Morgunblaðið - 02.11.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þorirðu í spyrnu?
Bókagerðarmenn í ASÍ?
Tel okkur fá
aukin áhrif
NÚ STENDUR yfirallsherjarat-kvæðagreiðsla í
Félagi bókagerðarmanna
um það hvort félagið eigi
að sækja um aðild að Al-
þýðusambandi Íslands. At-
kvæðaseðlar voru sendir
heim til félagsmanna og
atkvæðagreiðslunni lýkur
7. nóvember. Það þykja
tíðindi að bókagerðarmenn
skoði þessi mál hjá sér og
Sæmundur Árnason, for-
maður FBM, svaraði
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.
Hvers vegna er FBM
ekki í ASÍ?
„Þegar félagið var stofn-
að 1980 með samruna
þriggja félaga, þ.e. Bók-
bindarafélags Íslands,
Grafíska sveinafélagsins og Hins
íslenska prentarafélags, þá var
það að kröfu GSF, sem stóð utan
ASÍ, að viðhöfð var allsherjarat-
kvæðagreiðsla um það hvort FBM
ætti að vera meðal aðildarfélaga
ASÍ, en HÍP og BFÍ voru meðal
stofnfélaga þess. Niðurstaðan
varð sú að standa utan heildar-
samtaka verkalýðsfélaga hér inn-
anlands og enginn ágreiningur
var um það að taka þátt í nor-
rænu, evrópsku og alþjóðlegu
samstarfi.“
Hvaða rök hníga að því að FBM
gangi nú í ÁSÍ?
„Ég tel sjálfur að FBM eigi að
ganga í ASÍ. Stjórn, trúnaðarráð
og aðalfundur hafa ályktað að
FBM eigi að fylkja liði með öðrum
verkalýðsfélögum. Við sjáum það í
smáu sem stóru, að til þess að fá
einhverju áorkað verðum við að
eiga aðild, vera þátttakendur. Við
sjáum þetta t.d. í samningum við
ríkisvaldið, um skattamál, at-
vinnumál og félagsleg réttlætis-
mál, svo sem atvinnuleysisbætur.
Félag sem stendur utan félaga-
samtaka hefur engin áhrif, rödd
þess og skoðanir heyrast ekki og
það hefur engin áhrif á framvindu
mála.
Ef við viljum koma okkar
áherslum að gerum við það best
innan ASÍ, utan heildarsamtaka
erum við áhrifalausir þiggjendur
og látum önnur félög vinna að
þessum málum fyrir okkur.“
Hvað fæst með aðild?
„Eitt af því sem ég tel mikil-
vægast er að með aðild opnast að-
gangur að Menningar- og
fræðslusambandi alþýðu. MFA er
m.a. með viðamikil námskeið til að
mennta trúnaðarmenn og kosna
fulltrúa verkalýðsfélaga. Við höf-
um reyndar átt aðgang að nám-
skeiðum MFA undanfarin ár en
það er mest vegna velvilja for-
ystumanna ASÍ. Í fimmtán ár var
MFA-skólinn algerlega lokaður
fyrir okkar fólki. Það er ákaflega
mikilvægt að geta menntað það
fólk sem velst til trúnaðarstarfa.
Með aðild að ASÍ opnast miklir
möguleikar, en utan þess er þetta
erfitt og vandkvæðum bundið.
Það má heldur ekki gleymast að
með aðild fáum við að-
gang að hagfræðingum
og hagfræðiþekkingu
ASÍ, sem okkur vantar
sárlega í dag. Við fáum
þá einnig aukna aðstoð
lögfræðinga og sérfræðinga við
úrlausn ýmissa mála, t.d. við túlk-
un kjarasamninga.
Sérfræðingar ASÍ í kjara- og
vinnuréttarmálum aðstoða aðild-
arfélögin á ýmsan hátt en síðasta
aldarfjórðunginn hefur FBM
þurft að kaupa þessa þjónustu.
FBM heldur þó sínu sjálfstæði, í
samningum sem og öðru, og fé-
lagarnir verða ekki af neinum
réttindum sem fyrir hendi eru
núna hjá félaginu.“
Af hverju núna? Hvað hefur
breyst?
„Við sem höfum verið í kjara-
samningum fyrir félagið undan-
farin ár höfum ítrekað séð það að
við búum ekki yfir sömu upplýs-
ingum og viðsemjendur okkar,
Samtök atvinnulífsins, um gang
kjarasamninga við ASÍ og félög
innan þess. Það sem hefur breyst
frá 1980 er að þá sömdum við við
Félag íslenska prentiðnaðarins.
FÍP hefur síðan runnið inn í Sam-
tök iðnaðarins og SI eru eitt af að-
ildarfélögum Samtaka atvinnulífs-
ins. Fyrir aldarfjórðungi sömdum
við beint við prentsmiðjueigendur
en nú setjumst við að samninga-
borðinu gegnt samninganefnd
Samtaka atvinnulífsins sem sem-
ur einnig við önnur félög og ASÍ.
Þar sem við stöndum utan ASÍ
höfum við ekki þær upplýsingar
sem samningamenn SA hafa um
gang mála í öðrum samningum.
Með aðild tel ég ótvírætt að FBM
sé betur í stakk búið til að sækja
fram í kjarasamningum.“
Hvers vegna allsherjarat-
kvæðagreiðsla?
„Eins og ég sagði eru stjórn,
trúnaðarráð og aðalfundur okkar
búin að álykta um aðildina.
Reyndar eru tveir síðustu aðal-
fundir búnir að álykta
um aðild, því aðalfund-
urinn 2002 fól stjórn að
hefja undirbúning og
kynningu málsins.
