Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 35
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri á skíði til eins vinsælasta skíðabæjar í Austurrísku ölpunum, Zell am
See. Beint leiguflug til Salzburg, þaðan sem er aðeins um klukkustundarakstur
til Zell. Í boði eru góð þriggja og fjögurra stjörnu hótel í hjarta Zell, rétt við
skíðalyfturnar, veitingastaði, verslanir og kvöldlífið. Í Zell er að finna frábærar
aðstæður fyrir skíðamanninn. 55 lyftur eru á svæðinu þ.a. hægt er að velja um
allar tegundir af brekkum, allt eftir getu hvers og eins. Úrval verslana, veitinga-
og skemmtistaða er í bænum sem og í næstu bæjum.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.950
Salzburg, flugsæti og skattar.
Verð kr. 59.950
Flug, skattar og gisting, m.v. hótel án
nafns, Zell am See/Kaprun. Vikuferð
með morgunverð, m.v. 2 í herbergi.
· 31. jan.
· 7. feb.
· 14. feb. - Uppselt
Beint flug til Salzburg
Skíðaveisla Heimsferða
Austurríki
Zell am See – St. Anton - Lech
ÁSLAUG Arna Stefánsdóttir opn-
aði sýninguna Kynsl í Galleríi
Skugga um síðustu helgi. Kynsl er
fyrsta einkasýning Áslaugar á Ís-
landi að námi loknu, en hún lauk
B.A. gráðu frá The National Coll-
ege of Art and Design í Dublin á Ír-
landi á síðasta ári. Að sögn Áslaug-
ar eru Kynsl nokkurs konar
hugleiðing um átök efnis og anda
þar sem hversdagsleikinn er í senn
látlaus og margbrotinn
Meðal þess sem sjá má á sýning-
unni er myndbandsverk sem sýnir
storm í vatnsglasi og geta gestir
sett á sig heyrnartól þar sem heyra
má sópransöngkonu hlaupa upp og
niður tónskalann. „Í raun má segja
að verkin hér fjalli um það hug-
læga, möguleika þess huglæga til
að fæðast í efninu og því hvernig
hið mannlega getur síðan haft áhrif
á efnið. Í myndbandsverkinu tónar
söngkonan upp og niður tónstigann
og stormurinn í vatnsglasinu kall-
ast á við röddina. En vatnsglasið
sjálft er í raun afar hversdagslegur
hlutur sem við getum öll samsamað
okkur með. Í þessu verki hér,“ seg-
ir Áslaug og bendir á verk sem
samanstendur af vatnsglasi á stöpli
með hátölunum fyrir ofan „er ég
hins vegar að vinna með og leggja
áhersluna á tómarúmið og mögu-
leikana sem felast í því.“
Aðspurð segist Áslaug hafa í
mörgum verkanna verið innblásin
af rannsóknum vísindamanna fyrr
á öldinni. „Ég var að lesa mér til
um veðurfræði og komst m.a. að
því að til að skoða skýstrókafyr-
irbærið hafi vísindamenn búið til
míníútgáfur af skýstrókum á rann-
sóknarstofum sínum. Ég heillaðist
af þessari hugmynd og fór sjálf að
gera slíkar tilraunir, þ.e. búa til
storm í vatnsglasi. Þannig opnuðu
vísindin mér möguleika á tækni-
legri útfærslu við miðlun á kons-
eptinu sem ég var að vinna með.
Þeir sögðu reyndar ekkert um
hvernig þeim hefði tekist að fram-
kalla þessa mínískýstróka og því
fólst ótrúlega mikið sull í því að
prufa sig áfram,“ segir Áslaug og
hlær.
Að sögn Áslaugar langar hana til
að virkja áhorfendur með list-
sköpun sinni. „Í þeim tilgangi not-
ast ég bæði við hreyfiskynjara og
tímastillingar til þess að það sé allt-
af eitthvað nýtt að gerast sem
áhorfandinn þarf síðan að bregðast
við og stöðugt að taka afstöðu til.
