Morgunblaðið - 07.12.2003, Page 16
16 SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sextán nýjar myndasögur
Nýjar myndasögur hefja göngu sína í Morgunblaðinu á morgun og um leið hverfa nokkrar persónur sjónum les-
enda sem lengi hafa verið fastagestir í myndasögum blaðsins. Hér ber fremst að nefna þau Ferdinand og Ljósku
sem hafa fylgt lesendum Morgunblaðsins í áratugi. Smáfólkið og Grettir verða hins vegar áfram á sínum stað
auk þess sem fjölmargar nýjar myndasögur munu koma til sögunnar og skiptast á um að prýða síður blaðsins.
Margar þessara myndasagna eru komnar frá frönskumælandi löndum en Frakkar og nágrannaþjóðir þeirra hafa
verið framarlega í myndasögugerð á undanförnum áratugum. Þó eru einnig þekktar bandarískar myndasögur á
meðal þessara nýju sagna eins og til dæmis Tarzan og Súperman. Hér fyrir neðan eru þær persónur sem les-
endur blaðsins eiga eftir að kynnast í myndasögunum á næstu vikum og mánuðum kynntar til sögunnar.
Aðdáendur Harry Potters ættu að
kunna að meta myndasöguna
ABRAKADABRA ( École Abraca-
dabra) sem birtist fyrst í franska
teiknimyndablaðinu Mickey árið
1987. Hér segir frá Baltasar, pró-
fessor við lítinn galdraskóla ein-
hvers staðar í Evrópu, og til-
raunum hans til að kenna sex
börnum galdra. Börnin eru fljót að
læra en útkoman verður þó sjaldn-
ast eins og til var ætlast.
Sögurnar um BUBBA OG BILLA
(Boule & Bill) komu fyrst út árið
1959 og njóta enn mikilla vinsælda í
Frakklandi. Þetta eru sögur um fjöl-
skyldu og hund sem fjalla um hvers-
dagsleikann í sinni ljúfustu og oft bros-
legustu mynd.
CLIFTON er ævintýri sem minnir um
margt á Tinna-sögurnar. Hér er sagt
frá breska ofurstanum Clifton, sem
starfaði hjá bresku leyniþjónustunni
MI5, en er nú sestur í helgan stein.
Hann er þó eftir sem áður kallaður til
þegar mikið liggur við og eins og sönn-
um Breta sæmir heldur hann alltaf
haus, sama hvað á gengur.
HERMÍNA (Hermoine) er myndasaga
sem hefur notið mikilla vinsælda á
meðal kvenna. Sagan fjallar um nú-
tímalega unga konu sem kýs að lifa ein
á sama tíma og hún bíður eftir
draumaprinsinum. Hér er varpað fram
spurningum á borð við þær hvenær
maður eigi að standa með sjálfum sér
og hvenær maður eigi að fylgja
straumnum, hvenær maður eigi að
láta drauma sína rætast og hvenær
maður eigi að sætta sig við að þeir
séu bara draumar.
JAKARÍ (Yakari) er frönsk teikni-
myndasaga um lítinn indíánastrák
sem þarf að læra að bjarga sér úti í
náttúrunni og að lifa í samræmi við
hana. Hann þarf að horfast í augu við
ógnir náttúrunnar og læra að lifa með
þeim en það auðveldar honum verkið
að hann getur talað við dýrin sem
hjálpa honum að skilja mikilvægi vin-
áttunnar og jafnvægi náttúrunnar.
LALLI LÁNLAUSI (L’Eléve Ducobu)
leit fyrst dagsins ljós í belgíska mynda-
sögublaðinu Tremplin árið 1992. Sag-
an höfðaði strax til lesenda og á síð-
asta áratug hefur Lalli náð miklum
vinsældum í Frakklandi.
Lalli er vinalegur prakkari sem gengur
ekki nógu vel í skólanum. Hann þarf
því iðulega að kíkja á verkefni bekkjar-
systur sinnar en hún lætur þau ekki
svo auðveldlega af hendi. Lalli grípur
því til ýmissa ráða og endar oftar en
ekki í skammarkróknum.
Myndasögurnar um LUKKU-LÁKA
(Lucky Luke) njóta mikilla vinsælda
um allan heim og eru á meðal mest
seldu myndasagna allra tíma.
Fyrsta myndasagan um Lukku-Láka
var gefin út í Belgíu árið 1946. Höf-
undur hennar hafði unnið við teikningu
myndasagna í Bandaríkjunum en hann
kom hugmynd sinni um hetjuna, sem á
ekkert nema söðul sinn og hest, fyrst
á blað eftir að hann sneri aftur heim til
Belgíu.
