Morgunblaðið - 10.01.2004, Page 66
DAGBÓK
66 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag kemur Cielo di
Baffin og út fer Þern-
ey RE.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag fer Rubicone frá
Straumsvík.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Félagsheimilið er opið
alla virka daga frá kl.
9–17.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Þriðjudag-
inn 13. janúar byrjar
glerskurðarvinna.
Miðvikudaginn 14.
janúar kl. 10.30
„Gamlir leikir og
dansar“ undir stjórn
Helgu Þórarinsdóttur.
Upplýsingar á staðn-
um og í síma 575 7720.
Hraunbær 105. Getum
bætt við í línudansinn
á þriðjudögum kl. 15.
Getum bætt við okkur
á keramiknámskeiðið
á mánudögum kl. 9.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
ITC Fífa. Fyrsti fund-
ur á árinu er í kaffi-
stofu Gerðarsafns í
Kópavogi laugardag-
inn 10. janúar kl.
12:00. ITC-félagar
kynna tvær áhuga-
verðar bækur o.fl. á
dagskrá. Léttur há-
degisverður. Allir vel-
komnir.
Skátamiðstöðin. End-
urfundir skáta eru
alltaf annan mánudag
í mánuði. Næsta sam-
verustund verður
mánudaginn 12. jan-
úar kl. 12. Súpa og
brauð í boði gegn
vægu gjaldi. Hrólfur
Jónsson, slökkviliðs-
stjóri Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins,
segir frá starfi og
skipulagi liðsins.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyr-
ir þá sem vilja. Uppl.
á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
GA – samtök spila-
fíkla. Fundarskrá:
Þriðjud.: Kl. 18.15 Sel-
tjarnarneskirkja.
Miðvikud.: Kl. 18
Digranesvegur 12,
Kópavogi og Egils-
staðakirkja, Egils-
stöðum. Fimmtud.: Kl.
20.30 Síðumúla 3–5,
Reykjavík. Föstud.:
Kl. 20 Víðistaðakirkja,
Hafnarfirði. Laugard.:
Kl. 10.30 Kirkja
Óháða safnaðarins,
Reykjavík og Gler-
árkirkja, Akureyri. Kl.
19.15 Seljavegur 2,
Reykjavík. Neyð-
arsími: 698 3888.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis.
Fundir mánudaga kl.
20 á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
OA-samtökin. Átrösk-
un/matarfíkn/ofát.
Fundir alla daga.
Upplýsingar á
www.oa.is og síma
878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga
frá kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti,
Stangarhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Fífan Dalsmára 5 í
Kópavogi. Tart-
anbrautir eru opnar
almennu göngufólki og
gönguhópum frá kl.
10–11.30 alla virka
daga.
Blóðbankabíllinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blod-
bankinn.is.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félags Langholts-
sóknar fást í Lang-
holtskirkju s. 520 1300
og í blómabúðinni
Holtablóminu, Lang-
holtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkj-
unni.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn 555 0104 og
hjá Ernu s. 565 0152
(gíróþjónusta).
Minningarkort ABC-
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu
ABC-hjálparstarfs í
Sóltúni 3, Reykjavík í
s. 561 6117. Minning-
argjafir greiðast með
gíróseðli eða greiðslu-
korti. Allur ágóði fer
til hjálpar nauð-
stöddum börnum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings
málefnum barna fást
afgreidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í s.
561 0545. Gíróþjón-
usta.
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í s.
551 4080. Kortin fást í
flestum apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í s. 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Í dag er laugardagur 10. janúar,
10. dagur ársins 2004.
Orð dagsins: Ef þér elskið mig,
munuð þér halda boðorð mín.
(Jóh. 14, 15.)
Vefþjóðviljinn fjallarum viðleitni bíla-
framleiðenda víðs vegar
um veröld til að þróa og
framleiða sífellt um-
hverfisvænni bifreiðar.
Hann vill meina að sú
viðleitni hafi þegar skil-
að miklum árangri og
dregið úr mengun í
heiminum.
Vefþjóðviljinn fær orð-ið: „Það segir
nokkra sögu að Toyota
Prius var valinn bíll árs-
ins 2004 á alþjóðlegu
bílasýningunni í Detroit
í gær.
Prius er svonefndurblendingur. Hann
gengur fyrir bensíni en
safnar um leið raforku
inn á rafhlöðu sem nýtt
er þegar best hentar til
dæmis við kaldræsingu
og hægan akstur. Þegar
meira afls er þörf tekur
bensínmótorinn við.
Þessi tækni gerir það að
verkum að bíllinn eyðir
aðeins um 5 lítrum á
hundraðið.
