Morgunblaðið - 18.01.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 17. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Nýr liðsmaður
í 70 mínútur
Gott að fá nýjar hugmyndir í þátt
sem sífellt tekur breytingum Fólk
Tímarit Morgunblaðsins | Táknmál tónskálds Strákar með lystar-
stol Litadýrðin lifir veturinn af Menningarpottur í miðborginni
Atvinna | Launahlutfall Iðn- og tæknimenntun Draumastarfið
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
Tímaritið og Atvinna í dag
SÝNING Ólafs Elíassonar Frostvirkni var
opnuð í Hafnarhúsinu í gær.
Í viðtali í Tímariti Morgunblaðsins í dag
segir Ólafur list vera
virkt afl við mótun sam-
félagsins og „þróast með
sama hætti og vísindi;
hún tekst á við þau
vandamál og hugtök sem
eru efst á baugi og mik-
ilvægust hverju sinni.“
Hann segir hægt að „líta
svo á að list, sem verkn-
aður eða athöfn, sé ekki
knúin áfram af orðum
eða tjáningu tengdri tungumáli, heldur sé
hún lifandi vettvangur fyrir rýmis- eða
hreyfikönnun.“
Í umsögn í blaðinu í dag segir Ragna Sig-
urðardóttir m.a.: „Verk Ólafs hafa lag á því
að kalla fram margvíslegar vangaveltur og
vekja fólk til umhugsunar um leið og þau
eru hrein sjónræn upplifun og skemmtun.“
Niðurlagsorð Rögnu eru: „Það er ljóst að
ekki aðeins verður þessi sýning til þess að
opna augu margra hér á landi fyrir mögu-
leikum myndlistarinnar í dag heldur verður
hún án efa til þess að hjálpa íslenskum lista-
mönnum á einhvern hátt við að koma sér á
framfæri. Ólafur er Björk íslenskra mynd-
listarmanna.“
Sýnt fram á
möguleika
myndlistar
Ólafur Elíasson
Tímarit Morgunblaðsins
Stendur undir væntingum/36
ATVINNULAUSIR Írakar bíða í röð fyrir
framan atvinnuleysisskrifstofu í Samawa í Suð-
ur-Írak í gær. Aðsúgur var gerður að starfs-
fólki skrifstofunnar fyrr í vikunni en margir
eru óánægðir með að ekki skuli hafa verið stað-
ið við loforð um að tryggja fólki atvinnu.
Reuters
Ósáttir við atvinnuleysið í Írak
YFIRMENN sænska þjóðminjasafns-
ins sáu sig tilneydda að reka sendi-
herra Ísraels í Svíþjóð, Zvi Mazel, á
dyr sl. föstudag eftir að hann hafði
eyðilagt listaverk í safninu.
Mazel hafði verið boðið að vera
viðstaddur opnun sýningar er tengist
ráðstefnu um þjóðarmorð sem halda
á í Stokkhólmi. Í anddyrinu gat hins
vegar að líta innsetningu; brunn full-
an af rauðleitu vatni sem ætlað var
að tákna blóð. Á vatninu flaut lítill
bátur með ljósmynd af Hanadi Jara-
dat, palestínskri konu sem sprengdi
sig í loft upp í Haifa í október og drap
um leið 21 Ísraela. Er haft eftir safn-
stjóranum, Kristian Berg, að Mazel
hafi orðið algerlega brjálaður þegar
hann sá verkið. „Hann reif ljóskast-
ara úr sambandi og henti einum
þeirra á brunninn sem olli skamm-
hlaupi í innsetningunni og ógnaði lífi
nærstaddra,“ sagði Berg.
„Fyrir mér var þetta óbærileg sýn
og móðgun við ættingja fórnarlamb-
anna í Haifa. Sem sendiherra Ísraels
gat ég ekki látið sem ég sæi ekki svo
grófa mistúlkun á veruleikanum,“
sagði Mazel sendiherra hins vegar.
Sendiherra
Ísraels
vísað á dyr
Skemmdi listaverk í
sænska þjóðminja-
safninu í Stokkhólmi
Stokkhólmi. AFP.
BANDARÍKJAMENN hyggjast
fara fram á það við Kofi Annan,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, að hann sendi starfslið
SÞ aftur til Íraks í því skyni að
hafa yfirumsjón með valdaframsali
í hendur heimamanna sem á að
fara fram í sumar. Vonast þeir til
að þátttaka SÞ verði til þess að
Ajatollah Ali al-Sistani, trúarleið-
togi sjíta í Írak, dragi til baka kröf-
ur um að haldnar verði beinar
kosningar í landinu hið fyrsta.
Paul Bremer, landstjóri í Írak,
fundaði með embættismönnum í
Washington í gær og fyrradag og
hittir Annan á morgun, mánudag.
