Morgunblaðið - 10.01.2004, Side 70
ÍÞRÓTTIR
70 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Ísland - Sviss 25:32
Varmá í Mosfellsbæ, vináttulandsleikur,
föstudagur 9. janúar 2004.
Gangur leiksins: 1:0, 1:3, 3:4, 4:5, 4:8, 7:9,
9:10, 9:14, 11:16, 11:20, 12:20, 14:22, 16:23,
18:24, 20:27. 24:28, 24:21, 25:32.
Mörk Íslands: Jaliesky Garcia 5, Ólafur
Stefánsson 5/2, Gylfi Gylfason 4, Róbert
Sighvatsson 3, Guðjón Valur Sigurðsson 2,
Sigfús Sigurðsson 2, Rúnar Sigtryggsson 2,
Ragnar Óskarsson 1, Snorri Steinn Guð-
jónsson 1. Einnig léku; Einar Örn Jónsson,
Heiðmar Felixson, Ásgeir Örn Hallgríms-
son og Logi Geirsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 9/1
(þaraf 2 til mótherja). Reynir Þór Reyn-
isson 12 (þaraf 4 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Sviss: Robert Kostadinovich 11/3,
Thomas Gautschi 5, Carlos Lima 4, Thomas
Furer 4, Ivan Ursic 4, Marco Kurth 3,
Pascal Stauber 1.
Varin skot: Antoine Ebinger 25/1 (þaraf 7
til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur, þaraf fékk Martin
Stettler rautt spjald við þriðju brottvísun á
50. mínútu.
Dómarar: Antonio Goulao og José Macau
frá Portúgal.
Áhorfendur: 700.
Sex þjóða mót í Rússlandi
A-RIÐILL:
Þýskaland - Frakkland .........................21:29
Frakkland 4 stig, Þýskaland 0, Egyptal. 0.
Fjögurra þjóða mót á Spáni
Ungverjaland - Úkraína .......................28:29
Spánn - Pólland .....................................31:30
Undankeppni HM karla
5. riðill:
Austurríki - Ítalía ..................................24:23
6. riðill:
Finnland - Belgía...................................25:24
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Stjarnan - ÍG........................................109:69
Ármann/Þróttur - Selfoss.....................81:57
Þór A. - Skallagrímur............................80:86
Staðan:
Skallagrímur 11 10 1 1025:868 20
Fjölnir 10 8 2 889:750 16
Valur 10 8 2 867:821 16
Stjarnan 11 6 5 903:858 12
Ármann/Þróttur 11 6 5 907:828 12
ÍS 10 5 5 807:820 10
Þór A. 11 4 7 919:978 8
ÍG 11 3 8 883:997 6
Selfoss 11 2 9 883:1014 4
Höttur 10 1 9 706:855 2
NBA-deild
Leikir í fyrrinótt:
Houston - New York ...........................111:79
Minnesota - Portland ............................96:75
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmótið
Leiknir - Þróttur.......................................1:1
Kjartan Örn Þórðarson - Hjálmar Þórar-
insson.
ÍR - Valur...................................................0:2
Baldur Aðalsteinsson, Sigurbjörn Hreið-
arsson (vsp.)
England
1. deild:
WBA - Walsall ...........................................2:0
Jason Koumas 62., Horsfield 72.
Staða efstu liða:
Norwich 26 15 7 4 41:21 52
WBA 27 14 8 5 38:22 50
Sheff. Utd 25 13 6 6 39:27 45
Sunderland 26 12 8 6 34:22 44
Ipswich 26 12 6 8 46:38 42
Wigan 26 11 9 6 35:28 42
West Ham 26 10 11 5 36:23 41
Preston 26 11 7 8 39:30 40
Reading 26 11 5 10 30:33 38
Frakkland
Mónakó - Lyon ..........................................3:0
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Landsleikur karla:
Laugardalshöll: Ísland - Sviss..............16.30
1. deild kvenna, RE/MAX-deildin:
Laugardalsh.: Valur - Víkingur ................14
KA-heimili: KA/Þór - FH ..........................16
Sunnudagur:
Landsleikur karla:
Laugardalshöll: Ísland - Sviss..............19.30
1. deild kvenna:
Ásvellir: Haukar - Stjarnan.......................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Stjörnuleikur KKÍ verður háður í Selja-
skóla kl. 16.