Þannig langar mig að skapa
óvænta og ferska upplifun fyrir
gesti gallerísins. Kynsl, eða Pheno-
mena eins og sýningin nefndist
þegar ég sýndi hluta hennar úti,
eru eitthvað sem kemur fyrir þig,
einhvers konar upplifun. Ég er
þannig fyrst og fremst að einbeita
mér að einstaklingnum, hversdags-
leikanum og svo listinni, þ.e. því
hvernig hvernig við skynjum og
lesum.“
Áslaug segir eitt það skemmti-
legasta við listsköpun sé að heyra
viðbrögð almennings við verk-
unum. „Mér finnst gaman að heyra
viðbrögð fagmanna, en sérstaklega
þó viðbrögð almennings, þ.e. ef það
bara þorir að koma inn í galleríið.
Mér finnst nefnilega svolítil synd
hve margir eru uppfullir af minni-
máttarkennd gagnvart samtímalist
vegna þess að oft gefur fólk sér að
hún sé óaðgengileg og erfitt sé að
skilja hana. En ég vil leggja
áherslu á að öllum er frjálst að
upplifa verkin mín á sinn eigin
hátt. Fólk þarf ekki einu sinni að
vita hvað ég var að hugsa þegar ég
skóp verkin. Mig langar þannig
fyrst og fremst til að virkja hina
skapandi hugsun áhorfendans um
leið og ég er að miðla ákveðnu
konsepti.“
Sýning Áslaugar stendur til 21.
desember nk. og er opin alla daga
nema mánudaga kl. 13–17. Að-
gangur er ókeypis.
Vil virkja skapandi
hugsun áhorfenda
Morgunblaðið/Þorkell
Áslaug Arna Stefánsdóttir sýnir Kynsl í Galleríi Skugga.
Stjörnugarður
nefnist ljóðabók
eftir Þórarin Torfa-
son. Stjörnugarð-
ur er þriðja ljóða-
bók höfundar sem
einnig hefur skrif-
að skáldsögu og
smásögur.
Útgefandi er
Bókaútgáfan Ylur. Bókin fæst aðeins
hjá útgefanda á netfanginu yl-
ur@mi.is. Verð: 1.000 kr.
Ljóð
Listasafn Árnesinga, Austurmörk
kl. 15 Safnið opnar jólasýningu á
verkum Bjarna Kristjánssonar
tréútskurðarmanns, Guðrúnar Mar-
inósdóttur textílhönnuðar og verk
nemenda úr 6. bekk BES, Barna-
skóla Eyrarbakka og Stokkseyrar.
Þá opnar Myndlistarfélag Árnesinga
„Vegginn“ og sýndar verða þrjár út-
færslur af jólatrjám.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
ATVINNA mbl.is
Tóma rýmið eftir
Peter Brook er í
þýðingu Silju
Bjarkar Huldudótt-
ur. Hún ritar einnig
inngang. Ritstjóri
er Guðni Elísson.
Breski leikstjór-
inn Peter Brook
hefur haft ótvíræð
áhrif á vestrænan leikhúsheim. Allt frá
því hann leikstýrði fyrstu uppfærslu
sinni fyrir rúmum sextíu árum hefur
hann verið óþreytandi í leitinni að sér-
kennum leikhússins. Í kunnustu bók
sinni, Tóma rýminu, skrifar Brook af
einstakri þekkingu um reynslu sína af
leikhúsinu, sýn sína á æfingaferlið og
tengslin við áhorfendur.
Bókin er hluti af ritröð Bókmennta-
fræðistofnunar Háskóla Íslands, en rit-
stjóri hennar er Guðni Elísson.
Útgefandi: Bókmenntafræðistofnun
Háskóla Íslands og Háskólaútgáfan.
Bókin er 178 bls. Dreifing: Háskóla-
útgáfan Verð 2.990 kr.
Leikhús