Hann hefur notiðóvæntra vinsælda í
Bandaríkjunum þar sem
menn hafa ekki beinlínis
verið frægir fyrir að
velta sparneytni bíla
mikið fyrir sér.
Annar bílaframleið-andi, Daimler-
Chrysler, kynnti stefnu
sína til næstu ára á sýn-
ingunni og af henni að
dæma mega ökumenn
eiga von á ýmsum nýj-
ungum í flestum gerðum
bílvéla á næstu árum.
Mark Chernoby að-stoðarforstjóri fyr-
irtækisins segir að
„DaimlerChrysler muni
ekki einbeita sér að
einni ákveðinni tækni á
næstu árum heldur
muni bæði bensín- og
dísilvélar, rafmagnsmót-
orar, blendingar og
efnarafalar leika hlut-
verk í því að minnka
þau áhrif sem bílar hafi
á umhverfið“.
Þetta er í samræmi viðþað sem bílafram-
leiðendur hafa verið að
gera undanfarna ára-
tugi en orkunýting bíl-
véla og mengunarvarnir
hafa tekið stórstígum
framförum og þá um
leið dregið úr þeim
áhrifum sem bílar hafa
á loftið sem íbúar í stór-
borgum anda að sér.
Hvað sem öllumáhyggjum af um-
hverfinu og spám um
framtíðartækni líður
valdi tímaritið American
Woman Road & Travel
hins vegar Cadillac XLR
sem bíl ársins. Hann er
með 320 hestafla 4,6L
V8 vél og eyðir tvö- til
þrefalt á við Prius.
Blaðið hefur um 15 ára
skeið helgað sig umfjöll-
un um konur á vegum
úti,“ segir Vefþjóðvilj-
inn á andriki.is.
STAKSTEINAR
Tilraunir bifreiða-
framleiðenda með
umhverfisvæna bíla
Hvað mætti
betur fara?
NÚ ætla ég að hnykkja á
því sem betur mætti fara í
okkar annars ágæta þjóð-
félagi.
Nú um hver áramót eyð-
um við hátt upp í einn millj-
arð í svokallaða flugelda.
Viku áður hafa um 200
manns snætt kvöldverð á
aðfangadagskvöld hjá
Hjálpræðishernum. Fá-
tækt virðist vera að aukast
og bilið milli ríkra og fá-
tækra einnig.
Svona þarf ástandið sem
slíkt ekki að vera. Við vitum
flest að flugeldasala er
helsta fjáröflun hjálpar-
sveitanna. Nema hvað að
nóg væri að láta 5–10% af
slíkri sölu renna til þeirra
sem hafa ekki efni á salti í
grautinn fyrir jólin og leyfa
starfsfólki hjálparsveit-
anna þess í stað að snæða
aðfangadagskvöldverðinn
hjá hjálpræðishernum.
Slíkt kæmi út á eitt.
Stöndum saman í að
bæta okkar þjóðfélag.
Ólafur Þórisson.
Góður Víkverji
MIG langar að láta í ljós
ánægju með skrif Víkverja
í dag, þriðjudaginn 6. jan-
úar, en Víkverji er að skrifa
um leikritið Sporvagninn
Girnd eftir Tennessee
Williams í Borgarleikhús-
inu. Ég er fastagestur í
leikhúsinu og sá þetta leik-
rit fyrir nokkrum dögum og
var ég slegin yfir hvenig
farið var með þetta snilld-
arverk því það var gjör-
samlega eyðilagt, en í leik-
ritinu er Stanley gerður að
nýnasista. Finnst mér
sorglegt hvernig þessu
verki er misþyrmt.
Ólöf.
Vil gefa fuglunum
ÉG er eldri kona sem er
vön að gefa fuglunum á vet-
urna. Nú hef ég farið í 3
búðir til að fá fuglakorn en
það var hvergi til. Var mér
sagt í Hagkaup að það væri
hætt að pakka þessu í litlar
pakkningar. Því vil ég
spyrja framleiðendur hvort
ekki sé von á þessu korni í
verslanir?
Eldri kona.
Tapað/fundið
Gullhringur í óskilum
MERKTUR gullhringur
fannst fyrir utan Glæsibæ.
Upplýsingar í síma
692 8159.
Dýrahald
Páfagaukur týndist
HVÍTUR páfagaukur
slapp frá Háaleitisbraut 37
sl. fimmtudag. Þeir sem
hafa orðið varir við hann
hafi samband í síma
568 2384.
Kettlingar
fást gefins
KETTLINGAR, gullfalleg-
ir, tvær læður og tveir
fressar, 8 vikna og kassa-
vanir, fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 898 2659.
Kettlingar
fást gefins
ÁTTA vikna kettlingar fást
gefins.
Tveir högnar og tveir
læður, snjóhvítir, kassa-
vanir. Upplýsingar í síma
587 2161 eða 849 1926.