1. deild karla:
Grafarvogur: Fjölnir - ÍS...........................18
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, 8-liða úr-
slit kvenna:
Akureyri: Þór - Keflavík.......................13.30
Sunnudagur:
1. deild kvenna:
Grindavík: UMFG - UMFN.................17.15
UM HELGINA
ÞAÐ er ekki rétt að ég og Íþróttafélag stúdenta hafi svikið heið-
ursmannasamkomulag við kvennalið Keflavíkur í körfuknattleik.
Vissulega stakk ég upp á því við Hrannar Hólm, formann Kefla-
víkur, að liðin myndu ekki fá sér útlending á leiktíðinni. Það gerði
ég 11. desember en við fengum engin svör á næstu dögum eins og
við bjuggumst við og töldum að ekkert yrði úr þessu. Hinn 20. des-
ember hitti ég Hrannar á ný fyrir tilviljun. Þar tjáði Hrannar mér
að þeir væru tilbúnir að ganga að samkomulaginu. Ég svaraði því
að svarið kæmi of seint og sagði að við ætluðum að verja hags-
muni okkar með því að fá Meadow Overstreet til liðs við okkur í
einn leik. Og á sama tíma vissum við ekki hvað Keflavíkurliðið
hefði í hyggju,“ segir Ívar Ásgrímsson, þjálfari 1. deildarliðs ÍS.
Ívar er ósáttur við orð Hrannars Hólm í Morgunblaðinu í gær
þar sem hann er sagður hafa rofið munnlegt samkomulag við
Keflavík. „Það var aldrei gert neitt samkomulag, ég ræddi við
Hrannar, fékk jákvæð viðbrögð en engin svör. Þannig að ekkert
samkomulag var gert. Að auki finnst mér það ekki skipta máli
hvort ég sé landsliðsþjálfari kvenna eður ei,“ sagði Ívar.
„ÍS gerði ekkert sam-
komulag við Keflavík“
SIGURÐUR Bjarnason, þjálfari og leikmaður
Stjörnunnar, var einn þeirra manna sem
þýska handknattleiksliðið hafði undir smá-
sjánni þegar það leitaði að nýjum þjálfara fyr-
ir liðið. Með Wetzlar leika tveir Íslendingar,
Gunnar Berg Viktorsson og Róbert Sig-
hvatsson, en Sigurður lék með liðinu um ára-
bil, allt þar til sl. vor. Sigurður gat sér gott
orð hjá félaginu og því var hann einn þeirra
sem voru á óskalista forráðamanna Wetzlar
þegar þeir leituðu að eftirmanni Velimir
Petkovic, sem hættir hjá félaginu í sumar og
tekur við þjálfun Göppingen. Svo fór hins veg-
ar í gær að Holger Schneider, þjálfari Post
Schwerin, var ráðinn til Wetzlar frá og með 1.
júlí nk.
Sigurður var
undir smásjánni
hjá Wetzlar
Blábyrjunin var svo sem nógugóð, mark strax eftir 15 sek-
úndur eftir laglega sókn, Sigfús Sig-
urðsson af línunni
eftir laglega fléttu.
En síðan voru sögu-
lok hjá íslenska lið-
inu, það hafði ekki
fleiri svör á reiðum höndum. Sviss-
neska liðið tók öll völd á vellinum í
sínar hendur og hafi einhver haldið
að það væri auðveld bráð, þá fékk sá
hinn sami að kynnast því að það var
hrapallegur misskilningur. Varnar-
leikur íslenska liðsins var slakur,
hjarta varnarinnar var opið, menn
hægir í stöðum sínum sem gerði að
verkum að leikmenn svissneska liðs-
ins fengu mikið rými til að athafna
sig. Allt „flot“ vantaði í sóknarleik-
inn, þ.e. boltinn gekk illa á milli
manna og fyrsta tækifæri sem gafst
á markskoti var nýtt, sóknarleikur-
inn var að mörgu leyti fyrirséður og
staður. Lykilmenn í sókninni eins og
Patrekur Jóhannesson og Ólafur
Stefánsson virtust miður sín og ekki
með á nótunum. Jaliesky Garcia, var
aldrei nein ógn, vörn Sviss hafði öll
tromp á hendi gegn honum og þá
ekki síður markvörðurinn sem átti
frábæran leik, Antoine Ebinger,
hann las skot Garcia sem opna bók
og líkt var á komið með skot Patreks
og Ólafs. Svissnesku varnarmenn-
irnir„klipptu“ Guðjón Val Sigurðs-
son út í vinstra horninu og Einar
Örn Jónsson var ekki nema skugg-
inn af sjálfum sér í hægra horninu
enda fékk hann t.d. engan stuðning
frá Ólafi.
