Morgunblaðið - 10.01.2004, Blaðsíða 71
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 71
„ÞAÐ er alvarlegt mál ef Dagur
Sigurðsson getur ekki leikið með ís-
lenska landsliðinu á Evrópumótinu
í handknattleik,“ sagði Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, er hann
var spurður hvað það þýddi færi
svo að Dagur gæti ekki tekið þátt í
EM, en hann meiddist illa í lær-
vöðva á æfingu landsliðsins í vik-
unni.
„Dagur er landsliðinu afar mik-
ilvægur á margan hátt. Hann var í
góðu líkamlegu formi þegar hann
meiddist, hafði leikið á æfingum.
En svona er þetta á hópíþróttunum,
það er alltaf sú hætta fyrir hendi að
menn meiðist og þá fá aðrir leik-
menn tækifæri og aukna ábyrgð, en
ég vona svo sannarlega að Dagur
jafni sig í tíma og geti verið með
okkur á EM í Slóveníu,“ sagði Guð-
mundur. Dagur hefur verið fyrirliði
íslenska landsliðsins undanfarin ár.
Elís Þór Rafnsson, sjúkraþjálfari
íslenska landsliðsins, sagðist ekkert
vilja mála skrattann á vegginn
varðandi meiðsli Dags. Alltof
snemmt væri að útiloka þátttöku
hans á EM, með réttri meðhöndlun
væri ýmislegt hægt að gera á stutt-
um tíma. Elís sagðist vona að Dag-
ur yrði orðinn góður áður en slag-
urinn hefst í Slóveníu 22. janúar
þegar flautað verður til leiks
heimamanna og Íslendinga í Celje.
Alvarlegt mál ef Dagur
verður ekki með á EM
Morgunblaðið/Þorkell
Róbert Sighvatsson, línumaður íslenska landsliðsins, brýst í gegnum svissnesku vörnina í Mos-
fellsbæ í gær þar sem íslenska liðið sá aldrei til sólar í fyrstu rimmu liðanna af þremur.
ÞJÁLFARI Svisslendinga, Arno
Ehret, var afar ánægður í leikslok
en jafnframt undrandi. „Ég er mjög
hissa á að vinna, ekki síst með svona
miklum mun, það er frábær árangur
með þetta lið sem er ungt og Íslend-
ingar hafa yfirleitt staðið okkur mun
framar svo að við getum verið virki-
lega stoltir,“ sagði þjálfarinn eftir
leikinn en taldi íslenska liðið ekki
hafa sýnt sínar bestu hliðar. „Mér
sýndist íslensku leikmennirnir vera
þreyttir og ég veit að þeir geta
miklu betur en í kvöld. Úrslitin voru
góð fyrir okkur en við vitum að ís-
lenska liðið verður ekki svona á EM.
Við reyndum að prófa nýja hluti í
leik okkar og sjá hvað gengur upp.
Við kortlögðum íslensku skytturnar
ekki neitt, heldur stóð markvörður
okkar sig mjög vel,“ sagði Ehret.
Hissa á að
vinna – sér-
staklega
svona stórt
Í sókninni fékk boltinn ekkert aðganga, ítrekað voru tekin skot eft-
ir mjög stuttar sóknir, annaðhvort
voru þessi skot varin
af vörninni eða
markverði Sviss.
Þetta leiddi til þess
að Svisslendingar
fengu mörg hraðaupphlaup sem þeir
skoruðu úr. Þetta vandamál var fyrir
hendi nærri því allan leikinn og er
með öllu óviðunandi. Síðan fórum við
hrikalega með mörg dauðafæri, ég
held að minnsta kosti fimmtán
dauðafæri hafi farið í súginn. Sú
staðreynd er alveg skelfileg, við
sköpuðum okkur opin færi en náðum
ekki að nýta þau, skotin voru hrylli-
lega léleg og svona mætti lengi
telja,“ sagði Guðmundur sem ætlaði
að fara ítarlega yfir leikinn sl. nótt
og halda fund með leikmönnum sín-
um árdegis í dag þar sem leikurinn
verður krufinn til mergjar áður en
þjóðirnar eigast við að nýju í Laug-
ardalshöll kl. 16.30 í dag.
„Skotin voru léleg, að minnsta
kosti skoruðum við ekki. Þessi atriði
sem ég hef farið yfir verða að vera í
lagi í næsta leik.
