Morgunblaðið - 31.10.2003, Page 12

Morgunblaðið - 31.10.2003, Page 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ FRJÁLSLYNDI flokkurinn styður ósk færeysku landstjórnarinnar um að fá aðild að Norðurlandaráði og norrænu ráðherranefndinni. Í yfirlýsingu frá flokknum segir að landstjórnin hafi borið fram óskina í fullu umboði Lögþings Færeyja. Eru fremsta vinaþjóð Íslendinga „Færeyingar eru fremsta vina- þjóð Íslendinga meðal norrænna þjóða. Okkur ber að styðja þá með ráðum og dáð í baráttu þeirra fyrir auknu sjálfstæði, sérstaklega þegar einróma stuðningur Lögþings Fær- eyja liggur fyrir, eins og er í þessu tilfelli. Þingflokkur Frjálslynda flokksins andmælir þeirri afstöðu sem ríkisstjórn Íslands hefur tekið til aðildar Færeyinga og telur að Ís- lendingar hefðu átt að lýsa yfir full- um stuðningi við umsókn frænda okkar og vina um aðild að Norður- landaráði. Okkur ber að styðja þá til frelsis og fullveldis og aðild að Norð- urlandaráði er mikilvægur áfangi í sjálfstæðisbaráttu Færeyinga,“ seg- ir m.a. í yfirlýsingunni. Styðja umsókn Færeyinga ♦ ♦ ♦ STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands er á móti upptöku skólagjalda við HÍ en skorar á þingmenn að ræða einka- leyfisgjald Happdrættis HÍ og telur að breyting á fyrirkomulagi þess gæti orðið fyrsta skrefið til þess að bæta fjárhagsstöðu Háskólans. Einkaleyfisgjaldið er 20% af hagn- aði happdrættisins og nam 115 millj- ónum árið 2002, að sögn Stúdenta- ráðs, sem bendir á að allur annar hagnaður happdrættisins fari í upp- byggingu háskólasvæðisins og hún gengi hraðar ef einkaleyfisgjaldið yrði fellt niður. Stúdentaráð bendir á að önnur peningahappdrætti þurfi ekki að greiða einkaleyfisgjald og því sé eðlilegast að því verði dreift á þau öll happdrætti eða fellt niður. „Undanfarið hefur verið töluverð umræða í fjölmiðlum og innan há- skólasamfélagsins um fjárhags- vanda Háskóla Íslands og rætt hefur verið um skólagjöld sem mögulega lausn á þeim vanda. Í yfirlýsingu sem Stúdentaráð sendi frá sér á sunnudag kom fram að ráðið er einhuga í afstöðu sinni gegn upptöku skólagjalda við Há- skóla Íslands og telur aðrar leiðir færar til þess að bæta fjárhagsstöðu Háskólans. Breyting á fyrirkomu- lagi einkaleyfisgjaldsins er fyrsta skrefið í þá átt,“ segir í frétt Stúd- entaráðs. Einkaleyfisgjald Happdrættis Háskóla Íslands Stúdenta- ráð vill breytingu Davíð Gunnarsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, afhendir Hall- dóri Blöndal, forseta Alþingis, bréf til allra þingmanna. UNDIRBÚNINGUR fyrir stóra flugslysaæfingu hófst í Vest- mannaeyjum í gær en þetta er í fyrsta skipti sem æft er eftir nýrri flugslysaáætlun fyrir eyjarnar. Um 200 manns munu taka þátt í æfingunni en á morgun verður sett á svið flugslys þar sem flugvél með 50 farþega hlekkist á við flug- völlinn. Að sögn Heimis Más Pétursson- ar, upplýsingafulltrúa Flugmála- stjórnar, er þetta í raun æfing í viðbrögðum við hópslysi. „Þetta eru flugslysaæfingar sem við höf- um haft á öllum helstu áætlunar- flugvöllum landsins. Við æfum allt neyðaráætlunarkerfið. Þarna er í fyrsta skipti verið að styðjast við nýja neyðaráætlun fyrir Vest- mannaeyjar en það er verið að uppfæra og endurnýja neyðar- áætlanir fyrir alla áætlunarflug- velli landsins sem eru undir Flug- málastjórn.“ Samskipti við fjölmiðla æfð Á æfingunni verða æfðar björg- unaraðgerðir og gert ráð fyrir að fólk sé ýmist mikið slasað, lítið slasað, óslasað eða látið. Þá verður passað upp á aðhlynningu við að- standendur og reynt á samhæf- ingu vegna slysaflutninga frá Vestmannaeyjum, boðunarkerfið, störf fólks á vettvangi og fleira. Samskipti við fjölmiðla verða jafn- framt æfð með það að markmiði að þjóna fjölmiðlum og almenningi. Heimir bendir á að það sé nauð- synlegt fyrir starfsfólk að fara í gegnum svona æfingar. „Þetta þjálfar heimamenn og síðan allt viðbragðsteymið í landinu.