Svissneska liðið var einu til fimm
mörkum yfir allan fyrri hálfleikinn
og ljóst að ef Guðmundur Hrafn-
kelsson hefði ekki varið nokkur skot
undir lok hálfleiksins hefði munur-
inn verið meiri en fimm mörk í hálf-
leik, 16:11.
Hafi íslenska landsliðið leikið illa í
fyrri hálfleik var upphaf síðari hálf-
leiks enn þá verra. Hver endaleysan
rak aðra í sókn íslenska liðsins og
svissneska liðið þakkaði pent fyrir
sig og náði níu marka forskoti, 20:11.
Nokkrar breytingar á íslenska liðinu
skiluðu ekki tilætluðum árangri og
það var ekki fyrr en eftir um tíu
mínútna leik í síðari hálfleik þegar
íslenska liðið breytti varnarleik sín-
um úr 6/0 í 5 +1 að Eyjólfur hresst-
ist. Um leið fékk íslenska liðið
hraðaupphlaup sem aldrei þessu
vant tókst að nýta, ekki síst fyrir
góða nýtingu Gylfa Gylfasonar. Á tíu
mínútna kafla í hálfleiknum var sem
íslenska liðið rumskaði þar sem það
„svaf“ yfir prófinu. Því tókst að
minnka muninn í nokkur skipti nið-
ur í fjögur mörk og átti góða mögu-
leika á að minnka forskot Sviss nið-
ur í þrjú mörk, en allt kom fyrir.
Aftur sótti í sama farið, far einbeit-
ingarleysis og fljótfærni. Þá var ekki
að sökum að spyrja og munurinn
jókst á nýjan leik, engu breytti þótt
Reynir Þór Reynisson sýndi ágæta
frammistöðu í markinu eftir að hafa
verið daufur framan af með hripleka
vörn fyrir framan sig.
Svissneska liðið er skemmtilegt,
að flestu leyti skemmtilegra en það
hefur verið undanfarin ár þótt heil-
inn á bak við leik þess sé sem fyrr
hinn þrautreyndi Robert Kostadino-
vic. Línu- og hornamenn liðsins eru
góðir og þá hefur það á að skipa at-
hyglisverðum skyttum, einkum
Thomas Gautschi, sem lék í treyju
númer 18 í gær. Síðastan en ekki
sístan ber að nefna markvörðinn
Ebinger. Hann reyndist áhuga-
minnstu leikmönnum íslenska liðs-
ins einkar óþægur ljár í þúfu og
varði alls 25 skot, þar af 17 í fyrri
hálfleik.
Fyrr í þessum pistli hefur verið
greint frá frammistöðu nokkurra
leikmanna íslenska liðsins sem voru
fjarri sínu besta að þessu sinni.
Ljósu punktarnir voru fáir en þó
rétt að nefna þá, Gylfi sýndi að hann
á fullt erindi með landsliðinu til
Slóveníu. Róbert Sighvatsson var
ágætur og þá áttu Ragnar Óskars-
son og Snorri Guðjónsson lipurlega
spretti, en tókst ekki með þeim að
vekja risana í íslenska liðinu. Þá er
rétt að nefna markverðina, Guð-
mund og Reyni, sem skiptu leiknum
á milli sín. Þrátt fyrri að ekki færi
mikið fyrir þeim þá vörðu þeir sam-
tals 21 skot og ef frammistaða
þeirra væri stærsta vandamál Guð-
mundar Guðmundssonar eftir þenn-
an leik þá gæti hann sofið vært fram
að fyrsta leik á Evrópumeistara-
mótinu.
