
bæjarstjóra í vikunni. Höfðu þeir
með sér kort af Seltjarnarnesi þar
sem þeir höfðu merkt helstu hindr-
anir fyrir fatlaða á leið um bæinn.
Jónmundur þakkaði feðgunum
fyrir frumkvæði þeirra og gagn-
legar upplýsingar um aðgengi
hreyfihamlaðra á Seltjarnarnesi og
útnefndi Jón Frey merkisbera Sel-
tjarnaness, en þá nafnbót fá þeir
gjarnan er bera hag bæjarins sér-
staklega fyrir brjósti. Að lokum fór
Jónmundur í reynsluferð á raf-
skutlunni Rósu. Jón Freyr, sem
starfar í Íþróttamiðstöðinni á Sel-
tjarnarnesi, ferðast á skutlunni til
vinnu vestast af Seltjarnarnesi, en
það er um 2 km leið.
Jónmundur var sérstaklega
ánægður með heimsókn feðganna
og tækifærið sem þeir veittu honum
til að setja sig í spor hreyfihaml-
aðra. „Þetta er merkileg reynsla
fyrir mann sem alla jafna er fóta-
fær. Það er ótrúlegt hvað maður
verður var við það hversu mikil
áhrif svona tímabundin fötlun hef-
ur á það að fara um bæinn og sinna
sínum málum. Maður tekur lífinu
svolítið sem gefnu og áttar sig ekki
á því fyrirfram hversu margar
hindraðir fatlaðir þurfa að yfirstíga
í sínu daglega lífi. Ég vona að þetta
verði til þess að við getum bætt úr
aðgengi fatlaðra á Seltjarnarnesi.“
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, hefur fengið að
kynnast aðgengi fatlaðra náið undanfarið eftir að hann sleit hásin.
Bæjarstjóri Seltirninga
kynnist málefnum fatlaðra
Kópavogi | Félagsmiðstöðvar í Kópavogi og
Prjónablaðið ÝR undirrituðu samkomulag um
forvarnarstarf í félagsmiðstöðinni Mekku í
gær. Samstarfið byggist á verkefninu VINA-
ORMUR, en það snýr að þátttöku unglinga í
prjónaskap. ÝR gaf til verkefnisins átta kíló af
prjónagarni sem duga í dágóðan prjónaskap.
Einn grunnþáttur verkefnisins er frjálsræði
en unglingarnir geta hvenær sem er gripið í
prjóna og um leið eflt félagsandann og sköp-
unarþörfina. Hugmyndina átti Hrafnhildur
Ástþórsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðv-
arinnar Ekkó í Kópavogi, en einn slíkur ormur
var prjónaður þar síðastliðinn vetur. Þá tóku
tæplega þrjátíu unglingar beinan þátt í gerð
Vinaormsins. Nú taka allar 8 félagsmiðstöðvar
Kópavogs þátt í framtakinu en þær sækja yfir
1.000 unglingar. Reynslan úr Ekkó sýnir að við
prjónaskap gefst unglingunum tækifæri til að
vinna að einhverju sameiginlegu, sköpunar-
gáfan fær lausan tauminn og samkenndin
eykst. Útkoman er vinátta og virðing unga
fólksins fyrir hvort öðru sem gefur gott vega-
nesti til framtíðar.
Rótgróin handverkshefð
nýtt í forvarnir
Linda Udengård, æskulýðs- og forvarnar-
fulltrúi hjá íþrótta- og tómstundadeild Kópa-
vogs (ÍTK) segir verkefnið virka vel og krakk-
ana mjög spennta fyrir því. „Krakkarnir
prjóna saman einn stóran orm. Þetta er gott
forvarnarverkefni. Prjónarnir og garnið eru
verkfæri til að setjast niður og eiga næðis-
stund í rólegheitunum yfir prjónunum og ræða
lífið og tilveruna.
Við komum að alls kyns forvarnarverk-
efnum. En þetta er svolítið nýr vinkill á for-
varnarstarf, að nýta rótgróna handverkshefð
hér á landi til að fá krakkana til að setjast nið-
ur og spjalla. Í prjónaskap felst hugleiðsla og
örvun á sköpunarþörfinni. Það sem er líka
spennandi við þetta verkefni að strákar og
stelpur virðast hafa svipaðan áhuga á því og
eru strákar ekki síður duglegir við prjóna-
skapinn.“
Ormarnir verða að lokum sýndir á vorsýn-
ingu á afrakstri Sköpunardags félagsmið-
stöðva sem er liður í stigakeppni þeirra. Þá
verður dregin út félagsmiðstöð sem hlýtur
verðlaun frá Prjónablaðinu ÝR.
Frumlegar forvarnir í Kópavogi
Fulltrúar Félagsmiðstöðva í Kópavogi og ÍTK ásamt fulltrúa ÝR fagna samstarfinu með fjögurra metra löngum ormi.