Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Opið hús hjá Súlum | Súlur, björg-
unarsveitin á Akureyri, fagnar fjögurra
ára afmæli sínu um þessar mundir og af
því tilefni verður opið hús í höfuðstöðvum
sveitarinnar á Hjalteyrargötu 12 á morg-
un, laugadaginn 1. nóvember, frá kl. 10–
17. Bæjarbúar og nærsveitamenn eru
hvattir til þess að koma og kynna sér
starfsemi sveitarinnar.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði á
kynningardegi sveitarinnar. Sýnt verður
myndband um starfsemina, skipulag leitar
útskýrt, prentuðu efni með upplýsingum
um sveitina verður dreift til gesta og flug-
eldasala sveitarinnar verður kynnt en
starfsemin er að mestu byggð upp á flug-
eldasölunni. Þá mun björgunarsveitarfólk
sýna hluta þjálfunar og starfa sinna í
verki, tækjabúnaður sveitarinnar verður
kynntur, boðið verður upp á óvæntar
uppákomur og kl. 18 stendur sveitin fyrir
flugeldasýningu. Þá verða veitingar í boði
allan daginn.
Súlur, björgunarsveitin á Akureyri, varð
til við sameiningu Hjálparsveitar skáta,
Akureyri (HSSA), Flugbjörgunarsveit-
arinnar, Akureyri (FBSA) og Sjóbjörg-
unarsveitar SVFÍ, Súlur (SVF), í eina
björgunar- og hjálparsveit. Markmið með
sameiningu sveitanna var að stofna eina
öfluga björgunar- og hjálparsveit á Ak-
ureyri sem er betur í stakk búin en eldri
sveitirnar til að takast á við þau verkefni,
sem til kunna að falla. Markmið sveit-
arinnar er að vinna að alhliða björgunar-
og hjálparstörfum, standa að þjálfun fé-
lagsmanna til þeirra starfa, að stuðla að
auknum slysavörnum og afla þess búnaðar
sem nauðsynlegur er til starfsins.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fagna frumvarpi | Lýðræðis- og jafnrétt-
isnefnd Hafnarfjarðar ályktaði á fundi sínum
á miðvikudaginn um vændisfrumvarpið sem
lagt hefur verið fram á Alþingi. Meirihluti
nefndarinnar lagði fram ályktun þar sem
frumvarpinu er fagnað.
„Meirihluti Lýðræðis- og jafnréttis-
nefndar Hafnarfjarðar fagnar því að fram sé
komið frumvarp til breytinga á 206. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19, 1940 sem lagt
hefur verið fram á Alþingi (vændisfrum-
varpið). Meirihlutinn telur að frumvarpið
muni leiða til þarfrar umræðu í þjóðfélaginu
um kynlífsiðnaðinn og afleiðingar hans.“
Fræðslufundurverður á morgun,laugardag, á veg-
um Félags hjartasjúk-
linga á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Fundurinn verður
haldinn á Fiðlaranum, 4.
hæð, á Skipagötu 14 og
hefst kl. 15. Bjarni
Torfason yfirskurðlæknir
á hjarta- og lungna-
skurðdeild LSH, verður
með erindi um allt það
nýjasta sem er að gerast
í hjartaskurðlækningum.
Hér er um að ræða mjög
fróðlegt erindi sem
snertir alla hjartasjúk-
linga, eins og segir í til-
kynningu. Allir eru vel-
komnir meðan húsrúm
leyfir. Veitingar á vægu
verði.
Þá minnir stjórnin á
hefðbundna laugardags-
göngu, sem hefst kl.
10.30 eins og verið hefur.
Mæting er á flugvelli þar
sem Flugfélag Íslands
hefur aðsetur (syðsta
húsið).
Fræðslufundur
Búðardal | Fundur var haldinn hinn 22. þessa mánaðar í
Búðardal og var fundarefni stofnun sögufélags. Þrátt
fyrir að Dalasýsla sé eitt söguríkasta hérað landsins hef-
ur slíkur félagsskapur ekki verið starfræktur hér fyrr
og er það skemmtileg tilviljun að í ár eru 1000 ár liðin
frá vígi Kjartans í Laxdælu, þekktustu sögu héraðsins.
Ákveðið var að félagið hlyti nafnið „Sögufélag Dala-
manna“ og eru stofnfélagar 24 talsins. Frumkvöðull
þessa félagsskapar er Alma Guðmundsdóttir atvinnu-
og ferðamálafulltrúi Dalabyggðar. Fundarstjóri var
Friðjón Þórðarson fv. þingmaður sem jafnframt sagði
frá því á fundinum að Dalamönnum hlotnast fljótlega sá
heiður, að fá í Dali landafundasýningu Þjóðmenning-
arhússins.
Stjórn þessa nýja félags skipa Þrúður Kristjánsdóttir
formaður, Sigurður Þórólfsson ritari og Kristmundur
Jóhannesson meðstjórnandi.
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
Sögufélag Dalamanna stofnað
Hjálmar Frey-steinsson, læknir á Ak-
ureyri, leggur út af
gagnrýni Karls Sig-
urbjörnssonar biskups á
draugasetur á Stokks-
eyri.
Um kukl og galdra
varla vil
vera neitt að spauga,
en víst þarf kalda
Karla til
að kveða niður
drauga.
