Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 24

Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Beckham segir frá kynnum af Kryddstúlkunni Victoriu, frægðinni sem fylgir þeim hjónum, sigrum og ósigrum innan og utan knattspyrnu- vallarins og æsku og uppeldi sínu. Hér er grip- ið niður í frásögn af fyrstu kynnum Beckhams og Victoriu. Ég ákvað að vera á bíl næst þegar viðVictoria hittumst. Ástæðan var ekki súað ég hefði eitthvað betri hugmynd enhún um hvert við gætum farið. Móðir Victoriu og bróðir hennar, Christian, óku henni að uppáhaldsstefnumótastaðnum okkar, bílastæðinu við City Limits. Þegar hún var að stíga út úr BMW móður sinnar hallaði Christ- ian sér að mömmu sinni og hvíslaði: „Hann á að minnsta kosti almennilegan bíl.“ Ég hafði lesið einhvers staðar að Victoria væri hrifin af Aston Martin, svo mér tókst að kría út splunkunýjan silfurlitaðan DB7 beint frá umboðinu. Ég sagði sölumanninum að ég væri að spá í að kaupa hann. Ég hefði auðvitað staðið við það hefði Victoria viljað það. Þegar við höfðum skipst á okkar venjulega „Ég veit það ekki – hvert vilt þú fara?“ ákváðum við að keyra til Southend. Ég hafði oft farið á strönd- ina þar þegar ég var lítill, með mömmu og pabba og Lynne og Joanne. Á þeim árum var öllum sama um ástand strandarinnar. Við höfðum alltaf stungið okkur beint í sjóinn og notið hverrar stundar. Þegar við vorum komin út á North Circular-veginn uppgötvaði ég að það var ekkert vegakort í þessum splunkunýja bíl. Það sem verra var þá mundi ég ekki leið- ina. Pabbi hafði alltaf keyrt, og líklega hef ég alltaf verið of niðursokkinn í leik við Joanne í aftursætinu til þess að taka eftir því hvert við fórum. Ég gat ekki sagt Victoriu að ég væri orðinn villtur áður en við vorum í rauninni komin út úr London. Svo ég keyrði bara áfram; alla leið til Cambridge. Við stoppuðum þar og fengum okkur pítsu á veitingastað í miðbænum. Okkur var alveg sama þótt nokkrir gestir þar inni sneru sér við til að horfa á okkur. Mér fannst eins og ég og Victoria hefðum staðinn út af fyr- ir okkur. Við keyrðum síðan aftur til London og hún fór úr bílnum heima hjá foreldrum sín- um. Loksins höfðum við átt almennilegt stefnumót, borðað saman hádegisverð, jafnvel þótt það hefði verið 70 mílum norðar en við upphaflega áætluðum. Næsta stefnumót okkar var líka yndislegt. Við vorum í öftustu sætaröð í kvikmyndahúsi í Chelsea. Við sáum Tom Cruise í Jerry Mag- uire en það eina sem skipti mig máli var höndin sem ég hélt utan um. Stóra málið var hins veg- ar að fara með Victoriu heim til foreldra henn- ar eftir bíó og hitta Tony og Jackie í fyrsta sinn. Við gengum inn og ég man hvað ég var óframfærinn. Ég settist niður á sófa, einn af þessum stóru sófum með leðri sem var fest á með litlum hnöppum. Ég hafði áhyggjur af því hvaða hljóð heyrðust ef ég hreyfði mig til þess að komast í þægilegri stellingu. Mamma Victoriu kom niður og kynnti sig. Jackie getur virst dálítið hvöss þegar maður hittir hana í fyrsta sinn. Að minnsta kosti fannst mér það þetta kvöld. Það var kannski alveg eins sjálfum mér að kenna. Kannski hafði ég ímyndað mér að hún væri hvöss í minn garð. „Svo þú ert knattspyrnumaður?“ Foreldrar Victoriu höfðu lítinn áhuga á knattspyrnu. En þau bjuggu í Goff’s Oak, þar sem margir knattspyrnumenn áttu líka heima. Þau þekktu því nokkra eldri knattspyrnu- menn. „Með hvaða liði leikur þú?