Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kristán Ragnarsson, formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, hefur látið mikið að sér kveða sl. þrjá áratugi. Hjörtur Gíslason ræðir við Kristján sem nú lætur af formennsku. Rússnesku fjármálafurstarnir Handtaka viðskiptajöfursins Míkhaíls Khodorovskís beindi kastljósinu að rússnesku fjármálafurstunum. Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir fjallar um uppgang þeirra og stöðu í Rússlandi samtímans. Afkastamikið tónskáld Rúmlega lög, 40 ár – Jóhann G. Jóhansson sagði Árna Matthíassyni frá langri tónlistarævi. Kristján Ragnarsson á sunnudaginn DÆMD FYRIR SAMRÁÐ Hæstiréttur dæmdi í gær Sölu- félag garðyrkjumanna, Banana ehf. og Eignarhaldsfélagið Mötu til að greiða 47 milljóna króna sekt fyrir brot á samkeppnislögum. Eru félög- in sökuð um ólögmætt samráð um verð og markaðsmál. Hækkaði sekt- in um 10 milljónir frá niðurstöðu héraðsdóms og var hún þar með samhljóða ákvörðun áfrýj- unarnefndar samkeppnismála. Bréfasafn eign LBS Lögfræðingur kemst að þeirri nið- urstöðu að afhending persónulegra gagna Halldórs Laxness til Lands- bókasafns hafi falið í sér að safnið öðlaðist heimild eignarréttar yfir bréfasafni skáldsins og tekist á hendur lögbundnar skyldur varð- andi varðveislu þess og meðferð. Erfingjar skáldsins hafa hins vegar leyfi til að takmarka aðgang að þeim hluta safnsins sem skáldið sjálft rit- ar en ekki öðrum. Lætur af formennsku í LÍÚ Kristján Ragnarsson lætur af for- mennsku á aðalfundi Lands- sambands ísl. útvegsmanna sem hófst í gær, eftir 35 ára feril. Hann ræddi m.a. um byggðatengingu veiðiheimilda og sagði óraunhæft að leggja á sjávarútveginn að hann sæi fyrir því að unnt væri að reka útgerð frá hverju því byggðarlagi sem út- gerð hefði einhvern tímann verið stunduð frá burtséð frá því hvort út- gerð bæri sig eða ekki. Hlutabréf í Yukos fryst Gengi hlutabréfa í rússneskum fyrirtækjum lækkaði um rúm 8% í gær eftir að saksóknarar frystu stóran eignarhlut auðkýfingsins Míkhaíls Khodorkovskís og fleiri hluthafa í olíurisanum Yukos. Enn- fremur var skýrt frá því að Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hefði vikið skrifstofustjóra sínum, Alexander Voloshín, úr embætti. Andreotti sýknaður Æðsti áfrýjunardómstóll Ítalíu sýknaði í gær Giulio Andreotti, fyrr- verandi forsætisráðherra landsins, af ákæru um að hann hefði fyrir- skipað morð á blaðamanni fyrir 24 árum. Áður hafði héraðsdómstóll dæmt Andreotti í 24 ára fangelsi fyr- ir að hafa fengið mafíuna til að myrða blaðamanninn. Mesti hagvöxtur í 19 ár Hagvöxtur í Bandaríkjunum á þriðja fjórðungi ársins var 7,2% og sá mesti í nítján ár. Bendir það til að efnahagslífið sé komið á verulegan skrið en hagvöxturinn var 3,3% á öðrum ársfjórðungi. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 39/44 Viðskipti 14 Brids 44 Erlent 16/17 Bréf 48/49 Heima 18 Dagbók 50/51 Höfuðborgin 19 Staksteinar 50 Akureyri 20 Kirkjustarf 51 Suðurnes 21 Skák 51 Daglegt líf 24/25 Sport 52/55 Listir 30/36 Leikhús 56 Forystugrein 32 Fólk 56/61 Þjónusta 35 Bíó 58/61 Viðhorf 36 Ljósvakamiðlar 62 Umræðan 37/38 Veður 63 * * * ÞAÐ eru forréttindi að fá að vinna við tónlist, segja strákarnir í Lea- ves í Fólkinu í dag. Platan þeirra, Breathe, er nýkomin út í Bandaríkj- unum. Elín María og Sara etja kappi í hnefaleikum á morgun og þær segja að íþróttin sé augljóslega ekki bara fyrir karla. Fimmta bókin um Harry Potter kemur út á íslensku á morgun og af persónum bókanna dást viðmæl- endur Fólksins mest að hinum hvít- hærða og síðskeggjaða Dumble- dore. Er furða að valdið og viskan heilli? Morgunblaðið/Kristinn Hnefaleikar og tónlist ÞORGEIR Þorgeirson, rithöfundur, þýðandi og kvikmyndagerðar- maður, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi í gær. Þorgeir fæddist í Hafnarfirði 30. apríl 1933. Foreldrar hans voru Guðrún Kristjáns- dóttir verkakona og Þorgeir Elís Þorgeirs- son sjómaður. Þorgeir varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953. Þá nam hann þýsku, bók- menntasögu og listfræði við Vín- arháskóla 1953 til 1954. Síðar lærði hann kvikmyndaleikstjórn