Morgunblaðið - 31.10.2003, Side 60

Morgunblaðið - 31.10.2003, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL KRINGLAN Sýnd kl. 6. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. Með hinum hressa Seann William Scott úr „American Pie“ myndunum og harðjaxlinum The Rock úr „Mummy Returns“ og „The Scorpion King.“ Beint á toppin n í USA Ævintýraleg spenna, grín og hasar ROGER EBERT KVIKMYNDIR.IS The Rundown er mikil rússíbanareið og hún nær þeim ævintýrablæ og húmor sem einkennir m.a. Indiana Jones myndirnar. H.K. DV. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 10.  SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL “Fyndnasta barátta kynjanna á tjaldinu um langa hríð.” ATH!AUKASÝNINGKL. 9.05 Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6 og 8. „Ein besta gamanmynd ársins- fyrir fullorðna“ Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05 og 10.15.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. SV MBL Tvímælalaust ein albesta mynd ársins sem slegið hefur rækilega í gegn í USA Stórmynd sem engin má missa af. Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að. Heimsfrumsýning 5. nóv. MON ONCLE sýnd kl. 6. PLAYTIME sýnd kl. 10.30.  "Skotheldur leikur og frábært handrit." HP KVIKMYNDIR.COM HK.DV SV MBL KVIKMYNDIR.IS 6 Edduverðlaunl M.a. Besta mynd ársins FRUMSÝNING Helen Mirren og Julie Walters fara á kostum í nýrri og bráðskemmtilegri breskri gamanmynd í anda „Full Monty“. Mynd sem kemur skemmtilega á óvart enda ein stærsta mynd ársins í Bretlandi. ÞAÐ er fríður flokkur sem stígur á sviðið í Broadway um þessar mundir og flytur gamla og góða slagara frá bílabænum Detroit, en viðurnefni borgarinnar styttist í meðförum hljómplötuútgáfunnar frægu úr „Motortown“ í „Motown“. Það þótti nýlunda í Bandaríkjum við lok sjötta áratugarins þegar þel- dökkir hófu að gefa út á plötum tón- list sem sótti nokkuð jafnt fyrir- myndir á vinsældalista svartra sem hvítra og sló í gegn á hvorum tveggju. Hljómurinn í upptökunum fyrsta áratuginn var einstakur, þetta gjallandi málmhljóð er engu líkt og felur iðulega hve flytjend- urnir kunnu lítið fyrir sér þegar þeir tóku fyrstu skrefin í sönglist- inni. Þeir bættu þetta upp með sjarma og ungæðislegri túlkun á textunum og sum laganna slógu í gegn um veröld víða enda einkenndi bílabæjarbítið fjölbreytt hrynjandi og grípandi laglínur. Þegar hljóm- plötuútgáfunni óx fiskur um hrygg og söngvurunum ásmegin urðu lög- in lengri, útsetningarnar flóknari og textarnir tóku jafnvel mið af þeim þjóðfélagshræringum sem voru efst á baugi í Bandaríkjunum á þessum tíma. Mestur hluti framleiðslunnar var samt áfram ýmist gleðipopp eða vandaðar ballöður og það var ekki fyrr en hljómplötuútgáfan jafnt sem flytjendurnir fóru að fjarlægjast rætur sínar að tónlistin missti að- dráttaraflið og vinsældirnar dvín- uðu. Það er allt annað en auðvelt að finna söngvara og hljóðfæraleikara hér á landi sem geta gert þessari tónlist verðug skil. Það auðveldar ekki verkið að tekin hefur verið sú ákvörðun að líkja eftir stjörnunum í útliti og framkomu jafnt sem söng. Alls koma tólf söngvarar fram og bregða sér í ýmis gervi. Páll Óskar Hjálmtýsson kynnir lögin, rekur sögu hljómplötuútgáfunnar og syngur lög Marvin Gaye. Hann tek- ur þann pól í hæðina að koma fram sem hann sjálfur, herma hæfilega mikið eftir fyrirmyndinni í söng en í raun gera lögin að sínum. Sérstak- lega tókst þetta vel í „Sexual Heal- ing“ þar sem Páll Óskar fór á kost- um í túlkun. Tvísöngur hans og Ragnheiðar Gröndal í lögum sem Marvin Gaye og Tammi Terrell gerðu fræg var líka einstaklega vel heppnaður. Sá sem lengst gekk í að leika ein- hvern söngvaranna var Harold Burr leikstjóri en hann brá sér í gervi Stevie Wonder. Hann náði töluverðu flugi í hlutverkinu og hljómsveitin náði stórskemmtilegri sveiflu í „Signed, Sealed, Delivered“ og „Superstition“. Annars kom mjög skemmtilega út að fá hljóm- sveit með vel mótaðan hljóm og ákveðinn stíl til að leika undir. Lög- in virtust aftur á móti liggja svolítið misvel fyrir hljómsveitarmeðlimun- um og er líklegt að samspilið verði þéttara með meiri æfingu. Alls var flutt á fjórða tug laga, flest