Fall á fyrsta
skyndiprófi
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik féll í gærkvöldi algjörlega á
fyrsta skyndiprófinu sem það gekkst undir áður en kemur að alvöru
prófunum þegar Evrópumótið hefst í Slóveníu eftir tæpar tvær vik-
ur. Þunglamalegt, baráttulítið og einbeitingarlaust íslenskt landslið
lét óvenju léttleikandi svissneskt landslið taka sig í karphúsið að
Varmá, lokatölur, 32:25, eftir að staðan var 16:11, Sviss í vil í hálf-
leik. Sé tekið mið af þessum leik er ærið verkefni fyrir höndum hjá
íslenska landsliðinu áður en það stígur fram á sviðið í Celje í Slóv-
eníu 22. janúar nk.
Ívar
Benediktsson
skrifar
()!#*+$
,!)-./+$
(0(-1123(-1
+)
4)(
4$5
.&
/ 6
7
'
8
&
9
%
&
%
:
;
7
'
.&
/ 6
"
/8
8:
':
;&
77
2
2
33#
!
!
./
8:
;9
;;
;<
#3()= >5##
ÚRSLIT
Reynir Þór taldi Sviss standasig ágætlega en Ísland ekki.
„Við vorum ekki með neinar upp-
lýsingar um sviss-
neska liðið og
renndum blint í
sjóinn. Þeir komu
okkur samt ekki á
óvart, það sem kom mér mest á
óvart var okkar eigin frammistaða,
hvernig við mættum í leikinn og
stóðum okkur, þar gerðum við
ekki vel og þurfum nú rækilega að
hysja upp um okkur buxurnar og
koma grimmir í næsta leik,“ bætti
markvörðurinn við en sá samt ljós-
an punkt. „Svona flenging er ekki
góð en gæti orðið til góðs og sann-
arlega betra að vera flengdur
hérna en í Svíþjóð.“
Óðagotið
óþarflega mikið
„Óðagotið var óþarflega mikið
og staða okkar versnaði sífellt, oft-
ast eftir auðveld hraðaupphlaup
Sviss,“ sagði Guðjón Valur Sig-
urðsson, sem átti ágæta spretti en
fór illa með tvö hraðaupphlaup.
„Við getum sagt að við höfum
sjálfir slegið okkur útaf laginu í
byrjun. Við tókum áhættuna of
fljótt sem færði Sviss mörk eftir
hraðahlaup á meðan við skorum
ekki úr okkar. Það var allt lélegt í
þessum leik. Það kom fyrir að
vörnin virtist vera að ganga en
þegar það var að koma leikleysa á
Svisslendinga fáum við á okkur
klaufamark. Við töpum þessum
leik eftir hörmulegan sóknarleik í
fyrri hálfleik og fáum í kjölfarið á
okkur hraðaupphlaup svo að við
lendum of mikið undir,“ bætti
Guðjón Valur við og taldi þetta af
þessum dögum. „Ég held að við
höfum samt ekki verið of þungir
og þreyttir, ef það er ástæðan,
hvernig verða þá næstu leikir? Við
höfum æft vel en það koma svona
leikir hjá öllum liðum. Skellurinn
var sannarlega slæmur en lið sýnir
úr hverju það er gert eftir svona
skelli og það ætlum við að gera.“
Vantaði allan ferskleika
„ÞETTA var skelfilega slæmt, menn voru þungir og það vantaði all-
an ferskleika í mannskapinn,“ sagði Reynir Þór Reynisson sem stóð
vaktina í íslenska markinu eftir hlé. „Margir eru að koma úr mis-
munandi umhverfi og ég veit ekki hvernig bakgrunnurinn er þar,
hvort það sé ástæðan fyrir þreytu, en við verðum að setjast niður og
fara yfir þetta. Það voru einhverjar áherslubreytingar í sókn og vörn
ásamt einhverjum breytingum á kerfum en ekki neinar sérstaklega
miklar.“
Stefán
Stefánsson
skrifar