Morgunblaðið - 09.10.2003, Síða 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LJÓSMYNDASÝNING
MORGUNBLAÐSINS Á DALVÍK
Í Ráðhúsinu á Dalvík stendur yfir sýn-
ing á verðlaunamyndum úr ljós-
myndasamkeppni sem Okkar menn,
félag fréttaritara Morgunblaðsins á
landsbyggðinni, og Morgunblaðið
efndu til í vetur. Sýningin á Dalvík er á
vegum Sparisjóðs Svarfdæla.
Á myndunum má sjá fjölbreytt við-
fangsefni fréttaritara Morgunblaðsins
sem starfa um allt land. Fólk er í
brennidepli linsunnar.
Sýningin stendur út októbermánuð.
Myndirnar eru til sölu í Myndasafni
Morgunblaðsins á mbl.is
LANDSMENN Í LINSUNNI
Ljósmynd: Fyrsta sturtan, Hafþór Hreiðarsson
á Húsavík.
VÖRUBÍLL með tengivagn valt á hliðina er hann
var að losa möl á Miðhúsabraut nyrst í Nausta-
hverfi eftir hádegi í gær.
Ökumaðurinn slapp með skrekkinn og talið er
að bíllinn og tengivagninn hafi skemmst lítið.
Litlu mátti þó muna að verr færri því óhappið
varð rétt við spennistöð við götuna. Bíllinn hafn-
aði á hliðinni rétt framan við spennistöðina en
pallurinn á tengivagninum rétt til hliðar við
hana.
Beita þurfti gröfu og jarðýtu til að rétta tækin
við.
Vörubíll með tengivagn á hliðina
Morgunblaðið/Kristján
Ólafsfirði | Fulltrúar í bæjarstjórn
Ólafsfjarðar hafa samþykkt tillögu
þar sem þess er krafist að nýjar regl-
ur sem stuðst er við í útreikningum
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði
endurskoðaðar. Fram kemur að ekki
hafi orðið neinar breytingar á að-
stæðum eða rekstri í Ólafsfirði sem
réttlæti allt að 25% niðurskurð á
greiðslum úr sjóðnum. „Sveitar-
félögum er gert að undirbúa fjár-
hagsáætlun í lok árs og geta þau ekki
miðað við annað en þær reglur sem
þá eru í gildi. Það er óþolandi að búa
við það óöryggi sem felst í þeirri
staðreynd að áhrif breytinga á út-
hlutunarreglum eru ekki ljós fyrr en
langt er liðið á árið,“ segir í tillögu
sem samþykkt var samhljóða á fundi
bæjarstjórnar Ólafsfjarðar nýlega.
Á fundinum var fjallað um endur-
skoðaða fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir þetta ár og kom fram í bókun
Jónu Vilhelmínu Héðinsdóttur að
niðurstaða áætlunarinnar væri mikið
áhyggjuefni. „Hún sýnir mikinn
tekjusamdrátt sem skýrist með
lækkun útsvarstekna (5%) og ekki
síður stórkostlegum samdrætti
(25%) á greiðslum úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga. Samtals lækkar þetta
tekjur um 28 milljónir,“ segir í bók-
un hennar. Fram kemur að í áætl-
uninni væri gert ráð fyrir lífeyris-
skuldbindingum, uppsöfnuðu orlofi
og verðbótum, samtals um 20 millj-
ónum króna. „Þessi upphæð ásamt
samdrætti í tekjum skýrir neikvæða
rekstrarniðurstöðu fjárhagsáætlun-
arinnar upp á 48 milljónir í stað 3ja
milljóna,“ segir í bókuninni. Jóna
segir í bókun sinni að þrátt fyrir
þetta áfall sé full ástæða til að fagna
þeim árangri sem náðst hefði í
rekstrarútgjöldum, bæði hvað varð-
ar laun og rekstur.
Ásgeir Logi Ásgeirsson, fulltrúi
minnihlutans í bæjarstjórn lagði á
fundinum fram bókun þar sem hann
segir að stefni í geigvænlegan halla-
rekstur Ólafsfjarðarbæjar. Árið sé
þó ekki liðið og líta beri á tölur sem
viðvörun, „vissa vísbendingu sem
þarf að taka alvarlega.“ Alvarlegast
segir hann að meirihlutinn hafi
ofáætlað tekjur miðað við fyrra ár,
sem var metár og hæpið að góður
vöxtur haldi áfram endalaust. Ásgeir
Logi segir eftirlitsnefnd sveitarfé-
laga vera með fjármál Ólafsfjarðar í
gjörgæslu. Þrjár leiðir eru að hans
mati færar út úr ógöngunum; auknar
lántökur, niðurskurður og minni
þjónusta eða að selja eignir.
