Morgunblaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FLEIRI HÚSBRÉFALÁN
Umsóknir um húsbréfalán eru
orðnar fleiri á fyrstu tíu mánuðum
þessa árs en þær hafa orðið á heilu
ári hingað til. Í lok október voru um-
sóknirnar orðnar 200 fleiri en á öllu
síðasta ári sem þó var metár í um-
sóknum um húsbréfalán. Innkomnar
umsóknir um húsbréf voru í októ-
berlok orðnar 10.237 talsins en voru
10.039 allt árið í fyrra.
Sprengjuhótun í farþegavél
Lenda varð tékkneskri farþega-
þotu á Keflavíkurflugvelli í gær
vegna hótunar um sprengju um borð
í vélinni. Farþegaþotan var stödd
660 mílur suðvestur af Reykjanesi
þegar flugstjórn í Reykjavík var til-
kynnt um sprengjuhótunina og var
þá sett í gang neyðaráætlun á flug-
vellinum. Vélin lenti síðan í Keflavík
kl. 17.47 með 174 farþega innan-
borðs og 10 manna áhöfn.
Kvóti til Seyðisfjarðar
Brim ehf. hefur selt 663 tonna
kvóta til Gullbergs ehf. á Seyðisfirði
og er þar um að ræða 624 tonn af
bolfiski og 39 tonn af rækju. Fram-
kvæmdastjóri Gullbergs hefur jafn-
framt keypt húseignir Dvergasteins
og er áformað að koma á fót nýrri
fiskvinnslu í þeim húsakynnum.
Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri á
Seyðisfirði, segir þetta ánægjuleg
tíðindi, enda skipti fiskvinnsla ákaf-
lega miklu á Seyðisfirði.
Bush í heimsókn í Bretlandi
George W. Bush Bandaríkja-
forseti kom til London í gærkvöldi
og hyggst þar verja Íraksstríðið í
ræðu sem hann flytur í dag. Er þetta
í fyrsta skipti í sögunni sem banda-
rískur forseti kemur til Bretlands
sem gestur þjóðhöfðingja landsins,
ekki forsætisráðherrans, í opinberri
heimsókn.
Sigur fyrir samkynhneigða
Æðsti dómstóll Massachusetts í
Bandaríkjunum úrskurðaði í gær að
bann ríkisins við hjónaböndum sam-
kynhneigðra stangaðist á við stjórn-
arskrána. Þing ríkisins fékk hálfs
árs frest til að ráða bót á þessu.
Samkynhneigðir Bandaríkjamenn
fögnuðu úrskurðinum sem mik-
ilvægum sigri í réttindabaráttu
þeirra.
BREYTT PRIMERA
SUZUKI IGNIS
LAMBORGHINI
BÍLL ÁRSINS
REAL OG AUDI
CAYENNE V6
MAZDA3 Í REYNSLUAKSTRI
– LIPUR OG HLJÓÐLÁTUR
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
KIA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2
S í m i 5 4 0 1 5 0 0
w w w. l y s i n g . i s
LÝSING
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Viðskipti 13 Umræðan 34/35
Erlent 16/17 Minningar 36/38
Heima 18 Kirkjustarf 41
Höfuðborgin 19 Bréf 44/45
Akureyri 20 Dagbók 46/47
Suðurnes 21 Staksteinar 47
Landið 23 Sport 48/51
Daglegt líf 24/25 Fólk 52/57
Listir 27/29 Bíó 54/57
Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58
Þjónusta 33 Veður 59
* * *
LÖGÐ hefur verið fram stjórnsýslukæra til heil-
brigðisráðuneytisins vegna þess að Sigurði Björns-
syni var vikið frá störfum sem yfirlækni lyflækninga
krabbameina á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
Einar Páll Tamimi, lögfræðingur Sigurðar, segir að
kæran byggist á því að þeir telji að Sigurður sé enn
þá yfirlæknir á deildinni, þar sem honum hafi ekki
verið vikið frá störfum með lögmætum hætti og
sannanlega hafi hann ekki sagt sig frá stöðunni, en
með þessum aðgerðum sé honum gert ókleift að
sinna skyldum sínum samkvæmt lögum.
Guðný Sverrisdóttir, formaður stjórnarnefndar
LSH, segist telja að starfsfólk spítalans njóti al-
mennra mannréttinda. Auk þess hafi Sigurði ekki
verið sagt upp heldur hafi starfi hans verið breytt og
hann hafi áfram heimild til að vinna inni á LSH.
