Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 35
broddi fara langt fram úr sjálfum
sér og eru að gera hluti sem eng-
inn hefur séð til þeirra áður. Það
hefur líka gríðarlega mikið að
segja að danshöfundurinn Jochen
Ulrich er einn fremsti nútímadans-
höfundur í Evrópu í dag og það
hefur verið ómetanlegt að eiga
samstarf við hann um þessa upp-
setningu.“
Slæmt umtal betra en ekkert
Í söngleiknum segir frá létt-
úðugri húsmóður, Rósí, sem er
dæmd fyrir að drepa viðhaldið sitt,
Felix Ó. Felix, en hann sveik loforð
sitt um að koma henni á framfæri
og hún fær hæstaréttarlögmann-
inn Billa Bé til að verja sig. Billi er
þekktur fyrir að fá alla glæpa-
menn sem hann ver sýknaða og er
óvandur að meðölunum. Hann ráð-
leggur Rósí að taka sér nafnið
Roxie og skáldar upp handa henni
annan og átakanlegri bakgrunn til
að selja fjölmiðlunum. Í fangelsinu
kynnist Roxie Velmu K. og þær
berjast hatrammri baráttu um at-
hygli fjölmiðla og hylli Billa Bé. Í
þessum heimi er allt falt fyrir pen-
inga og fjölmiðlar eru leiksoppar
þeirra sem kunna að spila með þá
og koma sér á framfæri með öllum
mögulegum ráðum. Hér gildir hin
gullna regla skemmtanaiðnaðarins
að slæmt umtal er betra en ekkert
umtal. „Fjölmiðlaheimurinn hefur
breyst gríðarlega mikið frá því
sem verkið lýsir á 3. áratug 20.
aldarinnar. Þar voru dagblöð aðal-
uppistaðan en í dag er það sjón-
varpið með allri sinni ofuráherslu
á raunveruleikaþætti og beinar út-
sendingar. Í þessari sýningu er
fjölmiðlaumfjöllunin sett í það
samhengi og í því er aðlögunin
fólgin að tengja söguþráðinn við
nútímaaðstæður án þess að fórna
nokkru í staðinn. Verkið er nægi-
lega opið til að leyfa þessar
áherslubreytingar,“ segir Þórhild-
ur.
„Í góðum söngleikjum er alltaf
einhver broddur, svolítil ádeila, en
það er þó ekki aðalatriðið heldur
skemmtunin sem áhorfendur hafa
af sýningunni, tónlistinni, dans-
inum og leiknum. Hér er þó farið
ansi langt með þá hugmynd að
sumir eru tilbúnir að gera hvað
sem er fyrir frægðina, jafnvel
fremja morð. Þetta er auðvitað æv-
intýri, allir söngleikir eru æv-
intýri, þar sem áhorfendum er
kippt útúr raunveruleikanum um
stund. Það er ekkert raunverulegt
við að persónurnar bresta í söng
og dansa þegar minnst varir enda
liggja rætur söngleikjanna ekki
síður í sirkusnum og kabarett en í
hinu hefðbundna leikhúsi.“
Fara alveg nýja leið
Söngleikurinn Chicago var
frumsýndur á Broadway 1975 og
naut verulegra vinsælda en hvarf
þó í skuggann fyrir öðrum söng-
leik sama ár sem sló öll met; A
Chorus Line. Sannarlega ómakleg
örlög þar sem Chicago var sýnt
nærri 900 sinnum og allir voru
sammála um að þar hefði tvíeykinu
Kander og Ebb tekist frábærlega
upp enn einu sinni. John Kander
tónskáld (f. 1927) og Fred Ebb (f.
1935) hófu samstarf í byrjun 7.
