Morgunblaðið - 10.01.2004, Side 37

Morgunblaðið - 10.01.2004, Side 37
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 37 skiptilykill, slípirokkur, rörtöng, hamar, hjólsög, stingsög, járnsög… minni jólagjöfina í ár, rennibekk upp á eina milljón. Hún talaði ekki við mig í fjóra daga enda hefur hún eng- an áhuga á þessum tækjum. Einu sinni gaf ég henni svo útskurðarvél, sem eitthvað lítið hefur verið notuð.“ Þetta fikt, eins og Pétur kallar þetta áhugamál sitt, hefur fylgt hon- um alla tíð. „Maður verður að hafa að einhverju að hverfa þegar atvinn- an hverfur því það er alkunna að fyrirtækin í landinu vilja losa sig við gamla liðið og yngja í staðinn upp hjá sér. Þá verður gott að geta hall- að sé að einhverju, sem maður getur dúllast í.“ Þegar Pétur er spurður hvort verkfærasöfnunin sé ekki dýrt sport, svarar hann því til að hann hugsi ekkert um það á meðan hann hafi ánægju af. „En á meðan safnar maður hvorki peningum né hlutabréfum. Ég hef hinsvegar aldrei vanið mig á að eyða peningum í tóbak eða áfengi um ævina þó kon- an mín hafi stundum óskað þess að til væri meðferð fyrir verk- færasjúka. Verkfærin koma sér vissulega vel þegar á þarf að halda. Áhugamál mannfólksins liggja víða og margt er ruglið enda væri ekkert gaman að lifa ef allir væru eins.“ Pétur Breiðfjörð Indriðason, 56 ára Seltirningur Morgunblaðið/Eggert Eiginkonan fékk rennibekk í jólagjöf tækjaóðir, en auk þess að ræða það áhugamál sérstaklega, tökum við á þeim þjóðfélagsmálum, sem efst eru á baugi á hverjum tíma. Í hópnum er líka Þórður Óskarsson, vinnusálfræð- ingur, sem er hámennt- aður frá Ameríku og rekur eigið ráðgjafafyrirtæki. Gott er að hafa sálfræðing í hópnum. Hann kaupir líka alltaf nýtt verk- færi handa mér þegar hann fer til Ameríku og færir mér þegar hann kemur heim, reynir þá gjarnan að velja eitthvað, sem ekki fæst hér á landi. Fjögurra daga þögn Pétur segist eiga flest öll tæki, sem hugsast geti, svo sem renni- bekki, bori, fræsara, stærstu gerð af trésmíðavél, þriggja tonna bílalyftu og handverkfæri af öllum gerðum og stærðum svo eitthvað sé nefnt, en sjálfur segist hann aðallega leggja stund á trésmíði og bílaviðgerðir. „Ég gaf meira að segja konunni Jú, það er rétt, ég hlýt að gang-ast við eigin verkfæradellu.Þetta er eins og hvert annað áhugamál. Sumir safna frímerkjum og aðrir postulíni, sem ekki má nota. Ég safna verkfærum, sem bæði eru notuð og lánuð, jafnvel svo árum skiptir, en sum verkfærin hafa óneitanlega aldrei verið notuð,“ segir Pétur Breiðfjörð Indr- iðason, 56 ára kranamaður hjá Eimskip, sem býr á Valhúsa- braut á Seltjarnarnesi. Bílskúrinn hans er mjög rúmur, um 90 fermetrar að stærð. Hann tekur með góðu móti fjóra bíla, en nú er aðeins rými fyrir einn og hálfan bíl í skúrnum þar sem tæki og tól Péturs eru nú óðum að yfirtaka allt rýmið. „Ég tók meira að segja sólstofu eig- inkonunnar undir verkfæri, en ákvað svo í staðinn að smíða fyrir hana nýja garðstofu. Þá léttist brún- in á minni.“ Bílskúrinn hans Péturs er eins og félagsheimili enda er hann sjaldnast þar einn að gaufast. Margir vinir og kunningjar þurfa að fá afnot af verk- færa- og vélasafninu og svo býður Sigurveig Árnadóttir, eiginkona Péturs, félögunum gjarnan upp á kaffi og vöfflur, en hún er starfandi dagmóðir og ræstitæknir. Þegar Pétur er spurður hvort svona bíl- skúrskarl fái nokkuð greitt fyrir greiðan, svarar hann því til að pen- ingar séu ekki allt, alltaf komi greiði í stað greiða. „Við erum nokkrir fyrrverandi og núverandi starfsmenn Eimskips í viðhalds- og tækjageiranum, um tíu karlar, sem höfum haldið dálítið saman og höfum við m.a. undanfarin fimm ár fengið okkur morgunkaffi saman á sunnudagsmorgnum á Um- ferðarmiðstöðinni. Við erum flestir Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930 Laugavegi 54, sími 552 5201 Útsala stærðir 36-46 Árshátíðarkjólar Nýju hvítlaukstöflurnar frá Heilsu eru með þeim sterkustu sem fáanlegar eru hérlendis. Hvítlaukstöflur úr ferskum hvítlauk er þeim mun virkari sem þær innihalda meira af virka efninu allicin. Bestur árangur í rannsóknum hefur náðst með töflum sem innihalda yfir 3,6 mg af allicin. Því ákváðum við að nýju hvítlaukstöflurnar frá Heilsu skyldu innihalda 4 mg af allicin í hverri töflu. Engu að síður er þessar nýju töflur lyktarlausar. Nánari upplýsingar má finna í Nýju íslensku lyfjabókinni (Lyfjabókaútgáfan), Bætiefnabókin (Mál og menning) og á www.heilsa.is/bætiefni ÖFLUGAR HVÍTLAUKSTÖFLUR Morgunblaðið 04.01 2004 K R A F T A V E R K

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.