“ Stór flugslysaæfing í Eyjum Flugslys á Fokker- flugvél sett á svið FÉLÖG flugmanna, flugfreyja og flugumsjónarfólks eru með lausa samninga og standa kjaraviðræður yfir. Hannes G. Sigurðsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir óljóst hvort samn- ingsaðilar muni stefna að gerð samninga til skamms tíma eða lengri tíma. Samningamenn séu að ræða saman. Kjarasamningar flugmanna, flug- freyja og flugumsjónarfólks runnu úr gildi 15. september sl. eða á sama tíma og samningar flugvirkja en hjá þeim er til afgreiðslu sáttatillaga. Sturla Bragason, formaður samn- inganefndar Flugfreyjufélags Ís- lands, segir að lítið sé að frétta af kjaraviðræðum félagsins við vinnu- veitendur. Tveir samningafundir hafi verið haldnir í september en enginn fund- ur hafi verið haldinn í október. Hann segir óljóst hvort samningsaðilar stefni að gerð langtíma- eða skamm- tímasamnings. Hann segist þó eiga frekar von á að gerður verði skamm- tímasamningur. Flugmenn og flugfreyjur með lausa samninga EINS og fram kom í frétt-um Morgunblaðsins í vik-unni er mikill og vaxandiáhugi erlendis á nútíma- íslensku, og stöðugt fleiri útlend- ingar sækja í að læra málið. Um 40 erlendir háskólar bjóða upp á nám í nútímaíslensku og ef forníslenska er talin með eru þetta uppundir 100 skólar víðs vegar um heiminn. Á Hugvísindaþingi sem hefst í dag verður kynnt verkefni sem kallast Icelandic Online, en það eru Stofnun Sigurðar Nordals, Hugvísindastofn- un, íslenskuskor Háskóla Íslands, háskólinn í Madison í Wisconsin í Bandaríkjunum og fimm evrópskir háskólar sem standa að því, en verk- efninu er meðal annars ætlað að koma til móts við þessa miklu sókn í íslenskunám erlendis. Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals, segir að unnið hafi verið að því í nokkur ár að búa til kennsluefni á vefnum, og að þegar séu á milli 10 og 20 manns að vinna að verkefninu bæði erlendis og hér heima, þar á meðal í Reyk- holti. Ennfremur er unnið að því að fá íslenskuskor Háskólans í Winni- peg í Manitoba í Kanada til liðs við verkefnið. „Í byrjun á þetta að vera sjálfs- námsefni, sem hver sem er getur sótt inn á Netið. Það er fyrsti hluti verkefnisins, og verður opnaður í janúar. Í framhaldinu er hugmyndin sú að hægt verði að koma á einhvers konar fjarkennslu í tengslum við námsefnið, og þá þannig að nem- endur geti komist í samband við kennara í Háskólanum hér,“ segir Úlfar Bragason. Þeir sem vilja læra íslensku eru víða, og ljóst að ekki verður hægt að koma upp formlegri íslenskukennslu nema á fáum stöðum. Úlfar segir að áhugi Stofunar Sigurðar Nordals á verkefninu sé ekki síst mikill fyrir það að með þessu móti sé hægt að ná til mun fleiri nemenda. „Í Bandaríkjunum, til dæmis, hef- ur nútímaíslenska ekkert verið kennd, eingöngu forníslenska. Þeir sem hafa stundað nám í forníslensku hafa sýnt því mikinn áhuga að koma til Íslands á sumrin á námskeið í nú- tímaíslensku. Þarna erum við að reyna að sinna betur þessum dreifða áhuga.“ Ungt fólk ferðast meira „Þvert ofan í það sem margir hafa verið að segja, að áhugi fólks beinist fyrst og fremst að enskunni, þá virð- ist svo vera innan landa Evrópusam- bandins, að fólk hafi nú ennþá meiri almennan áhuga á tungumálum. Innan Evrópusambandsins eru gerðar kröfur um að svo og svo mörg mál séu notuð í samstarfinu, og mikil vinna fer í þýðingar. Þá hafa skiptiprógrömm fyrir stúdenta, eins og Sókrates, leitt til þess að stúdentar eru miklu meira á faralds- fæti en áður; kynnast betur og fara víðar. Erlendir stúdentar sem eru hér í eitt misseri læra kannski ekki mikið í íslensku, en fá kannski áhuga á menningunni og landi og þjóð. Smám saman getur orðið eitthvað úr því sem verður til þess að þeir vilja leggja sig betur eftir málinu. Þessi hreyfanleiki ungmenna hefur haft mjög góð áhrif, fólk er ekki bara tví- tyngt – með móðurmálið og ensk- una; tungumálaþekking er meiri, og það var auðvitað ætlun Evrópusam- bandsins þegar lagt var af stað.“ Úlfar segist ekki vilja draga fjöð- ur yfir það að eftir að Stofnun Sig- urðar Nordals hafi verið sett á fót, hafi sá stöðugi áróður, sem stofnun- in hefur borið uppi um íslensku- kennslu erlendis, skilað sér. „Áður var enginn sem sinnti þessu, en nú er stöðugt verið að sinna verkefnum af þessum toga og koma á fót sam- böndum.