Morgunblaðið - 31.10.2003, Page 58
58 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4. með ísl. tali.
Miðav
erð
kr. 50
0
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
4. myndin frá Quentin Tarantino
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
Yfir 15000 gestir
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og geggjuð grínsýning kl. 12. B.i. 10 ára.
kl. 6, 8.30 og 11. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30 og powersýning kl. 12. B.i. 16.
YFIR
20 000
GESTIR
Powersýningkl. 12.
Kl. 8. B.i. 16.
Geggjuðgrínsýningkl. 12.
j
í i
l. .
TOPP
MYND
IN
Í USA!
Stærsta grínmynd ársins!
FRUMSÝNING
Þú deyrð úr hlátri enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
ÞÞ FBL
„Frábær mynd“
Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12. B.i. 10 ára.
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára.
4 myndin fráQuentin Tarantino
BLÓÐBAÐIÐ ER BYRJAÐ
Miðav
erð
kr. 50
0
Sýnd kl. 6.
Skonrokk FM909
Kvikmyndir.com
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg Kvikmynd“
„Frábær mynd“
ÞÞ FBL
Þú deyrð úr hlátri
enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
Yfir 15000 gestir
FRUMSÝNING
Stærsta grínmynd ársins!
TOPP
MYNDIN
Í USA!
NOKKRIR alþingismenn komu saman í stúd-
íói á dögunum og sungu lag inn á nýjan
geisladisk, Betri tíma, sem Mæðrastyrks-
nefnd og Fjölskylduhjálp Íslands gefa út.
Lagið er gamli Jim Reeves slagarinn „Wel-
come to my World“ með íslenskum texta Þor-
steins Eggerstssonar, en þingmennirnir
syngja það í rólegum kántrístíl.
„Þau leyndu á sér og voru mun betri en ég
átti von á,“ segir Árni Scheving sem útsetti
lögin á plötunni. „Það var afar þægilegt að
vinna með þeim og þau virtust hafa gaman af
þessu enda var mikið fjör.“ Hann segir
reyndar greinilegt að þingmennirnir hafi
sungið mismikið um ævina en þau sem minna
hafi gert af því hafi verið fljót að læra.
Ljúf og róleg lög
Mæðrastyrksnefnd er 75 ára á árinu og er
markmiðið með útgáfunni að safna fé til
stuðnings skjólstæðingum hennar og Fjöl-
skylduhjálpar Íslands. „Við sem vinnum
hjálparstarf verðum að hafa augun opin fyrir
nýjum fjáröflunarleiðum,“ segir Ásgerður
Jóna Flosadóttir formaður Mæðrastyrks-
nefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands. Lands-
þekktir söngvarar koma fram á diskinum
m.a. Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Andrea
Gylfadóttir, Ragnheiður Gröndal. „Þetta eru
fyrst og fremst ljúf og róleg lög sem Gerður
G. Bjarklind útvarpsþula valdi. Mér finnst
þau öll afskaplega falleg,“ segir Ásgerður.
Alþingismenn
taka lagið
Bryndís Hlöðversdóttir, Rannveig
Guðmundsdóttir og Jón Gunnarsson í
góðum fíling við upptökur.
Útgáfutónleikar Betri tíma verða haldnir á
Hótel Borg í kvöld og hefjast þeir kl.
21.00. Þar munu söngvarar af disknum
koma fram en aðgangur er ókeypis.
NORSKIR gagnrýnendur halda
vart vatni yfir myndinni um Nóa
albínóa eftir Dag Kára en myndin
var tekin til almennra sýninga í
kvikmyndahúsum í Noregi í vik-
unni. Þeir gera mikið úr því
hversu íslensk hún er og segja
aðalpersónuna sem Tómas Le-
marquis leikur, undarlega
heillandi.
„Þvílíkur tómleiki, þvílíkur
snjór og þvílíkt makalaust ráða-
leysi!“ segir gagnrýnandi á net-
útgáfu Verdens Gang í grein þar
sem hann notar orðið „stórfeng-
legt“ sem fyrirsögn. Hann segir
að í myndinni megi finna næstum
„pervertíska“ fegurð og að á óút-
skýranlegan hátt nái aðalpersón-
an tökum á áhorfandanum og
haldi athygli hans. Myndin fjalli
um næstum tilgangslaust líf Nóa
í samfélagi sem sé næstum til-
gangslaust.