áratugarins og eru enn að og hafa
þar með unnið lengur saman en
nokkurt annað tvíeyki í söngleik-
húsheiminum bandaríska. Eftir þá
liggja sígildir söngleikir eins og
Kabarett (1966), Zorba (1968) og
Koss Köngulóarkonunnar (1992)
en alls eru söngleikir þeirra 13
talsins og sá nýjasti Steel Pier var
frumsýndur 1997. Chicago var síð-
an tekinn til kostanna að nýju á
Broadway árið 1997 og sópaði til
sín áhorfendum og verðlaunum,
sýningar á söngleiknum hafa verið
óslitnar bæði vestan hafs og austan
allar götur síðan. Ekki má gleyma
að kvikmyndin sem gerð var fyrir
tveimur árum naut mikillar hylli
og hlaut Óskarsverðlaun sem
Besta kvikmyndin 2002.
Þórhildur og hennar fólk fara
alveg nýja leið að verkinu, skapa
því nýja umgjörð og nýtt samhengi
og því liggur beinast við að spyrja
hvers vegna sú leið hafi verið farin
í stað þess að sviðsetja verkið í
anda Broadway og West End.
„Ég sá sýninguna sem gengið
hefur undanfarin misseri úti í
London og fannst hún alveg frá-
bærlega skemmtileg en saknaði
þess samt að sagan í verkinu var
eiginlega alveg horfin. Áherslan
var öll á tónlistina og dansatriðin.
Okkur langaði til að gefa sögunni
meira vægi og einnig fannst okkur
verkið alveg gefa tilefni til að færa
efnið nær okkur í tíma og þó
áherslan sé ekki nákvæmlega á Ís-
land í dag þá er margt í þýðing-
unni og sýningunni sem bendir
þangað. Við höfum því kosið að
kalla þetta aðlögun en ekki stað-
færslu og oft hef ég nú séð veiga-
minni breytingar á handritum kall-
aðar leikgerðir þó svo sé ekki hér.
Þetta er auðvitað flóknari og
lengri leið en ef sýningin væri bara
stæling á því sem aðrir hafa gert,
en það var aldrei nein spurning um
annað,“ segir Þórhildur.
Morgunblaðið/Eggert
Roxie er einsog leikbrúða í höndum Billa Bé. Sveinn Geirsson og Steinunn Ólína.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 35
Enska fyrir börn
Það er leikur að læra
Námskeiðin hefjast
31. janúar
Leikskóli 6-7 ára
Talnámskeið 8-9 ára, 10-12 ára
Unglinganámskeið 13-14 ára
Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk
588 0303 fyrir 23. jan.
Ögrandi verkefni
Viltu vera með?
Hjálparsími Rauða krossins
Rauði kross Íslands leitar að sjálfboðaliðum til að taka þátt í marg-
víslegu þjónustuhlutverki Hjálparsíma Rauða krossins – 1717.
Við þurfum:
• sjálfboðaliða 23 ára og eldri
• sem eru tilbúnir að takast á við mannleg samskipti
• sem geta hlustað og sett sig í spor annarra
• sem vilja takast á við krefjandi verkefni
Við bjóðum:
• fræðslu og þjálfun um hvernig á að glíma við erfið vandamál
• fræðslu og þjálfun um hvernig á að ráðleggja börnum
og einmana fólki
• fræðslu og þjálfun um hvernig á að veita sálrænan stuðning
• fræðslu um samfélagsleg úrræði
• þátttöku í starfi fjölmennustu mannúðarhreyfingar heims
• dýrmæta reynslu sem kemur að góðum notum í starfi og leik
Kynningarfundur verður haldinn að Fákafeni 11, Reykjavík
fimmtudaginn 22. janúar kl. 17:17.
Nánari upplýsingar veitir Elfa Dögg S. Leifsdóttir í síma 568 8171 eða
í gegnum tölvupóst, elfal@redcross.is. Veffang: www.redcross.is.
Reykjavíkurdeild
Rauði kross Íslands
havar@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fjöldi leikara og dansara tekur þátt í sýningunni.