Ábyrgð læknis
Hjálmar er heim-ilislæknir BjörnsIngólfssonar á
Grenivík. „Mér fannst
alltaf að hann bæri
ábyrgð á því að ég
dræpist ekki, en sá svo
að það var alltof mikil
krafa; ég yrði að draga
úr því,“ segir Björn og
yrkir:
Um menntaveginn leið
hans lá
læknisstarfið
vald’ann
og ber þess vegna
ábyrgð á
að ég drepist sjaldan.
Draugagangur
Skagaströnd | Frystitogarinn
Arnar HU kom til heimahafnar
á Skagaströnd á miðvikudag
eftir nokkrar breytingar á
skipinu í Póllandi. Að sögn Jó-
els Kristjánssonar, fram-
kvæmdastjóra Skagstrendings,
gekk allt eins og lagt var upp
með, nema hvað breytingarnar
tóku viku skemmri tíma en
samið var um.
Skipið fór utan 9. september
og alls fóru í 40 dagar í breyt-
ingarnar og siglingar á milli
landa. Helztu breytingarnar
fólust í því að slá út skut skips-
ins og setja í það andveltitank
fyrir framan brúna til að upp-
fylla ýtrustu kröfur Sigl-
ingastofnunar um sjóhæfni. Við
breytingarnar jókst tankarými
fyrir olíu um fimmtung þannig
að ekki er lengur þörf á því að
sigla í land til olíutöku þegar
líður tekur á veiðiferð eins og
áður þurfti. Í slippnum í Pól-
landi var skipið jafnframt sand-
blásið og almálað. Arnar
hreppti leiðindaveður í um sól-
arhring á leiðinni heim og er
það samdóma álit skipstjórn-
armanna að vel hafi tekist til
með breytingarnar, sjóhæfni
skipsins hafi aukist verulega og
að það muni örugglega verða
betri vinnustaður en áður
með minni veltingi. Kristinn
Halldórsson hjá Skipasýn
H/F í Reykjavík sá um hönn-
un og teikningar á endurbót-
unum Arnars.
„Við erum mjög ánægðir
með verkið hjá Pólverjunum,
en tilboðsupphæð þeirra var
aðeins 32% af upphæð lægsta
íslenzka tilboðsins sem við
fengum,“ segir Jóel, en hann
vill ekki gefa upp heild-
arkostnað við breytingarnar.
Arnar heldur til veiða við
fyrsta tækifæri.
Arnar HU 1 eftir breytingarnar í Póllandi. Skrokkurinn er áfram grænn.
Arnari HU breytt í Póllandi
Kostnaðurinn þar 32% af lægsta íslenska tilboðinu
Nýmálaður
FJÓRAR nýjar stöðvar fyrir eldi fersk-
vatnsfiska hafa fengið starfsleyfi og sótt
um rekstrarleyfi eftir breytingar sem
gerðar voru á lögum um lax- og silungs-
veiði í maí 2001. Þá fékk Samherji nýtt
starfsleyfi Umhverfisstofnunar vegna
6.000 tonna stöðvar í Reyðarfirði sem gild-
ir frá því í mars í vor.
Þetta kom fram í svari landbúnaðarráð-
herra á alþingi við fyrirspurn Kolbrúnar
Halldórsdóttur um fiskeldis- og hafbeitar-
stöðvar.
Þá kom og fram í svari ráðherra að 28
fiskeldis- og hafbeitarstöðvar, sem starfað
hafa á grundvelli starfsleyfis, hafi endur-
nýjað rekstrarleyfi sín síðan slíkt var skylt
samkvæmt bráðabirgðaákvæðum laganna
frá 2001 en auk þeirra hafi Sæsilfur í Mjóa-
firði og Salar Islandica í Berufirði sem
starfræktar voru fyrir breytingu laganna
endurnýjað leyfi sín.
Fjórar eld-
isstöðvar
fengið leyfi
frá 2001
BÚIST er við hátt í eitt hundrað kepp-
endum á Þrekmeistaramót Íslands sem
haldið verður á morgun, laugardaginn 1.
nóvember í Íþróttahöllinni á Akureyri.
Keppt er í fimm manna liðum karla og
kvenna og einnig einstaklingsflokkum
eldri og yngri en 39 ára. Keppnin á vaxandi
vinsældum að fagna meðal þeirra sem
stunda líkamsræktarstöðvar landsins enda
eru keppnisgreinarnar kunnuglegar æf-
ingar sem margir stunda í líkamsræktar-
stöðvunum. Keppnin reynir sannarlega á
bæði þol og styrk þar sem æfingarnar sem
keppt er í eru fjölbreyttar og alls tíu tals-
ins. Keppni hefst á laugardag kl. 13.00.
Keppendur fara tveir og tveir samhliða í
gegnum æfingarnar í kapp við klukkuna og
því getur verið spennandi að fylgjast með
keppninni. Keppt er í einstaklingsflokki og
fimm manna liðum og koma keppendur
m.a. frá Reykjavík, Akureyri, Vestmanna-
eyjum, Selfossi, Ísafirði og Keflavík. Pálm-
ar Hreinsson og Valdís Hallgrímsdóttir
eiga Íslandsmetið í Þrekmeistaranum og
munu bæði mæta til leiks.
Hátt í hundrað
taka þátt í Þrek-
meistaramótinu
♦ ♦ ♦