Ólafsfirðingar óhressir
Reglur um
úthlutun Jöfn-
unarsjóðs verði
endurskoðaðar
EYÞÓR Jósepsson og Úlfar Arason
hafa stofnað nýtt fyrirtæki á Ak-
ureyri sem sérhæfir sig í smíði
glugga og hurða úr áli. Einnig býð-
ur fyrirtækið upp á utanhússklæðn-
ingar og iðnaðarhurðir úr áli. Fyr-
irtækið, sem heitir Gluggar ehf., er
í 320 fermetra leiguhúsnæði í
Njarðarnesi 1. Þeir félagar hafa
fjárfest í nýjum og fullkomnum
tækja- og tölvubúnaði í verksmiðj-
una og þessa dagana er verið ljúka
uppsetningu hans. Eyþór sagði í
samtali við Morgunblaðið að fram-
leiðslan hæfist á föstudaginn en til
að byrja með verða hann og Úlfar
einu starfsmennirnir. Eyþór er einn
fyrrum eigenda Akoplastos og Kex-
smiðjunnar og Úlfar starfaði m.a.
sem framleiðslustjóri Akoplastos á
sínum tíma.
Eyþór sagði að hugmyndin að
stofnun fyrirtækisins væri um
tveggja ára gömul og hann er þess
fullviss að álið sé framtíðin á þessu
sviði. „Það er ein svona fullkomin
verksmiðja í Reykjavík en við telj-
um markað fyrir aðra hér fyrir
norðan og við erum vel samkeppn-
ishæfir við innflutning.“ Hann
sagði um þrjár gerðir að ræða í
gluggum á markaðnum, timbur-
glugga, álglugga eða timburglugga
klædda áli.
Sem fyrr segir hefst framleiðslan
á föstudag og eru fyrstu verkefnin
komin í hús. „Viðtökurnar hafa ver-
ið góðar og með fleiri verkefnum
kemur til þess að við þurfum að
bæta við starfsfólki. Verksmiðjan
er þó ekki mannfrek vegna þess
hversu fullkomin hún er.“ Eyþór
sagði að fyrirtækið myndi ekki ein-
ungis þjóna fyrirtækjum og stofn-
unum heldur gætu einstaklingar
líka leitað eftir þjónustu, t.d. í sam-
bandi við glugga, hurðir, garðskála
og ýmislegt fleira.
Staðsetning fyrirtækisins
skiptir máli við fjármögnun
Eyþór sagði að það hefði ekki
gengið þrautalaust að fá fjármagn
til kaupa á vélum og tækjum og þá
fyrst og fremst vegna þess að fyr-
irtækið er staðsett á Akureyri.
„Kaupleigufyrirtækin gátu ekki
hrakið okkar viðskiptahugmynd en
eitt þeirra hafnaði okkur vegna
þess að fyrirtækið er ekki staðsett á
höfuðborgarsvæðinu og það er
vissulega umhugsunarefni. Okkur
tókst þó að lokum að fjármagna
kaupin.“
Morgunblaðið/Kristján
Álmenn: Eyþór Jósepsson og Úlfar Arason við hluta tækjabúnaðarins.
Sérhæfir sig í
smíði hurða og
glugga úr áli
Nýtt fyrirtæki stofnað á Akureyri
GV-gröfur buðu
lægst í Dalsbraut
FYRIRTÆKIÐ GV-gröfur ehf.
átti lægsta tilboð í lagningu Dals-
brautar, frá Þingvallastræti að
Borgarbraut, en tilboð í verkið
voru opnuð í gær. Fyrirtækið
bauðst til að vinna verkið fyrir
rúmar 36 milljónir króna, eða um
79% af kostn-
aðaráætlun,
sem hljóðaði
upp á rúmar
45,7 milljónir
króna.
Alls bárust
fimm tilboð í
verkið og voru
þrjú þeirra
undir kostn-
aðaráætlun. G.
Hjálmarsson
hf. átti næst-
lægsta tilboð en það hljóðaði upp
á um 38,8 milljónir króna, eða
85% af kostnaðaráætlun. Þriðja
lægsta tilboð átti Norðurtak ehf.,
tæpar 40 milljónir króna, eða
87,5% af kostnaðaráætlun. Hin
tvö tilboðin, sem bæði voru yfir
kostnaðaráætlun, komu frá Nón-
tindi ehf. sem bauð um 53,5 millj-
ónir króna og Nettur ehf. bauð
tæpar 55 milljónir króna. Skila-
dagur heildarverksins er 1. júlí á
næsta ári.