Trúnaðarráðið kaus
síðan þrjá félaga úr sínum röðum
og fól þeim að vinna málið áfram.
Við höfum haldið félagsfundi,
kynnt þetta fyrir trúnaðarmönn-
um og haldið fundi á vinnustöðum.
Þetta er svo stórt og viðamikið
mál að okkur fannst ekki vera vit í
öðru en að hafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu og ákváðum að 2⁄3
greiddra atkvæða þurfi til að sam-
þykkja að sækja um aðild.“
Sæmundur Árnason
Sæmundur Árnason er for-
maður Félags bókagerðar-
manna. Lærði prentun í Prent-
smiðjunni Odda og tók sveins-
próf 1960. Framhaldsnám í Die
Höhere Fachschule für das
Graphische Gewerbe í Stuttgart
og lauk prófi í djúpprenti 1961
og tók sveinspróf í offsetprentun
1980. Vann í ýmsum prent-
smiðjum uns hann hóf störf fyrir
FBM 1993. Hefur starfað að fé-
lagsmálum í HÍP og FBM um
árabil og formaður FBM frá
ágúst 1993. Er varafulltrúi nor-
rænu félaganna (NGU) í stjórn
Union Network International og
fastanefnd UNI. Sæmundur er
kvæntur Guðrúnu Eyberg Ketils-
dóttur, fulltrúa hjá RÚV, og eiga
þau þrjú börn og sjö barnabörn.
… sem okkur
vantar sár-
lega í dag
„VIÐ erum búin að stíga fyrsta
skrefið inn í samstarfslíkanið,“ sagði
Hjalti Hugason prófessor í guðfræði
við Háskóla Íslands á málstofu um
samband ríkis og kirkju á Hugvís-
indaþingi 2003.
Hjalti skoðaði fimm líkön fyrir
samband ríkis og kirkju. Í sam-
starfslíkani styður ríkisvaldið við
trúariðkun og starfar náið með einni
eða fleiri frjálsum kirkjum. Frjáls
kirkja er þá í samvinnu við ríkið,
dæmi um það t.d. í Finnlandi, Sví-
þjóð og Þýskalandi.
Segja má að þjóðkirkjan stígi út
úr ríkis- og þjóðkirkjulíkaninu þar
sem ein kirkja (eða fleiri) er þá með
sterk og formleg tengsl við rík-
isvaldið. Þannig er það t.d. í Dan-
mörku og Noregi.
Til umræðu var 62. grein stjórn-
arskrárinnar um að hin evangelíska
lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja
á Íslandi og að ríkisvaldið skuli að
því leyti styðja hana og vernda. Til-
efnið var m.a. þingsályktunartillaga
Samfylkingarinnar um breytingu á
stjórnarskrárákvæðum um samband
ríkis og kirkju. Össur Skarphéð-
insson sagði frá viðhorfum sínum um
þetta efni á málstofunni og að Sam-
fylkingin væri að svara orðum bisk-
ups á kirkjuþingi 2002 um að ríki og
kirkja hefðu þegar skilið að borði og
sæng. Kirkjan þyrfti ennfremur, að
mati biskups, að búa sig undir að til
lögskilnaðar kæmi.
Össur sagði að tillaga Samfylking-
arinnar væri hófstillt tillaga að um-
ræðum og að hún hefði fallið í góðan
jarðveg hjá þjóðinni. Hann sagði að
62. greinin bryti ekki í bága við anda
jafnræðisreglunnar (65. gr), en að
samfélagið væri að breytast. „Nýir
Íslendingar eiga skilið að finna
samskonar skjól í stjórnarskránni
og aðrir,“ sagði hann. „Kirkjan þarf
að vera búin undir að sæta gagn-
rýni,“ sagði hann, „því samfélagið er
orðið fjölmenningarsamfélag. Gild-
ismatið breytist og kirkjan verður að
breytast líka.“ Össur telur rétt að af-
nema 62. grein stjórnarskrárinnar
og gera síðan samstarfssamning við
þjóðkirkjuna.
Segja má að viðhorf Össurar og
Hjalta mætist í hugmyndinni um
samstarfslíkanið. Hjalti lagði þó
ekki til að grein 62. yrði afnumin.
Hann rakti tengsl ríkis og kirkju á
hinum ýmsu sviðum. Rökin fyrir
tengslunum eru m.a. byggð á hefð
og stærð kirkjunnar. Einnig gegnir
hún mikilvægu félags- og menning-
arlegu hlutverki.
Jón Helgi Þórarinsson, formaður
Prestafélags Íslands, sagðist vilja að
kristinn siður yrði áfram tryggður í
stjórnarskránni. Þjóðkirkjan tekur
fúslega á sig ábyrgð gagnvart öllum
þegnum landsins. Dr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson lagði áherslu á að lútersk
kirkja væri kölluð til að fræða en
ekki til að frelsa. Hann sagði að yf-
irvöldum bæri að tryggja starfs-
aðstöðu kirkjunnar. Þau yrðu að
tryggja stöðuga umræðu um verð-
mæti og gildismat samfélagsins. Í
þeirri umræðu væri hlutverk þjóð-
kirkjunnar óumdeilanlegt.
Morgunblaðið/Þorkell
„Kirkjan þarf að breyta sér í samræmi við breytta tíma,“ sagði Össur Skarphéðinsson meðal annars á málþinginu.
Hjalti Hugason, Sigurjón Árni Eyjólfsson og Karítas Kristjánsdóttir fundarstjóri.
Gildismat breytir kirkjunni
Ef samband ríkis og
kirkju yrði numið úr
stjórnarskránni yrði
sambandið sennilega
áfram náið. Gunnar
Hersveinn sat mál-
þing á Hugvísinda-
þingi Háskólans.