Þá virkaði liðið mjög þungt, en það
er atriði sem hægt er laga, en öll þau
fjölmörgu mistök og það hugarfar
sem menn fóru með í leikinn er óvið-
unandi.
Okkar svar við þessum leik er að
láta verkin tala, taka okkur saman í
andlitinu í næsta leik,“ sagði Guð-
mundur og bætti því við að smá já-
kvæð „glæta“ hefði sést þegar leið á
síðari hálfleikinn, en hún hafi ekki
logað lengi. „Þá breyttum við vörn-
inni í fimm plús einn og í sókninni
gekk boltinn betur, um leið tókst
okkur að minnka muninn þegar í
óefni var komið, en síðan datt botn-
inn úr aftur undir lokin.
Þegar upp var staðið var sviss-
neska liðið betra en við á flestum
sviðum og vann sanngjarnan sigur.
Þessi úrslit og leikur segir okkur það
að við verðum að halda vöku okkar,
þótt við höfum unnið Sviss með ell-
efu marka mun fyrir tveimur árum
þá er bara allt önnur staða uppi á
borðinu núna. Árangur okkar og
frammistaða fyrir tveimur árum
hjálpar okkur ekkert inni á vellinum
í dag.“
Skynjaðir þú fyrir leikinn hvað í
vændum var, að menn væru ekki ein-
beittir?
„Ég skynjaði það ekki og kom mér
á óvart þegar á hólminn var komið.
Það má ekki mæta með þessu hug-
arfari til næsta leiks, það er á
hreinu.“
Guðmundur sagði vörnina hafa
verið slaka, sérstaklega hafi hún
ekki verið nægilega þétt inni á mið-
svæðinu, ekki aðeins eftir að Sigfús
Sigurðsson fór af leikvelli eftir um
stundarfjórðung. „Þetta var vanda-
mál allan leikinn, Svisslendingum
tókst að „slíta“ vörnina okkar í sund-
ur, þá voru leikmenn ekki nógu
grimmir, við unnum fá fráköst. Þeg-
ar þessar staðreyndir liggja á borð-
inu þá verð ég að velta því fyrir mér
með hvaða hugarfari menn koma til
leiks og leikmenn sjálfir verða að líta
í eigin barm.
Af þessu verðum við að læra.
Frammistaðan að þessu sinni er sem
köld vatnsgusa framan í okkur sem
við verðum að draga lærdóm af og ég
veit að við munum gera það,“ sagði
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari Íslands í hand-
knattleik, og var afar vonsvikinn
með leik sinna manna í heild.
Eins og köld vatns-
gusa framan í okkur
„FRÁ fyrstu mínútu fannst mér
mínir menn bara alls ekki vera
tilbúnir í slaginn sem lýsti sér í
því að hvorki gekk né rak í vörn-
inni eða sókninni. Þessi frammi-
staða var sem köld vatnsgusa
framan í okkur,“ sagði Guð-
mundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari Íslands í hand-
knattleik, eftir að hans menn
voru teknir í algjöra kennslu-
stund af svissneska landsliðinu,
32:25, í fyrsta vináttuleik þjóð-
anna af þremur nú um helgina,
en leikurinn fór fram að Varmá í
Mosfellsbæ.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Morgunblaðið/Þorkell
Lok, lok og læs og allt í stáli! Antoine Ebinger, markvörður
Sviss, varði í gær 25 skot í leiknum gegn Íslendingum og hér
reynir Einar Örn Jónsson að koma knettinum framhjá honum.
BIRKIR Ívar Guðmundsson og
Björgvin Gústafsson, markverðir, og
útileikmennirnir Gunnar Berg Vikt-
orsson, Bjarni Fritzson, Róbert
Gunnarsson og Dagur Sigurðsson,
sem er meiddur, hvíldu í leiknum
gegn Svisslendingum í gærkvöldi.
RAGNHEIÐUR Ríkharðsdóttir,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Davíð
Björn Sigurðsson, „faðir handknatt-
leiks í Mosfellsbæ“ og liðsstjóri ís-
lenska landsliðsins í handknattleik í
hátt í tvo áratugi, voru heiðursgestir á
landsleiknum að Varmá í gærkvöldi,
en þetta var í fyrsta sinn sem lands-
leikur í handknattleik er leikinn í
bænum. Davíð fékk viðurkenningu
fyrir ómetanlegt starf fyrir landsliðið
og HSÍ fyrir leikinn og afhenti Dagur
Sigurðsson, fyrirliði, Davíð viður-
kenninguna.