í hópi kunnustu laga sem Mo- town hefur gefið út. Samt var greinilegt að ekki voru endilega val- in vinsælustu lögin heldur þau sem hentuðu ákveðnum flytjendum vel. Sem dæmi náði Friðrik Ómar mjög góðum tökum á „You Really Got a Hold on Me“ sem frægt er í flutn- ingi Smokey Robinsons og Alan Thomas Jones tókst ágætlega upp sem Michael Jackson í „Billie Jean“. Stór hluti dagskrárinnar var helgaður sönghópum – Four Tops, Supremes, Martha and the Vandell- as og Temptations. Þar komu upp skemmtileg augnablik eins og þegar Jason Harden kom svo skemmti- lega á óvart með drynjandi og flosmjúkri bassarödd og hvernig Ameliu Samuel tókst að nálgast túlkun Diönu Ross í nokkrum lög- um. Það var hins vegar langt frá því að þátttakendurnir kæmust með tærnar þar sem The Temptations höfðu hælana í fótafimi þó að sam- hljómur raddanna væri oft ágætur eða að bakraddasöngurinn hjá stelpunum ætti eitthvað skylt við hljóminn í The Supremes eða The Vandellas. Þetta minnir á að ástæð- an fyrir því að útgáfufyrirtækið Motown átti slíkri velgengni að fagna sem raun bar vitni er sú að það tókst að velja efnilega unglinga úr óendanlegum fjölda umsækjanda og gera þá að stjörnum með þrot- lausri vinnu og töluverðum tilkostn- aði. Það er ekki von að hér á Íslandi takist að ná sömu gæðum með nokkurra vikna æfingum þó að þeir sem taki þátt séu ýmist efnilegir eða þrautþjálfaðir söngvarar. Það verður bara að fagna því að hér gefst tækifæri til að rifja upp gömlu, góðu lögin og láta hrífast með þeim skemmtilega anda sem næst í sýningunni. Ekki er verra að fram eru bornar ágætis veitingar að hætti Sigga Sig. – indversk sjáv- arréttasúpa, lambatimbali og fleira gómsætt – svo að hægt er að kýla vömbina áður en reikað er í hug- anum aftur til Detroit sjöunda ára- tugarins. Bílabæjarbítið Morgunblaðið/Jón Svavarsson Íslensku Supremes koma að sjálfsögðu við sögu í Motown-sýningunni: Amelia Samuel, Anna Hlín Sekulic og Kenya Emilíudóttir. SKEMMTANIR R’n’B Jazz Entertainment í sam- vinnu við Broadway MOTOWN Framleiðandi: Arnar Laufdal. Leikstjórn: Harold Burr og Marc Anthony. Búningar: Harold Burr og Marc Anthony. Sviðs- mynd: Harold Burr. Danshöfundur: Yezm- ine Olson. Hljóð: Bjarni Bragi og Ásgeir Jónsson. Lýsing: Gísli Berg og Þorleifur Gíslason. Hljóðfæraleikur: Börkur Hrafn Birgisson (gítar), Daði Birgisson (hljóm- borð), Daniel Rourke (saxófónn), Ingi Snær Skúlason (bassi), Kjartan Há- konarson (trompet), Samúel Jón Sam- úelsson (básúna) og Sigfús Örn Ótt- arsson (trommur). Söngvarar: Alan Thomas Jones, Amelia Samuel, Anna Hlín Sekulic, Friðrik Ómar, Harold Burr, Jason Harden, Kenya Emilíudóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson, Ragnheiður Gröndal, Sandra Þórðardóttir, „Teddy“ Olufela Owolabi og Örn Washington. Laug- ardagur 18. október. Sveinn Haraldsson Trumbusláttur (Drumline) Drama Bandaríkin 2002. Skífan VHS. Öllum leyfð. (118 mín.) Leikstjórn Charles Stone III. Aðalhlutverk Nick Cannon, Orlando Jones, Zoe Saldana. AÐ leika í lúðrasveit hefur nú aldrei verið talið það svalasta sem táningur hefur tekið sér fyrir hendur. En innst inni öfunda þó flestir þessa krakka fyrir að geta leikið svona vel á hljóðfæri sín. Devon er ekki ungur og efnileg- ur fótboltamaður og ekki hefur hann hæðina með sér í körfuna. En hann á sér fáa jafnoka þegar kemur að trumbu- slættinum. Hann fær því náms- styrk út á þá hæfileika sína og gengur beint inn í lúðrasveit menntaskóla síns, sem þykir með þeim betri í landinu. Þar ræður ríkjum íhaldssamur og metnaðar- fullur stjórnandi sem leggur mikið upp úr samleiknum, að enginn sé stærri en hljómsveitin sjálf, sama hversu góður hann er á hljóðfæri sitt. Það á ungi Devon erfitt með að sætta sig við enda hefur hann vanist því af götum fátækrahverf- isins þar sem hann ólst upp að til þess að ná árangri þurfi að bíta frá sér, sýna öðrum hver sé bestur og öðlast þannig virðingu. Þetta er hin ágætasta þroska- saga, inniheldur hollan og góðan boðskap og verður aldrei leiðinleg þótt klisjurnar séu reyndar allt að kæfa. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Úr takti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.