Morgunblaðið - 22.12.2003, Page 12
VESTURLAND
12 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ólafsvík | Það var kátt á hjalla í leik-
skólanum Krílakoti í Ólafsvík er litlu
börnin héldu jólatrésskemmtun.
Börnin voru að vonum prúðbúin og
stillt að venju. Dönsuðu þau í kring
um jólatré og sungu jólalög af mikilli
innlifun. Í miðjum söng birtust tveir
jólasveinar og hlupu börnin þá upp til
handa og fóta að taka á móti þessum
óvæntu gestum.
Var þeim jólasveinum, Stúfi og
Hurðaskelli, að sjálfsögðu boðið inn
fyrir enda komu þeir með stóran
poka af gjöfum. Stúfur og Hurða-
skellir tóku þátt í skemmtanahöld-
unum með börnunum og sungu nokk-
ur jólalög. Síðan útbýttu þeir
jólapökkum við mikla hrifningu
barnanna, áður en þeir héldu til fjalla.Morgunblaðið/Alfons
Jólaskemmtun
í Krílakoti
Búðardalur | Það var notaleg
stund sem fólkið átti á Eiríks-
stöðum sl. fimmtudag. Greni-
greinar höfðu verið lagðar á
moldargólfið og í eldstæðinu log-
uðu kerti. Þarna voru bæði börn
og fullorðnir í hlutverki flytjanda
og gafst mönnum færi á að hlýða
Gestir fengu kakó, klatta, klein-
ur og epli. Ekki spillti það fyrir
að snjóað hafði um nóttina og
myndaðist yndisleg jólastemning
inni í þessu sérsæða húsi þar sem
menn sátu á gæruskinnum í
rekkjunum við eldstæðið og nutu
kvöldsins.
á jólasögur, kvæði Dalaskáldsins
Jóhannesar úr Kötlum og frá-
sagnir af því hvernig jólin voru í
gamla daga. Sungnir voru jóla-
söngvar við undirleik harmonikku
og þverflautu og séra Óskar Ingi,
einn af frumkvöðlum í byggingu
þessa húss, flutti jólahugvekju.
Jólastund á Eiríksstöðum
Morgunblaðið/Helga H. ÁgústsdóttirHlustað af athygli, Arnar, Lóa, Fjóla og Magnea.
Fullt hús af hestum í stað kjúklinga
ÞAÐ VAR í nógu að snúast hjá ábú-
endunum Helga Gissurarsyni og
Rósu Emilsdóttur sem búið hafa á
Mið-Fossum í fimm ár. Þau fluttu úr
Mosfellsbænum en Helgi var starfs-
maður Reykjagarðs og var búinn að
ráða sig sem bústjóra á fyrirhuguðu
kjúklingabúi sem setja átti á stofn á
Mið-Fossum. Þá hófst löng bið eftir
leyfi fyrir rekstri búsins og fyrir
rúmum tveimur árum keypti Ár-
mann Ármannsson útgerðarmaður
jörðina. Hann hugðist einnig reyna
fyrir sér í kjúklingaframleiðslunni
en eftir að ljóst var að aldrei fengist
leyfi fyrir slíkum rekstri á jörðinni
ákvað hann að breyta fjósinu, sem
ætlunin var að yrði undir kjúk-
lingana, í hesthús.
Rósu og Helga finnst gott að vera
í sveitinni og segja að þeim líði vel á
Mið-Fossum. Íbúðarhúsið og að-
staðan fyrir hestana væru upp á það
besta og staðsetningin góð. „Hingað
kemur margt fólk eftir að hesthúsið
var tekið í notkun og þegar allir sem
ætla að vera með hesta á húsi hér
verða búnir að taka inn verður mik-
ið líf í kringum þetta,“ sagði Rósa.
Dætur þeirra Rósu og Helga þær
Sigrún Rós, sjö ára, og Gyða, fjög-
urra ára, taka af lífi og sál þátt í
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Helgi Gissurarson og Rósa Emilsdóttir á Mið-Fossum. Með á þeim eru dæturnar, Sigrún Rós og Gyða.
hestastússinu og undu sér greini-
lega vel í hesthúsinu. Barnahestarn-
ir létu sér vel líka að þær kæmu inn
í stíu til þeirra á milli þess sem þær
kíktu á kanínurnar sem geymdar
eru í einni stíunni.
Heppin að hafa hesta í húsinu
„Hugsið ykkur hvað við erum
heppin að hér eru hestar en ekki
kjúklingar,“ varð Ármanni að orði
þegar rætt var um kosti nýja hest-
hússins. „Þetta er það eina rétta,“
bætti hann við og sagði að auðvitað
væru hestarnir það sem þau hefðu
öll fyrst og fremst áhuga á.
Það er hátt til lofts og vítt til
veggja í hesthúsinu. Innréttingar
eru frá Ragnari Valssyni, en voru
hannaðar af Ingólfi Jónssyni. Hest-
húsið er mjög rúmgott og bjart, en
stíur eru með veggjum og einnig
eins og eyja í miðju húsinu. Notuð
eru plastborð í innréttingarnar,
græn að lit, sem gefa hlýlegt yf-
irbragð og eru auk þess hljóðdeyf- asdish@mbl.is
Laugardagur rétt fyrir
jól og líf og fjör í nýja
hesthúsinu á Mið-
Fossum í Andakíl. Verið
var að sortera hross
sem áttu að fara í nýja
girðingu, nágrannar
komu að spyrjast fyrir
um týndar kindur og
aðrir að sækja hesta.