„Hann braut það samkomulag sem gert var og það
er málið,“ segir hún, en vill að öðru leyti ekki tjá sig
um málið þar sem búið sé að kæra ákvörðun stjórn-
arnefndar um að yfirmenn vinni eingöngu á sjúkra-
húsinu. „Það á eitt yfir alla að ganga,“ segir hún
spurð hvort vænta megi uppsagna fleiri yfirlækna
af sömu ástæðu.
Grundvallarstefnumál spítalans
Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri
lækninga, segir að Sigurði hafi ekki verið sagt upp,
heldur hafi innihaldi starfs hans verið breytt í sam-
ræmi við 19. grein laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins. „Þessi stefnumörkun sem
þetta fjallar um er grundvallarstefnumál spítalans í
starfsmannamálum og við eigum mjög erfitt með að
sjá einn af stjórnendum spítalans, einn af þunga-
vigtarstjórnendum spítalans, lýsa því yfir að hann
hafi þessa stefnu að engu og haldi jafnframt á
kyndlinum sem trúnaðarmaður stjórnar og fram-
kvæmdastjórnar til þess að framkvæma stefnu
spítalans. Við náum þessu ekki saman. Þannig að
okkur finnst þetta ekki harkalegt, okkur finnst, eins
og segir í bréfi til Sigurðar, að það sé vægasta
mögulega leiðin að innihaldi starfs hans sé breytt
með þessu lagi og hann starfi hér áfram, ef hann svo
vill, sem sérfræðingur við spítalann.“ Spurður um
það hvort búast megi við því að gripið verði til svip-
aðra aðgerða gagnvart öðrum yfirlæknum segir
hann það fara eftir því hvort þeir standi við það
samkomulag og samninga sem þeir hafi gert við
spítalann. „Það verður ekkert tekið öðruvísi á því.“
Segir starfsfólk LSH njóta
almennra mannréttinda
JANA Sana ól í gær hraustan snáða
á fæðingardeild LSH, fyrsta barn
þeirra hjóna en hún er gift Ramin
Sana frá Afganistan. Að sögn Ram-
in gekk fæðingin vel fyrir sig og
segir hann drenginn hraustan og
sprækan, þrátt fyrir að hann sé
ekki stór. Jana er frá Úsbekistan og
þau hjónin hafa beðið síðan í mars
eftir svari við beiðni þeirra um póli-
tískt hæli hér á landi en þau neydd-
ust til að yfirgefa heimalönd sín þar
sem þeim var ekki vært vegna for-
dóma.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eignuðust hraustan dreng
MAÐURINN sem lést í bílslysi á
Reykjanesbraut milli Voga og
Grindavíkurafleggjara á föstudaginn
hét Halldór Axel Halldórsson til
heimilis í Krókabyggð 11 í Mos-
fellsbæ. Halldór var fæddur árið
1931 og lætur eftir sig eiginkonu og
sex uppkomnar dætur.
Lést í bílslysi
SAMÞYKKT var á ríkisstjórnar-
fundi í gær að leggja fyrir þingflokka
stjórnarflokkanna frumvarp þar sem
gert er ráð fyrir að heilbrigðisráð-
herra geti með setningu reglugerðar
heimilað sjóntækjafræðingum að
mæla sjón með vissum skilyrðum en
til þessa hefur það einungis verið á
sviði augnlækna. Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra segir að með
lagabreytingunni sé rýmkað um
réttinn til sjónmælinga. Tilskilið yrði
að augnlæknar mældu áfram sjón
hjá börnum, öldruðum og þeim sem
væru haldnir augnsjúkdómum en
sjóntækjafræðingar gætu mælt sjón
hjá öðrum. Þá mætti gera ráð fyrir
að öðrum en sjóntækjafræðingum
yrði heimilað að selja gleraugu og
linsur.