LEÐURBLÖKUMAÐURINN (Bat-
man) kom fyrst fyrir í myndasögu í
dagblaði árið 1943 en hann naut þá
þegar mikilla vinsælda í mynda-
sögubókum. Ólíkt öðrum ofurhetjum
býr Leðurblökumaðurinn ekki yfir
neinum ofurmannlegum kröftum.
Hann hefur hins vegar náð líkamlegri
fullkomnun með þrotlausri þjálfun auk
þess sem hann hefur notað auð sinn
til að þróa hátæknibúnað sem hann
nýtir í baráttunni við glæpalýð
Gothamborgar.
TITTUR (Titeuf) er svissnesk mynda-
saga sem hefur notið sívaxandi vin-
sælda um alla Evrópu frá því hún birt-
ist fyrst árið 1992. Myndasögurnar eru
byggðar á æskuminningum höfund-
arins Zep og fjalla um lífið í grunnskól-
anum og á götunni, vinahópinn, for-
eldrana, stelpurnar, fjölmiðlana og
fleira.
RISAEÐLUGRÍN (Nabucodinosaire)
segir frá hópi risaeðla sem eru að
reyna að fóta sig í erfiðri lífsbaráttu.
Sögurnar eru með stöðugum skírskot-
unum í nútímamanninn þannig að þótt
undarlegt megi virðast finna lesendur
oft skýra samsvörun með þeim.
LEONARD er myndasaga sem er
byggð á hugmynd um uppfinninga- og
listamanninn Leonardo da Vinci. Í sög-
unni er hann gæddur einstakri kímni-
gáfu auk þess sem uppfinningar hans
verða stöðug uppspretta skondinna
atvika. Það er heldur ekki allt sem sýn-
ist og oft eru uppgötvanir hans svo
langt á undan sinni samtíð að þær
verða vitagagnslausar.
TOMMI OG ALBERT (Tony & Alberto)
er ný saga sem hóf göngu sína í
franska teiknimyndablaðinu Tchó árið
2000. Hér er á ferðinni kaldhæðin
saga um hund og strák sem í fyrstu
virðast vera sakleysið uppmálað en
þegar betur er að gáð er prakkara-
skapurinn þó aldrei langt undan.
Það voru tveir bandarískir unglingar
sem sköpuðu SÚPERMAN árið 1933
en þeim tókst þó ekki að selja hug-
myndina fyrr en árið 1938. Myndasag-
an náði strax slíkum vinsældum að ári
síðar hafði hún bjargað útgefendum
sínum frá gjaldþroti og gefið tóninn
fyrir framtíðarþróun myndasögunnar.
Súperman segir frá Clark Kent sem
kemst að því að hann er ofurmenni frá
annarri plánetu og ákveður að nýta of-
urmannlega krafta sína til að berjast
gegn hinu illa, á sama tíma og hann
heldur áfram að lifa hversdagslegu lífi
sínu sem venjulegur maður.
TARZAN kom fyrst fram í skáldsögu
Edgars Rice Burroughs árið 1912 og
sex árum síðar var fyrsta kvikmyndin
um hann frumsýnd. Tarzan naut strax
mikilla vinsælda í bókum, kvikmynd-
um, útvarpi og á sviði en hann kom þó
ekki fram í myndasögu í dagblaði fyrr
en árið 1929. Sagan um Tarzan segir
frá auðmannssyni sem elst upp hjá
öpum í frumskógum Afríku eftir dauða
foreldra sinna og verður með tíman-
um leiðtogi þeirra og málsvari réttlæt-
isins í skóginum.
MALLA (Malika) er myndasaga um
unglingsstelpu af afrískum uppruna og
tvo vini hennar sem reyna að gera sér
lífið í úthverfi stórborgar sem bæri-
legast miðað við allt og alla. Þetta er
saga um nútímann og inn í gaman-
semina læðist alvarlegur undirtónn og
áleitnar spurningar.
SVÍNIÐ MITT (Angele et Rene) er frönsk
myndasaga sem segir frá stúlkunni Ang-
ele og gæludýrinu hennar sem er svín.
Angele spyr ótal spurninga um lífið og til-
veruna sem foreldrar hennar reyna að
svara eftir bestu getu. Eins og oft vill
verða skilur Angele hins vegar hlutina ekki
alltaf á þann hátt sem til er ætlast.