Kettlingar
fást gefins
2 KETTLINGAR fást gef-
ins, kassavanir. Upplýsing-
ar í síma 661 1920.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 höggs út í loftið, 8 öldu,
9 þoli, 10 grænmeti, 11
veiða, 13 vísa veg, 15
skammt, 18 mælieining,
21 hestur, 22 ósanna, 23
ungbarn, 24 óhemja.
LÓÐRÉTT
2 duglegar, 3 tilbiðja, 4
iðinn, 5 æli, 6 áll, 7
ósoðna, 12 liðin tíð, 14
málmur, 15 svengd, 16
reiki, 17 fell, 18 vaxin, 19
héldu, 20 keyrir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 topps, 4 burst, 7 síðan, 8 teppi, 9 nýt, 11 apar,
13 bali, 14 úrill, 15 barm, 17 Ægir, 20 úti, 22 lýsir, 23
losti, 24 arðan, 25 neiti.
Lóðrétt: 1 tuska, 2 peðra, 3 senn, 4 bætt, 5 rupla, 6 teiti,
10 ýmist, 12 rúm, 13 blæ, 15 bylta, 16 ræsið, 18 gusti, 19
reiki, 20 úrin, 21 ilin.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
Víkverji stendur í breytingum áíbúð og neyðist til að rífa niður
gömlu og lúnu innréttingarnar.
Þessu fylgir óhjákvæmilega hræði-
lega mikil ruslsöfnun, sem er nátt-
úrlega það allra leiðinlegasta við
að standa í slíku strögli. Þar sem
Víkverji er að sjálfsögðu umhverf-
isvænn þá er allt ruslið keyrt sam-
viskusamlega á næstu af-
greiðslustöð Sorpu. Fín þjónusta
þar á bæ. Afgreiðslustöðvar marg-
ar og afgreiðslutími þægilega rúm-
ur. En það sem skynsemissinnaður
Víkverji á bágt með að skilja er
hvers vegna verið er að rukka fyr-
irmyndarskattgreiðendur fyrir
það að sýna í verki slíka hollustu
við umhverfi sitt. Það er nefnilega
deginum ljósara að ef eitthvað virk-
ar letjandi á almennan borgara, er
hann veltir fyrir sér hvort hann eigi
að drífa ruslið sitt í Sorpu eða bara
losa sig við það í næstu sorptunnu
eða hreinlega á víðavangi, þá er það
sú staðreynd að hann þarf að borga
fyrir það að breyta rétt.
Reyndar þarf ekkert að greiða
fyrir losun „venjulegs heimilis-
úrgangs“ en einstaklingar þurfa oft
að losa sig við annað og meira en það
sem fellur undir þá skilgreiningu.
Nú segir einhver við sjálfan sig:Auðvitað fara allir með ruslið
sitt í Sorpu. Hver gæti mögulega
verið svo forhertur og tillitslaus nú
til dags að kasta ruslinu annað?
Staðreyndin er bara sú að það er
alltaf að gerast. Ef það lendir ekki á
sorphirðum í þjónustu bæjarfélag-
anna eða úti í fjöru eða móa þá bara í
næsta gám sem tiltækur er, sama
hver á hann.
Víkverji þekkir einmitt dæmi um
það síðastnefnda. Kunningi sem var
að innrétta verslun við
Laugaveginn fyrir nokkr-
um árum leigði sér lítinn
ruslagám og fékk að planta
honum í nágrenni versl-
unarinnar. Hann var varla
byrjaður að nota gáminn
sjálfur þegar hann var orð-
inn fullur af drasli eftir
aðra og okkar maður þurfti
því að byrja á því að losa
gáminn og punga út
formúu fyrir annarra
manna trassaskap. Vafa-
laust eru til mýmörg við-
líka tilfelli en þetta er tví-
mælalaust ein af
afleiðingum þess að verið
sé að féfletta fólk fyrir það
eitt að vera umhverfisvænt. Auðvit-
að er eðlilegt að fyrirtæki greiði eitt-
hvað fyrir stórfellda úrgangslosun
en öðru máli á að gegna um ein-
staklinga því það þarf að beita öllum
mögulegum ráðum til að fá þá til að
losa sig við ruslið sitt í Sorpu fremur
en á öðrum óæskilegum stöðum.
M.a. með því að hætta að heimta
gjald fyrir þessa sjálfsögðu þjónustu
við skattgreiðendur. Það er um-
hverfisvæn stefna og hlýtur að vera
sú hagkvæmasta á endanum.
Morgunblaðið/Þorkell
Hvað skyldi hún Siv nú hafa þurft að borga fyrir
að losa sig við þetta skilti í Sorpu-gáminn?