Kristinn Kristinsson, sjóntækja-
fræðingur og stjórnarmaður í Félagi
íslenskra sjóntækjafræðinga, segir
sjóntækjafræðinga sátta við frum-
varpið að vissu leyti, en þeir séu hins
vegar ekki sáttir við þær takmark-
anir sem kveðið er á um varðandi
sjónmælingar. „En þetta er skref í
rétta átt. Við munum síðan vinna í
því áfram að fá þessar takmarkanir
felldar út. Það verður væntanlega
næsta skref hjá okkur.“
Kristján Þórðarson, formaður
Augnlæknafélags Íslands, segir
frumvarpið augljóslega skref aftur á
bak varðandi augnheilsu lands-
manna. „Við hér á Íslandi höfum haft
skilvirkasta kerfið miðað við eftirlit
og alla sjónheilsu landsmanna, þann-
ig að það munu vafalaust einhver
augu tapast vegna þessa, t.d. gláku-
eftirlit. Þannig að þetta er klárlega
skref aftur á bak í heilbrigðisþjón-
ustunni hvað varðar augun og augn-
heilsu landsmanna.“ Að sögn Krist-
jáns er núverandi kerfi það besta og
skilvirkasta sem völ er á. „Þessi nýja
tilhögun mun vafalaust leiða til þess
að einhverjir sjúkdómar, og þá sér-
staklega gláka, munu greinast miklu
seinna þegar óbætanlegar skemmdir
hafa átt sér stað.“
Verði heimilað
að mæla sjón
ÍSLENSKA kvikmyndasamsteypan
og tvö dótturfélög hennar, Regína og
Fálkar, hafa fengið úrskurðaða
greiðslustöðvun í þrjár vikur vegna
fjárhagserfiðleika félaganna. Verður
tíminn notaður til þess að endur-
skipuleggja rekstur félaganna og
komast fyrir vind að þessu leyti, að
sögn Friðriks Þórs Friðrikssonar,
forsvarsmanns Íslensku kvikmynda-
samsteypunnar.
Friðrik sagði að margar ástæður
væru fyrir því að svona væri komið.
Hans eigin myndir hefðu í sjálfu sér
gengið vel, en margar af þeim mynd-
um sem fyrirtækið hefði framleitt
hefðu ekki skilað hagnaði. Þetta end-
urspeglaði bara það hvernig kvik-
myndagerðin væri.
„Vogun vinnur og vogun tapar. Það
er áhætta í þessum bransa. Ég hef
stundum veðjað á vitlausa hesta. Hins
vegar held ég að ég sjái ekkert eftir
því í sjálfu sér. Það er tilgangur með
öllum myndum og þó myndir hafi ekki
skilað hagnaði þá hefur maður verið
ánægður með þær sjálfur,“ sagði
Friðrik Þór.
Hann sagði að það væri kannski til-
viljun að hann hefði náð ákveðinni for-
ystu í þessum efnum hér á landi, en
hann hefði reynt að miðla því til ann-
arra einnig. Eiginlega væri það
kraftaverk sem gert hefði verið í kvik-
myndagerð hér á landi miðað við þær
aðstæður sem greininni væru búnar.
Um 60 kvikmyndir
Friðrik sagði aðspurður að Ís-
lenska kvikmyndasamsteypan hefði
komið að framleiðslu um það bil sex-
tíu mynda með einum eða öðrum
hætti á síðustu þrettán árum og lang-
stærstur hluti þeirra hefði verið ís-
lenskur, eða um það bil fimmtíu.
Kvikmyndagerð skilaði miklum
tekjum til þjóðarbúsins með margvís-
legum hætti og þyrfti ekki annað en
að nefna ferðaþjónustu í því sam-
bandi. Hins vegar væri mikill skortur
á fjármagni til kvikmyndagerðar á Ís-
landi og umhverfið ekki sérlega hag-
stætt þegar borið væri saman við það
sem önnur lönd gerðu fyrir kvik-
myndagerð sína. Flestar þjóðir gerðu
sér nefnilega grein fyrir því að þeir
peningar sem varið væri til kvik-
myndagerðar kæmu margfalt til
baka.
Mörg verkefni í undirbúningi
Friðrik Þór sagði að Íslenska kvik-
myndasamsteypan væri með mörg
sterk verkefni í undirbúningi. Þar
mætti nefna Kaldaljós sem væri nán-
ast tilbúin til sýningar og mynd um
Þórð kakala og Bjólfskviðu en fyrir
hendi væri vilyrði um fjármögnun
beggja myndanna í samvinnu við er-
lenda aðila. Myndin um Þórð kakala
væri stærsta kvikmyndaverkefnið
sem ráðist hefði verið í á Norðurlönd-
um. Alls væru um tuttugu verkefni í
undirbúningi hjá fyrirtækinu og fjár-
mögnun um helmings þeirra væri
mjög langt komin. Horfurnar væru
þannig góðar að því gefnu að fyrir-
tækið kæmist út úr þeim erfiðleikum
sem það ætti í nú. „Þannig að það er
bjart fram undan í þessu svartnætti
þrátt fyrir allt, og ég er bjartsýnis-
maður enda hef ég verið verðlaunað-
ur sem slíkur,“ sagði Friðrik Þór að
lokum.
Íslenska kvik-
myndasamsteypan
í greiðslustöðvun