DANIEL Stephan úr Lemgo hefur
verið skipaður fyrirliði þýska lands-
liðsins í handknattleik. Stephan tekur
við fyrirliðabandinu af félaga sínum í
Lemgo-liðinu, Markusi Baur.
ENSKA knattspyrnusambandið
hefur ákveðið að kæra markvörð Ars-
enal, Jens Lehmann og framherjann
Kevin Phillips frá Southampton fyrir
óíþróttamannslega hegðun í leik lið-
anna þann 29. desember s.l. Þar kast-
aði þýski markvörðurinn knettinum í
bak Phillips eftir að leiknum hafði
lokið, en Phillips er kærður fyrir að
hafa stigið vísvitandi á rist Lehmann í
fyrri hálfleik leiksins sem fram fór á
St Marys heimavelli Southampton.
Leikmennirnir hafa frest til 23. jan-
úar til þess að svara fyrir fyrir sig.
ARSENE Wenger knattspyrnu-
stjóri Arsenal vonast til þess að fram-
herjinn Nwankwo Kanu fái leyfi frá
knattspyrnusambandi Nígeríu til að
mæta seinna til leiks í Afríkukeppn-
ina en aðrir leikmenn liðsins.
KANU ætlaði að fara til móts við
landsliðið að loknum leik Arsenal
gegn Middlesbrough á laugardag en
Wenger er í nokkrum vandræðum
með framherja liðsins þar sem Sylv-
ain Wiltord og Dennis Bergkamp eru
meiddir. Wenger segir að Kanu muni
ræða sín mál við sína menn og vonist
til þess að geta leikið gegn Aston
Villa þann 18. janúar en fyrsti lands-
leikur Nígeríu á mótinu verður gegn
Túnis þann 24. janúar.
FRODE Grodås fyrrum landsliðs-
markvörður Norðmanna í knatt-
spyrnu segir að hann hafi áhuga á því
að koma á laggirnar viðburðum þar
sem gömlum landsliðsmönnum yrði
hóað saman í kappleik. Grodås sem er
39 ára gamall og hefur leikið yfir 50
landsleiki segir að Danir hafi nú þeg-
ar slíkt lið eldri leikmanna og nú sé
sett stefnan á að mæta þeim dönsku í
Stjernehallen í Fredrikstad. Í danska
landsliðinu fer Michael Laudrup
fremstur í flokki.
MARTIN Andresen fyrirliði norska
knattspyrnuliðsins Stabæk er á leið
til enska úrvalsdeildarliðsins Black-
burn þar sem hann verður til reynslu.
FÓLKLÍNUMAÐURINN tröllvaxniSigfús Sigurðsson náði aðeinsað spila í rúmar tíu mínútur
gegn Sviss í gærkvöldi. Þá
rann hann til á gólfinu og fékk
tak í bakið svo að gömul meiðsl
tóku sig upp og Sigfús varð að
fara af velli. Að sögn lækna ís-
lenska liðsins er óvíst hve
meiðslin eru alvarleg. Lands-
liðið má illa við að missa Sigfús
úr vörninni þar sem hann leik-
ur stórt hlutverk og hans verð-
ur einnig saknað úr sókninni
en Róbert Sighvatsson, sem
kom inná, stóð sig vel.
Bakið brást
Sigfúsi
RAGNAR Óskarsson kom inn á
í síðari hálfleik gegn Sviss í
Mosfellsbænum í gærkvöldi en
tíu mínútum fyrir leikslok lenti
hann í harkalega samstuði við
Reyni Þór Reynisson mark-
vörð. Ragnar var á spretti eftir
svissneskum leikmanni í hraða-
upphlaupi en Reynir Þór geyst-
ist út úr markinu, langt út á
völl, til að stöðva hraðaupp-
hlaupið. Báðir lágu eftir, Ragn-
ar rotaðist og varð að hætta
leik en markvörðurinn fékk
glóðarauga og plástur.
Ragnar
rotaðist og
Reynir fékk
plástur