„Við myndum vilja að SÞ kæmi að
öllum hliðum mála, öllu hinu póli-
tíska ferli,“ sagði Bremer við
fréttamenn í fyrrakvöld.
Ekki er hins
vegar talið
öruggt að Ann-
an samþykki
þessar hug-
myndir. SÞ
drógu allt
starfslið sitt frá
Írak eftir árás-
ina á höfuð-
stöðvar samtak-
anna í Bagdad í ágúst sem kostaði
á þriðja tug manna lífið. Hefur
Annan sagt að ekki komi til greina
að SÞ hefji aftur starfsemi í Írak
nema ástand öryggismála hafi
skánað og SÞ fái veigamikið hlut-
verk við stjórn mála.
Bandaríkjamönnum er mjög
umhugað um að ná samkomulagi
við Sistani erkiklerk og Bremer
segir að hann sé reiðubúinn til að
skoða breytingar á áætlunum um
valdaframsal í hendur Írökum.
Bandaríkjamenn hafa stefnt að því
að framselja völdin í hendur bráða-
birgðastjórn, sem skipuð yrði Írök-
um handgengnum þeim, 1. júlí nk.
en Sistani krefst þess að fram fari
kosningar þannig að Írakar geti
valið eigin fulltrúa í stjórn. Banda-
ríkjamenn telja óraunhæft að
halda kosningar með svo skömm-
um fyrirvara. Olli það áhyggjum
þeirra á föstudag er nánasti sam-
starfsmaður Sistanis, Sheikh Ab-
dul Mahdi, notaði bænastund í
hinni helgu borg Karbala til að
hóta því að efnt yrði til mótmæla,
verkfalla og jafnvel átaka við
bandaríska hermenn ef ekki yrði
orðið við kröfum um kosningar.
Vilja að SÞ komi aft-
ur að málum í Írak
Washington, Bagdad. AFP, The Washington Post.
Paul Bremer
PERVEZ Musharraf, forseti
Pakistans, hvatti í gær pakist-
anska þingið og landsmenn
alla til að
hefja heilagt
stríð gegn
hryðjuverk-
um. Sagði
hann að pak-
istanskt sam-
félag væri á
krossgötum,
útrýma yrði öfgunum sem víða
fyrirfyndust nú um stundir.
Musharraf ávarpaði pakist-
anska þingið í fyrsta skipti frá
því að herinn í landinu rændi
völdum árið 1999. Stjórnar-
andstæðingar gerðu hins veg-
ar stöðug hróp að forsetanum
á meðan á 45 mínútna langri
ræðu hans stóð og hvöttu þeir
hann til að segja af sér. „Farðu
Musharraf, farðu Musharraf,“
hrópuðu þeir.
Hrópað að
Musharraf
Islamabad. AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að loka einni end-
urhæfingardeild á öldrunarsviði Landspítala –
háskólasjúkrahúss á næstu vikum, að sögn
Jóns Snædal, varaformanns Læknafélags Ís-
lands. Er það hluti af sparnaðaraðgerðum
spítalans. Jón tekur þó fram að sjúklingunum
verði komið fyrir á öðrum deildum öldr-
unarsviðs eða á nýjum hjúkrunarrýmum á Eir
eða Vífilsstöðum. Um 20 sjúklingar eru á
deildinni sem á að loka.
Deildin, sem um ræðir, er til húsa á Landa-
koti, en þar eru starfræktar sjö deildir. Þar af
eru tvær endurhæfingardeildir, sem opnar
eru sjö daga vikunnar og ein endurhæfing-
ardeild sem opin er fimm daga vikunnar. Með
breytingunni á að loka einni sjö daga deild og
breyta annarri sjö daga deild í fimm daga
deild. Þar með verða tvær fimm daga end-
urhæfingardeildir á Landakoti.
Jón segir að sé litið á þessar breytingar, ein-
ar og sér, skapi þær ekki stórkostleg vanda-
mál. Hann tekur sem dæmi að hingað til hafi
vandamál við lokun einnar deildar innan spít-
alans verið leyst í samvinnu við aðrar deildir.
En í ljósi þess að verið sé að skera niður á
fleiri stöðum innan spítalans sé erfiðara að
eiga við breytingar sem þessar. „Við erum
uggandi því þetta gerist allt á sama tíma,“ seg-
ir hann. Jón segir að stjórnendur spítalans séu
vissulega að reyna að útfæra sparnaðar-
tillögur eftir bestu getu. „En stærðargráðan á
verkefninu er slík að það kemur harkalega
niður á þjónustu spítalans.“
Endurhæfingardeild lokað á Landa-
koti og sjúklingar fluttir annað