„Það er ótrúlegt að á litla Ís-
landi séu svo margir góðir leik-
stjórar,“ segir gagnrýnandi
blaðsins Vårt Land. Hann segir
Tómas túlka hinn kauðalega Nóa
á framúrskarandi hátt og ná að
skapa andhetju sem heilli áhorf-
andann sífellt meira eftir því sem
á líður. Sjaldan hafi landslag átt
betur við atburði og persónur í
mynd. Þá segir gagnrýnandi
Adresseavisen að Nói sé í ætt við
bæði Elling og Regnmanninn.
Gagnrýnandi Bergens Tidende
kallar myndina „íslenskt eldfjall“
og hvetur fólk til að fylgjast með
Degi Kára sem sé virkilega
spennandi leikstjóri. Hann bend-
ir á að Nói, hin 17 ára söguhetja
sem á erfitt geti auðveldlega ver-
ið tákngervingur fyrir hið harð-
býla Ísland. „Nói albínói er eins
og íslensk kvikmyndagerð af
bestu gerð á að vera: full af svört-
um húmor og þunglyndi. Og und-
ir öllu saman sýður eldfjallið…“
Nói albínói hefur nú fengið tólf
verðlaun í Evrópu, m.a. Norrænu
kvikmyndaverðlaunin, er tilnefnd
til Evrópsku kvikmyndaverð-
launanna auk þess sem hún hlaut
sex Eddu-verðlaun og var valin
sem framlag Íslendinga til Ósk-
arsins 2004. Þá hefur aðstand-
endum myndarinnar verið boðið
á um 70 kvikmyndahátíðir víðs
vegar um heiminn.
Sýningar standa enn yfir á
myndinni í Háskólabíói en nú
hafa um 18 þúsund manns séð
myndina.
Kalla myndina íslenskt eldfjall
Gagnrýnendur gera mikið úr
því hversu íslensk myndin er.
Norðmenn hrifnir af Nóa albínóa
HLJÓMSVEITIN Miðnes gefur
út aðra plötu sína í dag og
kallast hún Alein. Fyrsta plat-
an kom út árið 2000 og ber
heitið Reykjavík Helvíti.
„Hátíð í bæ,“ segir Freyr
Eyjólfsson, Miðneskappi með
meiru. „Á síðustu plötu skoð-
uðum við dekkri hliðar
Reykjavíkurborgar en nú er
komið að síðari hlutanum. Ef
við hugsum þetta eins og Hinn
guðdómlega gleðileik Dante þá
erum við búnir að fara til hel-
vítis og nú er það himnaríki.
Það er því bjartara yfir þess-
ari plötu en hinni, platan gæti
alveg eins heitið Reykjavík
himnaríki.“
Freyr segir nokkurn mun
vera á þessum tveimur plötum,
t.d. sé meira um raddanir á
þessari. „Svo njótum við full-
tingis Silfurfálkans sem er
öndvegis hammond- og píanó-
leikari.“ Silfurfálkinn er Sig-
urður nokkur Guðmundsson,
meðlimur Fálkanna frá Kefla-
vík.
Ásamt Frey eru í Miðnesi
þeir Stefán Már Magnússon,
Herbert Viðarsson og Andri
Geir Árnason. Silfurfálkinn er
svo sérlegur aðstoðarmaður.
„Upptökur eru búnar að
standa yfir í rúmt ár með
mörgum og löngum hléum,“
útskýrir Freyr. „Við erum
búnir að melda þetta dálítið
með okkur, hentum t.d. þrem-
ur lögum og tókum upp þrjú
ný í staðinn. Við erum búnir
að vera að dunda okkur við
þetta en upptökur fóru að-
allega fram í hljóðveri Rúnars
Júlíussonar, Geimsteini. Hann
gefur plötuna jafnframt út og
syngur meira að segja lokalag-
ið. Hann á margar þakkir
skildar og má segja að hann sé
eins konar guðfaðir plöt-
unnar.“
Freyr segir að það hafi ver-
ið gaman að taka upp plötuna
í Keflavík, en þar sé Mið-
nesheiðin sjálf ekki langt und-
an.
„Svo verður einhver meiri
spilamennska í kjölfarið á
þessum útgáfutónleikum,“ seg-
ir Freyr glaðværri en ákveð-
inni röddu að lokum og víst að
Miðnes er komið enn og aftur í
gírinn.
Reykjavík himnaríki
Miðnes kynnir nýja plötu á Grand rokk
Það verður eldheit stemning á útgáfutónleikum Miðness!
Alein er komin út. Tónleik-
arnir hefjast kl. 23.00.