“ Ég held að þeim hafi, af einhverjum ástæð- um, ekki litist vel á það að dóttir þeirra væri með knattspyrnumanni. Kannski höfðu þau haft slæm kynni af knattspyrnumönnum. Og nú yrði ég að líða fyrir það, að minnsta kosti þangað til þau hefðu kynnst mér betur. Kannski héldu þau að knattspyrnumenn væru allir hávaðaseggir og monthanar. Ég sat bara frosinn í sófanum þeirra og var alltof stress- aður til að segja meira en fáein orð. Þau ráku mig alla vega ekki út, og eftir smá- stund buðu þau góða nótt og gengu upp á efri hæðina. Ég veit að öllum mömmum og pöbbum finnst enginn kærasti nógu góður fyrir litlu stúlkuna sína. Þetta og það, að ég skyldi vera knattspyrnumaður, hefur kannski átt þátt í því að Tony og Jackie féllu ekki alveg í stafi yfir mér í fyrstu. Þau þekktu samt Vict- oriu sína og þar með voru þau fús til að kynn- ast mér. Ég var ánægður með að þau vildu það. Þegar maður giftist konu verður maður hluti af fjölskyldu hennar. Tony og Jackie hafa tekið mér opnum örmum þótt ég hafi ímyndað mér þetta fyrsta kvöld að það hafi andað köldu í minn garð. Ég og Victoria vorum svo ham- ingjusöm að hafa fundið hvort annað að við gátum alveg hugsað okkur að segja hverjum sem var frá því. Þannig er að vera ástfanginn; maður vill að allur heim- urinn viti af því. En við urðum að halda sam- bandinu leyndu. Simon Fuller vildi hafa það þannig, og ég held að Victoria hafi skilið hvers vegna, að minnsta kosti í fyrstu. Hvað átti ég að segja? Í sannleika sagt fannst mér á vissan hátt feluleikurinn allur dálítið spennandi; að við þyrftum að hittast í laumi og mættum eng- an láta sjá okkur. Andar köldu Samskipti Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóra Manchester United, við Beckham og aðra liðsmenn voru á tíðum stormasöm. Það var aftur orðið kalt á milli okkar. Eitt- hvað hafði farið í taugarnar á stjóranum, en ég vissi ekki hvað. Það eina sem ég vissi var að það var aftur komin spenna í samskiptin, og ég var öruggur um að eitthvað ætti eftir að bresta. Ég man eftir samtali við einn félagann á föstudegi fyrir leikinn gegn Arsenal: „Það er eitthvað í ólagi. Það er eitthvað að angra hann. Það á eitthvað eftir að gerast á morgun.“ Okkur gekk ekki vel í leiknum. Arsenal skoraði heppnismark eftir að boltinn hafði haft viðkomu í varnarmanni eftir aukaspyrnu. Í hálfleik kvaðst stjórinn ekki vera ánægður með spilamennsku mína. Það væri ekki mitt hlutverk að leika í stöðu hægri bakvarðar. Hann sagði að ég ætti að sækja meira upp völl- inn og setja pressu á Ashley Cole. Ég skildi ekki hvað hann átti við. Ég leit á Gary, sem spilaði að sjálfsögðu fyrir aftan mig, og ég sá að hann var ekki heldur sammála honum. En það hafði engan tilgang fyrir mig að segja neitt. Við vorum ekki nema 1-0 undir og við höfðum verið jafn mikið með boltann og þeir. Núna höfðum við 45 mínútur til þess að laga stöðuna. En þetta versnaði bara. Snemma í seinni hálfleik átti Edu stungusendingu inn fyrir vörnina á Wiltord og Arsenal var komið með tveggja marka forystu. Ég lék ekki vel. Það gerðu hinir reyndar ekki heldur. Inni í bún- ingsklefa eftir leikinn fór ég strax úr skónum og legghlífunum, því ég hafði fengið högg á fót- inn og hafði verið skipt út af. Stjórinn kom inn, lokaði dyrunum á eftir sér, fór úr jakkanum og hengdi hann upp á snaga. Það fyrsta sem hann sagði var: „David. Hvað um annað markið? Hvað varstu að gera?“ Var hann að kenna mér um markið? Þetta kom mér alveg á óvart. „Það var ekki mér að kenna. Þeirra maður lagði af stað með boltann einhvers staðar inni á miðsvæðinu.“ Stjórinn hélt áfram: „Við sögðum þér frá þessu fyrir leikinn. Vandamálið með þig er að þú hlustar ekki.“ Ég trúði ekki því sem ég heyrði. Ég hafði hlustað og viljað hlusta allan minn knatt- spyrnuferil. Ég hafði hlustað á stjórann frá því fyrsta daginn sem ég hitti hann og ég hlustaði ennþá á hann. „David. Þú verður að læra að taka því þegar þú hefur rangt fyrir þér.“ „Fyrirgefðu, stjóri, en ég hef ekki rangt fyr- ir mér. Þetta var ekki mér að kenna og ég tek ekki á mig sökina.“ „Jú, það er nákvæmlega það sem þú gerir. Þú tekur á þig sökina.