“ Skilar meiru en hesturinn Íslendingar hafa ekki sýnt því mikinn áhuga til þessa að mati Úlf- ars að kenna íslensku sem erlent mál. Um þetta var rætt á þingi Ís- lenskrar málstöðvar fyrir skömmu. „Sjálfsmynd okkar er svo tengd tungumálinu, og vegna þess lokum við okkur talsvert af, og viljum helst ekki að útlendingar læri málið vel. Útlendingar verða varir við ákveðnar hömlur, og Íslendingar fara fljótt að beita ensku, um leið og þeir heyra hreim; jafnvel þótt við- komandi kunni litla sem enga ensku. Þetta gerum við ósjálfrátt. Okkur finnst íslenska svo lítið mál að það sé næstum óeðlilegt að útlendingar kunni það. Þó þekkjum við fjölda manns sem tala íslensku reiprenn- andi, jafnvel eftir að hafa lært málið á fullorðins aldri. Mér er sagt að við- brögð fólks séu svona, þegar sjálfs- mynd þess sé nátengd tungumálinu. Hér áður var rekinn mikill áróður fyrir því að það að tala íslensku væri það sama og að vera Íslendingur. Það vantar líka skilning á því að það að kenna útlendingum málið er menningarkynning til frambúðar. Í þessum hópi er til dæmis fólk sem þýðir mest og best íslenskar bók- menntir, kennir málið víða og er stöðugir málsvarar okkar. Miðað við kostnað held ég að þetta skili okkur meiru en íslenski hesturinn, þótt sumir sendikennararnir segi að nemendur komi til þeirra og segi að þeir þurfi að læra íslensku vegna þess að hesturinn þeirra tali ís- lensku!“ Íslenska á margmiðlunardiski Auk verkefnisins Iceland Online hefur Stofnun Sigurðar Nordals einnig unnið lengi að evrópska verk- efninu Carry on Icelandic, og því lýkur innan skamms. Það var Há- skólinn í Hull á Englandi sem hleypti því af stað. Hugmyndin var að búa til kennsluefni í evrópskum tungumálum sem tiltölulega fáir tala, til að auðvelda stúdentum sem vilja fara sem skiptinemar til þeirra landa, að læra tungumálin. „Þetta eru geisladiskar sem nemendur geta keypt áður en þeir fara til viðkom- andi lands og fengið ákveðinn grunn í tungumálinu, upplýsingar um land og þjóð og áttað sig á því út í hvað þeir eru að fara.“ Byrjað á of mörgu Mjög illa gengur að afla fjár til margmiðlunarverkefna af þessu tagi, að sögn Úlfars. „Það eru fyrst og fremst ráðuneytin sem styrkja þetta, en svo eru til sjóðir eins og Málræktarsjóður sem styrkti Carry on Icelandic-verkefnið veglega. Há- skólinn hefur líka staðið á bak við þetta, en hefur ekki stóra sjóði til kennslumála. Við höfum fengið evr- ópskan Lingua-styrk til beggja verkefnanna. Carry on Icelandic- verkefnið hefur þó liðið fyrir það að við erum að gera mikla hluti fyrir lít- ið. Við ákváðum á sínum tíma að vera með í því, þó ekki væri nema til þess að við gætum lært hvernig svona efni er búið til. Við vorum svo heppin, að í vinnuhópnum var fólk sem var mjög vel að sér í kennslu- fræði tungumála, og ég hef skynjað það, að kennslufræði verkefnisins er eins og best getur verið í ljósi þeirra kenninga sem uppi eru núna um það hvernig fólk lærir tungumál. Í gegn- um verkefnið höfum við líka komist í samband við fólk sem við getum leit- að til seinna við áframhaldandi þró- un verkefnanna. Í framhaldi af Icelandic Online- verkefninu höfum við mikinn áhuga á að vinna með Finnum að rann- sóknum á því hvernig fólk nemur af Netinu, en Finnar eru mjög öflugir í þeim fræðum er lúta að því hvernig finnska er lærð. Finnska er lík ís- lenskunni að því leyti að hún er beygingamál. Einu sinni var sagt að það skipti engu máli hvernig tungu- mál er upp byggt – fólk lærði öll mál eins. En nú er annað að koma í ljós. Birna Arnbjörnsdóttir ætlar einmitt að fjalla um það á Hugvísindaþing- inu.“ Úlfar segir mikinn akur ennþá óunninn í kennslu íslensku sem er- lends máls, en að nú bendi margt til þess að stjórnmálamenn séu að vakna til vitundar um mikilvægi slíkra verkefna. „Menn hafa bara verið að hleypa af stokkunum of mörgum verkefnum, í stað þess að velja betur úr og styðja færri verk- efni betur. Svo er hætt að styðja verkefni í miðju kafi, og kvartað undan því að engu sé lokið. Það er þó skiljanlegt, því það er lítið um fjár- muni í þessari grein annað en það sem kemur frá hinu opinbera.“ Nýtt námsefni í nútímaíslensku fyrir útlendinga lítur dagsins ljós Kynning til frambúðar Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.