Morgunblaðið - 10.01.2004, Blaðsíða 73
VESTUR-ÍSLENSKI
kvikmyndagerðarmað-
urinn Guy Maddin er
ekki aðeins einn sá ið-
nasti í bransanum
heldur hafa blaða-
menn vestanhafs
keppst um að lofa síð-
ustu myndir hans.
Síðustu tvo áratugi
hefur hann sent frá
sér ótal kvikmyndir,
flestar stuttmyndir en
allnokkrar myndir í
fullri lengd sem flest-
ar hafa fallið vel í
kramið hjá gagnrýn-
endum, einkum fyrir
frumleg og djörf efn-
istök. Síðan 2002 hef-
ur hann sent frá sér
þrjár langar myndir,
sem mælst hafa
einkar vel fyrir og
unnið til verðlauna;
Dracula: Pages From
A Virgin’s Diary,
sjónvarpsmynd sem
frumsýnd var í kvik-
myndahúsum síðla
árs 2002 og 2003 og
Cowards Bend The
Knee og The Saddest
Music in the World
sem báðar voru frum-
sýndar í fyrra.
Eins og kvik-
myndakaffi
Drakúla-myndin hans, Dracula:
Pages From A Virgin’s Diary frá
2002 – nokkurskonar balletútgáfa
sögð með svarthvítri myndasögu í
anda gamalla filmubúta frá 3. ára-
tug síðustu aldar – er að mati Jas-
ons Whytes, gagnrýnanda kvik-
myndavefritsins eFilmCritic.com,
ein af tíu bestu myndum ársins og
segir þar að myndir Maddins séu
eins og „kvikmyndakaffi; þær æsa
athyglisgáfuna með heillandi sjón-
arspili og framandi frásagn-
arhefð.“
Jason McBride,
gagnrýnandi Village
Voice, er álíka hrif-
inn af verkum Madd-
ins og veltir því upp í
áramótauppgjöri
blaðsins hvort yf-
irhöfuð væri hægt að
tala um Kanada sem
kvikmyndaþjóð ef
hans nyti ekki við. Í
það minnsta tæki
hann frumlega og
ögrandi innsetningu
hans á borð við Cow-
ards Bend the Knee
framyfir myndir
Denys Arcand en sá
er jafnan talinn til
virtustu kvikmynda-
gerðarmanna Kanada.
Samkeppni um
sorglegasta lagið
Þá lofar hann í há-
stert nýjustu mynd-
ina, The Saddest
Music in the World,
hans dýrustu mynd og
fyrstu „hefðbundnu“
leiknu kvikmynd síðan
hann gerði Twilight of
the Ice Nymphs árið
1997. Myndin er
byggð á óútgefinni
smásögu eftir Kazuo
Ishiguro og skartar
þeim Isabellu Rossell-
ini, Mariu de Medeir-
os (Henry & June) og Mark
McKinney (Kids in the Hall).
Myndin gerist á kreppuárum síð-
ustu aldar og fjallar um alþjóðlega
samkeppni um sorglegasta lag
sem heyrst hefur. Hún var frum-
sýnd á Feneyjahátíðinni síðasta
haust og var tekin til sýningar í
Kanada stuttu síðar. McBride seg-
ir þetta mynd eftir ört vaxandi
kvikmyndagerðarmann á hátindi
ferils síns.
Kvikmyndir Vestur-Íslendings
skarpi@mbl.is
Blóðsuguballet Guys:
Dracula: Pages From A
Virgin’s Diary.
fá lofsamlegar umsagnir
Guy Maddin er 47 ára
gamall og er frá
Winnipeg í Kanada.
Gæti Kanada talist
kvikmyndaþjóð án
Guy Maddins?
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 73
Óviðjafnanleg
Vínartónlist
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Í DAG, LAUGARDAGINN 10. JANÚAR KL. 17:00 – UPPSELT
Hljómsveitarstjóri ::: Ernst Kovacic
Einsöngvari ::: Sigrún Pálmadóttir
GÓÐA SKEMMTUN!
HVER kannast ekki við teikni-
myndasögurnar sígildu um hinn
hugprúða blaðamann Tinna, hund-
inn Tobba og Kolbein kaftein kjaft-
fora? Aðdáendur teiknimynda-
sagna fagna um þessar mundir 75
ára afmæli Tinna og félaga, en
hæst rís þó hátíðin í Belgíu, þaðan
sem hann á uppruna sinn, en hinn
belgíski Georges Remi, betur
þekktur sem Hergé, er höfundur
þessarar mögnuðu teiknimynda-
söguhetju.
200 milljón eintök seld
Tvö belgísk dagblöð ætla sér að
gefa út vegleg aukablöð sem til-
einkuð verða blaðamanninum og
þjóðhetjunni Tinna. Eins verður
efnt til ferða á Tinnaslóðir og sýn-
ingar settar upp, bæði í Belgíu, á
Spáni, Hollandi og Bretlandi. Einn-
ig hefur verið slegin sérstök mynt í
tilefni afmælisins sem skartar þeim
Tinna og Tobba.
Tinni kom fyrst fram á sjón-
arsviðið í belgísku dagblaði í janúar
árið 1929, en síðan þá hafa meira en
200 milljón eintök af sögum um
Tinna selst um víða veröld og bæk-
urnar um hann verið þýddar á 55
tungumál. Tinnabækurnar eru ekk-
ert froðusnakk því þar er tekið á
pólitískum málum og hetjan unga
hefur barist við eiturlyfjabaróna og
ferðast til tunglsins svo fátt eitt sé
nefnt. En Tinni hefur einnig þurft
að berjast við gagnrýni sem Hergé
höfundur hans hefur fengið á sig og
má þar helst nefna kynþátta-
fordóma sem þóttu áberandi í bók-
inni þar sem Tinni fór til Afríku.
Beðið eftir bíómynd
En áfram selst Tinni og aðdá-
endur hans bíða eflaust spenntir
eftir því að kvikmyndaleikstjórinn
Steven Spielberg standi við þau orð
sem hann lét falla árið 2002 að hann
ætlaði sér að gera þríleik byggðan
á ævintýrum Tinna.
Tinni á 75 ára afmæli
Nýsleginn
túskildingur
AP
Forsíða fyrstu Tinnabókarinnar:
Tinni í Sovétríkjunum kom út 1929.
Reuters
Tinni við störf í Vindlum Faraós.
Belgískur bankastarfsmaður sýnir hina nýslegnu Tinnamynt.
Fréttir á SMS