Morgunblaðið - 07.12.2003, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 07.12.2003, Qupperneq 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 49 Skartgripaverðlaun 2003 á Bretlandseyjum ER ÚR ÁRSINS 2003! Laugavegi 62, sími 551 4100 · Grindavík, sími 426 8110 UK Jewellery Awards Rotary var kosið úr ársins af seljendum á Bretlandseyjum vegna gæða og frábærrar þjónustu. Helstu útsölustaðir: Blómaval Reykjavík - Akureyri - Keflavík, Lyf & heilsa Kringlunni, Lystadún Marco Mörkinni, Villeroy & Boch Kringlunni, Tekk Company Kópavogi, Hlín Blómahús Mosfellsbæ, Blómahúsið Akranesi, Efnalaugin Albert Ísafirði, Húsgagnaval Höfn. , , , , , , , , . Daily Vits FRÁ A ll ta f ó d ýr ir Stanslaus orka H á g æ ð a fra m le ið sla -fyrir útlitið Nr. 1 í Ameríku ÉG hef að undanförnu reynt að vekja athygli á stöðu blaðburðar- barna út frá ýmsum sjónarhorn- um. Í framhaldi af því hefur skap- ast nokkur umræða um stöðu þeirra og vinnuaðstæður og er það vel. Meðal annars hafa ýmsir að- ilar tjáð sig í fjölmiðlum og flestir stutt við bakið á þessari umræðu. „Amma“ skrifar aftur á móti í Vel- vakanda í Morgunblaðinu mánu- daginn 1. desember sl. og spyr hvers vegna ég skuli ekki hafa lát- ið son minn hætta blaðaútburði fyrst þetta sé svo slæmt sem af er látið. Það var þekkt hér á árum áð- ur að „Húsmóðir í Vesturbænum“ hrökk oft til pennans ef ritstjórn Moggans þótti mikið liggja við. Nú veit ég ekki hvort „amman“ sé bú- sett í Skaftahlíðinni enda skiptir það í sjálfu sér ekki máli, það er sjálfsagt að svara spurningum sem beint er að manni. Ég hef verið spurður áður að þessu, meðal annars af starfs- manni Fréttablaðsins þegar ég var ósáttur við það sem ætlast var til að blaðburðarbörnunum, af hverju hættið þið ekki að bera út fyrst þetta er svona erfitt. Í fyrsta lagi vil ég taka það fram að ég hef frá upphafi borið blöðin út með syni mínum þegar ég hef ekki verið fjarverandi. Mér finnst ekki verj- anlegt að ætlast til að hann geri þetta einn án aðstoðar í öllum veðrum og misjafnri færð áður en hann fer í skólann á morgnana. Svo er einnig um marga aðra for- eldra en það hafa hins vegar alls ekki allir aðstæður til þess. Í öðru lagi vil ég segja að mér finnst að börn á þessum aldri hafi gott af því að vinna fyrir eigin launum ef álagið á þau er ekki of mikið. Það bæði kennir þeim að bera virðingu fyrir vinnunni og fyrir peningun- um. Það má aftur á móti segja að það sé auðvelda leiðin ef maður er óánægður að hætta bara að bera út og leysa vandann þannig fyrir sig prívat og persónulega. Málið er hins vegar ekki svo einfalt. Þegar ég fór að skoða aðstæður blað- burðarbarna niður í kjölinn þá blöskraði mér svo margt að mér var ómögulegt annað en að gera tilraun til að vekja athygli annarra á ástandinu. Mér blöskraði til dæmis að upp- götva að það skyldi hafa tekið nær tíu ára baráttu blaðbera þar til skrifað var undir formlegan kjara- samning vegna blaðbera og þar með blaðburðarbarna en það gerð- ist fyrst fyrr á þessu ári milli VR og Árvakurs. Mér blöskraði að átta mig á því að þrátt fyrir að yfirlýsing hafi verið undirrituð milli Flóabanda- lagsins og Samtaka atvinnulífsins árið 2000 um að tryggja réttar- stöðu blaðbera hefði engin niður- staða náðst á þeim vettvangi í árs- lok 2003. Mér blöskraði að uppgötva það að um 1.200 blaðberar skyldu vera að störfum án þess að starfa undir formlegum kjarasamningi. Mér blöskraði að heyra fréttir af því að það hafi verið tilkynnt á tónleikum, sem blaðberum Frétta- blaðsins var boðið á, að þeir skyldu taka að sér að bera út óskilgreind- an fjölda af hinu nýja DV fyrir fasta upphæð á mánuði sem í okk- ar tilviki er um 1.000 krónur. Mér blöskraði að fá fréttir af því að fólk sem hafnaði því að taka á sig útburð á óskilgreindum fjölda af hinu nýja DV til viðbótar við Fréttablaðið skyldi vera rekið á staðnum. Mér blöskraði að verða vitni að því að nokkur af öflugustu fyr- irtækjum landsins létu blaðbera Fréttablaðsins bera út sívaxandi magn auglýsingabæklinga án þess að greiða þeim neitt þyngdarálag fyrir. Mér blöskraði að átta mig á því að lög og reglur um vinnuvernd barna og unglinga skyldu brotin á blaðburðarbörnum, bæði hvað varðaði aldur blaðbera og þann þunga sem þeim var ætlað að bera út. Fyrrgreind atriði eru meðal annars ástæður þess að ég fór að skipta mér af málefnum blaðburð- arbarna í stærra samhengi í stað þess að jagast fyrir son minn ein- an og sér. Það má kannski segja það að maður sé að skipta sér af því sem manni komi ekki við en það verður það bara að hafa það. Vona að „amman“ sé ánægð með svarið. GUNNLAUGUR A. JÚLÍUSSON, Rauðagerði 36, 108 Reykjavík. Af hverju hættirðu ekki að bera út blöðin? Frá Gunnlaugi A. Júlíussyni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.