Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 25
EKKI eru öll hasarblöð blóði drifin og stútfull
af ofbeldi, þó svo að hin illu öfl komi þar við
sögu. Hin kristilegu hasarblöð um Power
Mark og félaga hans eru æsispennandi og full
af átökum, en þau færa lesendum sínum já-
kvæðan boðskap kristinnar trúar. Lindin,
kristileg fjölmiðlun og útvarp, gefur blöðin út
en þau eru tólf að tölu í þessari fyrstu seríu
sem komið hefur út á íslensku. Blöðin um
Power Mark eru bandarísk en Lindin lét þýða
þau á íslensku svo íslensk börn fengju að
njóta þeirra.
Krakkar í herför fyrir kristna trú
Með kross á brjósti leggur Power
Mark upp í sendiför á tækni-
væddu flugvélinni
Kameljón P-1, þar
sem honum er ætlað að búa til sýndar-
veruleikafrásagnir úr texta Biblíunnar til að
koma boðskap kristinnar trúar til ungu kyn-
slóðarinnar um víða veröld. Hann fær til liðs
við sig ellefu börn frá mismunandi löndum en
þau búa yfir hæfileikum sem koma sér vel að
ógleymdri bjargfastri trú sem þau bera í
brjósti.
En hin illu öfl gera allt til að koma í veg
fyrir sendiförina og verður hópurinn því fyrir
margvíslegum árásum frá illþýði seiðkarls
nokkurs.
Sagan er full af tæknilegum undrum,
Power Mark klæðist til dæmis gjarnan mögn-
uðum framknúnum þrýsti-
bomsum sem gera honum
m.a. fært að fljúga ef á
þarf að halda. Siri Didriksen, starfsmaður
Lindarinnar, segir blöðin hafa fengið mjög
góð viðbrögð. „Við gáfum þau fyrst út í
áskrift, þar sem eitt blað kom út á mánuði yf-
ir árið, og krakkarnir voru svo spennt og
óþreyjufull á milli blaða að þau sendu okkur
gjarnan tölvupóst til að spyrja hvenær næsta
blað kæmi. Nú er aftur á móti hægt að kaupa
alla seríuna í einu,“ segir Siri.
Önnur sería á leiðinni
Kærleikurinn er allsráðandi á Lindinni sem
sést best á því að forsvarsmenn hennar þau
Sheila og Mike Fitzgerald hafa gefið blöðin
um Power Mark til Barnaspítala Hringsins,
þannig að öll börn sem þurfa að leggjast inn á
sjúkrahúsið fá tólf blaða seríuna um Power
Mark gefins. Einnig hafa blöðin verið gefin til
barnadeildar Fjórðungssjúkrahúss Akureyr-
ar.
Íslenskir krakkar sem þekkja Power Mark
og krakkana sem vinna með honum, geta lát-
ið sig hlakka til því nú er nýlega hafin útgáfa
á nýrri blaðaseríu í Bandaríkjunum og þegar
sú sería er öll komin út, ætlar Lindin að láta
þýða hana yfir á íslensku. Eins hefur verið
rætt um að gera
kvikmynd um Pow-
er Mark.
Kristilegt hasarblað
TÍMARIT
Power
Mark þýtur
um loftin blá á
framknúnum
þrýstiboms-
um.
TENGLAR
........................
www.lindin.is
Hinn illskeytti
Fang Shaw er
þjónn seiðkarls-
ins miskunn-
arlausa.
Krakkahóp-
urinn marg-
liti sem að-
stoðar
Power Mark
í sendiför-
inni.
Mark fær til
liðs við sig
hæfileikarík
börn sem
búa yfir bjarg-
fastri trú
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 25
#7 BLÁA LÓNI‹
ICELAND REVIEW
ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517
askrift@icelandreview.com
HVERS VEGNA ÍSLAND?
40 ÁSTÆ‹UR
12 JÖKULSÁRLÓN
DAGSKRÁ SÆNSKRAR MENNINGARVIKU
SÆNSKMENNINGARVIKA2003
Í REYKJAVÍK 1.-8. NÓVEMBER