við Lista- akademíuna í Prag 1959 til 1962. Þorgeir starfaði við kvikmynda- gerð 1962 til 1972 samhliða leiðsögu- störfum hjá Ferðaskrifstofu ríkis- ins. Hann vann við ýmis ritstörf, þýðingar og leikstjórn í útvarpi frá 1962. Kennari var hann við Leiklist- arskóla SÁL árin 1973 til 1976. Eftir Þorgeir liggur á níunda tug titla. Þar á meðal eru skáldsögur, smásögur, ritgerðasöfn, leikhús- verk, útvarpsleikrit, ljóð, þýðingar, kvik- myndahandrit og heimildamyndir. Er- lendar útgáfur á verk- um hans eru vel á þriðja tuginn. Þorgeir vann mál gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttinda- dómstóli Evrópu 1992 eftir að hafa verið dæmdur í Hæstarétti fyrir greinarskrif í Morgunblaðið 1983. Hafði dómurinn áhrif á íslenskt réttarfar. Þorgeir hlaut ýmsar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir kvikmyndina Maður og verksmiðja og fyrir rit- störf sín. Hann var kjörinn heiðurs- félagi Félags íslenskra kvikmynda- gerðarmanna og honum voru veitt Eddu-verðlaunin fyrir framlag til kvikmynda árið 2000. Eftirlifandi kona hans er Vilborg Dagbjartsdóttir, kennari og skáld. Sonur hans er Þorgeir Elís Þor- geirsson efnafræðingur og stjúpson- ur Egill Arnaldur Ásgeirsson kenn- ari og sjómaður. Andlát ÞORGEIR ÞORGEIRSON LANDSFUNDUR Samfylking- arinnar hefst kl. 17.15 að Ásvöll- um í Hafnarfirði í dag, með ávarpi Lúðvíks Geirssonar, bæj- arstjóra í Hafnarfirði. Því næst flytur Össur Skarphéðinsson, formaður flokksins, hátíðar- ræðu, en hún verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2. Á heimasíðu flokksins kemur fram að um 700 fulltrúar hafi til- kynnt þátttöku á þinginu. Í kvöld verða umræður í fjór- um málstofum; átökin um Evr- ópusamrunann, um einkarekst- ur og opinberan rekstur, um fátækt, auðlegð – arfleifð barnanna og um unga fólkið og framtíðina. Í fyrramálið flytur Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar, skýrslu sína og kynntar verða tillögur til lagabreytinga. Þá fara einnig fram kosningar. Á sunnudag er málstofa um sviptingar í við- skiptaheiminum, afhent verða hvatningarverðlaun og kynnt verður verkefnaáætlun stjórn- málahóps og ályktanir verða af- greiddar. Ráðgert er að formað- urinn slíti síðan fundi um kl. 15. Landsfundur Samfylking- ar hefst í dag AÐEINS ER tímaspursmál hvenær öfgasamtök sem starfa í skjóli um- hverfis- og dýraverndar láta til skar- ar skríða gegn fiskveiðum Íslend- inga að mati Eiðs Guðnasonar sendiherra sem fjallaði um ógnanir frá öfgasinnuðum umhverfissamtök- um á aðalfundi Landssambands ís- lenskra útvegsmanna í gær. Hann segir að verja verði umtalsverðum fjármunum til að svara slíkum óhróðursaðgerðum enda gríðarlegir hagsmunir í húfi. Eiður sagði mörgt teikn á lofti um að öfgasamtök á sviði umhverfismála mundu í vaxandi mæli beina athygli sinni að fiskveiðum og hætta að horfa bara á hval eða sel. Sjávarút- vegurinn, fiskveiðarnar, yrði næsta skotmark þessara samtaka, þegar fólki yrði almennt orðið ljóst að hvalastofnar væru ekki lengur í út- rýmingarhættu. Eiður sagði fisk- veiðarnar auðvelt skotmark, enda fiskfræði ekki hárnákvæm vísinda- grein og því erfitt að meta stærð fiskistofna. Þá væri auðvelt að hvetja fólk til að kaupa ekki fisk, burtséð frá því hvar hann væri veiddur. Eiður sagðist þeirrar skoðunar að aðeins væri tímaspursmál hvenær öfgasamtök létu til skarar skríða gegn Íslendingum. Hann sagði vandasamt að bregðast við slíku. Að hans mati þyrfti þó að svara í sömu mynt. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, sem ávarpaði aðalfundinn í síðasta sinn, bindur vonir við að auk- in samkeppni olíufélaganna með til- komu nýs olíufélags leiði til lægra ol- íuverðs fyrir fiskiskipin. Nefnir hann dæmi um útgerðarfélag sem sparaði hálfa milljón með útboði á kaupum á 150.000 lítrum af olíu. Hann segir að önnur olíufélög hafi boðist til að jafna tilboð þess sem lægst bauð og vonast eftir meiri samkeppni. Fiskveiðar skot- mark öfgahópa  Umhverfissamtök/32 Morgunblaðið/Jim Smart Ársfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna var vel sóttur í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.