Ásdís Haraldsdóttir
leit inn í nýtt og
glæsilegt hesthúsið.
andi. Pláss er fyrir 39 hesta í ýmist
eins eða tveggja hesta rúmgóðum
stíum. Í húsinu eru fimm sérstakar
stíur fyrir stóðhesta. Skítnum úr
hverri stíu er mokað niður í stórt
haughús í gegnum lúgu en dren-
mottur eru í hverri stíu. Útbúin hef-
ur verið reiðskemma, 12x36 metrar
að stærð, í hlöðu sem áföst er hest-
húsinu og hægt er að hleypa hross-
unum út í tvö rúmgóð gerði fyrir ut-
an húsið.
Þau Helgi og Rósa eru með sín
hross í húsinu auk þess sem Helgi
tekur að sér tamningar fyrir aðra.
Þá leigja þau Heiða Dís Fjeldsted
og Jakob Sigurðsson tíu pláss, en
þau stunda einnig tamningar og
þjálfun hrossa. Eftir áramót mun
svo hestum fjölga mikið í húsinu því
nemendur á Hvanneyri ætla að vera
þar með hross. Enn eru þó eftir
nokkur pláss sem þau hyggjast
leigja út.
Næsta skref að gera
góðan kynbótavöll
Framkvæmdagleðin er enn áber-
andi þrátt fyrir að nýlokið sé við að
klára hesthúsið. Þau Helgi, Rósa og
Ármann sögðu að næsta skref væri
að byggja góðan völl, rétt hjá hest-
húsinu, því sárlega vantaði einn slík-
an í héraðið til dæmis fyrir kynbóta-
sýningar. Þau sögðu að viðræður
hefðu verið í gangi við Hestamanna-
félagið Faxa um samstarf við gerð
vallarins og sögðust þau bjartsýn á
að ekki liði á löngu þar til hann yrði
að veruleika þótt ekki væri ákveðið
með hvaða hætti samstarfið yrði.
Ólafsvík | Söngkvartettinn Rúdolf
hélt tónleika í félagsheimilinu Klifi,
í Ólafsvík, fimmtudaginn 11. des-
ember sl. Efnisskrá tónleikanna
var að stórum hluta tileinkuð sígild-
um dægurlögum liðinna ára, bæði
innlendum og erlendum, en einnig
flutti Rúdolf jólalög frá ýmsum tím-
um. Á fyrri hluta tónleikanna voru
m.a. flutt lög sem eru á nýjum
geisladiski kvartettsins, Allt annað!
og má þar nefna lög Sigfúsar Hall-
dórssonar Játning, Í grænum mó,
Tondeleyjó og Lítill fugl, Spilverks-
lagið Icelandic cowboy og Því ertu
svona uppstökk eftir Ólaf Gauk.
Á seinni hluta tónleikanna færði
söngkvartettinn sig í jólastemmn-
inguna og fllutti jólasöngdagskrá
sem spannaði allt frá íslenskum há-
tíðarlögum til sprelllaga sem
snerta jólaþjóðtrú Íslendinga og
einnig heyrðust lög eins Hátíð fer
að höndum ein, Það á að gefa börn-
um brauð og ýmis önnur lög um
jólasveinana, systkini þeirra og síð-
ast en ekki síst jólaköttinn. Efnis-
skráin höfðaði því til fólks á öllum
aldri.
Söngkvartettinn Rúdolf hefur
starfað í rúm 10 ár og haldið fjölda
tónleika bæði á höfuðborgarsvæð-
inu og víða um land. Fyrstu árin
flutti Rúdolf nánast eingöngu jóla-
tónlist sem komið hefur út á tveim-
ur geisladiskum, „Rúdolf jóla-
söngvar“ 1995 og „Jólavaka“ árið
1997. Rúdolf hefur hvarvetna hlotið
lofsamlega dóma fyrir söng sinn án
undirleiks sem þykir í senn fag-
mannlegur og nýstárlegur. Flest
lög kvartettsins eru sérútsett fyrir
Rúdolf af Skarphéðni Hjartarsyni,
tenórsöngvara hópsins en auk hans
eru í kvartettinum Sigrún Þor-
geirsdóttir, sópran, Þór Ásgeirs-
son, bassi og Soffía Stefánsdóttir.
Fjölmargir gestir voru viðstaddir
tónleika söngkvartettsins sem var í
boði lista- og menningarnefndar
Snæfellsbæjar, og voru gestir yfir
sig ánægðir með tónleikana.
Tónleikar í Félags-
heimilinu á Klifi
Morgunblaðið/Alfons
Skarphéðinn Hjartarson, Sigrún Þorgeirsdóttir, Soffía Stefánsdóttir og
Þór Ásgeirsson á tónleikum í Félagsheimilinu á Klifi.