“ Það heyrðu allir í búningsklefanum hvað var að gerast. Það vissu allir að ég hafði á réttu að standa. Það hefði verið hægt að benda á sex aðra leikmenn í aðdragandanum að öðru marki Arsenal. En samkvæmt stjóranum var mér einum um að kenna. Mér fannst eins og verið væri að níða mig á almanna- færi, af engri annarri ástæðu en hreinu hatri. Ég var kominn í sjálfheldu. Og ég bölvaði hon- um upphátt, sem enginn leik- maður ætti að gera við fram- kvæmdastjórann sinn, allra síst United-leikmaður. Það sem gerðist í framhaldinu virðist harla óraunverulegt núna þegar ég rifja upp þenn- an dag. Æft með Kingfisher Fótboltaáhuginn gerði snemma vart við sig og Beck- ham var ungur að árum þegar hann lærði að taka aukaspyrn- ur. Strax frá sjö ára aldri var pabbi farinn að taka mig með á æfingar hjá Kingfisher á miðviku- dagskvöldum. Æfingarnar voru á stað sem kallaðist Wadham Lodge, rétt hinum megin við North Circul- ar Road, skammt frá heimili okkar. Ég á góðar minningar frá þessum kvöldum. Þær tengjast ekki bara pabba og vinum hans heldur líka sjálfum vellinum. Það tók um tíu mínútur að keyra að heiman á völlinn. Við ókum eftir þessari löngu götu með húsaröðum og beygðum inn í gegnum stórt, blámálað tréhlið, framhjá fyrsta bílastæðinu, að öðru bílastæðinu sem var alveg við hlið æfingavallarins. Þetta var malarvöllur gerður úr gulri möl og rauðamöl. Hann var með alvörumörkum með netum og við völlinn var lítið félagsheimili með bar þaðan sem hægt var að fylgjast með leikjum. Hinum megin við völlinn voru þrír til fjórir aðrir vellir, þar af einn sem var þeirra bestur en hann var frátekinn fyrir bikarleiki og fyrir sérstaka viðburði. Sá völlur var umluktur lágreist- um vegg og við hann voru tvö varamannaskýli. Á þessum árum fannst mér þetta vera gríðarstór leikvangur. Mig dreymdi um að fá tækifæri til að spila þarna einn daginn. Wadham Lodge naut ekki mikillar umhirðu á þessum árum. Ég man að búnings- klefarnir voru með skítugum gólfum, fáar ljósaperur í lagi og vatn lak í dropatali úr köldu sturtunum. Svo var það þefurinn af áburðinum sem leikmenn nudduðu á fæturna. Lyktin skall á vit- um þess sem gekk inn í bún- ingsklefann. Völlurinn var flóðlýstur, reyndar aðeins sex lampar á hverju mastri. Á hverju keppn- istímabili slokknaði á ljósunum í miðjum leik og þá var einhver sendur inn í búningsklefann með skiptimynt til að setja í mæli sem var þar inni í skáp. Þarna æfðum við á keppnistímabilinu en við komum líka til Wadham Lodge í sumarfríum. Pabbi hljóp þarna og lék líka með liði í sum- ardeildinni. Ég kom með og horfði á leiki. Við æfðum okkur saman á undan og eftir leikinn og á meðan hann fór fram á stóra vellinum fann ég aðra stráka og við skiptum í lið á vell- inum við hliðina með rauðamölinni. Mestallan minn knattspyrnuferil hef ég verið hjá félögum þar sem allar aðstæður eru til fyrirmyndar og allar þarfir uppfylltar en ég er þakklátur því að hafa kynnst stað eins og Wadham Lodge. Sjáið til, ef ég hefði ekki vanið komur mínar þangað með pabba hefði ég hugsanlega alist upp án þess að kynnast Sápu á reipinu, eins og við kölluðum það. Til að skýra þetta nánar þá var Wadham Lodge staðurinn þar sem ég byrjaði að taka aukaspyrnur. Þegar allir aðrir voru hættir og komnir inn í félagsheimilið var ég með bolta við vítateigslínuna og tók háar spyrnur að markinu. Í hvert sinn sem ég hitti slá eða stöng græddi ég 50 pens aukalega í vasapeninga þá vikuna. Og klapp á öxlina, sem var ekki síður mikilvægt. David Seaman fékk á sig klaufalegt mark gegn Brasilíumönnum á HM 2002. Hér fær hann hlýjar kveðjur frá Beckham eftir leikinn. David Beckham segir í sjálfsævisögu sinni, Mín hlið, frá sínum innstu hugsunum. David Beckham – Mín hlið í skrásetningu Tom Watt og þýðingu Guðjóns Guðmundssonar kemur út hjá Pjaxa. Bókin er 350 bls. að lengd og prýdd fjölda mynda. Beckham – Mín hlið Stóra ástin í lífi Beckhams, Krydd- stúlkan Victoria. Bókarkafli Um fáa íþróttamenn hefur verið meira rætt og ritað en enska knatt- spyrnusnillinginn David Beckham. En hver er maðurinn á bak við fótboltahetjuna, fjölskyldumanninn og tískufyrirmyndina? Íþróttafréttamaðurinn og rithöfundurinnTom Watt kynnti sér lífshlaup kappans. AFP/Getty Images

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.